Alþýðublaðið - 23.11.1988, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 23.11.1988, Qupperneq 6
Mióvikudagur 23. nóvember 1988 BOKAFRE TTIR Egill Eðvarðsson og Hrafn Gunnlaugsson. Reimleikar í birtunni Vaka-Helgafell hefur sent frá sér nýja Ijóðabók eftir Hrafn Gunnlaugsson sem hann nefnir Reimleikar i birt- unni. Egill Eóvarösson hefur gert myndverk í bókina og má því segja aö tveir kvikmynda- leikstjórar leiði í þessu verki saman hesta sína. Hrafn Gunnlaugsson, dag- skrárstjóri Sjónvarps, er án efa þekktastur sem kvikmynda- höfundur og leikstjóri. Efni Ijóöabókarinnar er einnig ná- tengt viðfangsefnum hans á sviöi listsköpunar í kvikmynd- um. Höfundaferil sinn sem Ijóðskáld hóf Hrafn hins vegar skömmu eftir stúdentspróf meö bókunum Ástarljóö (1973) og Grafarinn meö fæðingar- tengurnar (1976) en Helgafell gaf þær út. Um það leyti fyllti Hrafn flokk ungskálda sem kölluóu sig „listaskáldin vondu“. Ljóöin í bókinni Reimleikar í birtunni eru ort undanfarinn áratug og tengjast reynslu höf- undar sem kvikmyndaleik- stjóra enda hafa þau orðið til á þeim tíma er Hrafn hefur feng- ist viö stærstu viófangsefni sín á sviði íslenskrar kvik- myndagerðar. Hrafn Gunnlaugsson hefur lagt áherslu á að móta eigin stíl í Ijóðaforminu. Hann yrkir um mannlegar ástríður og eigin reynslu á mjög persónu- legan hátt og myndræn hugs- un birtist lesandanum glöggt í Ijóðunum. í bókarauka greinir • Hrafn frá tilurð flestra Ijóð- anna og tilefnum. Litla vampíran flytur Bókaútgáfan Nálín Litla vampíran Bókaútgáfan Nálin hefur sent frá sér barna- og ung- lingabókina „Litla vampíran flytur“, eftir v-þýska höfund- inn Angelu Sommer-Boden- burg I íslenskri þýðingu Jór- unnar Sigurðardóttir. Bókin er önnur bókin af átta í sam- nefndum bókaflokki, en hver bók er sjálfstæð saga. Fyrsta bókin, Litla vampíran, kom út á síðasta ári og féll í góðan jarðveg hjá börnum og ung- lingum. Sú bók er nú fáanleg aftur og kostar kr. 995.- Litla vampíran flytur fjallar, eins og fyrsta bókin, um vægast sagt sérkennilega vináttu þeirra Antons Túlliníuss og Runólfs Hroll- berg, en sá síðarnefndi er lítil vampíra! Fleiri koma þó við sögu, til dæmis foreldrar Antons sem trúa alls ekki á vampírur og Anna hin tann- lausa, systir Runólfs. Hún var svo óheppin að verða vampíra sem barn og því eina vampíran sem verður að nærast á mjólk! Runólfur Hrollberg á líkt og Anton I hálfgerðu brasi við fullorðna ættingja sína, því allur sam- gangur við mannanna börn er stranglega bannaður. Og í nýju bókinni lendir Runólfur í grafarbanni fyrir þá sök eina að besti vinur hans er af mannaættum! Hvert getur hann leitað í vanda sínum annað en til vinar síns.. en ekki orð meira um það! Ofbeldislýsingar og hvers- konar ofbeldisdýrkun eru eitur í beinum höfundar bók- anna enda leggur hún þvert á móti áherslu á mikilvægi þess að vinna gegn óttanum. Angela Sommer-Bodenburg segir sjálf: „Hryllings- og ofbeldis- dýrkun sem oft dynur á börn- um, ekki síst af myndbönd- um og úr sjónvarpi, veldur því að börn fyllast oft ótta sem þau eru ekki einfær að vinna úr. Minum bókum er ætlað að hjálpa börnum að losna við þennan ótta. Ég reyni að sýna þeim fram á að aðrir, t.d. litla vampíran geti lika fyllst ótta og kviöa.“ Jólaföndur- bókin Út er komin í vegum Kiljufor- lagsins Jólaföndurbókin. Þessi bók hefur að geyma 100 uppskriftir og snið af skemmtilegu jólaföndri með jafnmörgum fallegum lit- myndum. Þær sem unnu að bókinni eru Karolína M. Jónsdóttir, Guðbjörg Pétursdóttir, Gerð- ur Helgadóttir og Olga Lísa Garðarsdóttir. Meðal þessa föndurs, sem finna má í Jólaföndurbókinni, eru jólasveinar, jólakort, jóla- póstpokar, jóladúkar, jóla- dagatöl, jólatré, jólasveina- húfur, tauhringir og grjóna- sveinar svo eitthvað sé nefnt af þeim 100 uppskriftum sem finna má í Jólaföndurbókinni. Höfundar bókarinnar hafa lagt áherslu á að gera þjóð- legt og fallegt jólaföndur sem er auðvelt I vinnslu svo öll fjölskyldan geti tekið þátt í að föndra eitthvað til jól- anna. Bókin er um 160 bls. prent- uö hjá Borgarprenti. Dreif- ingu annast Fjölsýn