Alþýðublaðið - 20.09.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 20.09.1988, Blaðsíða 1
briðjudagur 20. september 1988 STOFNAÐ 19*19 175. tbl. 69. árg. Steingrími falið umboð til stjónrarmyndunar M Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokks- ins kvaðst gefa sér 4-5 daga til að reyna myndun meiri- hlutastjórnar þegar forseti íslands veitti honum umboð til stiórnarmyndunar í gær. Á sunnudagskvöld og fyrri hluta mánudags munu Jón Baldvin og Ólafur Ragnar Grímsson hafa rætt óform- lega um mögulega þátttöku Alþýöubandalagsins í ríkis- stjórn og inn í þær viðræður blandaðist hugmynd um að nýta tækifærið til að vinna að víðtæku samstarfi A-flokk- anna til lengri tíma litið. í gær sátu Halldór Ásgríms- son og Jón Sigurðsson á fundi og fínpússuðu sam- komulag Framsóknar- og Al- þýðuflokks og að loknum þingflokksfundi Alþýðu- bandalagsins kl. 16 í gær hófust formlegar stjórnar- myndunarviðræður A-flokk- anna og Framsóknar sem fram fóru í sjávarútvegsráóu- neytinu. Alþýðubandalagið gengur til þessara viðræöna á grund- velli samkomulags Alþýðu- flokks og Framsóknar en setur ýmis skilyrði s.s. um aö verkalýðssamtökin fái aftur samningsrétt sinn og að komið verði í veg fyrir kjara- rýrnun. Ennfremur krefjast Alþýöubandalagsmenn jaess að matarskatturinn verði lækkaöur. Þrátt fyrir að Framsókn og Alþýðuflokkur vilji Ijúka stjórnarmyndun af á skömm- um tíma þykjast menn nú þegar sjá þess merki að við- ræðurnar séu að færast inn á það stig að slíkt geti tekið lengri tíma. Nú virðist útilok- að að þessir flokkar myndi ríkisstjórn nema hafa til þess meirihlutastyrk á þingi en á hægri vængnum hafa Sjálf- stæðisflokkur og Borgara- flokksmenn þó haldið áfram óformlegum viðræðum sín á milli um hugsanlega minni- hlutastjórn þessara flokka. i í gærkvöldi birti Stöð 2 niðurstöður skoðanakönn- unar um fylgi flokkanna sem hefur vakið athygli i stjórnar- myndunarþreifingunum. Skv. könnuninni eru 64% aðspurðra andsnúnir stjórn- armynstri Steingrims Her- mannssonar en 35.8% sögðu að sér litist vel á það. Af þeim sem tóku afstöðu vildu um 39% að kosningar yrðu haldnar strax og 9% kosn- ingar fyrir áramót. I könnuninni fengi Alþýóu- flokkurinn 13.5% sem er veruleg aukning frá fyrri könnunum en um 2% undir niðurstöðu síðustu kosninga, Framsókn fengi nú 22.6% sem er aukning frá kosninga- fylgi flokksins. Sjálfstæðis- flokkurinn tapar fylgi skv. könnuninni og fengi 25.6% Alþýðubandalag fengi 10.8%, Borgaraflokkurinn fengi 3.5% og Kvennalistinn fengi 21.3%. Stjórnarmyndunarvalkostir eru nú ræddir í öllum krókum og kimum flokkanna þrátt fyrir að aðeins séu liðnir tveir dagar frá því að Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra gekk á fund forseta og baðst lausnar fyrir ríkisstjórnina eftir rúmlega 14 mánaða valdasetu. Á baksíðu er stiklað á stóru um aðgerðir og kreppulægðir í stjórnar- samstarfinu. Sjá einnig fréttaskýringar á bls. 3 og 5. Fyrstu formlegu stjórnarmyndunarviðræðurnar hófust i gær þegar Steingrimur Hermannsson boðaði til fundar milli fulltrua Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags i sjávarútvegsráðuneytinu klukkan fjögur. A-mynd/Magnús Reynir. MINNIHLUTASTJORN ÚT AF B0R0INU Stefán Valgeirsson VID HALLDOR RÖKRÆDDUM TILLÖGURNAR „Ég hef auðvitað átt sam- ræður viö ýmsa en það er ekkert sem kalla má form- legar stjórnarmyndunar- viðræður. Halldór Ásgrims- son hringdi i mig og bauð mér aö skoða með sér þessi drög Framsóknar og Alþýðu- flokks og við fórum saman yfir helstu punktana. Rök; ræddum um þá suma,“ sagði Stefán Valgeirsson. En hvernig lýst honum á samkomulagið? „Það er mis- gott og ég á eftir að velta ýmsu þar betur fyrir mér því það má segja að þar séu sumar blaðsíðurnar auðar ef svo má segja. Það snertir m.a. það hvernig