Alþýðublaðið - 08.03.1989, Side 5

Alþýðublaðið - 08.03.1989, Side 5
Miövikudagur 8. mars 1989 5 AFLAKÓNGUR VIKUNNflR Sveinn Jónsson skipstjóri á Jóhanni Gíslasyni ÁR-42 UNGUNGARNIR AFLASÆLIR Aflakóngur vikunnar yfir land- ið vikuna 26. febrúar til 4. mars 1989 var Sveinn Jónsson skip- stjóri á Jóhanni Gíslasyni ÁR-42. Hann landaði í Þorlákshöfn síð- astliðna viku samtals 129.447 kg sem hann fékk í net i snarbröttum landgrunnskantinum suður af Eyjafjöllum. Aflakóngstignin ekki________ orðin vani Þetta er í þriðja sinn, frá því Al- þýðublaðið hóf útnefningu afla- kóngs vikunnar, sem Sveinn er í efsta sæti. Megin ástæðan fyrir þessu segir Sveinn að sé sú að hann náði strax í upphafi góðum stæðum fyrir net sín á kantinum og hefur hann haldið þeim. Ekki sagði Sveinn að veðrið hefði látið sitt eftir liggja í síðast- liðinni viku á þessu svæði, til þess að gera þessa góðu veiði mögu- lega. Hann er þétt setinn_________ kanturinn Aðrir bátar hafa sífellt verið að færast nær stæðum Sveins en þó hefur verið reynt að hafa um 600 metra á milli netatrossa. Á þessu svæði liggur landgrunnskantur- inn í suð-austur og eru netin lögð í norð-austur, suð-vestur stefnu. Mjög lítið er um það að bátar leggi net sín yfir trossur frá öðrum bátum. Ef slíkt kemur fyrir þá er það liðin tíð að skorið sé á netin heldur eru viðkomandi í slíkum tilfellum látnir vita og draga þeir þá net sín strax ofan af netum við- komandi. Plássið á kantinum_________ batnar eftir páska Að sögn Sveins Jónssonar skip- stjóra færa margir bátar net sín eftir páskastoppið af því svæði sem þeir eru á nú og upp á land- grunnið. En Sveinn ætlar að vera áfram á þessu svæði og eru fyrir því tvær ástæður. Sú fyrri er að loðnan er týnd þessa stundina og virðist það ekki hafa nein áhrif á fiskigengdina, þó loðnan hverfi við landgrunnskantinn, fiskurinn er þar áfram. Seinni ástæðuna sagði Sveinn vera þá að á síðast- liðinni vetrarvertíð þá hrygndi þorskurinn ekki uppi á land- grunninu í eins ríkum mæli og áð- ur, og því vildi hann veðja á þessi mið. Sveinn Jónsson skipstjóri i brúnni á m/b Jóhanni Gislasyni ÁR-42. „Við semjum sérstaklega um fiskverðið við útgerðina." samanborið við meðalaldur áhafna á öðrum bátunr í flotan- um. Koma vart heim nema um helgar Það er róið upp á hvern dag á Jóhanni Gíslasyni. Stoppin í landi eru mjög stutt, oftast tvær til* þrjár klukkustundir rétt á meðan landað er. Áhöfnin kemur því ekki til síns heima nema um helg- ar. Þó er reynt að vera í landi snemrna á miðvikudögum og get- ur þá áhöfnin dvalið eina kvöld- stund í faðmi fjölskyldunnar. Oft er farið í land í Vestmannaeyjum á föstudögum svona rétt til þess að ná sér í gos og súkkulaði eins og kokkurinn orðaði það, en hann gengur undir nafninu Saurlaug Bjarnadóttir hjá þeim um borð. Ber kokkurinn jafnan mikið og veglegt höfuðfat sem er með áföstu félagsmerki „Skítkokkale- lagsins" að sögn eins úr áhöfn- inni, og við fyrstu sýn virðist hann bera nafn sitt með rentu. Einn besti skipstjórinn i flotanum___________________ Að sögn áhafnarinnar er Sveinn einn sá albesti skipstjóri