Alþýðublaðið - 01.11.1988, Page 8

Alþýðublaðið - 01.11.1988, Page 8
Þri ðj 1988 FRÉTTA SKÝRING u Sólveig Ólafsdóttir skritar HHvC 'lr7s Skýrsla nauðgunarmálanefndar EKKIFÓRNARLAMB AÐSTÆÐNA Skýrsla nauðgunarmála- nefndar var kynnt fyrir frétta- mönnum i gær, og tekur hún fyrir bæði núverandi ástand og tillögur nefndarinnar til úrbóta i þeim efnum. Þar er reynt að taka á öllum þáttum málsins, en ekki að takmarka sig í rannsóknum við nauðg- un í lögformlegri merkingu. I skýrslunni er m.a. að finna ritgerð Hildigunnar Ólafs- dóttur afbrotafræðings sem átti sæti i nefndinni, þar sem hún fjallar um „afbrotið nauðgun, kærða, konur og málsmeðferð”. Hildigunnur byggir rannsókn sína á lög- regluskýrslum um brot gegn kynfreisi kvenna á tímabilinu l.júlí 1977 til 31.desember 1983. Þá voru skráð 126 brot af þessu tagi hjá rannsóknar- lögreglu rikisins en einungis 84 kærur eru sendar á rann- sóknartímabilinu til ríkissak- sóknara. Af þessum 84 kær- um fellir embættið nióur 33 mál, ákærir í 48 málum en 3 lýkur meö því sem kölluð er önnur afgreiösla. Þaö virðist því víöa pottur brotinn i máls- meöferö kynferöisafbrota. Viö skýrslugerðina var tekiö mið af reynslu kvenna sem voru fórnarlömb nauógara og ber vitnisburður þeirra gleggst vitni fyrirlitninguna sem sýnd er þeim aöilum sem tengjast slíku broti. Reynsla þessara brotaþola var ótrúlega lík, og bar þeim saman um að ekki væri ein- göngu um aö ræöa niðurlæg- ingu við hina eiginlegu árás, því samskipti þeirra við lög- reglu og dómskerfið hafi ver- iö ámóta niðurlægjandi reynsla. Mikil brotalöm er í þjónustunni við þessi fórnar- lömb eins og allar tölur bera vitni um. Nauðgunarmálanefnd var skipuð 1984 af þáverandi dómsmálaráðherra Jóni Helgasyni, og áttu sæti í nefndinni Jónatan Þór- mundsson prófessor, Ásdís J. Rafnar lögfræðingur, Guðrún Agnarsdóttir læknir og alþingismaður, Hildigunnur Ólafsdóttir afbrotafræðingur og Sigrún Júlíusdóttir fálags- ráögjafi. Tillögur nefndarinn- ar um úrbætur nauðgunar- málum má skiþta í 4 megin- þætti: 1. Breytingar á XXII. kafla almennra hegningarlaga, og eru helstu markmið með þeim breytingum sem lagðar eru til grundvallar að ákvæði um kynferðis- brot verði ókynbundin, samræming verði á ákvæðum um kynferðis- brot í anda ríkjandi við- horfa nú á dögum og með hliðsjón á breytingum ann- arsstaðar á Norðurlöndum, gleggri skil verði á milli verklýsingar en í gildandi ákvæðum og þá sérstak- lega varðandi mörkin milli nauðgunar og annarrar kynferðislegrar nauðungar, refsivernd verði almennt aukin með því að leggja ýmsar kynlifsathafnir að jöfnu við samræði, og að refsivernd barna og ungl- inga verði almennt styrkt frá því sem nú er. 2. Breytingar á lögum um meöferð opinberra mála. Markmió nefndarinnar með þessum lagabreyting- um eru einkum þau að draga úr skaðlegum áhrif- um orots og málsmeðferð- ar á brotaþola, að þolend- ur kynferðisbrota öðlist fortakslausan rétt til end- urgjaldslausrar lögfræði- aðstoöar frá upphafi rann- sóknar og þar til málsmeð- ferð lýkur, að vikið verði frá frjálsu sönnunarmati varðandi fyrri kynferðis- hegöun brotaþola þannig að sönnunarfærsla um fyrri kynhegðun hans verði yfirleitt útilokuð. Þá er lagt til aö tilgreint verði tæm- andi í lögum hvenær ákæruvaldið megi falla frá saksókn, að brotaþoli öðl- ist rétt til þess að með málið verði farið fyrir lukt- um dyrum, að heimiluð verði skýrslutaka af brota- þolr n návistar hins brot- lega, og að settar verði fortakslaust fréttabann á persónulegar upplýsingar um brotaþola. Nefndin tel- ur einnig nauðsynlegt að brotaþola verði tryggð greiðsla þeirra bóta sem dómstólar dæma henni með því að ríkissjóður greiði henni bæturnar og endurkrefji síðan dómþola. 