forlag, í síma 689270. Jan Mogen.nen ísak óánægði ísak óánægði Mál og nnenning hefur gefið út bókina ísak óánægði eftir Jan Mogensen. Hérsegir af litlum strák sem er óánægður með allt sem for- eldrar hans gefa honum vegna þess að hlutirnir passa ekki fyrirhann. Skórnireru of stórir, stóllinn of lítill, borðið of hátt o.s.frv. Leikið er með stærðar- hlutföll og ýmis hugtök I máli og myndum með það að mark- miði að útskýra þau í sögu- formi. Sigrún Árnadóttir þýddi. Bókin er 36 bls., prentuð í Danmörku. Nikkólína og villikötturinn Mál og menning hefur sent frá sér norsku verðlauna- myndabókina Nikkólína og villikötturinn eftir Anne Kierulf. Þetta er saga af sómakærri heimiliskisu sem ókyrrist einn daginn og leitar í burtu á vit ævintýranna. Fyrr en varir skilar hún sér heim aftur og ekki líður á löngu uns heimilisköttunum fjölgar. Á hverri síðu eru lit- myndir. Bókin, sem er 32 blaðsíður, er þýdd af Silju Aðalsteins- dóttur. □ 1 2 3 r 4 5 6 □ 7 9 10 □ 11 i □ 12 13 □ □ * Krossgátan Lárétt: 1 prútta, 5 sár, 6 fjár- muni, 7 silfur, 8 sléttur, 10 tónn, 11 angur, 12 hlýja, 13 rumar. Lóðrétt: 1 japla, 2 tóma, 3 ónefndur, 4 hrellir, 5 þættir, 7 vesall, 9 mæla, 12 kliður. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 svíri, 5 glas, 6 lög, 7 ól, 8 opnaði, 10 pp, 11 fis, 12 kant, 13 akarn. Lóörétt: 1 slöpp, 2 vagn, 3 ís, 4 aflist, 5 gloppa, 7 óðinn, 9 afar, 12 KA. • Gengií Gengisskráning 222 - 21. nóv. 1988 Kaup Sala Bandaríkjadollar 45,550 45,670 Sterlingspund 82,657 82,875 Kanadadollar 37,428 37,527 Dðnsk króna 6,7980 6,8159 Norsk króna 6,9473 6,9656 Sænsk króna 7,5146 7,5344 Finnskt mark 11,0505 11,0796 Franskur franki 7,6826 7,7028 Belgiskur franki 1,2528 1,2561 Svissn. franki 31,2521 31,3345 Holl. gyllini 23,2855 23,3469 Vesturþýskt mark 26,2498 26,3190 Itölsk lira 0,03530 0,03540 Austurr. sch. 3,7321 3,7419 Portúg. escudo 0,3152 0,3161 Spánskur peseti 0,3985 0,3995 Japanskt yen 0,37184 0,37282 írskt pund 70,095 70,279 SDR 24.11 62,0591 62,2226 ECU - Evrópumynt 54,3662 54,5094 • Ljósvakapunktar • RUV 19.00 Poppkorn. Stórstirnið og sálin hans Jóns, Stefán Hilmarsson, sýnir myndbönd frá öðrum stjörnum. • Stöí 2 20.45 Heil og sæl. Salvör og Jón Óttar fjalla um fíkniefna- vandamálið. Hvað skyldu t.d. margir íslendingar taka í nös? • Rás 1 21.00 „Hugmyndin þótti út I bláinn". Inga Jóna Þórðar- dóttir, hinn virti svæðis- útvarpsmaður, ræöir við hjón- in Mariettu Maisen og Pétur Behrens, sem fást við mynd- list og stunda hestamennsku á Höskuldsstöðum í Breiðdal. Að þessu sinni hefur Inga Jóna aðeins brugðið sér yfir Breiðdalsheiðina og er það vel. • Rás 2 19.33 íþróttadeild útvarpsins þenur raddböndin með hjálp Georgs Magnússonar. • RÓT 22.30 Alþýðubandalagið. Þátt- urinn fjallar væntanlega um átök og ástir. m ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hita- veitu Reykjavíkur óskar eftir tilboöi í innanhúss- frágang stöövarhúss Nesjavallavirkjunar. Verkið felst í aö Ijúkaviö stöövarhús Nesjavallavirkj- unar, þar meö talið aö fullgera múrverk, tréverk og málningu svo og allar innréttingar. Vettvangsskoöun aö Nesjavöllum 29. nóv. kl. 14. Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 20.000,- skilatrygg- ingu. Tilboöin veröaopnuöásamastaö miðvikudaginn 14. des. kl. 14. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Póstholf 878 — 101 Reykjavik SÖLUSKATTUR Viöurlög falla á söluskatt fyrir októbermánuö 1988, hafi hann ekki verið greiddur í síöasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaöan virkan dag eftireindaga uns þau eru orðin 20%, en síöan reiknast dráttarvextir tii viðbót- ar fyrir hvern byrjaðan mánuð, taliö frá og með 16. desember. Fjármálaráðuneytið. KRATAKOMPAN OPIÐ HÚS Skrifstofa Alþýðuflokksins í Hafnarfirði í Alþýöu- húsinu við Strandgötu verður framvegis opin 2 daga í viku, þriðjudaga og föstudaga frá kl. 15.00 til 17.00. Á skrifstofunni verður Ingvar Viktorsson bæjarfull- trúi til viðtals fyrir gesti og gangandi. Bæjarbúar eru hvattir til að líta inn og ræöa málin.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.