Alþýðublaðið - 23.11.1988, Side 7
Miðvikudagur23. nóvember 1988
7
UTLÖND
Umsjón:
Ingibjörg
Arnadóttir
Harry Belafonte ásamt eiginkonu sinni og dóttur
„Calypso-Harry“
Árum saman var Harry Belafonte,
núverandi sendiherra UNICEF (Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna) kallaður „Calypso-
Harry“. Nú er hann bœði viðurkenndur sem
söngvari og pólitíkus.
Þaö hefur veriö sagt aö
hinar miklu vinsældir
calypso, tónlistar ættaðri frá
Vestur-lndíum, meö tilheyr-
andi blikktunnum, hafi verið
Harry Belafonte að þakka.
Enn þann dag í dag „líður“
þessi þeldökki en þó mjög
svo Ijósi Bandarikjamaður,
sem ættaður er frá V-lndíum
með enskt og franskt blóð i
æðum, fyrir að kallast
Calypsokóngurinn. Menn
segja, að það séu ekki ein-
ungis hjörtu kvenna sem slá
hraðar, þegar hann syngur
með sinni flauelsmjúku rödd,
heldur einnig hjörtu hinna
ýmsu pólitikusa, þó af öðrum
ástæðum sé.
Belafonte, sem þó ótrúlegt
megi teljast er orðinn 61 árs,
gerir minna af því aö koma
fram á sviði en áður. Hann
hóf baráttu sína fyrir borgara-
legum réttindum þeldökkra, I
Selma og Montgomery og
tók þátt í frelsisgöngunni til
Washington árið 1962. Þegar
einn af góðvinum hans
Martin Luther King var myrt-
ur, hélt hann áfram barátt-
unni. Þetta mæltist ekki sér-
lega vel fyrir í Bandaríkjunum
á þessum tíma þar þótti Ijós
„negri“ vera sönnun þess, að
kynþáttafordómar væru ekki
ríkjandi í „guðs eigin landi“.
Harry Belafonte hefurtek-
ist að halda vinsældum sín-
um, bæði sem söngvari og
sem pólitískur áróðursmaður.
Hann erfyrsti maðurinn úr
skemmtanaiðnaðinum, sem
hefur verið útnefndur menn-
ingarlegur ráðgjafi Friðar-
hreyfingar í Bandaríkjunum.
Það var þáverandi forseti
Bandaríkjanna, John F.
Kennedy, sem það gerði.
Belafonte er nú einn af
sendiherrum UNICEF — og
hefur um árabil starfað með
hinum ýmsu mannréttinda-
samtökum — Fidel Castro
og Edward Kennedy eru með-
al þeirra sem kalla hann > 'n
sinn.
Hann kærir sig kollóttan,
að hann er vegna pólitískra
afskipta sinna, á skrá hjá
FBI. Hann var meðal þeirra
listamanna sem tók þátt í
gerð hljómplötunnar „We are
the World" alþjóðalega met-
söluplatan, sem gefin var út
til styrktar sveltandi milljóna
fólks í Afríku.
Öll list er pólitlk, en öll
pólitík er ekki list, var haft
eftir honum fyrir 10 árum síö-
an. Þaö eru ekki aóeins kyn-
þáttafordómar sem hann
berst gegn, heldur allt, sem
skeröir réttlæti allra minni-
hlutahópa.
Belafonte sendi frá sér
nýja plötu á dögunum
„Paradise in Gazankulu".
Þessi plata er einskonar óður
til suður-afrískrar tónlistar og
einnig til baráttu svertingja í
S-Afrfku gegn apartheid.
Platan er að hluta til tekin
upp í Johannesburg I
S-Afríku, en þar er Harry
Belafonte „persona non
grata“. Ríkisstjórn S-Afríku
kærir sig ekki um heimsókn
söngvarans, vegna gagnrýni
hans á apartheid-pólitík ríkis-
ins.
I sinn stað sendi Belafonte
fulltrúa sinn, framleiðandann
og tónskáldiö til S-Afríku, til
BLÁEYGDUR
RAUNSÆISMAÐUR
Hann kann betur við sig í gallabuxum, bol eða
peysu, en í'jakkafötum. Honum líkar fjölskyldulíf
betur en samkvœmislíf og skilgreinir raunveru-
leikann frá kvikmyndum. Hann hefur ekki látið
frægðina stíga sér til höfuðs. Leikarinn með
frœgustu bláu augun í kvikmyndasögunni, er raun-
sœismaður, með heilbrigða skynsemi.
