Alþýðublaðið - 28.09.1988, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 28. september 1988
3
Hreinsunarátak
Reykjavíkurborgar
150 ÞÚSUND
ÁLDÓSUM
SKILAÐ
Þegar er búið ad skila inn
150 þúsund tómum gosdós-
um í hreinsunarátaki Reykja-
vikuborgar sem stendur yfir.
Síðasti skiladagur fyrir dósir
verður á laugardag, á milli
klukkan 14 og 17.
Aó sögn Jóns Þorvalds-
sonar, sem unnið hefur aó
kynningu hreinsunarátaksins
veröur hægt aö skila dósun-
um í félagsmiðstöðvunum í
borginni og í skólum þar sem
félagsmiðstöðvar eru ekki í
næsta nágrenni.
Iðnaðarráðuneytið
MARKVISSARI
SKRÁHING
EINKALEYFA
Að undanförnu hefur á
vegum Iðnaðarráðuneytisins
verið unnið að breytingum
varðandi vernd eignaréttinda
á sviði iðnaðar, þ.e. varðandi
einkaleyfa-, vörumerkja- og
mynsturvernd. Ráðuneytið
hefur markað þá stefnu að
sett verði á laggirnar sjálf-
stæð skráningarskrifstofa,
einkaleyfastofnun, til að ann-
ast framkvæmd gildandi laga
á þessu sviði og laga sem
sett kunna að verða um þessi
efni.
Nefndinni hefur einnig
verið falið að semja frumvarp
til laga um umrædda skrán-
ingarskrifstofu, sem taka
myndi við verkefnum núver-
andi einkaleyfa- og vöru-
merkjadeildar Iðnaðarráðu-
neytisins.
FRETTIR
r
Olöglegar verðhœkkanir
IÐNNEMAR KÆRA
Jóhannes Gunnarsson hjá
Verðlagsstofnun segir nokk-
uð um að fólk hafi samband
við þá vegna verðhækkana.
Segir hann að ekki virðist
vera um að ræða hækkanir
aö yfirlögðu ráði °9 sé
vero jafnan lagfært þegar
bent hefur verið á ólögmæti
þeirra. Samkvæmt heimildum
Alþýðublaðsins kærðu iðn-
nemar fyrir skömmu verulega
hækkun á bók i Iðnskólabúð-
inni, og hefur hún nú verið
tekin úr sölu.
í samtali við Alþýðublaðið
sagði Jóhannes, að sem
betur fer hefðu neytendur
samband við Verðlagsstofn-
un vegna meintra verðhækk-
ana á tímum verðstöðvunar-
innar. Þeim hjá Verðlags-
stofnun sýndist sem verð-
lagning i verslunum væri á
þann máta sem hún var áður
en til verðstöðvunar kom,
„Við höfun engin dæmi um
það ennþá, að menn séu vís-
vitandi að brjóta verðstöðv-
un. Þannig að þetta eru
svona einstök tilfelli sem
koma upp, og eru þá ávallt
leiðrétt um leið og við bend-
um á að þarna sé ekki farið
samkvæmt reglunum."
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins hafði Iðnskóla-
búðin hækkað verulega verð
á bók um tölvuforrit, og
höfðu iðnnemar kært þá
hækkun. Aðspurður sagðist
Jóhannes ekki vera með það
mál, en hann hafði heyrt á
það minnst. Sagði hann að
haft hafi verið samband viö
forráðamenn bókasölunnar,
og hafi menn þar ákveðið að
taka umrædda bók úr s'ölu
og bíða frekari framvindu
mála.
A Iþýðubandalagið
og stjórnarmyndunin
SKIPT UNI
TÓNTEGUND
Stjórnarþátttakan sigur fyrir Ólaf Ragnar.
Nýr tónn hjá Alþýðubanda-
laginu geröi ööru fremur rík-
isstjórn Steingríms Her-
mannssonar mögulega. Ein-
staka þingmenn létu af sér-
visku sinni og tóku afstöðu
meö meirihlutanum. Út-
gangan á sunnudag varð til
þess að menn hugsuðu betur
sinn gang og sáu að þátttaka
í ríkisstjórn með Framsókn
og Alþýðuflokki hlaut að vera
betri kostur en áframhald-
andi stjórnarandstaöa eöa
kosningar sem gætu hugsan-
lega gengið af flokknum
dauðum.
Viðræður um stjórnar-
myndun var fyrsta alvöru
prófraun Ólafs Ragnars í for-
mennskunni í flokknum og
niðurstaðan hlýtur að túlkast
sem sigur fyrir hann, því
Ólafur Ragnar fór strax í upp-
hafi þreifinga ekki dult með
þá skoðun sína að Alþýðu-
bandalagið ætti að taka þátt
í samstarfi með félags-
hyggjuflokkunum, þótt viss
andstaða gegn því væri inn-
an flokksins.
Það var auðvitað ekkert
létt verk fyrir alþýöubanda-
lagsfólk að finna smugu til
inngöngu miöaö við fyrri yfir-
lýsingar um kosningar tafar-
laust, samninga þegar í gildi
og fleiri slagorð. Þetta hlaut
því að taka meiri tíma en
Steingrímur gerði ráð fyrir í
upphafi.