koma megi einhverju aftur til baka sem búið er að sjúga frá fram- leiðslunni,“ segir Stefán. Hann segir að ekki hafi verið farið fram á það við sig að taka þátt í formlelgum við- ræðum A;flokkanna og Fram- sóknar. „Ég þarf að hafa sam- band við fólk í minu kjör- dæmi og það hafa verið að hringja í mig menn úr öllum kjördæmum i dag sem vilja leggja á ráðin með mér. Þetta fólk hefur taláð um það að ef farið veróur út i kosningar verði sett fram sérstakt fram- boö sem bjóöi fram í öllum kjördæmum," segir hann. LÆKKUN í sameiginlegum grundvelli Alþýöuflokks og Framsóknar um aðgeróir í efnahagsmál- um er gert ráö fyrir frystingu launa og verölags fram til 10. apríl. Aöeins veröi heimilt aö hækka verö vöru og þjónustu sem nemur sannanlegri hækkun á erlendu innkaups- veröi eöa hækkun á innlend- um grænmetis- og fisk- mörkuðum. Hækkun búvöruverös um- fram áhrif erlendra verö- hækkana veröi mætt meö auknum niðurgreiðslum. Til þess veröi aflað tekna í ríkis- sjóö. Þá veröi gjaldskrár fyrir- tækja ríkis eöa sveitarfélaga og gjaldskrár sjálfstætt starf- andi sérfræðinga óbreyttar til 10 april. Ennfremur veröi óheimilt aö hækka húsa- Stjórnarsáttmáli Alþýðuflokks og Framsóknar VAXTA OG BREYTT LÁNSKJARAVÍSITALA leigu. I sameiginlegu plaggi flokkanna tveggja sem þeir leggja til grundvallar í stjórn- armyndunarviðræöunum er ákvæði um að jafnhliða launastöðvun verði launaliður bænda í verðlagsgrundvelli búvöru óbreyttur á sama tímabili og almennt fiskverð miðað við júni s.l. haldist óbreytt til 10. apríl. Aðgerðir til að bæta af- komu útflutningsatvinnuvega ganga út á að Veröjöfnunar- sjóöi verði heimilt að taka innlend og erlend lán með ríkisábyrgð upp á 500 millj- ónir kr. Andvirðinu verði varið til að greiða verðbætur á framleiðslu freðfisks og hörpudisks. Ríkið beitir sér fyrir endur- skoðun afurðalánakerfis sjávarútvegs, iðnaðar og landbúnaðar og við það miðað að hlutfall afurðalána af söluandvirði verði ekki lægra en það var meðan Seðlabankinn sá um fjár- mögnun þessara lána. í aðgerðunum á að auka niðurgreiðslur á ull um 30 m.kr. á næstu sex mánuðum. Fjórðungslækkun á raforku- verði til frystihúsanna verði sett á dagskrá fyrstu að- gerða. Uppsafnaður sölu- skattur fiskeldis og loðdýra- ræktar verði endurgreiddur og svo ekki síst veröi komið á fót viðreisnarsjóði útflutn- ingsgreina í því skyni að leysa úr vanda fyrirtækja í út- flutningsgreinum með lánum og skuldbreytingum. Sjóður- inn fái tvo milljarða til ráð- stöfunar á næstu tveimur árum. Þá verði framlag ríkis- sjóðs til Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs upp á 200 milljónir kr. sett í viðreisnarsjóðinn á naestu tveimur árum. í vaxtakaflanum er gert ráð fyrir viðræðum við lánastofn- anir um lækkun vaxta og gangi það ekki eftir komi Seðlabankinn með beinni ihlutun i vaxtakjörin á mark- aðnum. Miðað verði við að nafnvextir lækki um 5-10% í næsta mánuði og með því aö ríkisstjórnin beiti sér fyrir 3% lækkun meðalraunvaxta á spariskírteinum og í samn- ingum m.a. við lífeyrissjóöi leiði slíkt til almennrar raun- vaxtalækkunar. Þá er gert ráð fyrir breyt- ingum á grunni lánskjaravísi- tölu, dráttarvextir reiknist framvegis sem dagvextir og dregið verði úr vaxtamun við ákvörðun á afurðalánum út- flutningsatvinnuvega. Lög um fjármagnsmarkað- inn verði sett á haustdögum og 1. okt. hækki tekjutrygg- ing elli- og örorkulífeyrisþega um 3%. Einnig verði aflaö 150 milljónum kr. til skuld- breytinga hjá húsbyggjendum í greiðsluerfiðleikum. Síðast en ekki síst eru ákveðnar yfirlýsingar um aðhald í rikisfjármálum og lánsfjármálum sem m.a. skili ríkissjóði 1% tekjuafgangi á næsta ári en að óbreyttu stefnir I 3.5 milljarða halla á ríkissjóði á næsta ári.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.