þess aó taka upp tónlist
bestu tónskálda og hljóm-
listarmanna í S-Afríku.
VONIR HINNA SVÖRTU
Belafonte segir gerð þess-
arar plötu, vera eitt af hjart-
fólgnustu viðfangsefnum
sem hann hefur unnið að.
Hann segir tónlistina lýsa
þeim landshlutum sem tón-
listin kemur frá: Samfélaginu,
skapgerðinni, hjartalaginu og
vonum svertingjanna.
Enn eitt viðfangsefni Harry
Belafonte er gerð röð sjón-
varpsþátta um líf Nelson
Mandela. Aðalhlutverk í þeim
hafa á hendi Jane Fonda,
Marlon Brando og Sydney
Poitier.
Harry Belafonte er einn
þeirra skemmtikrafta, sem
heldur vinsældum og þokka,
þrátt fyrir að árunum fjölgi.
Einkalíf hans hefur ekki verið
áberandi og hann hefur aldrei
fengið á sig glaumgosa-
stimpil. Kannski er það þess
vegna sem allir aldurshópar
kvenna, sjá hann sem ímynd
hins fullkomna manns.
DÓTTIR HARRY
Belafonte á ákaflega
fallega dóttur, sem er Ijós-
myndafyrirsæta og leikkona.
(Lék m.a. í sjónvarpsþáttun-
um ,,Hotel“.) Hún heitirShari
Belafonte Harper, en vill ekki
nota nafn föður síns, sér til
framdráttar á leikferli sínum.
„Ég er kona, svört og dóttir
Harry Belafonte, en það opn-
ar engar dyr fyrir mig“, sagði
hún í blaðaviðtali.
Shari er ekki dóttir núver-
andi eiginkonu Belafonte.
Foreldrar hennar skildu þeg-
ar hún var 2 ára, en þá flutti
Harry að heiman en móðirin
og Shari bjuggu áfram í New
York. Þegar Shari var 10 ára
fór hún til móðurömmu sinn-
ar, vegna þess að móðir
hennar vildi stunda sitt fag,
sálfræðina.
Þegar amma hennar lést,
fannst henni heimurinn
hrynja. Hún var send í heima-
vistarskóla þegar hún var 12
ára, lauk þar menntaskóla-
námi og giftist þá skóla-
félaga sínum. Þó Shari hafi
átt frægan föður, hafði hún
lítiö af honum að segja í
æsku, en hún er ekki bitur.
TIL JAPAN MEÐ PABBA
„Harry var mér góöur, við
áttum saman yndislegar
helgar og ferðuðumst vítt og
breitt um heiminn. Við erum
nánir vinir og samrýmdari en
mörg feðgin sem alltaf hafa
veriö saman“, segir hún.
Belafonte er með þessa
algengu sektartilfinningu
foreldra vegna æsku Shari.
Hann finnur þó það sér til
afsökunar, að hann og fyrri
konan hafi skilið um það leyti
sem Shari fæddist. „Þetta
var erfitt fyrir Shari, hún fór á
mis við öryggi og fastan
samastað á þeim árum sem
persónuleiki hennar var að
mótast. í þess stað ólst hún
upp á heimavistarskólum",
segir hann.
En — „the show must go
on“ og Harry Belafonte getur
enn fyllt stór hljómleikahús.
(Det fri Aktuelt.)
Hann er einþykkur, ótam-
inn, dulítid hrár en sérstakur.
Ástrikur heimilisfaðir og hug-
djarfur kappakstursmaður.
Kvikmyndaleikarar eru
margir hverjir þekktir fyrir
áhuga sinn á „konum, víni og
söng“, en Paul Newman sæk-
ist eftir friði og ró, með sinni
trúföstu eiginkonu, leikkon-
unni Joan Woodward. í 30 ár,
hafa þau svelt „Gróurnar" í
Hollywood. Ekki vantaði hrak-
spárnar, þegar þau giftu sig
árið 1958, „þetta endist ekki
út árið“, sögðu slúðurkerling-
ar í Hollywood.
KAPPAKSTURSBÍLSTJÓRl
Ástin minnkar ekki milli
hjónanna, þrátt fyrir ásókn
Paul Newman í spennu og
áhættu, þegar hann er ekki
að vinna við kvikmyndir. Síð-
astliðin 20 ár hefur hann tek-
ið þátt i ótal kappakstursmót-
um, og jafn mörgum sinnum
hefur Joanne fylgst með frá
áhorfendapöllunum með
„hjartað uppi í hálsi“.
