Alþýðublaðið - 20.09.1988, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 20.09.1988, Blaðsíða 8
Ríkisstjórnin — Im memorian AÐGERÐIR OG KRÍSUR Á Þorsteinn Pálsson á Bessastöðum um helgina, þar sem hann baðst lausnar fyrir sig og sitt ráðuneyti. Rikisstjórn Þorsteins Páls- sonar var mynduö meö form- legum fundi 8. júlí 1987, en mest öll vinnan hafði hins vegar átt sér staö er Jón Baldvin Hannibalsson hafði stjórnarmyndunarumboðið frá 2. júní. Fljótlega eftir að Jón fékk umboðið tóku Alþýðuflokkur, Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokk- ur að ræðast ítarlega við, frammi fyrir stórlega vaxandi halla rikissjóðs og öðrum efnahagsvandamálum. En þegar Jón skilaði af sér var nánast allt útkljáð — nema vai manna í ráðherrastóla. Málið var leyst með því að fá Þorstein Pálssyni umboðið og Framsóknarflokkurinn fékk aukalegan stól. Stefnuyfirlýsing og starfs- áætlun stjórnarinnar varu ítarlega fram sett og hér í Alþýðublaðinu leiddi Ingólfur Margeirsson rökum að þvi að mestan heiðurinn að sáttmál- anum ætti Alþýðuflokkurinn, nánar tiltekið Jónarnir tveir. Hér verður ekki farið ítar- lega út í „Krataglaggið". Meðal helstu markmiða voru stöðugt gengi, lækkun erlendra skulda, jafnvægi I ríkisfjármálum á 3 árum, bætt eftirlit með framkvæmd skattalaga, stuðlað yrði að eðlilegri byggðaþróun í land- inu, óbreytt utanríkisstefna í grundvallaratriðum, aukin framleiðni með styttum vinnutíma og bættum kjörum hinna lægstlaunuðu, kjör kvenna bætt og áhirf þeirra aukin, samræmt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn, jafnari skiptingu lífskjara, bætt að- staða aldraðra og fatlaðra, traustari fjárhagsgrundvöllur húsnæðiskerfisins með auknu valfrelsi, virkari stjórn- kerfi hins opinbera og efld íslensk menning, menntun, rannsóknir og vísindi. Megin- þættir í efnahagsstefnu næstu ára voru að koma verðbólgunni niður, að eyða halla ríkissjóðs, að lækka erlendar skuldir og auka inn- lendan sparnað. Ríkisstjórnin boðaði um leið sínar fyrstu aðgerðir í fjármálum og peningamálum: Undanþágum frá söluskatti var fækkað meó 10% sölu- skatti á matvæli (matarskatt- urinn), öðrum en kjöti, fiski, mjólk, ferskum ávöxtum og grænmeti og nokkrum grein- um þjónustu. í öðru lagi sér- stakt bifreiðagjald. I þriðja lagi sérstakur kjarnfóðurs- skattur, í fjórða lagi hækkað ríkisábyrgðargjald og lán- tökugjald á erlend lán. Þessar aðgerðir áttu að skila ríkissjóði 3 milljörðum króna á árinu. í peningamálum var ákveöið að hækka vexti á spariskírteinum ríkissjóðs til að auka söluna, að endur- greiða sjávarútveginum sölu- skatt og setja reglur um fjár- mögnunarleigu, notkun greiðslukorta og afborgunar- viðskipti. Loks var ákveðið að bæta kjör hinna lægst laun- uðu meö hækkun elli- og örorkulífeyris, tekjutryggingar og heimilisuppbótar og að nækka barnabótaauka. Þann 1. ágúst gekk í gildi nýi 10% söluskatturinn á ýmis matvæli og var gagn- rýnt að það skuli hafa gerst um leið og verslunarmenn héldu upp á frídag sinn. Um miðjan ágúst upphófst togstreitan