3. Nefndin leggur áherslu á að komiö veröi á fót neyð- armóttöku þar sem boðið er upp á samræmda og markvissa þjónustu og aðstoð við fórnarlömb kyn- ferðisbrota og llkams- árása. Mikilvægt sé að móttakan sé alltaf opin og þjálfað fólk sé til reiðu. 4. Að námskeið verði haldin fyrir lögreglumenn og starfsfólk heilbrigðisþjón- ustu, ekki síst um áhrif kynferðisbrota á brotaþola og hve mikilvæg fyrstu vióbrögð þessara stétta sé fyrir líðan þeirra. GERIST INNI Á HEIMILUM Hildigunnur Ólafsdóttir gerir könnun á rannsókn og meðferð nauðgunarmála frá l.júlf 1977 til 31.desember 1983. Ritgerðin er ekki heild- arkönnun á nauðgunarmálum heldur könnun á skráðum brotum gegn kynfrelsi kvenna á þessu tímabili. Einnig verður að taka tillit til þess skv. rannsóknum erlendis eru það 90-95% til- fella sem upplýsist ekki enda er kærutíóni ótrúlega lág, og er engin ástæða til að ætla að hátti til öðruvisi hér. Kær- ur eru ekki árstíðabundnar, en þær eru hinsvegar bundn- ar við helgar. Meirihluti þeirra er frá konum sem ekki þekktu árásarmanninn, en í fimmtu hverju kæru hafa aðil- ar þekkst lítillega. Oftast hafa samskipti brotaþolans og brotamannsins hafist í vinsemd eða á hlutlausan hátt. Afbrotastaöurinn er oft- ast heimili kohunnar, hins kærða eða þriðja aðila, en aðrir staðir eins og bifreiöir og skip eru miklu sjaldgæf- ari, svo og árásir á götum úti. Af þeim 238 sem voru viðriðnir brotin á þessu tima- bili voru 73% sem voru undir áhrifum áfengis; fleiri kærðir höfðu neytt áfengis, eða 87% samanborið vio 78% kær- anda. Það sem er athyglisvert viö þessa áfengisneyslu við- komandi aðila er að það virð- ist sem fleiri kvennanna séu mjög ölvaðar þegar þær verða fyrir brotinu, eða 1/4 þeirra. Það getur því verið stór liður í því að þeim takist ekki að veita mótspyrnu og komast hjá nauðguninni. HVERJIR NAUÐGA - HVERJUM ER NAUÐGAÐ? í þeim 126 málum sem könnun Hildigunnar nær til voru 114 karlar kærðir, en í fimmtán málum tókst ekki aö hafa upp á afbrotamönnun- um. Alls eru þessir 114 ein- staklingar kærðir 129 sinn- um. Um tíu af hundraði eru kærðir oftar en einu sinni á þessu sex og hálfa ári, og eru það því nokkuð margir sem eru kærðir oftar en einu sinni á rannsóknartímabilinu. Meðal 114 karla eru aðeins 5 útlendingar eða 6% alls hóþsins. Meðalaldur i hópi þeirra kærðu er 27,8 ár, og eru um % innan við þritugt. Elstu brotamennirnir voru 54 ára en þeir yngstu 16 ára. Flestir karlanna eru í fastri vinnu og eru ófaglærðir; fimmti hver er ekki í vinnu sem er mjög hátt hlutfall miðað við aö skráð atvinnu- leysi í landinu er 1%. Aðeins 16% kærðra er að hefja brotaferil sinn með þeim kyn- ferðisbrotum sem rannsóknin nær til; 20% karlanna hafa verið sakfelldir fyrir önnur kynferðisbrot, um 12% hafa verið dæmdir fyrir ofbeldis- brot, en 42% hafa áður verið dæmdir fyrir önnur hegning- arlagabrot, einkum þjófnaði og önnur auðgunarbrot, en í langflestum tilfella hafa þeir brotið umferðarlög og áfeng- islög. Alls voru þær konur sem rannsóknin náði til 