Alþýðublaðið - 16.08.1988, Síða 4
4
Þriðjudagur 16. ágúst 1988
1
t MINNING +
BJÖRN JÓNSSON
fiskmatsmaður
F 18.8. 1910 D. 8.8. 1988
Það var á hádegi 8. ágúst
síðastliðinn sem mágur minn
hringdi í mig frá Þingeyri.
Hann sagði mér að Bjössi
tengdapabbi væri dáinn. í
fyrstu trúði ég varla mínum
eigin eyrum.
Mig langar hér með örfáum
orðum aö minnast Bjössa.
Mér þótti vænt um karlinn
þar sem hann sýndi mér
mikla hlýju og traust.
Ég kynntist Bjössa fyrst
sumarið 1976 er ég vann í
Hraðfrystihúsi Dýrafjarðar.
Bjössi var þá verkstjóri í salt-
fiski. Ég man hvað mér þótti
þá til karlsins koma vegna
framkomu hans við okkur
sem ungir vorum. Síðar meir
fannst mér það hans ein-
kenni að líta á aðra sem jafn-
ingja.
Sumarið 1979 kem ég aftur
'^reiðs/a
l9''e/'n vei
3J^aUf'agre/ðs(na
hvers mánaðar
ttj Undirriíaóur
4 ^"erlfullu
stadfestir
samræmi
lyrirlimnu'gúg0r,e,‘n 5
Frumrli
G'tidilutkjii
EINDAGI
. SKIIA .
A STAÐGREBSLUFE
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reiknuðu
endurgjaldi mánaðarfega. Skilin skulu
gerð eigi síðar en 15. hvers mánaðar.
Ekki skiptir máli í þessu
sambandi hversu oft I mánuði laun eru
greidd né hvort þau eru greidd fyrirfram
eðaeftirá.
Með skilunum skal fylgja greinargerð á
sérstökum eyðublöðum „skilagreinum",
blátt eyðublað fyrir greidd laun og rautt
fyrir reiknað endurgjald. Skilagrein ber
ávallt að skila einnig þó svo að engin
staðgreiðsla hafi verið dregin af
(mánuðinum.
Allar fjártiæðir skulu vera í
heilum krónum.
Allir launagreiðendur og sjálfstæðir
rekstraraðilar eiga að hafa fengið send
eyðublöðfyrirskilagrein. Þeirsem
einhverra hluta vegna hafa ekki fengið
þau snúi sér til skattstjóra, gjaldheimtna
eða innheimtumanna ríkissjóðs.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
til Þingeyrar til að vinna i HD
þar um sumarið. Þá kynntist
ég Kollu dóttur Bjössa. í
fyrstu áttu Ninaog Bjössi
erfitt með að sætta sig við
mig, stráklinginn. Um haustið
fluttumst við Kolla, ásamt
börnum hennar, til Reykja-
víkur. Þá fyrst skildi ég við-
brögð þeirra sem mótuðust
af umhyggju fyrir dóttur sinni
og barnabörnum. Bjössi baö
mig í einrúmi að passa vel
dóttur sína og barnabörn.
Upp frá því hófst hin fölskva-
lausa vinátta okkar.
Bjössi dvaldist hjá okkur
Kollu í nokkra daga í fyrra-
sumar. Eina helgina fórum
við austur að Þingvallavatni.
Á leiðinni sagði Bjössi okkur
frá því að hann hefði verið í
sveit þarna rétt hjá, í Stíflis-
dal í Þingvallasveit. Einnig
sagði hann okkur frá för
sinni á Alþingishátíöina 1930
ásamt bróður sinum Gísla.
Bjössi var mikið þakklátur
fyrir þennan bíltúr þar sem
margir áratugir voru síðan
hann hafði farið þarna um
síöast.
Bjössi hóf snemma sjó-
mennsku, aðeins 18 ára. Tók
hann stýrimannapróf og
stundaði sjóinn sem slíkur
og einnig sem skipstjóri á
vélbátum. 1954 fór Bjössi i
land og aflaði sér réttinda
sem matsmaður á skreið og
saltfisk. Vann Bjössi í frysti-
húsi Dýrfirðinga fram á sein-
asta dag og vann eins og
hver annar fullfrískur maður.
Var hann talinn verkmaður
góður og vandvirkur.
Oft a meðan viö dvöldumst
fyrirvestan kom Bjössi til
mín og bað mig að koma í
bíltúr. I þessum biltúrum
ræddum við um heima og
geima. Bjössi tók málstað
lítilmagnans í þjóðfélaginu,
var á móti matarsköttum
allrahanda og sífelldum kjara-
skerðingum sem bitnuðu illa
á verkafólki, enda var Bjössi
verkalýðssinni og jafnaóar-
maður. Hann var formaður
sjúkrasjóðs verkalýðsfélags-
ins Brynju á Þingeyri og vildi
sterka verkalýðshreyfingu og
baráttusinnaða gegn miklu
valdi atvinnurekenda. Oft
talaði hann um að hann yrði
því fegnastur að vinstri menn
á íslandi sameinuðust í
einum sterkum verkalýðs-
f lokki.
Ég veit að þessi orð eru
fátækleg og að Bjössi hefði
ekki oróið par hrifinn af slíkri
grein, en ég mátti til. Þessi
skrif hjálpa manni kannski til
að sætta sig viö oróinn hlut.
Þetta er eina leiðin til að
þakka samfylgdina síðast-
liðin 9 ár, sem hafa verið
ánægjuleg og góð.
Ég samhryggist tengda-
móður minni, henni Ninu,
innilega sem og öðrum
skyldmennum. Andlát ást-
vina veldur alltaf mikilli sorg
en lífið heldur áfram.
Bjarni Jónsson