um kaupin á67% hlutafjár rikisins í Utvegs- bankanum. SÍS-veldið lagði inn tilboð upp á 670 milljónir króna, en „Valsliðið" mátti síðan horfa upp á móttilboð „KR-liðsins“, þ.e. 33 fyrir- tækja, félaga og einstaklinga um kaup á 76% hlutafjársins á 797 milljónir króna. Veru- lega hristist upp í stjórnar- samstarfinu vegna þessa máls og deilt um hvoru til- boðinu ætti að taka eða hvor- ugu þeirra og efna til nýs útboðs. Þriggja manna nefnd var sett í málið. Útvegsbankamálið hélt áfram. Þorsteinn Pálsson lét fara fram umdeilda „skoðana- könnun“ innan miðstjórnar- flokks sins, sem kvað upp úr um að frekar ætti að efna til stjórnarslita en að SÍS fengi að kaupa Útvegsbankann. Snemma í september skil- aði ráðherra síðan báðum til- boðsaðilum því fé sem þeir lögöu fram með tilboðum sínum. Skömmu síðar litu dagsins Ijós fyrstu fjárlög ríkisstjórn- arinnar. Var gert ráð fyrir því að niðurstöðutalan yrði um 60 milljarðar króna meö áætl- uðum halla upp á 1,2 millj- arða. Stórfelldur niðurskurður var áætlaður í öllum ráðu- neytum og framlög til sjóða og framkvæmda. Þegar Alþingi var sett 10. október var búið að breyta fjárlögunum á þann hátt að nú var gert ráð fyrir þeim hallalausum með auknum niðurskurði og sköttum. Engin ný erlend lán skyldi taka, skattakerfið yrði hert, undanþágum undan sölu- skatti fækkaö, neysluskattur lagður á í auknum mælti og boðaður flutningur á verkefn- um frá riki til sveitarfélaga. Gengisfelling var ekki á dag- skrá og halda átti fast við fastgengisstefnuna. Þó lýsti Jón Baldvin því skömmu síðar yfir að hann væri reiðu- búinn til þess aö ræða um frestun matarskattsins ef það greiddi fyrir samningum aðila vinnumarkaðarins. Næst vakti mikla athygli frumvarp Jóhönnu Sigurðar- dóttur um breytt húsnæðis- kerfi — sumir stjórnarliðar höfnuðu frumvarpinu þegar og var Alexander Stefánsson fremstur í flokki úrtölu- manna, hafði hann enda oft verið ótæpilega gagnrýndur af Jóhönnu í ráðherratíð hans. í byrjun nóvember ákvað ríkisstjórnin síðan að fresta matarskattinum til áramóta, eftir að hafa rætt við aðila vinnumarkaðarins. Þá lagði sjávarútvegsráð- herra fram kvótafrumvarp sitt, þar sem gert var ráð fyrir 20% skerðingu á aflakvóta af þeim afla sem fluttur er út óunninn, í stað 10% áður. Óskar Vigfússon ætlaði, að þetta myndi skerða tekjur sjómanna um 12%. Einnig voru smábátaeigendur æva- reiðir vegna tillagna um kvóta á bátum undir 10 tonnum. Næsta mál til aö valda usla á stjórnarheimilinu var ákvörðun Jóns Sigurðssonar viöskiptaráðherra um að veita 6 fyrirtækjum leyfi til aö selja frystan fisk til Bandaríkjanna næstu mánuðina. Stóru útflutningsaðilarnir, SH og SÍS, brugðust ókvæða við og þeir Þorsteinn Pálsson og Steingrímur Hermannsson tóku upp hanskann fyrir þessa aðila. í byrjun desember var svo komið að líf stjórnarinnar var talið hanga á bláþræði vegna deilumála. Þó hafði sam- komulag tekist um hús- næðisfrumvarp, en nú deildu kratar hart á kvótafrumvarpið , og kvöfðust breytinga. í desember var síðan upp- lýst um breytingar