Alþýðublaðið - 02.11.1988, Síða 1

Alþýðublaðið - 02.11.1988, Síða 1
im UBUDIfi STOFNAÐ Miðvikudagur 2. nóvennber 1988 Fjárlagafrumvc ÚTGJALDAÞENSI * * " * ' 200. tbl. 69. árg. 'rp 1989 mm rii.vnuBLF.Din LAN STODVUÐ RE¥KJANES Tekjuafgangur 1,6% af ríkisútgjöldum. Ríkissjóður tekur engin erlend lán á nœsta ári. Beinir skattar hœkka um 33 % og einnig er gert ráð fyrir verulegri hœkkun óbeinna skatta. Fjármálaráðherra lagði fram fjárlög fyrir 1989 fyrir al- þingi í gær. Frumvarpið er með 1200 milljóna kr. tekju- afgangi en ráðherra boðaði mikinn samdrátt í útgjöldum og opinberum framkvæmd- um á næsta ári. Þá mun ríkis- sjóður engin erlend lán taka á næsta ári. Fjárfestingar rík- issjóðs dragast saman um tæplega 7% að raungildi. Sparnaður í heilbrigðiskerf- inu verður stóraukinn og ein- stakar þjónustustofnanir eiga að veröleggja þjónustu sína sjálfar í auknum mæli. Boðað er átak í rekstri og framkvæmdum og aðhald í starfsemi stofnana og ráðu- neyta. Kvaðst fjármálaráð- herra ætla að fylgja því eftir af hörku og senda sveitir eft- irlitsmanna inn í þessar stofnanir til að fylgjast meö framkvæmdinni. Stefnt er að margvíslegum breytingum á tekjusköttum fyrirtækja og gert ráð fyrir að herða ákvæði skattalaga þess efnis, að tekjur í formi hlunninda, hvort sem það eru bilaafnot, úttektir á reikning fyrirtækis eða lánafyrir- greiðsla, komi til skattlagn- ingar. Fyrirhugað er að hækka skatthlutfall í tekju- skatti, en jafnframt hækka persónuafslátt, þannig að skattbyrði lægri tekna breyt- ist lítið sem ekkert. Þá hækki Þjóðhagsáœtlun 1989 3% lækkun þjóöartekna - 12% verðbólga Ný þjóðhagsáætlun gerir ráð fyrir 1,5% samdrætti í landsframleiðslu á næsta ári og að þjóðartekjur dragist saman um 3%. Reiknað er með þvi að verðbólgan milli ára verði 12%. Þá er reiknað með því að ráðstöfunartekjur verði í heild 5-6% minni næsta ár en i ár. Gert er ráð fyrir því að út- flutningur dragist saman og einnig þjóðarútgjöld, sérstak- lega útgjöld til einkaneyslu og fjárfestingar. Þjóðarút- gjöld munu að líkindum drag- ast saman um 2,5%, einka- neysla um 3,5% en sam- neysla aukast um 0,5%. Heildarfjárfesting minnkar samkvæmt þessu um 3%, þar af opinberar framkvæmd- ir um 4%. Reiknað er þá með því að heildarfjárfesting verði 17% af landsframleiðslu, sem verður þá hin minnsta í 40 ár. Reiknað er með því að heildarafli dragist saman um 4,5% og útflutningsverðmæti sjávarafurða um 3%. Að lík- indum verða viðskiptakjörin 1,5% óhagstæðari en í ár og hallinn í heild sem svarar , 4,5% af landsframleiöslu. barnabætur sérstaklega. í verölagsforsendum er gert ráö fyrir H-12% hækkun verðlags á næsta ári og að meðalverð á erlendum gjald- eyri hækki um 7% á milli ára. Ráðherra sagði þetta frum- varp vera mjög alvarlega tilraun til að brjóta í blað í efnahagsþróuninni. Meðal dæma um stöðvun útgjaldaþenslu hins opinbera og framkvæmda er ákvörðun um að hætta við innréttingu húsnæðis stjórnarráðsins sem keypt var af Samband- inu. Einnig verður dregið úr Óli Kr. Sigurðsson aðaleig- andi og forstjóri OLÍS segist ekki kannast við þær tölur sem fréttastofa sjónvarpsins birti í fyrrakvöld um skulda- stöðu fyrirtækisins. „Þetta er atvinnurógur," sagði Óli að- spurður þegar Alþýðublaðið náði tali af honum i gær. „Þessi frétt hefur skaðað fyrirtækið og veikt sam- keppnisstöðu þess á mark- aði.“ Meira vildi hann ekki tjá Fjórburar litu dagsins Ijós i gær á fæðingardeild Lands- spítalans. Um tæknifrjóvgun var að ræða, og er þetta í annað sinn sem glasafjórbur- ar fæðast i heiminum. Móður og börnum, sem allt voru stúlkur, heilsast vel. Þetta er í þriðja sinn sem fjórburar fæðast hér á landi, en síðast var það árið 1954. starfsmannafjölda ríkisins. Beinir skattar hækka úr 10,5 milljörðum í 14 milljarða eða um 33,3% miðað við áætlun fyrir árið í ár og sig um málið. