Tíminn - 09.12.1967, Side 6
LAUGARDAGUR 9. descmber 1967,
TÍMINN
t'f.yrr
r
I ÞOKUNNI
Skyndileg hugmynd fékk George Smiley til að
hringja á dyrabjöllunni á húsi sínu í stað þess
að nota húslykilinn og ganga rakleiðis inn. —
Ökunnur mauðr lauk upp og bauð húsráðanda að
ganga í bæinn. En Smiley gekk ekki inn. Hann
taldi, að hann hefði mesta möguleika á að halda
lífi, ef hann forðaði sér í skyndi.
Snilldarlega skrifuð njósnabók eftir meistara
slíkra skáldsagna, Johr Le Carré, höfund met-
sölubókarinnar „NJÓSMARINN, SEM KOM
INN ÚR KULDANUM".
Illllll
mmmW:
. : ■:
■:<
ANDRES KRISTJANSSON SKRIFAR UM
IVEeð Nansen í hafísnum
Hjá seium og hvítabjömum:
eftir Fridtjov Nansen.
Jón Eylþórsson þýddi
ísaföld gaf út.
Mér er það sífellt í minni, að
ein hin fyrsta bótk sem ég reyndi
að stauta mig fram úr á d'önsku
up>p úr fermingu, var íishafsibók
eftir Friðþjóf Nansen. Mér er
nær að halda, að það sé einmitt
bók sú, er Jón Eyþórsson hefur nú
þýtt, en síðar las ég fleiri bækur
eftir Nansen, og enginn, sem vax-
inm er upp á geimferðaöld getur
imyndað sér hvílíkar hetjur Nan-
sen og Atnuodsen voru í augum
islenzkra fermingarstráka um
1930.
Jón Eyþórsson segir í formála,
að sér leiki talsverð forvitni á því
að sannreyina, hvort hann sé einn
um það að finnast þæsi bók Frið-
þjófs Nansens bæði skemmtileg
og fræðandi, og segist hann hafa
snarað henni á íslenzku sér til
dægradvalar.
Ekki mun Jón einn um þá dá-
leika, en hitt er ég smeykur um,
að flestir samsinnismenn hans
um þ^tta séu komnir yfir miðjan
aídur,- Garnán væri t.d. að „sann-
reyna’1 það, hve margir 17 ára
unglingár vita eitthvað um Frið-
þjóf Nansen og ferðir hans. Ég
Frlðþjófur Nansen
er hræddur um, að þeir séu fáir.
Hitt væri ánægjulegt, ef útkoma
þessarar bóikar á íslenzku vekti á-
huga ungra lesenda á ævintýrum
og stórræðum þeirra könnuða,
sem stikluðu íshöf og heimskauta
lönd á tivejm jafnfljótum eða
sætrjám án hreyfils, hvað þá flug-
véla eða kafbáta.
Friðþjófur Nansen var ekki að
eins frækinn ferðamaður i hafís
og jöklum, heldur eininig greinar-
góður dýrafræðingur, allgóður rit
höfundur og meistaraskytta. Og
hann hafði eitt umfram flesta
aðra fræga könnuði norðurskauts
svæðisins — hann var lipur drátt-
listarmaður, en það var ekki lit-
ill hvalreki á þeim árum, er
myndavélar voru lítt í heimskauta
ferðum, og raunar hafa slik tæki
ætíð reynzt fremur umhendis á
þessum slóðum. Bækur Nan^ens
höfðu það því umfram flestar aðr
ar íshafshækur, að þær voru með
ágætum teikniugum, sem ■ efldu
aila frásögn að miklum mun. Svo
er um þessa bók. f henni er fjöldi
frábærra teikninga.
í þessari bók er ýtarlega sagt
frá lifnaðarháttum sela, hvíta-
bjarna og hvala, sem í íshafinu
lifa, og er öll sú frásögn byggð
á gaumgæfilegum athugunum
Nansens sjálfs. Má sérstaklega
nefna ýtarlega kafla um vörðusel
og blöðrusel í þessari bók. Getur
Jón Eyþórsson þess réttilega, að
margt í þessum fræðum Nansens
hafj orðið sígildur fróðleikur, sem
náttúrufræðimgar, t.d. Bjarni Sæ.
mundsson, hafi mjög byggt á.
Þessum fróðleiksköflum skýtar
Nansen inn i ferðafrásögnixu,
sem annars er mjög byggð á da;:-
bók og felld í það form.
Óþarfi er að mæla 1 nokkru
með þýðingu Jóns Eyþórssonar.
Tungutak hans þeikkja margir og
sérþekking hans á ísfræðum er
trygging þess, að ekkert sé af-
bakað fyrir Nansen. Síðar mun
það verða talinn ómetanlegur
happafengur, að Jón Eyþó-ison
skyldi gefa sér tóm til að þýða
þessa bók Nansens. og fyru það
verður hún sérstakur kjörgnpur.
Það er ekkert ofsagt í þeirri aug-
lýsingu, sem finna má mnan á
kápu bókarinnar, að þetta sé „á-
gæt bók handa strákum á öllum
aldri frá átta til áttatíu ára“ Vafa-
samt er, áð nokkur bók sí&nái
betur undir þeim. Útgáfaa “ bja
myndarlegasta af hendi ísatu dar-
prentsmiðju.
-AK
Fiskibátar til sölu
Nofckrir fiskibatar af stærðunum 30—100 rúm-
lesta, með öllum fullkomnustu siglinga- og fiski-
leitartækjum. Nokkrum bátanna geta fylgt í
kaupum veiðarfæri til flestra velða. Góð lánakjör
og hófleg útborgun.
SKIPAr OG
VERÐBRÉFA-
rSALAN^
JSKIPÁ-
Ileiga
IvESTURGÖTU 5
Talið við okkur um kaup. sölu og leigu fiskiskipa.
JOHN LE CARRÉ
höfundur þessarar njósnasögu, er fæddur í Eng-
landi árið 1930 og heitir téttu nafni David Corn-
well. Hann stundaði nám í nútímamálum við
háskólana í Oxford og Bern, gerðist síðan kennari
við Etonskóla, en varð að því búnu starfsmaður
utanríkisráðuneytis Breta Hann þekkir þvi það
svið, sem hann fjallár um í bókum sínum, sem
selzt hafa i risaupplögum víða um lönd-
NJÓSNARINN . ÞOKUNNl þykir með öllum
einkennum hins góða höfundar ■ sem gerþekkir
viðfangsefnið sitt og kann þá Iíst að halda athygli
lesandans frá upphafi tiJ enda.
Bókaútgáfan Vörðufell
FRAMLEIÐENDUR — INNFLYTJENDUR
Sjávarútvegssýningin
„ÍSLENDINGAR OG HAFID"
sem haldin verður í Sýningarhöllinni í Laugardal og umhverfi
hennar, á vori komanda, gefur hér með framleiðendum og inn-
flytjendum, sem starfa í bágu útvegsins, kost á að kynna varn-
ing sinn á sýningunni.
Þeir aðilar, sem áhuga hafa á þátttöku í sýningunni geri aðvart
um það skriflega í skrifstofu Sjómannadagsráðs, Hrafnistu,
Reykjavík, sem allra fyrst, og eigi síðar en 15 janúar 1968.
Þeim verða síðan sendar ýtarlegar upplýsingar um kostnaðar-
áætlun og önnur atriði, sem máli skipta.
FRAMKVÆMDASTJÓRN SÝNINGARINNAR