Alþýðublaðið - 28.09.1988, Side 1
cmFMAn
w V
Miðvikudagur 28. september 1988 1919 180. tbl. 69. árg.
NY RIKISSTJORN
TEKUR VIÐ VOLDUM
Allt bendir nú til þess aö
stjórnarkreppunni sé lokið og
ný rikisstjórn Framsóknar-
flokks, Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags með stuðn-
ingi Stefáns Valgeirssonar
taki við völdum í dag. í gær
náðist endanlegt samkomu-
lag á milli flokkanna um
fyrstu aðgerðir í efnahags-
málum, bráðabirgðalög og
stefnuyfirlýsingu rikisstjórn-
arinnar.
Síðdegis í gær fékk Stein-
grímur Hermannsson form-
legt umboð forseta til þess-
arar stjórnarmyndunar og er
Ijóst að hann verður forsæt-
isráðherra nýju stjórnarinnar
sem nú gengur undir heitinu
„Félagshyggjustjórnin". Fund-
að var í flokksstofnunum
væntanlegra stjórnarflokka í
gærkvöldi þar sem málefna-
sáttmálinn fékk endanlega
staðfestingu og ráðuneyta-
skiptingin.
Skv. heimildum Alþýðu-
blaðsins mun Steingrímur
Hermannsson hafa sett fram
þá hugmynd að auk forsætis-
ráðuneytis fengi Framsókn
sjávarútvegsráðuneytið,
iðnaðarráðuneytið og heil-
brigðisráðuneytið. Alþýðu-
flokkurinn fengi utanríkis-
ráðuneytið en héldi áfram
viðskipta- dóms- og félags-
málaráðuneytunum. Og Al-
þýðubandalagið fengi fjár-
málaráðuneytið, landbúnað-
ar-, samgöngu- og mennta-
; málaráðuneytin.
Ofangreind skipting hafði
þó ekki fengist samþykkt
þegar Alþýðublaðið fór í
prentun í gærkvöldi en þó er
yfirlýst að hver flokkur fær
þrjá ráðherra í sinn hlut.
Skv. heimildum blaðsins er
talið líklegast að eftirtaldir
skipi nýju stjórninaauk
Steingríms; Jón Baldvin
Hannibalsson verði utanrikis-
ráöherra, Jón Sigurðsson
verði áfram viðskipta- og
dómsmálaráðherra og Jó-
hanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra. Halldór Ás-
grímsson haldi sjávarútvegs-
ráðuneytinu en bæti við sig
iðnaðarráðuneytinu. Guð-
mundur Bjarnason haldi heil-
brigðisráöuneytinu. Ólafur
Ragnar verði fjármálaráð-
herra, Svavar Gestsson land-
búnaðar- og samgönguráð-
herra og annað hvort Guðrún
Helgadóttir eða Ragnar Arn-
alds setjist í stól mennta-
málaráðherra.
Einhverjar deilur munu þó
hafa komið upp í gær um
þessa skiptingu og snýst hún
um það hver eigi að fara meö
fjármálaráðuneytið. Kratar
munu tregir til að láta það af
hendi en á móti stendur að
hvorki þeir né Framsókn geta
sætt sig við að Alþýöubanda-
lagið fái utanríkisráðuneytið.
Raunar mun Alþýðubanda-
lagið ekki hafa gert neina
kröfu til utanrikisráðuneytis-
ins en miðað við venju geng-
ur það ekki að þrjú viða-
mestu ráðuneytin, forsætis-,
utanrikis- og fjármálaráðu-
neytin, gangi eingöngu til
tveggja flokka í þríflokkaríkis-
stjórn. Þessi mál voru óleyst
þegar blaðiö fór í prentun.
Fyrstu aðgerðir nýju ríkis-
stjórnarinnar veröa setning
bráðabirgðalaga um ráðstaf-
anir i efnahagsmálum. Skv.
bráðabirgðalögunum er m.a.
gert ráö fyrir að laun verði
fryst til 1. mars þegar þau
hækka um 1,25% og 1. júní
hækki þau svo um það sem
uppá vantar á 10% hækkun
sem taka átti gildi 1. janúar.
