Alþýðublaðið - 20.09.1988, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 20. september 1988
7
ÚTLÖND
Umsjón:
Ingibjörg
Árnadóttir
M
Rússneska ballettdansmœrin
Natalia Makarova sem fyrir
18 árum yfirgaf Kirov-ballett-
inn og settist að á Vestur-
löndum, fékk tœkifœri til að
dansa með sínum gömlu
félögum vegna Glasnost
Gorbatjov.
FRELSIÐ
Natalia Makarova við komuna
til Kaupmannahafnar nú ný-
verið. Hún hafði veriö ráöin við
sjónvarpsupptöku af Svana-
vatninu i Árósum.
HIIN KAUS
Natalia Makarova er kona,
sem vill vera frjáls eins og
fuglinn. Þessi rússneska
ballettdansmær, sem nú er
47 ára, hefur átt kost á því að
lifa alþjóðlegu „þotu-liös lifi“
og hún hefur gert það síð-
ustu 18 árin frá þvi hún yfir-
gaf Kirov ballettinn, sem var
að dansa í London.
Stjörnulífi haföi hún
kynnst áður en hún kom til
Vesturlanda. Átján ára varö
hún aóal sólóballettdansmær
Kirovballettflokksins i Lenin-
grad. Hún fékk öll þau for-
réttindi sem kerfið bauð upp
á, og var sovéskur heiðurs
listamaður.
MÓTÞRÓAGJÖRN
I blaðaviðtali skömmu eftir
að hún baðst hæjis í vestri
sagði hún m.a. „Ég var á
toppnum og hafði dansað öll
helstu hlutverkin og ég vissi
að ef ég ætti að geta þrosk-
ast og tekið framförum, yrði
ég að yfirgefa fööurland
mitt.“
Strax á barnsaldri kom í
Ijós að hún sýndi mótþróa, ef
henni líkaði ekki við hlutina.
Hún hlýddi því sjaldnast
þegar henni var sagt að
koma heim á vissum tíma.
Þegar hún var 13 ára, fór hún
í hinn þekkta ballettskóla
Kirov-leikhússins. Hún lét
ekki vel að stjórn kennara
sinna, fannst þeir reyna að
móta sig eftir þeirra höfði en
hún vildi fara eigin götur.
Það var á septemberkvöldi
árið 1970, sem hún hringdi til
Scotland Yard og bað um
pólitískt hæli. Ekki einn ein-
asti meðlimur Kirov-Balletts-
ins hafði hugmynd um fyrir-
ætlanir hennar. Hún hafði
tekið þátt í æfingum dagsins
og fengiö sinn hluta af
fagnaðarlátum áhorfenda
eftir sýninguna um kvöldið í
Royal Festival Hall. Skyndi-
lega var hún horfin.
Þessi ákvörðun hennar
hefur ekki verið auðveld.
Heima í Rússlandi voru móð-
ir hennar, bróðir, stjúpfaðir,
tveir fyrrverandi eiginmenn
(ballettdansari og kvikmynda-
stjóri) ásamt verkfræðingn-
um sem hún stóð í skilnaðar-
máli við, og sem nú stóð
uppi með nýjan Moskovich
sem Natalia hafði pantað og
borgað hlut i. Fljótlega eign-
aöist hún nýja vini.
TÖFRANDI
Natalia og Baryshnikov
höfðu staðið í ástarsam-
bandi, meöan þau voru bæði
viö Kirov-ballettinn, og hann
varð steinhissa þegar hann
,sá hana aftur, þegar bæði
voru komin til Vesturlanda:
„Þegar hún fór frá Rúss-
Iandi var hún ung og hálf
kærulaus, þegar ég sá hana
aftur árið 1974, hafði hún
tekið ótrúlegum framförum.
Vöxtur hennar hafði breyst til
batnaðar, hún dansaöi af
öryggi og var töfrandi í túlk-
un sinni. Hið frjálsa umhverfi
á Vesturlöndum hafði gert
henni kleift að þroskast eftir
eigin höfði og árangurinn var
stórkostlegur."
Hún þurfti eiginlega að
byrja upp á nýtt, þegar hún
var ráðin við American Ballet
Theatre, þar voru sem stjórn-
endur Anthony Tudor, Jerome
Robbins og Glen Tetley. Hún
var komin yfir þrítugt og
hafði lært þar sem allt aðrar
hefðir voru ríkjandi. Einn af
þáverandi stjórnendum dans-
flokksins sagði: „Hún var
eins og lítill krakki í sælgæt-
isbúð, hún gat ekki horft sig
„sadda“ á hinum ýmsu dans-
aðferðum sem hún lærði
hér.“
Hún var aftur komin á
toppinn árið 1977, þegar hún
enn einu sinni kom mönnum
á óvart og tilkynnti að nú
vildi hún verða móðir. Á árinu
áður hafði hún — eftir langt
ástarsamband með John
Touhey hjá BBS — gifst
lebanisk-bandarískum kaup-
sýslumanni Edward Karkar.
Þann 1. febrúar 1978, ól hún
soninn Andrei (kallaður
Andrusha), og þremur mán-
uðum síðar var hún aftur
komin á sviðið, meðgöngu-
tímann hafði hún notað til að
skrifa minningabókina „A
Dance Biography."
DREKKUR VODKA
Makarova gerir næstum
allt, sem dansarar ættu eigin-
lega ekki að gera. Hún keðju-
reikir stanslaust. Drekkur
gjarnan glas af vodka á
rússneska vísu — kastar
hnakkanum aftur — og í hall-
æri rauðvín, hvítvín vill hún
ekki, „það fer beint í vöðv-
ana!“
Sagt er, að hún borði
sjaldnast annað en handfylli
af vitamínpillum daglega.
LEIKARI
Hún hefur dansað allt frá
Carmen til Coppelia, og
Svanavatnsins. Til að öðlast
enn meiri reynslu tók hún
þátt í söngleiknum On Your
Toes eftir Richard Rogers. (Á
Broadway) Þegar söngleikur-
inn var færður upp í London,
voru henni veitt hin virtu
Laurence Olivier verðlaun,
sem besti leikari í söng og
leik. Ári seinna fékk hún
London Standard verðlaunin
fyrir „bestu frammistöðu árs-
ins.“
Natalia Makarova er komin
fram yfir venjulegan eftir-
launaaldur dansara, en haldi
einhver aö hún ætli að leggja
árar í bát skjátlast þeim.
Fyrir nokkrum vikum, átján
árum eftir aö hún yfirgaf
Kirov-Ballettinn, dansaði hún
aftur meö sínum gamla dans-
flokki, að vísu aðeins einu
sinni, en var ákaft fagnað.
Makarova var komin aftur
til uppruna síns. „Mig hafði
alltaf dreymt um þetta, en
það er óneitanlega leiðinlegt
að þetta skeði ekki fyrr en
farið er að síga á seinni hluta
dansferils míns. Hugsið
ykkur öll árin sem fóru til
spillis.‘“
Þegar hún hefur lokið
starfi sinu í Danmörku, liggur
léið hennar heim til Kali-
forniu, í sumarhúsið (dacha)
þar sem hún hefur gróðursett
32 birkitré, til að fá hina réttu
rússnesku stemmningu.
Kannski finnur hún þá
stemmningu einnig á sviði
Kirov-leikhússins,pvi eins og
hún sagði á Kastrup flugvelli:
„Nú veit ég þó að minnsta
kosti að dyrnar eru opnar."
(Det tri Aktuelt.)