i flotanum. Hann er mjög ljúfur og sanngjarn. í Sveini er mikill metn- Vel hefur fiskast frá áramótum Frá áramótum hefur verið land- að úr Jóhanni Gíslasyni samtals 655 tonnum. Þar af er aflinn í febrúar mánuði 388.3 tonn og verður það að teljast mjög gott. Mars mánuður hefur yfir leitt ver- ið besti mánuður vetrarvertíðar og verður fróðlegt að fylgjast með aflanum yfirstandandi mánuð. Aflasamsetningin hefur breyst verulega frá byrjun vertíðar hjá þeim á Jóhanni Gíslasyni að sögn Sveins. í upphafi var megin uppi- staða aflans ufsi en í dag eru um 80% aflans þorskur. Meðalþungi aflans er nálægt sex kílóum. Áhöfnin ung að árum________ Meðalaldur áhafnarinnar á Jó- hanni Gíslasyni er 25 ár. Ekki hækkar aldur skipstjórans meðal- aldurinn verulega því hann er að- eins 29 ára gamall. Er þessi meðal- aldur verulega í lægri kantinum Kokkurinn á Jóhanni Gislasyni gengur undir nafninu Saurlaug Bjarna- dóttir. Ástæða nafngiftarinnar ætti að vera Ijós. Aflaklærnar á m/b Jóhanni Gislasyni ÁR-42. aður fyrir því að standa sig vel því hann er jú ungur að árum. Hann hefur mikla lagni til að bera og er sérlega ósérhlífinn. Menn reyna þrotlaust að troða sér inn á þau netasvæði sem Sveinn hefur hald- ið frá upphafi og hefur Sveini tek- ist með lagni að halda sínum svæðum. Sveinn þekkir allar að- stæður á þessu svæði mjög vel og það er frábært að vera með svona skipstjóra á vertíð sagði einn áhafnarinnar á Jóhanni Gíslasyni að lokum. AFLAKÓNGAR FJÓRDUNGANNA Síöastliðna viku voru gæftir meö bestamóti það sem af ervetrarvertiö. Afli var nokkuö góóur á mörgum stööum, en þaó var ekki alls staöar. Dæmi eru um aó bátar hafi landað samtals 30 kilóum eftir siöastliöna viku. Hefur veiðin þvi alls ekki staðið undir netakostnaöi hvaö þá launum. Veóur fór versnandi undir lok vikunn- ar og komust bátar þá ekki á sjó á mörgum stööum. Aflakóngar i einstökum landshlutum vikuna 26. febrúar til 4. mars voru eftirtaldir: Suövesturland Jóhann Gíslason ÁR-42 Útgeróarstaður: Þorlákshöfn Afli: 129.447 kg Veiöarfæri: Net Skipstjóri: Sveinn Jónsson Vesturland Tjaldur SH-270 Útgeróarstaður: Rif Afli: 60.700 kg Veiöarfæri: Net Skipstjóri: Jóhann Kristinsson Vestfiröir Maria Júlia BA-36 Útgerðarstaður: Tálknafjörður Afli: 64.300 kg Veiöarfæri: Net Skipstjóri: Guðmundur Kr. Magnús- son Norðurland Sigurfari ÓF-30 Útgeröarstaöur: Ólafsfjöróur Afli: 56.019 kg Veióarfæri: Lina Skipstjóri: Númi Jóhannsson Austurland Erlingur SF-65 Útgeröarstaóur: Hornafjöröur Afli: 80.540 kg Veióarfæri: Net Skipstjóri: Örn Ragnarsson Vestmannaeyjar Þórunn Sveinsdóttir VE-401 Útgeröarstaður: Vestmannaeyjar Afli: 126.198 kg Veiöarfæri: Net Skipstjóri: Sigurjón Óskarsson Alþýðublaðið er i sambandi við 50 aðila út um land sem gefa upp afla- tölur á hverjum stað einu sinni i viku. Þetta eru viktarmenn, fiskverkendur og einstaklingar vítt og breitt um landið. Út frá þessum upplýsingum eru aflakóngar fjórðunganna fundnir og einnig aflakóngar vikunnar. Án aðstoðar þessa fólks væri útnefning aflakónga vikunnar ekki möguleg.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.