121; Fimm konur hafa kært oftar en einu sinni, ein kona kærir þrisvar sinnum, aðrar tvisvar. Það eru því 4% kvennanna í rann- sóknarhópnum sem hafa orð- ið fyrir hliðstæðu broti oftar en einu sinni. Allar konurnar voru íslenskar. Langflestar kvennanna eru á aldrinum 15- 19 ára, en meðalaldurinn er 23.6 ár. Konurnareru því yngri en þeir kærðu; 69% þeirra voru 24 ára eða yngri en 43% hinna kærðu. Ekki er alhæft neitt um atvinnu og félagslega stöðu kvenna, en hlutfall nemenda er þó all- miklu hærra en meðal kærðu, enda konurnar yfir- leitt yngri. Aðeins 25% kvennanna hafði sætt viöur- lögum vegna afbrota, en þaó er miklu lægra hlutfall en hinir kærðu þar sem 84% þeirra höfðu verið sakfelldir. Ölvunarakstur er það brot sem konurnar eru oftast sak- felldar fyrir. Fórnarlömbin virðast þvl vera sundurleitari hópur en sjálfir nauðgararnir, og félagsleg staða þeirra ólíkari innbyrðis en þeirra. MÁLSMEÐFERÐ ÓFULLNÆGJANDI Af 126 kærum sem bárust til Rannsóknarlögreglu ríkis- ins lauk 42 kærum á lög- reglustigi en ö4 Kærur eru sendar til ríkissaksóknara. Af þeim enduðu 48 sem ákærur. Þriðjungi allra mála lýkur því á lögreglustigi, innan við þriðji hluti kæranna er felldur niður hjá ríkissaksóknara og rúmlega þriðjungi málanna lýkur með dómi. Það er því mikill minnihluti þeirra kæra sem berast rannsóknarlög- reglunni’ sem endar á dóms- stigi. Að meðaltali tekur það eitt ár og fimm mánuði frá því að kært er til lögreglu og þar til dómur er genginn í málinu. Það mál sem tók stystan tíma i réttarkerfinu var afgreitt á 314 mánuði, en það mál sem lengstan tima tók að afgreiða var 4 ár. STUTTí KVENFYRiRLITNINGUNA „Þetta var mjög neikvæð reynsla. Þeir gagnrýndu mig og rengdu. Þeir sögðu að ég ætlaði mér bara að nota hann og hefði viljað þetta sjálf.” „Þeir voru óþolandi. Þeir efuðust um allt sem ég sagði og spurðu hvort ég væri ekki að „spenna þetta upp” eða „varstu ekki bara ögrandi sjálf.” „ Þeir sögðu að þetta væri ekki svo alvarlegt mál; ég skyldi bara gleyma þessu.” Þessi dæmi um viðbrögð lögreglu við fórnarlömb nauðgarans eru í viðtalsóók Sigrúnar Júlíusdóttur Hremmingar, sem fjallar um reynslu 24 kvenna af nauðg- unarmálum. Bókin var unnin í tengslum við skýrslugerð nauðgunarmálanefndarinnar, en hefur nú verið gefin út í þeirri trú aö reynsla þessara kvenna muni stuðla að breyttum viðhorfum í garð þolendanna. Það virðist æði oft vera raunin að framburður konu sé vefengdur þegar hún ber fram kæru vegna meintr- ar nauögunar, og hún talin eiga jafnmikla sök á málum og árásarmaðurinn. Oft er eins og ansi stutt sé í kven- fyrirlitningu yfirvalda, og er það sameiginleg reynsla flestra þessara kvenna að þeim hafi verið sýnd ákveðin niðurlæging í meðförum málsins í dómskerfinu. Það ætti að vera Ijóst að konur sem verða fyrir slíkri árás eiga ekki að bera nokkurn hluta sakarinnar; valdbeiting og skerðing á kynfrelsi ein- staklings er alltaf alvarlegt og viðkvæmt mál, og réttur hans til viðeigandi málsmeð- ferðar ætti að vera skýlaus. Tillögur nauðgunarmála- nefndarinnar fela í sér mun afdráttarlausari línur um rétt- arfarstöðu fórnarlambsins, og allar þær úrbætur sem nefndin leggur til eru stórt stökk fram á við í þessum málum. Jafnbrýnt er að sama skapi verði viðhorfsbreyting meðal almennings, ef viðun- andi árangur á að nást. I

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.