Alþýðublaðið - 16.08.1988, Qupperneq 5
Þriðjudagur 16. ágúst 1988
5
Svo virðist sem hækkun ibúðarverds á Akureyri verði ekki jafmikil i ár og síðastliðið ár.
íbúðarverð á Akureyri
Hækkaði um 38% umfram vísitölu
Á sama tíma voru hœkkanir á Suðurnesjum ríflega umfram almennar verðlagshœkkanir
Páll Halldórsson
fasteignasali á
Akureyrí:
Verðið var
óeðlilega lágt
en komst í 80—85% af
íbúðarverði á Reykja-
víkursvœðinu undir lok
síðasta árs.
„í byrjun ’86 var húsnæðis-
verð hérna í lágmarki. Það
var raunar óeðlilega lágt því
það var ekki nema 60—65%
af byggingarkostnaði. Hús-
næðisstofnuri úthlutaði
siðan fjölda lána á einu bretti
og þá jókst eftirspurnin um-
fram framboö,“ sagði Páll
Halldórsson, sölustjóri hjá
fasteignasölunni Eigna-
kjörum á Akureyri, við Al-
þýðublaðið i gær.
Páll sagði að svo virtist
sem íbúðarverð á Akureyri
hefði í lok síðasta árs verið
komið í 80—85% af verði á
Reykjavíkursvæðinu. „Mér
virðist frekar hafa dregist
sundur aftur.“
Húsnæðisskortur er enn
mikill á Akureyri, að sögn
Páls, og í dag munar ekki
ýkjamiklu á leiguverði á Akur-
eyri og í Reykjavik.
Fermetraverð ibúða á Akur-
eyri hækkaði um rúmlega
60% frá síðari hluta árs 1986
til síðara hluta árs 1987, sem
er um 36% til 38% umfram
almennar verðhækkanir. Ekki
mældist meiri hækkun á ár-
inu á öðrum svæðum sem
Fasteignamat ríkisins birtir
reglulega upplýsingar um.
Söluverö þriggja herbergja
íbúöar á Akureyri reyndist
31.463 á fermetra og útborg-
unarhlutfallið um 81,4%.
í nýju fréttabréfi frá fast-
eignamatinu er fjallað um
íbúðarverð á höfuðborgar-
svæðinu, á Akureyri og á
Suðurnesjum áárinu 1987.
Þar kemur fram að i þeim
miklu verðhækkunum sem
orðið hafa á íbúðarhúsnæði
síðustu misseri hafa hækk-
anir í Keflavík og Njarðvík
ekki orðið eins miklar og í
Reykjavík og á Akureyri. Út-
borgunarhlutfall hefur hækk-
að aðeins á Suðurnesjum, en
er þó enn undir 70%. Á und-
anförnum árum hefur útborg-
unarhlutfall á Suðurnesjum
verið lægra en á öðrum
svæðum.
Verðhækkanir á Suðurnesj-
um héldu rétt riflega i við
verðbólgu en voru um
36—38% umfram almennar
verðhækkanir á Akureyri. Á
höfuðborgarsvæðinu voru
hækkanirnar 19—27% um-
fram vísitölu, á söluverði ein-
býlishúsa.
Að mati fasteignamatsins
Leiðrétting:
10 EN EKK119
Sú leiðinlega prentvilla
slæddist inn í fyrirsögn á við-
tali við Sigurð Gunnsteins-
son, dagskrárstjóra SÁÁ á
Sogni, í laugardagsblaði Al-
þýðublaðsins að Sogn væri
19 ára. Að sjálfsögðu átti að
standa 10 ára eins og reyndar
kom fram i textanum. Alþýðu-
blaðið biður Sognverja og
lesendur velvirðingar á þess-
ari lymsku prentvillupúkans.
eru skýringar á verðhækkun-
um ekki einhlítar, en í frétta-
bréfinu segir að þær helstu
sem gilda fyrir landið allt séu
eftirfarandi:
1. Auknar þjóðartekjur og
aukinn kaupmáttur frá fyrri
hluta árs 1986 til loka árs
1987.
2. Aukin lánafyrirgreiðsla til
kaupa á eldra húsnæði.
Hækkaðir vextir hafa
sennilega haft takmörkuð
áhrif til að halda í við verð-
hækkanir, því vextir á hús-
næðislánum hafa ekki hækk-
að, svo og sýnir athugun sem
gerð var nýlega hjá FMR að
vextir lána eru skráðir á um
helming kaupsamninga, svo
aðilar á fasteignamarkaði
virðast ekki athuga náið hæö
og tilvist vaxta. Þegar ofan-
greindar ástæður eru athug-
aðar skýra þær ekki hina
misjöfnu verðþróun eftir
svæðum.
Þessar ástæður hljóta þvi
að vera staðbundnar, s.s.
atvinnuástand, aðflutningur
fólks og lóðaframboð.
Útborgunarhlutfall hefur
hækkað á öllum svæðum,
mest á Akureyri, 10—11%, þá
í Reykjavik, 4—5%, og
minnst á Suðurnesjum, um
3%. Augljóst er að jákvæð
tengsl eru á milli hækkunar
verðs og útborgunarhlutfalls.
Tiltölulega fleiri einbýlis-
hús eru seld.á Akureyri og
Suðurnesjum en i Reykjavík.
Vinningstölurnar 13. ágúst 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 3.926.768,-
1. vinningur var kr. 1.965.176,- og skiptist hann á milli 4ra
vinningshafa, kr. 491.294,- á mann.
2. vinningur var kr. 589.182,- og skiptist hann á 226 vinnings-
hafa, kr. 2.607,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.372.410,- og skiptist á 5.967 vinnings-
hafa, sem fá 230 krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mí \m
fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111