á fjárlaga- frumvarpinu. Tekjuhliðin skyldi hækka um 3,1 millj- arða króna með því að falla frá lækkun söluskatts úr 25% í 22% og endurskoðun á öðrum sköttum, en á móti kæmi endurskoðun á ýmsum tolium og vörugjaldi. Reiknað var með 400 milljón króna viöbótartekjum vegna bættra söluskattsskila. Meðal ann- ars var ákveðið að auka niðurgreióslur og greiðslur vegna barnabóta og lífeyris. Þá fóru 200 milljónir í endur- greiðslur á fóöurbætisskatti og 100 milljónir til Jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga. Fjármála- ráðherra sendi frá sér lista yfir breytingar á vöruverði: Mjólk, skyr, smjör og dilka- kjöt áttu ekki að hækka, en fiskur, brauð, ostar, egg og nýir ávextir áttu að hækka um 15-25%. Hins vegar áttu hreinlætisvörur, búsáhöld, snyrtivörur, bifreiðavarahlutir að lækka, svo dæmi séu tekin. Deilur urðu einnig um hús- næðisfrumvarp félagsmála- ráðherra og mætti Jóhanna Sigurðardóttir ekki á ríkis- stjórnarfund 10. desember vegna þessa máls. Hún sagðist standa og falla með frumvarpinu og var það aö lokum samþykkt á kvöldfundi 12. desember í neðri deild og því vísað til efri deildar. Laugardaginn 19. desember varð frumvarþið um Hús- næðisstofnun ríkisins síðan að lögum. í lögunum eru ákvæði um forgangshóþa, en fallið frá mismunandi vöxtum. Alþingi fundaði stift milli jóla og nýárs. Söluskatts- frumvarpið varð loks að lögum skömmu eftir ára- mótin. Kvótafrumvarpið varð hins vegar ekki aö lögum fyrr en 15. janúar á næturfundi eftir að komið hafði verið til móts við smábátaeigendur. í janúar bar á mikilli óánægju vegna matarskatts- ins og talið sýnt að sumir kaupmenn hefðu notfært sér glundroðan til að hækka vör- ur meir en ætlast var til. í lok mánaðarins sýndu skoðana- kannanir DV og Hagvangs að ríkisstjórnin nyti stuðnings minnihluta kjósenda. í lok febrúar kynnti ríkis- stjórnin nýjar efnahagsað- gerðir, i kjölfar samninga VMSÍ og VSÍ. Gengið var fellt um 6%, ákveðiö var að draga úr framkvæmdum og útgjöld- um hins opinbera, að endur- greiða sjávarútvegi uppsafn- aðan söluskatt (587 milljónir), að fella niður launaskatt í sjávarútvegi og samkeppnis- greinum 1. júlí, að skuld- breyta í sjávarútvegi upp á 370 milljónir, að lækka út- gjöld til vegamála um 125 milljónirog fleira, meðal annars að lækka framlag til byggingasjóðanna og lét Jóhanna Sigurðardóttir bóka sérstök mótmæli vegna þess, enda að kynna frumvarp sitt um kaupleiguíbúðirnar. Johanna var heldur ekki ánægð með áform um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, sem skyldu spara 260 milljónir. Gjald á erlendar lántökur var ákveðið 6% í stað 3%, en falla niður á næsta ári og fleira mætti nefna. Breytingarnar áttu meðal annars að leiða til 1.5% halla fiskvinnslunnar í stað 5% og verðbólgan á árinu að vera 15% í stað 10% sem áætlað hafði verið. Frumvarp Jóhönnu um kaupleiguíbúðir mættu mik- illi andstöðu meðal ýmissa stjórnarliða og lýsti hún yfir því að hugsanlega væri verið að gera henni óbærilegt að gegna starfi sínu. Næsta deilumál innan