Tíminn - 09.12.1967, Side 8

Tíminn - 09.12.1967, Side 8
\ VETTVANGUR TfMINN ÆSKUNNAR LAUGARDAGUR 9. desember 1961. Mjög fróðlegt að kynnast við- tiorfum erlendra skoðanabræðra ■ segir Þorsteinn Skúlason, stud. jur. Undanfarið ár hefur Þorsteinn kúlason, stud. jur., verið formað r Félags frjálslyndra stúdenta í áskóla íslands. Við höfum feng i hann til okkar, og hann ætlar 5 svara nokkrum spurningum. — Hvenær var Félag frjáls- ndra stúdenta stofnað? — Félagið var stofnað 29. apríl )39, og voru upphaflegir stofn- ndur 25 að tölu. Meðal þeirra nru ýmsir núverandi prófessorar 'þingismenn og jafnvel hæstarétt •dómarar, svo að dæmi séu efnd. Félagið hefur starfað alla ð síóan og starfsemin með köfl- m verið hin fjörlegasta. — Hvenær tók stjórn þín við iaginu? — í nóvember fyrir ári. For- ;aður árið áður var Friðgeir jörnsson, stud jur. í stjórninni etta ár hafa hins vegar setið: orsteinn Skúlason, stud. jur. for- iaður, Rúnar Guðjónsson, stud. ir. varaform., Finnbogi Alexand- •sson stud. jur. ritari, Hjálmar r^ysteinsson stud. med. gjald- eri og Guðbrandur Steinþórsson ud. polyt, spjaldskrárritari. aramenn eru Gísli Magnússon ud. philol. og Völundur Jónsson ud. philol. — Hvaða fundir hafa helztir ver i haldnir á árinu? — Fyrir jól í fyrra komu Ey- .einn Jónsson, Helgi Bergs og lafur Jóhannesson saman á fund, ar sem þeir ræddu um stefnu ramsóknarflokksins og svöruðu /rirspurnum. í febrúar kom Þór -inn Þórarinsson alþm. og rit- :jóri á fund hjá okkur og talaði m stríðið í Vietnam og svaraði /rirspumum. Á sama fundi var ímþykkt, að félagið skyldi ger- st stofnaðili að hinni íslenzku ietnam-nefnd, sem síðan var- trmlega stofnuð með fundi í jarnarbúð, eins og menn muna. ulltrúi okkar í stjórn nefndar innar hefur verið Finnbogi Alex adersson. Þá hafa verið haldnir fleiri fé- lagsfundir. Auk þess má nefna, að á s. 1. vori þágum við boð rússn eska ambassadorsins um að sjá hina stórfróðlegu kvikmynd Venju legui fasismi, sem fjallar um upp- gang Hitlers í Þýzkalandi eftir 1930. Þorsteinn Skúlason bandi við erlend samtök af svip- uðum toga? — Jú, við höfum í nokkur ár haft samband við samtökin World Federaition of Liberal and Radical Youth. Haustið 1966 geng um við svo formlega í þessi sam tök á ársþingi þeirra í Varese á Ítalíú/'óg var Friðgeir Björnsson þar fulltrúi okkar. Þessi innganga okkar hafði mjög óverulegar skuld bindmgar í för með sér, enda eju þessi samtök fremur lausleg. Þess má geta, að Samband ungra Fram sóknarmanna er í lauslegum tengslum við sömu samtök (WFL RY). Þessi samtök' samanstanda af æskulýðshreyfingum frjálslyndra og róttækra flokka, sem svo kalla sig, í Evrópulöndum og víðar. Ann ars er talsverður munur á stefnu þessara flokka eftir löndum, og i sumum löndum, t. d. Danmörku eru tvenn pólitísk æskulýðssamtök aðilar að heimssambandinu. — Á þennan hátt geta fulltrúar Félags frjálslyndra stúdenta kynnzt viðhorfum jafnaldra sinna erlendis? — Já, við fáum sendar margvís legar upplýsingar, bæklinga o. fl. frá WFLRY og ekki sízt deildinni á Norðurlöndum. Þá hafa fulltrú ar frá okkur undanfarin ár sótt Sohool of Freedom, sem svo er nefnt, en það eru stutt, alþjóð leg nátnskeið um stjórnmál, yfir leitt haldin ár hvert eða oftar, venjulega í Þýzkalandi. Að þessum námskeiðum standa m. a. WFLRY og samtökin Liberal International sem eru alþjóðasamtökí í miklum tengslum við WFLRY. — Þú munt hafa farið slíka för í sumar? — Já, það er rélt. Ég sótti School of Freedom í Gummers- bach, sem er smáborg um 50 km frá Köln. Þetta var á s. 1- sumri, og námskeiðið stóð í 10 daga eða svo, og því lauk í Berlín. Þetta var mjög fróðleg og ánægjuleg för, enda er okkur fátt gagnlegra en kynnast sjónarmiðum fólks af öðrum þjóðum. — Svo að vikið sé að öðru, viltu þá ekki segja eitfchvað um starfið innan Stúdentafélags Há- skóla íslands? —i Eins og menn muna var Stúdentafélag Háskólans endur- vakið í fyrrahaust. Félag frjáls- lyndra stúdenta hefur bæði þá og í ár ’stutt B-lista við stjómar- kjör í félaginu, og höfum við því stutt meirihluta stjórnarinnar sem mest við höfum mátt. Félagið hefur að mínu viti farið mjög myndarlega að stað undir stjórn B-listans, og hefur