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðsins hyggst hann fara i skaðabótamál við sjónvarpið vegna fréttarinnar. OLÍS skuldar alls 840 millj- ónir i Landsbankanum, sam- kvæmt heimildum blaðsins. Meirihluti skulda er í skilum, en um 120 milljónir eru gjald- fallnar. Eftir því sem blaðið kemst næst er um að ræða þrjár greiðslur, sem skuld- Stúlkurnar fjórar voru teknar með keisaraskurði og fædd- ust þær sex vikum fyrir tim- ann. Þeim heilsast vel og eru hinar sprækustu. Þær vógu • um sjö merkur hver. Foreldrar stúlknanna eru þau Margrét Þóra Baldursdóttir og Guðjón Sveinn Valgeirsson tann- læknir. óbeinir skattar hækka úr 52,4 milljörðum í 59,7 milljaröa eða um 13,8%. (Sjá umfjöllun um fjárlagafrumvarpið í opnu). féllu nýverið. Samkvæmt heimildum blaðsins krefst Landsbankinn þess, að Óli Kr. standi við samning sem hann undirrit- aði við kaupin á OLÍS gagn- vart bankanum. Samningur- inn kveður m.a. á um, að OLÍS verði að standa í skilum við bankann um allar greiðsl- ur. Bankinn neitar nú að veita fyrirtækinu frekari fyrir- greiðslu og hefur lokað fyrir allar frekari ábyrgðir. Jafn- framt krefst bankinn að Óli selji fyrirtækiö og verði bú- inn að því um áramót. Al- þýðublaðiö náði ekki tali af bankastjórum Landsbankans í gær til að fá þetta staðfest. Eftir að málið kom upp sögðu tveir stjórnarmenn í OLIS af sér, m.a. stjórnarfor- maðurinn Þórður Gunnars- son lögfræöingur. Talið er að OLÍS eigi vel fyrir skuldum. Útstandandi skuldir fýrirtækisins eru t.d. taldar nema 6-700 milljónum. JUU. VUft^STOKAi* (II'WWIM \ k;: k.xKik ',» rs.r Reykjanesblað, aukaútgáfa Alþýðublaðsins kemur út í dag. Blaðinu er dreift í hvert 'hús í kjördæminu og kemur út í 25.000 eintökum. I blað- inu eru greinar og viðtöl við marga af helstu frammá- mönnum Alþýðuflokksins í kjördœminu. Þar má nefna bœjarstjórana Guðmund Arna Stefánsson — sem m.a. gagnrýnir samskiptaörðug- leika ríkis og sveitarfélaga — og Guðfinn Sigurvinsson í Keflavík sem m.a. rœðir þann vanda sem Keflavík er að komast í vegna sölu tog- aranna Aðalvíkur og Berg- víkur sem eru í eigu Hrað- frystihúss Keflavíkur, en bœjarfélagið er stór hluthafi í fyrirtœkinu. Að auki má nefna viðtal við Gylfa Ingvarsson, formann verka- lýðsmálaráðs AIþýðuflokks- ins, þar sem hann m.a. gagn- rýnir stjórnvöld og verka- lýðshreyfingu fyrir að vinna ekki nœgilega vel að lang- tímalausnum í verkalýðs- málum. Barnabœtur og barnabótaauki 750 MILLJÓNIR GREIDDAR ÚT UNI MÁNAÐAMÓT Lokagreiðslur barnabóta og barnabótaauka voru póst- lagðar þann 31. október. Út- borgaðar barnabætur nema rúmum 523 milljónum króna og barnabótaauki nemur rúmum 229 milljónum króna eða samtals rúmlega 752 milljónum króna. Bótaþegar eru rúmlega 62 þúsund. í frétt frá fjármálaráðuneyt- inu er athygli vakin á því, að vegna mistaka við tölvuút- skrift verða bætur vegna barna sem fæddust á timabil- inu júll-október s.l. ekki póst- lagðar fyrr en I lok vikunnar. „Þetta frumvarp er ekki gleðiboðskapur en alvarleg tilraun til að stöðva útgjaldaþenslu rikisins án þess að skerða þjónustu á sviðum velferðarmála, menningarmála og umhverfismála," sagði fjármálaráðherra á frétta- mannafundi í gær þar sem fjárlagafrumvarpið var kynnt. A-mynd/Magnús Reynir. Frétt sjónvarpsins um skuldastöðu OLÍS ÓLI KR. ÍHIIGAR NIÁLSÓKN FJÓRBURAFÆÐING

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.