Newman hefur oft unnió á
þessum mótum og stundum
teflt á tæpasta vað. Þessi
ástríða hans hefur ekki dvín-
að meö aldrinum, hann held-
ur áfram aö keppa þó hann
sé orðinn 60 ára.
Paul Newman fæddist í
Cleveland 26. janúar 1926.
Frægðarferill hans sem leik-
ari byrjaði frekar seint, en eft-
ir fyrsta hlutverk hans á
Broadway, var hann „uppgötv-
aður“ af umboðsmanni frá
Hollywood, sem leitaði að
hæfileikafólki.
Fyrsta hlutverk hans var
aukahlutverk í kvikmyndinni
„The Silver Chalice", þá var
hann 28 ára, síðan kom hver
leiksigurinn á fætur öðrum. í
annarri kvikmynd sinni
„Someone up There likes
me“, sem gerð var árið 1956,
þótti hann skila skapgerðar-
hlutverki sínu sem hnefa-
leikakappinn Rocky Graci-
ano, með afbrigðum vel. Til
þess að allt yrði sem eðlileg-
ast lærði hann hnefaleika,
áðuren myndatakan hófst.
Tveimur árum seinna vann
hann fyrsta stórsigur sinn á
hvíta tjaldinu í kvikmyndinni
„Cat on a Hot Tin Roof“, þar
sem Elisabet Taylor var mót-
leikarinn.
Newman hefur verið
kvæntur tvisvar sinnum. Með
fyrri konu sinni, leikkonunni
Jaqueline Witt, eignaðist
hann þrjú börn, tvær dætur
og einn son. Með Joanne
Woodward á hann þrjár dæt-
ur.
Árið 1978, varð hann fyrir
þeirri miklu sorg, aö eini son-
urinn sem hann hafði eignast
andaöist, sem var afleðing of
stórs skammts af eiturlyfjum.
Paul Newman tók sonarmiss-
inn mjög nærri sér. Hann
ásakaði sjálfan sig fyrir að
Paul Newman býr vid mikla kven-
hylli — en hann hefur ekki áhuga
á ödrum konum en sinni eigin.
Eini keppinautur eiginkonunnar
er kappakstursbrautin!
hafa ekki gert nægilegar til-
raunir til að hjálpa syninum.
Eins og alltaf, stóð Joanne
Woodward eins og klettur á
bak við hann, og sameigin-
lega stofnuðu þau hjálpar-
sjóð, gegn eiturlyfjaneyslu og
kölluðu sjóðinn „The Scott
Newman Foundation". Frá því
að þessi atburður átti sér
staö, hafa þau starfað ötul-
lega í baráttunni gegn eitur-
lyfjum. Þau hafa einnig verið
mjög virk í friðarhreyfingum
og umhverfismálum. Hjónin
eru eindregnir andstæðingar
kjarnorkuvopna og hafa stutt
við bakið á þeim forsetaefn-
um, sem eru úr flokki demó-
krata.
KVIKMYNDALEIKSTJÓRI
Fimm sinnum hefur Paul
Newman verið á bak við kvik-
myntatökuvélina sem leik-
stjóri. Uppáhaldsleikkona
hans er auðvitað eiginkona
hans Joanne Woodward. Nýj-
asta sameiginlega kvikmynd
þeirra er „Glerdýrin".
Vinir þeirra hjóna segja
það eftirtakanlegt, að hjónin
geri mikið af þvi að snerta
hvort annað. Þó ekki með
kossaflangsi og faðmlögum
á almannafæri, sem alltaf ber
vott um sýndarmennsku,
heldur hönd á handarbak, létt
snerting á öxl eða klapp á
bak.
Paul Newman er mikið fyrir
bjór, og er oft myndaður með
bjórdós I hönd. Einn vinur
hans spuröi hvernig hann
færi að því að vera svona
unglegur í andliti og vexti,
þar sem menn verða oft
þrútnir í andliti og fá bjór-
vömb ef þeir eru sífellt að
þamba bjór.
„Á hverjum morgni er ég
með hausinn ofan í köldu
vatni í þrjár mínútur! í sam-
bandi við vömbina, þá er mál-
ið einfaldlega, að láta bjór-
dósinaendast lengi lengi!"
(Arbeiderbladet.)