Alþýðublaðið - 01.11.1988, Síða 7
Þriöjudagur 1. nóvember 1988
7
ÚTLÖND
Umsjón:
Ingibjörg
Árnadóttir
IAN SMITH,
TÍU ÁRUM SEINNA
Leiðtogi hvítra
manna í barátt-
unni fyrir því, að
halda yfirráðum í
Rhodesiu-
Zimbabwe, iðrast
einskis tíu árum
eftir að hvítir
urðu að láta í
minni pokann.
Tæpum tiu árum eftir ad
hann beid ósigur í hinni
löngu og blóðugu baráttu við
að koma i veg fyrir að svartir
kæmust til valda i Rhodesia,
ber ekki á neinni iðrun hjá
lan Smith, síðasta hvíta for-
sætisráðherranum í ríkinu.
„Þú heldur kannski að það
rfki lýðræði í landinu, af því
ég hef ekki verið drepinn?"
segir lan Smith um föðurland
sitt í Suður-Afríku.
Landið hét á árum áður
Suður-Rhodesia, en á dögum
lan Smith varð það Rhodesia.
Þegar svart-hvíta stjórnin réði
ríkjum hét það Rhodesia—
Zimbabwe. í dag heitir föður-
land hans Zimbabwe.
Menn benda oft á Zim-
babwe sem dæmi um vel
heppnaða yfirtöku svartra í
afríkönsku ríki. Stjórnandi
landsins er Robert Mugabe,
fyrrverandi leiðtogi frelsis-
baráttunnar i landinu. Hann
komst til valda árið 1980 eftir
samningaviöræður, þar sem
Bretland var í forsæti.
Margir álíta það sem merki
um umburðarlyndi hjá Robert
Mugabe, að hans gamli erki-
óvinur, kona hans og börn
hafi leyfi til að búa í landinu.
„Ætli það sé ekki öllu held-
ur endurgjald. Samkvæmt
okkar lögum á þeim tíma,
voru Mugaþe, Nkomo og allir
hinir uppreisnarmennirnir,
réttdræpir. Ég lét þó ekki
drepa þá,“ segir lan Smith.
Orrustuflugmaöur
Smith fæddist í Rhodesia,
sem þá var bresk nýlenda og
var hann mjög trúr Bretlandi.
í heimsstyrjöldinni síðari var
hann orrustuflugmaður í
Royal Air Force. (konunglega
breska flughernum.) Hann
særðist og þurfti að fá gler-
auga í annað augað og andlit
hans er ennþá hálf-lamað
öðru megin.
Þegar kom að því, að
Bretar fóru að veita hinum
ýmsu nýlendum breska
heimsveldisins sjálfsstjórn,
fór Smith ekki að Iftast á
blikuna. Hann var fremstur í
flokki þeirra, sem vildu slíta
tengsl við Bretland — en
landið yrði undir hvftri stjórn.
Hinar sex milljónir svartra
íbúa og 275 þús. hvítra áttu
þá eftir að standa I sjö ára
borgarastyrjöld, og fimmtán
ára alþjóðlegum samninga-
viðræöum. Borgarastyrjöldin
kostaði 30.000 þús. lands-
menn lífið.
Nú hefur þessi horaði, grá-
hærði persónuleiki, yfirgefið
búgarð sinn í miðhlutaZim-
babwe til að setja áhættu-
saman endapunkt við póli-
tískan feril sinn.
Fyrir einu ári var lan Smith
vikiö frá af því að hann lét í
Ijósi samúð með nágranna-
rikinu Suður-Afríku. Nokkrir
af ráðherrunum í ríkisstjórn
Mugabe, vilja neita Smith um
landvist, þegar hann snýr
heim úr fyrirlestrarferð í Bret-
landi og Bandaríkjunum.
Maðurinn, sem einu sinni
var sífellt forsíðuefni heims-
pressunnar, flytur nú fyrir-
lestra fyrir fámennum áheyr-
endahópum og flelstir sem
hlýða á fyrirlestra hans, hafa
fyrirfram mótaðar skoðanir,
þær sömu og hann sjálfur...
lan Smith heldur fast við
sannfæringu sína og telur þá
sem ekki eru sömu skoðunar
vera fjandsamlega. Smith er
á móti viðskiptabönnum og
hvers kyns mótmælum gegn
Suður-Afríku. Hann er bitur
þegar hann minnist hafn-
bannsins á Rhodesíu, talar
um kommúniskt undirferli,
árásir hryðjuverkamanna og
verður æstur af reiði þegar
hann talar um endinn, sem
bundinn var á íþróttaferil
Zola Budd, sem er fædd i
Suður-Afríku.
lan Smith fyrir átján árum, þegar hann, sem leiðtogi og æðsti maður
Rhodesia, var í sviðsljósi heimspressunnar.
lan Smith i dag, valdalaus.
Fagnaðarlæti
Fagnaðarlæti hins fá-
menna áheyrendahóps eru
mikil, og aðdáendurnir hóp-
ast í kringum Smith, til þess
að taka i hönd hans. Um
stund virðist ekkert hafa
breyst hjá þessum pólitíkus,
sem sagði einu sinni, „að
Rhodesiu yrði ekki stjórnað
af svörtum i 1000 ár”!
Hinn 69 ára gamli lan
Smith lætur ekki segjast á
hverju sem gengur. Tveir
þriðju hvíta minnihlutans,
sem hann var i forsvari fyrir,
hafa yfirgefið landið. Nokkrir
fyrrverandi pólitiskir sam-
starfsmenn hafa gengið í
flokk Mugabe, sem er eini
stjórnmálaflokkurinn sem
leyfóur er i landinu.
„Það væri sjálfsagt hag-
stæðast og þægilegast",
segir lan Smith, þegar hann
er inntur eftir þvi hvort hann
hyggi á að ganga í flokk
Mugabe.
Lord Carrington, sem var
utanríkisráðherra í Bretlandi,
þegar friðarsamningarnir
voru undirritaðir, segir eftir-
farandi i endurminningum
sínum, sem komu út nýlega:
„Þú ættir kannski að hafa
það i huga, að án þín hefði
kannski enginn verið drepinn
í Rhodesiu", sagöi ég við
óþolinmóðan lan Smith.
lan Smith þvertekur fyrir,
að Carrington hafi sagt þetta
og segir: „Ef hann hefði sagt
þetta, hefði ég minnt hann á,
að fyrstu hryðjuverkamenn-
irnir sem komu yfir landa-
mæri okkar árið 1961 —
drápu saklausa borgara og
börn.“
Smith gefur í skyn, að
möguleiki sé á því, að hann
geti ekki búið í landinu til
enda lífs síns:
„Zimbabwe er föðurland
mitt og fimm kynslóðir fjöl-
skyldu minnar hafa búiö í
landinu. Ég vona, að ég geti
haldið áfram að búa þar, en
kringumstæður gætu leitt til
þess, að mér verði gert það
ókleift. Ég elska landið.“
(Det fri Aktuelt)