Að sögn alþýðubandalags-
manna voru viðræöur Stein-
Sátt um
Sættir hafa tekist í dóms-
máli, er Karvel Pálmason, al-
þingismaður, höföaöi gegn
: Reykjavíkurborg í nóvember
1987, að því er segir í frétt frá
lögmönnum málsaðila.
Málavextir voru þeir, að 1.
ágúst 1985 gekkst Karvel
undir hjartaaðgerð í London.
Við aðgerðina komst sýking í
skurðsárið, sem uppgötvaðist
alllöngu síðar. Var Karvel þá
lagður inn á Borgarspítalann.
Af hálfu Karvels var þvl hald-
grims við Borgaraflokk
ástæða þess að ekki var
lengra komist á sunnudag.
Samtölin við Albert eru hins
vegareinnig túlkuð sem
kænska Steingríms, sem hafi
séð að nota mætti Borgara-
flokkinn sem grýlu á Alþýðu-
bandalagið, sem sæi sig knú-
ið til að spartla upp í eigin
sprungur. Komið hefur á dag-
inn að einstaka þingmenn og
áhrifamenn í flokknum endur-
skoðuðu afstöðu sínatil
ákveðinna atriða í stefnuyfir-
lýsingu eftir að þessari at-
burðarás var hleypt af stað.
Það var því mynd samhentrar
fjölskyldu sem forysta Al-
þýðubandalagsins þurfti að
draga upp á mánudag. Skúli
Alexandersson breytti sinni
afstööu og samþykkti að
verja stjórnina vantrausti og
Geir Gunnarsson sagði, sem
hann hafði reyndar áður sagt,
að afstaða hans gagnvart
frystum kjarasamningum
breytti þvi ekki að hann
fylgdi áliti meirihluta þing-
flokksins.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins voru það lands-
byggðarmenn sérstaklega
sem þrýstu á um stjórnar-
þátttöku Alþýðubandalags-
ins. Afstaða Skúla mun m.a.
hafa breyst vegna mikillar
óánægju í kjördæminu gagn
vart hans fyrri afstöðu. And-
mæli Skúla þótti heldur ekki
mjög málefnaleg, heldurvirt-
ist sem hann byggði afstöðu
sína meira á deilum sem
hann hefur átt við Halldór
Ásgrímsson sem sjávarút-
vegsráðherra.
Endurkoma Alþýðubanda-
lagsins þýddi ennfremur að
gerðar voru breytingar á efn-
isatriðum í stefnuyfirlýs-
ingunni sem varða Álverið I
Straumsvík. Álversklausan
var ekki alltof þægileg fyrir
Ólaf Ragnar né heldur fyrir
Steingrím Hermannsson,
sem báðir koma úr Reykja-
neskjördæmi. Þá var Ijóst
eftir að Kjartan Jóhannsson
lýsti yfir að klausan þyrfti að
fara út að sú breyting gengi
eftir. Einkamál Hjörleifs Gutt-
ormssonar voru þar með af-
máð úr stjórnarsáttmálanum.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er hins vegar rætt um að
setja megi málið af stað í
gegnum iðnaðarnefnd neðri
deildar, þar sem Kjartan Jó-
hannsson er formaður. Þar
með gæti stækkun álversins
farið at stað sem þingmanna-
mál, án þess að stjórnarsam-
starfinu yrði steypt í hættu.
Vísitala
byggingar-
kostnaðar
hækkar
Vísitala byggingarkostnaö-
ar um miðjan september var
0,16% hærri en í ágúst, eða
124,5 stig. Hún hefur því
hækkað um 21,6% á sl. tólf
mánuðum. Þessi vísitala gild-
ir fyrir októbermánuð.
Samsvarandi vísitala mið-
uð við eldri grunn (des.
1982/100) er 398 stig. Siðustu
þrjá mánuði hefur byggingar-
vísitalan hækkað um 2,6%
og samsvarar það 11,0% árs-
hækkun.
Verðbreytingar I vísitölu
byggingarkostnaðar á milli
ágúst september reyndust
mjög smávægilegar.
Karvelsmálið
3 milljóna bætur
ið fram, að læknar Borgar-
spítalans bæru alla ábyrgð á
örorku hans, sem metin var
75%, en af hálfu borgarinnar
var talið, að orsök örorkunnar
væri hjartaaðgerðin sjálf og
sýkingin í London, en ekki
mistök á Borgarspitalanum.
Stefnukrafa Karvels var 12
milljónir króna að viðbættum
vöxtum frá 1. júní 1986, auk
málskostnaðar, en við þing-
festingu málsins gerði hann
tölulega grein fyrir um 8
milljón króna tjóni. Sam-
kvæmt sáttinni greiðir Borg-
arspítalinn Karvel kr.
2.950.000 vaxtalaust og auk
þess lögfræðikostnað hans.
Dómsmálið hefur verið fellt
niður.
Með sátt þessari viður-
kennir Reykjavíkurborg ekki
bótaskyldu og Karvel Pálma-
son viðurkennir ekki lækkun
bótakröfu sinnar, en aðilar
eru sammála um að hætta
við erfið, langdregin og óviss
málaferli með þessum hætti.