Heimilt verði að segja upp
kjarasamningum 15. febrúar.
HEILIJSALAR
OE VERKTAKAO
FELLOU
STJÓRHIHA
Heildsalar og verktakar
á suðvesturhorninu urðu
ríkisstjórn Þorsteins
Pálssonar að falli. Þetta
má lesa út úr um-
mœlum Einars K. Guð-
finnssonar, varaþing-
manns Sjálfstœðis-
flokksins og útgerðar-
stjóra á Vestfjörðum.
Sjá bls. 4.
Stefán Valgeirsson
sagði á blaða-
mannafundi sem
hann hélt i Þórs-
hamri i gær, aö
framboð það sem
hann stóö fyrir í
Norðurlandi-eystra
hafi orðið til þess
að gera það mögu-
legt að mynda þá
ríkisstjórn sem
mynduð verður í
dag.
A-mynd/Magnús
Reynir.
Stefán Valgeirsson
TOK SJOÐSFORMENNSKU
FRAM YFIR RÁÐHERRASTÓL
Stefán Valgeirsson ákvað í
gær að falla frá kröfu sinni
um ráðherrastól að launum
fyrir stuðning sinn við nýja
ríkisstjórn, eftir að honum
var boðin formennska i hin-
um nýja Tryggingasjóði at-
vinnuveganna. Hann segist
ekki hafa verið beygður til að
taka þessa ákvörðun, heldur
sjái hann fram á að gera
meira gagn með þessu móti.
Á blaðamannafundi sem
Stefán hélt í gær sagði hann,
að framboð það sem hann
stóð fyrir á Norðurlandi-
eystra, hafi orðið til þess að
gera það mögulegt að mynda
þá ríkisstjórn sem mynduð
verður í dag. Hann sagði þá
kröfu sem gerð var af þeirra
hálfu um ráðherrastól hafi
verið svo sjálfsögð, að ekki
ætti að hafa þurft aö fara
fram á hana. Sú krafa hafi
hins vegar verið gerð á hend-
ur sér, að hann yrði að láta af
störfum sínum sem banka-
ráðsformaður Búnaöarbank-
ans og í stofnlánadeild land-
búnaðarins, settist hann í
ráðherrastól. Á móti ráðherra-
stólnum hafi síðan staðið
annar kostur, að veita hinum
nýja Tryggingasjóði atvinnu-
veganna formennsku.
„Ég stóð því frammi fyrir
því, að velja á milli, hvort ég
vildi ráðherrastólinn eða að
nýta þessa aðstöðu. Minn
metnaður er í því fólginn að
gera gagn, fyrst og fremst
landsbyggðinni. Ég tel mig
því geta gert meira gagn með
því að gegna formennsku I
þessum nýja sjóði, sem á að
fá 4 til 5 milljarða á tveimur
árum til umráða, heldur en að
sitja í ráðherrastól, með tak-
markaða möguleika til fram-
kvæmda eins og nú horfir.“
í máli Stefáns koma fram,
að hann hafi gengið frá því
að geta sett menn f nefndir
til að undirbúa frumvörp í
stærri málum, og geta fylgst
með þeirri vinnu.
Aðspurður um hvort hans
kjördæmi komi til með að
njóta sérstaklega for-
mennsku hans í hinum nýja
sjóði sagði Stefán, að öll
landsbyggðin muni njóta
þess. „Eg er fyrir alla lands-
byggðina."
Stefán sagði skoðanir inn-
an raða liðsmanna sinna vera
skiptar um þessa ákvörðun,
en hann muni gera það upp
við sína samvisku, með það i
huga að gera meira gagn.
„Við munum lika líta eftir því
nú að fylkja liði um land allt,
því það getur orðið stutt í
kosningar, og þá er meining
okkar að bjóða alls staðar
fram ef undirtektir verða
nægar, sem ég hef ástæðu
til að ætla.“
Stefán endurtók fyrri full-
yrðingar sinar, um að nægur
stuðningur yrði við þessa
nýju ríkisstjórn í báðum
deildum þingsins, en hann
vildi ekkert gefa upp um
hvaða þingmenn væri þar um
að ræða. Það muni koma i
Ijós við atkvæðagreiðslur á
þingi.