stjórnarinnar varð síðan vegna yfirlýsingar Steingrims Hermannssonar um að hann væri reiðubúinn til viðræðna við fulltrúa PLO — Þorsteinn lýsti því yfir að slíkar viðræð- ur kæmu ekki til greina. SKÁÍS könnun HP um miðjan apríl sýndi stjórnina vera komna niður í 44% fylgi. I apríllok var felld van- trauststillaga á rlkisstjórnina, með 41 atkvæði gegn 22. Þinglausnir voru 11. maí VÍXL eftir mikið streð. Um svipað leyti upphófst mikið gjaldeyrisstreymi út úr bönkunum — Svarti miðviku- dagur. Fjórðungur gjaldeyris- forða landsmanna flæddi út, um 25 milljarðar króna. Mikill ágreiningur varð innan stjórn- arinnar um ráðstafanir og stærð gengisfellingar. Aðeins náðist samkomulag um 10% gengisfellingu (Framsókn vildi 20%), öðru var frestað. Ekki munaöi miklu aö þetta mál yrði banabiti stjórnarinn- ar. Bráðabirgðalög voru gefin út 20. maí um efnahagsað- geröir: Launahækkanir voru takmarkaðar, skattleysismörk hækkuð, fyrirtækjum í útflutningsgreinum heimilað að taka erlend lán til endur- skipulagningar allt að 800 milljónum króna og fleira. Um leið fór Jón Baldvin fram á að gjaldleyrisdeild Seðla- bankans upplýsti hverjir heföu staðið fyrir gjaldeyris- flóðinu mikla miðvikudaginn svarta. Svör bankans þóttu í fyrstu ófullnægjandi, en síðar bárust böndin að miklu leyti að bönkunum sjálfum: þeir höfðu rifiö út gjaldeyri uþþ á milljarð króna og höfðu hagnast um leið um 100 millj- ónir! 31. maí voru gefih út bráða- birgðalög til viðbótar hinum fyrri, þar sem voru fyllri ákvæði um verðtryggingu fjárskuldþindinga til skemmri tíma en tveggja ára: Hún bönnuð. Um svipað leyti fór allt í háaloft vegna túlkunar á álverssamningum í Ijósi bráðabirgðalaganna og það var upplýst að halli ríkissjóðs væri orðinn 500 milljónir króna. Um leið stóðu Jón Baldvin og Jón Helgason í deilum um endurgreiðslu söluskatts á landbúnaðaraf- urðum. Þorsteinn Pálsson og Steingrimur tóku upp á þvi að karpa harkalega í júli og verðbólgan tók að æða upp, var komin í 50% miðað við þróun síðustu 4 mánaða. Það gerðist um leið og ríkis- stjórnin hélt upp á ársafmæli sitt. Jón Baldvin og Jón Helgason deildu enn um landbúnaðinn, sá fyrrnefndi sagði niðurgreiðslur verða 90 milljónir en ekki 160 milljónir eins og haldið hafi verið fram. Hann boðaði um leið uppstokkun á ríkisstjórnar- heimilinu, annars yrði ekki af öðru afmæli! Þjóðhagsstofn- un lagði fram nýja þjóðhags- spá, sem Jón Baldvin taldi fela í sér rangfærslur af yfir- lögðu ráði og gæfi kolranga mynd af raunveruleikanum, en þriggja manna nefnd ráð- herra var sett í að yfirfara f járlögi n. í lok júlí voru deilur orðnar mjög harðar og fylgi stjórnar- innar í skoðanakönnun Skáís komið niður I 35%. í vand- ræðum sínum afréð ríkis- stjórnin að setja á stofn sér- staka ráðgjafanefnd um að- gerðir, forstjóranefndina svo kölluðu. Siðan töku viö ill- viðráðanlegar umræður um tillögur nefndarinnar og aðra valkosti. Þeim umræðum lauk sem kunnugt er með stjórnarslitum um síðustu helgir F.Þ.G.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.