Alþýðublaðið - 08.10.1988, Blaðsíða 5
Laugardagur 8. október 1988
5
Spánarbros
öllum hópnum til veislu i Cuenca. Hér þakkar
Ljósm.: G.T.K.
FRETTASKYRING m
Kristján Þorvaldsson skrifar
#
UTFLUTNINGSBÆTUR
TIL GRÓÐURVERNDAR
Talið er að 20-30% sparnaður verði af því að framleiða kjötið ekki fremur en greiða með
því útflutningsbœtur síðar.
Framkvæmdanefnd bú-
vörusamninga og Framleiðni-
sjóður landbúnaðarins hafa
undanfarna mánuði kannað
leiðir til að draga úr fram-
leiðslu kindakjöts og laga
hana betur að innanlands-
þörfum. Framkvæmdanefnd
hefur gert ákveðna áætlun
um tilhögun verksins, en
framkvæmdaaðili er Fram-
leiðnisjóður. í stórum drátt-
um er tilhögunin sú, að
öldruöum bændum, sem
framleiöa talsveröan hluta
alls kindakjöts í landinu, er
gert sérstakt tilboð. Hins
vegar er i samráði við og eftir
ábendingum Landgræðslu
ríkisins gert sérstakt tilboð
tii þeirra bænda sem eiga
sauöfé á þeim gróðursvæð-
um sem samstaða er um að
njóta skuli sérstakrar vernd-
ar.Með þessum hætti er talið
að útflutningsbætur nýtist á
mun skynsamlegri hátt en
áður. Tilboðinu er beint til
u.þ.b. 1200 sauðfjárbænda.
Talið er að 20-30 prósent
sparnaður verði af að fram-
leiða kjötið ekki, fremur en
greiða með þvi útflutnings-
bætur siðar.
Þau landssvæði þar sem þörf
er talin á sérstökum aðgerð-
um til gróðurverndar eru:
Gullbringu- og Kjósarsýsla,
Borgarfjarðarsýsla, Mýra-
sýsla, Eyjafjarðarsýsla, S-
Þingeyjarsýsla, V-Skaftafells-
sýsla, Rangárvallasýsla og
Árnessýsla. Boðnirverða
tvenns konar samningar um
kaup eða leigu til 3ja ára, er
veröi gerðir fyrir I5. nóvemþer
1988. Hins vegar samningar
um kaup eða leigu til 2ja ára
er skulu gerðir fyrir l.apríl
1989.
Fyrir sölu fullvirðisréttar
vegna gróðurverndar greiðast
4000 krónur fyrir hverja fellda
kind, með samningum gerð-
um fyrir I5.nóvember, en fyrir
fuIIvirðisrétt greiðast 8.500
krónur á hvert ærgildi, er
skiptist á jafnar greiðslur
árin I989 og I990. Fyrir leigur
greiðast einnig 4000 krónur
fyrir hverja fellda kind, en
fyrir fullvirðisrétt verði greidd
árleg leiga í þrjú ár krónur
I.670 á ári. Þriðja árið á við-
komandi framleiðandi rétt á
að breyta leigusamningi í
sölusamning. Við það hækk-
ar þriðja árgreiðsla í 4.500
krónur.
Samningar gerðir fyrir I.
apríl fela í sér, samkvæmt til-
boðinu, að greiðsla fyrir
hverja fellda kind verði með-
algrundvallarverð haustið
I989. Fyrir fullvirðistrétt
greiðist 5.000 krónur á hvert
ærgildi, erskiptist í tvær
jafnar greiðslur árin 1990 og
1991. Ef um leigu verður að
ræða verði einnig miðað við
meðalgrundvallarverð næst-
komandi haust, en fyrir full-
virðisrétt verði greidd árlega
leiga i tvö ár kr I.500 á ári. Á
öðru ári á viðkomandi fram-
leiðandi rétt á að breyta
leigusamningi í sölusamning.
Við það hækkar önnur árs-
greiðsla í 3.500 krónur.
Það kann ef til vill að
vekja athygli að bændur sjálf-
ir skuli ræða svo alvarlega
um aðgerðir á landssvæðum
sem talin eru sérstaklega
veik fyrir ofbeit og vilja
leggja áherslu öðru fremur á
samdrátt á þeim á þeim
svæðum. Oft hefur verið sagt
að bændur vilji alls ekki taka
á þeim málum. Á þingi Stétt-
arsambandsins á Akureyri á
dögunum kom hins vegar
skýrt fram ókveöin hugarfars-
breyting í þessum efnum. Þar
sagði t.a.m. Hjörtur Þórarins-
son formaður Búnaðarfélgs
Islands að bændur þyrftu að
taka tillit til þeirra sjónar-
mióa sem meirihluti þjóðar-
innar studdi, þ.e. að landið
verði grænt og grasi gróið.
Þá samþykkti Stéttarsam-
bandsþingið sérstaka ályktun
þess efnis, að nýting lands
verði með þeim hætti að
gróður aukist en rýrni ekki;
stuðlaö veröi að tlfærslu full-
virðisréttar úr sauðfé i mjólk
á þeim svæðum sem eru
gróðurfarslega veik og komið
verði á annarri atvinnu í stað
sauðfjárframleiðslu þar sem
hún er lögð niður.
Samkvæmt nýja tilboðinu
er bændum á ellilífeyrisaldri
boðin 40-80% hærri kjör en
áður hafa tíðkast, ef þeir
leigja eða selja fullvirðisrétt
til sauðfjárframleiðslu.
Að sögn Hákons Sigur-
grímssonar framkvæmda-
stjóra Stéttarsambandsins
lagði Framkvæmdanefnd bú-
vörusamninga til í fyrra
haust, að kaupa eða leigja
fullvirðisrétt er næmi allt að
eitt þúsund tonna fram-
leiðslu, til að draga enn frek-
ar úr útflutningi sem verið
hefur óhagstæður. Með þess-
um tilboðum er að sögn
Hákons verið að skipuleggja
málin á þann hátt að ekki
valdi byggðaröskun. Þess
vegna er þeim beint að
ákveðnum hópum manna og
ákveðnum svæðum.
Um 1100 sauðfjárbændur
eru komnir á eftirlaunaaldur
og margir þeirra eru með
framleiöslu sem skerðir
tryggingabætur þeirra. í til-
boðinu er vakin sérstök at-
hygli á því að aldraðir bænd-
ur sem enn standa í fram-
leiðslu skerði með því trygg-
ingabætur sinar. Þannig eru
dæmi um að bændur hafi af
sér greiðslur sem þeir annars
hafa rétt á frá tryggingunum,
vegna þess að tekjutrygging-
in skerðist ef aðrar tekjur
fara yfir ákveðið mark.
Hvað varðar tilboðið til
bænda á gróðursvæðum sem
aö mati Landgræðslunnar
eiga að njóta sérstakrar vernd-
ar benti Hákon á , aó í sumum
tilfellum væri um að ræða
svæði þar sem meiri mögu-
leikar væru á annarri atvinnu
en viðast hvar annars staðar,
eins og t.d. á Suðurlandi og í
Eyjafirði.
Saudfjárbændur á skyggöu svæöunum geta fram ti’ 15. nóvember 1988 gengiö aö hagstæö-
asta tilboði sem fram hefur komiö um kaup og leigu á f ullviröisrétti, unnið i samráði viö
Landgræöslu ríkisins. Hámarksverö fyrir hverja kind er kr. 12.500 kr.