starfsemi þess Framhald á bts 15 Að vonum vakti fullveldisræða Sigurðar A. Magnússonar nú á dögunum verulega athygli. Morgunblaðið valdi af alþekktri smekkvísi nokkra stutta kafla úr ræðunni til birtingar, og tókst þannig að láta svo líta út sem ræðumaður hefði látið uppi allt aðrar meginskoðanir en raun bar vitni. Að öðru leyti hefur Morgunblaðið forðazt að geta um þessa ræðu fyrrverandi blaða manns síns, og þannig sannað í verki áhuga sinn fyrir hlut- lægum umræðum um stöðu íslands á alþjóðavettvangi. Alþýðublaðið skrifaði hins vegar leiðara, þar sem reynt var að andmæla sumum rökum Sig. A. Magnússonar. Var frammi- staða blaðsins að því leyti mannborlegri en Morgunblaðsins. Hitt er svo annað mál, að leiðarahöfundi Alþýðublaðsins tekst óhönduglega í röksemdafærslu sinni. Má benda honum á, að þótt áhrif Rússa í Austur-Evrópu hafi vissulega stóraukizt, svo að ekki sé meira sagt, á árunum 1945—1951, hefur þvi samt aldrei verið haldið fram’ að ísland, sem tvímælalaust tilheyrði áhrifasvæði Vesturveldanna, hafi verið í beinni hættu vegna yfirgangs Rússa, þannig að Slík yfirvofandi hætta hafi réttlætt komu Bandaríkjahers hingað 1951. Ennfremur er rétt að benda leiðarahöfundi Alþýðublaðsins á, að Keflavíkursjónvarp- inu hefur enn ekki verið lokað betur en svo, að það sést enn á mörgum stöðum í Reykjavík. Þá er og mjög hæpin aðferð að væna Sig. A. Magnússon og hina fjölmörgu skoðanabræður hans um lélega söguþekkingu. Hitt er hins vegar jákvætt, að Alþýðublaðið skuli viðurkenna réttmæti heilbrigðrar gagn- rýni á stefnu ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum afdráttarlaust. Um 1960, þegar hægrimenn voru við völd meðal háskóla- stúdenta, var 1- des. hvað eftir annað notaður til að koma á framfæri sjónarmiðum ríkisstjórnarinnar. Gegndi þá furðu, hve hátt settir ráðamenn gátu lagzt lágt í fullveldisræðum. í hittiðfyrra var hins vegar brotið blað með ræðu Sigurðar Lín- dal, og með ræðu séra Þorgríms í fyrra og loks Sigurðar A. Magnússonar nú, hefur verið haldið áfram á sömu braut. Víðast hvar erlendis hafa stúdentar verið í fararbroddi meðal róttækari þjóðfélagsafla. Hér hefur minna farið fyrir slíku. Á hinn bóginn er ljóst, að með því að stuðla að ábyrgri og heil- brigðri gagnrýni á alla undanlátssemi gagnvart erlendum stjórn- völdum, eins ogj mátt hefur finna í fullveldisræðunum síðustu þrjú árin, markar meirihluti stúdenta sér stöðu, þar sem áhríf '1 þeirra geta einmitt hváð helzt orðið til góðs. Baráttunni fyrir sjálfstæði þjóðarinnar og varðveizlu þjóð- ernisins á aldrei að ljúka. Á meðan meirihluti uppvaxandi menntamanna okkar gerir sér þessa meginstaðreynd ljósa, ætti ekki að vera ástæða til að örvænta. Ritstjóri Björn Teitsson Aðalfundur FUF í Vestur-Skafta- fellssýslu Aðlfundur FUF í Vestur- Skaitafellssýslu var haldinn í Vík í Mýrdal laugardaginn 18. nóvember s. 1. Á fundinum fóru fram venju leg aðalfundarstörf. Auk þess var einkum ræfct um framtíðar verkefni. Á fundinum gengu rúmlega 20 nýir meðlimir i félagið. Gestir fundarins voru Bald ur Óskarsson form. SUF og Pétur Einarsson form- Félags ungra Framsóknarmanna í Kópavogi. Baldur ávarpaði fundinn og ræddi um síðustu atburðina í íslenzkum stjórn málum. Ennfremur rakti hann starfsáætlun Sambands ungra Framsóknarmanna. Að ræðu Baídurs lokinni hófust aimenn- ar umræður. Síðan-fóru fram kosningar í stjórn og fulltrúaráð. Formaður félagsms var kjörinn Einar Valdimarsson, Kirkjubæjar- klaustri. Auk hans voru kosn ir í stjóm og fulltrúaráð: Páll Helgason, Fossi Friðrik Friðriksson, Mörk, Bergur Ingibergsson, Melhól, Valur Oddsteinsson, Úthlið, Kristín Rútsdóttir, Vik Birgir Hinriksson, Vík Garðar Bjarnason, Vík, Eyjcifur Sigurjónsson, Pétursey. Að lokum sleit formaður fé iagsins, Einar Valdimarsson, fundinum og þakkaði mönnum góða fundarsetu. Auk þessa er rétt að geta Frá Vík i Mýrdal. þess, að laugardagskvöldið 2. des. s. 1. gekkst Fglag ungra Framsóknarmanna í Vestur- Skaftafellssýslu fyrir spila- kvöld á Kirkjubæjarklaustri, og var það mjög vel sótt, að því er formaður félagsins tjáði tíðindamanni Vettvangs æsk- unnar nú í vikunni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.