Alþýðublaðið - 16.08.1988, Qupperneq 1
Samkvæmt heimildum Al-
þýdublaðsins eru mikil brögð
að því að smáfiski sé mokað
upp án þess að komi til kasta
veiðieftirlits sjávarútvegs-
ráðuneytisins. Sjómaður sem
Alþýðublaðið ræddi við sagði
t.a.m. algengt að togarar úti
fyrir Austfjörðum notuðu
karfapoka við veiðarnar og
væri nánast þegjandi sam-
komulag um þessa aðferð á
svæðum þar sem notkun
karfapoka er ekki leyfileg. Þá
hafa sjómenn sem blaðið
hefur rætt við sagt að mjög
auðveldlega megi fara á bak
við eftirlitið og oft liði mán-
uðir án þess að sjáist til
skipa Landhelgisgæslunnar.
„Svona lagað hafa menn
ekki viljað segja opinberlega
og ekki viljað standa viö,“
sagði Jakob Jakobsson, for-
stjóri Hafrannsóknastofnun-
ar, þegar blaðið bar þetta
undir hann í gær. Upplýsing-
arnar virtusst þó ekki koma
honum á óvart: „Eina ráðið er
að draga úr veiðiheimildun-
um. Það er því langeinfaldast
að fara eftir okkar tillögum
og leyfa stofninum að byggj-
ast upp í friði,“ sagði Jakob.
Samkvæmt skýrslu sem
Hafrannsóknastofnun birti í
gær er sóknin í þorskstofn-
inn langt umfram það sem
gefur hámarksnýtingu. Gert
er ráð fyrir að þrír af hverjum
fjórum fiskum sem veiöast
1988 séu 4—5 ára þorskur,
þ.e. árgangur 1984 og 1983.
Fari afli fram úr 360 þúsund
tonnum á árinu mun það
fyrst og fremst leiða til þess
að hlutfall smáfisks í afla
aukist enn frá því sem gert er
ráð fyrir. Hafrannsókn lagði
til að aflinn yrði 300 þúsund
tonn í ár, en gert er ráð fyrir
að hann verði 360 þúsund
tonn.
Svo virðist sem mikil um-
Veiðieftirlitið hunsað. Karfapokar óspart
notaðir á þorskinn. „Eina ráðið er að draga
úr veiðiheimildunum, “ segir Jakob Jakobs-
son, forstjóri Hafrannsóknastofnunar
skipti hafi orðið í endurnýjun
þorsks síðustu árin, frá
tveimur sterkum árgöngum
1983 og ’84 yfir í tvo mjög
rýra árganga 1986 og ’87.
í tveimur síöustu skýrslum
Hafrannsóknastofnunar hefur
verið bent á að nú væri lag
að breyta nýtingu þorsk-
stofnsins á þann hátt að fisk-
gengd ykist á vertíðarsvæö-
inu þar sem elsti og þyngsti
þorskurinn veiðist. „Nú verð-
ur ekki betur séö en það
tækifæri sem við eygðum í
fyrra og hitteðfyrra hafi geng-
iö okkur úr greipum þar sem
lélegir árgangar frá 1986 og
1987 eru væntanlegir í stofn-
inn á næstu árum,“ segir f
skýrslunni.
Hafrannsókn telur Ijóst að
ef þorskstofninn á ekki að
fara minnkandi megi afli ekki
fara yfir 300 þúsund tonn árin
1989 og 1990.
Það virðist því megininntak
skýrslunnar, hvað varðar
þorskinn, að sókn í stofninn
sé afskaplega hörð — verið
sé að moka upp tveimur stór-
um árgöngum. Jakob sagði
að væntanlega yrði um sam-
drátt að ræða eftir 2—3 ár ef
ekki kæmu til göngur af ’84-
árgangi frá Grænlandi, en
seiði af þessum árgangi rak
héöan í verulegum mæli til
Grænlandsmiða. Hafrann-
sókn treystir sér þó ekki til
að segja til um að hve miklu
leyti árgangurin skilar sér til
hrygningar á íslandsmiðum.
í skýrslu Hafrannsókna-
stofnunar er lagt til að afli
ufsa og ýsu veröi svipaður og
gert er ráð fyrir í ár, en dregið
verði úr veiðum á grálúðu og
karfa.
I gær kynntu sértræðingar Hatrannsóknastofnunar spár sínar og tillögur um nýtingu fiskstofnanna. I skýrslu sinni benda þeir „pent“ á að tækifæri
sem viö eygðum i fyrra og hitteðfyrra hafi gengið okkur úr greipum, þar sem lélegir árgangar eru væntanlegir í stofninn á næstu árum. A-myndr
Magnús Emil.
ÞEGJANDI SAMKOMULAG
UM SMÁFISKADRÁPIÐ
Foldaskóli í Grafarvogi
NEMENDUR
EKKI FYRIR
Foreldrar barna i Grafar-
vogieru nú uggandi vegna
þess aö enn er byggingu nýs
áfanga að Foldaskóla ekki
lokiö, en hann á að taka í
notkun 1. september. Takist
ekki að Ijúka byggingu hans
'fyrir þann tíma er Ijóst að
nokkur hundruð börn munu
þurfa að sækja skóla i öðrum
hverfum.
Kolbrún Ingólfsdóttir, yfir-
kennari í Foldaskóla, sagði í
samtali við Alþýðublaðið að
enn væri of snemmt að segja
til um hvort einhverjum börn-
um yrði vísað frá skólanum,
því enn væri ekki útséð um
að nýi áfanginn yrði tilbúinn
á réttum tíma. í þessum nýja
áfanga væru almennar
kennslustofur og svo sér-
KOMAST
greinastofur. Kolbrún sagði
að skólinn hefði verið starf-
ræktur undanfarin 3 ár, og
hefðu 460 nemendur sótt
skólann sl. vetur. Nú eru hins
vegar 750 nemendur skráðir í
skólann. Ef kennslurýmið,
sem áætlað er að taka i notk-
un nú í september, verður
ekki tilbúið má því ætla aö
um 300 börn verði að sækja
skóla annars staðar. Einnig
er margt sem skólinn getur
ekki boðið upp á vegna
þrengsla, t.d. verður félags-
rými ekki tilbúið nú i haust.
Grafarvogurinn er hverfi í
örum vexti og gefa tölur um
fjölda barna sem skráð eru í
Foldaskóla engan veginn
tæmandi upplýsingar um
þann fjölda sem í hverfinu
býr. Kolbrún sagði að margir
nemendur hefðu börn sfn
áfram í öðrum skólum, og
svo væri 9. bekk ekið i Rétt-
arholtsskóla. Það er því Ijóst
að þörfin á úrbótum f skóla-
málum hverfisins er mjög
brýn.