Alþýðublaðið - 08.03.1989, Qupperneq 6
6
Miðvikudagur 8. mars 1989
SMAFRETTIR
Leifur
Breiðfjörð í
Gallerí Borg
Leifur Breiðfjörð sýnir verk
sín í Gallerí Borg, Pósthús-
stræti 9.
Á sýningunni eru olíumál-
verk og pastelmyndir. Þetta
er fyrsta einkasýning hans á
olíumálverkum. Myndirnar
eru flestar unnar á árunum
1988-1989 og eru allar til sölu.
Sýningin er opin virka
daga frá kl. 10.00-18.00 og um
helgar frá 14.00-18.00. Henni
lýkur þriðjudaginn 14. mars.
Hundrað ár frá
fæðingu Bjarna
Snæbjörnssonar
læknis
Þann 8. mars, í dag, eru
hundrað ár liðin frá fæðingu
Bjarna Snæbjörnssonar,
læknis, fyrsta og eina heið-
ursborgara Hafnarfjarðar.
Af þessu tilefni hefur bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar sam-
þykkt að veita kr. 400.000 í Af-
mælissjóð Hafnfirðinga, sem
stofnaður var á 75 ára afmæli
Bjarna Snæbjörnssonar. Enn-
fremur hafa börn Bjarna, þau
Jónas, Málfríður, Bjarni,
Kristjana og ekkja Snæ-
björns, Áslaug Magnúsdóttir
gefið 250.000 kr. í sjóðinn.
Sjóðurinn veitir móttöku
framlögum einstaklinga og
fyrirtækja á merkisdögum í
ævi þeirra og starfi.
Stjórn Afmælisgjafasjóðs-
ins eru nú þannig skipuð:
Már Pétursson, bæjarfó-
geti, Guðmundur Árni Stef-
ánsson, bæjarstjóri, séra
Gunnþór Ingason, sóknar-
prestur, Jónas Bjarnason,
læknir og Helga Snæbjörns-
dóttir, Bjarni Bjarnason, lögg.
endurskoöandi til vara.
Rússneskur
ráðherra með
fyrirlestur í
Norræna
húsinu
Jevgení Kazantsév, fyrsti
aðstoðarmenntamálaráðherra
Rússneska sambandslýðveld-
isins, flytur fyrirlestur á veg-
um MÍR, Menningartengsla
íslands og Ráðstjórnarríkj-
anna, í Norræna húsinu
föstudaginn 10. mars kl. 17.
Ræðir hann um efnið: Menn-
ingartengsl og samvinna
þjóða frumbyggja á norður-
slóðum. Kazantsév ráðherra
hefur kynnt sér sérstaklega
og látið til sín taka málefni
fámennra þjóða og þjóða-
brota, sem byggja nyrstu
hluta Sovétríkjanna við Norð-
ur-íshaf og Kyrrahaf, og hann
mun í fyrirlestri sínum ræða
um samstarf þessara þjóða
og annarra sem á noröurslóð-
um búa. Fyrirlesturinn verður
túlkaður á íslensku. Öllum er
heimill aðgangur.
Námskeið um
rekstur gisti-
heimila og
heimagistingar
Námsflokkar Reykjavíkur
og Iðntæknistofnun Islands
efna til 50 stunda námskeiðs
um rekstur gistiheimila og
heimagistingar sem hefst
strax eftir páska. Námskeiðið
tekur til allra þeirra þátta
sem mestu máli skipta um
starfsemi af þessu tagi.
Fjöldi sérfræðinga hefur
unnið að undirbúningi og
gerö námsgagna.
Kennarar verða margir og
allir sérfróðir á sínu sviði.
Innritun er hafin hjá Náms-
flokkum Reykjavíkur [ síma
12992.
'Ályktað gegn
verðhækkunar-
skriðu
Fundur launamálaráðs og
stjórnar Starfsmannafélags
ríkisstofnana haldinn mið-
vikudaginn 1. mars 1989, mót-
mælir harðlega þeirri verð-
hækkunarskriðu, sérstaklega
fráoþinberum þjónustuaðil-
um, sem nú er hleypt á laun-
þega bótalaust.
„Fundurinn krefst þess, að
nú þegar verði af hálfu
stjórnvalda komið til móts
við réttmætar kröfur verka-
lýðshreyfingarinnar um eftir-
talin atriði:
— Skerðing kaupmáttar
frá síöustu samningum verði
bætt með 15% almennri
launahækkun.
— lægstu laun hækki sér-
staklega. Engin laun verði
lægri en kr. 50.000 á mánuði.
— kjör starfsstétta og
starfshópa sem vinna sam-
bærileg eða hliðstæð störf
verði samræmd.
Launþegar sem orðið hafa
að þola skerta samninga og
afnám samningsréttar leggja
áherslu á mikilvægi þess, að
samningum verði hraðað eins
og kostur er, að öðrum kosti
hlýtur verkalýðshreyfingin að
leita leiða til að knýja við-
semjendur sína að samninga-
borði til raunverulegra samn-
ingaviðræðna.“
Rithöfundar
vara við
ritskoðun
Að tilhlutan séra Þóris
Stephensens staðarhaldara í
Viðey hefur ríkissaksóknari
nú höfðað mál á hendur Halli
Magnússyni blaðamanni
vegna greinarinnar, „Spjöll
unnin á kirkjugarðinum í Við-
ey“ sem birtist í Timanum 11.
júlí 1989.
Stjórn Rithöfundarsam-
bandsins álítur að endurtek-
inn málarekstur af þessu tagi
beri vott um mjög varhuga-
verða þróun í átt til ritskoð-
unar. Opinberir embættis-
menn eiga ekki að vera hafnir
yfir gagnrýni og þeir, sem um
störf þeirra fjalla í fjölmiðl-
um, verða að geta gert það
án þess að eiga yfir höfði sér
stefnur frá rikissaksóknara.
Námskeið um
líftæknilegar
nýjungar
Þann 10. mars n.k. mun
endurmenntunarnefnd Há-
skóla standa að námskeiði
um líftæknilegar nýjungar í
matvæla- og efnaiðnaði. —
Námskeiðið er opið öllum er
tengjast matvæla- og efna-
iðnaði, en er einkum ætlað
þeim er starfa að rannsókn-
um og vöruþróun á því sviði.
Markmið þess er að kynna
nýjar framleiösluaðferðir i líf-
tækni og notkunarsvið líf-
tæknilegra afurða í matvæla-
iönaði, efnaiönaði og til efna-
greininga.
Fyrirlesarar verða Þyri
Valdimarsdóttir, Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins, Jak-
ob Kristjánsson, Iðntækni-
stofnun, Jón Bragi Bjarna-
son, prófessor H.l. Ágústa
Guðmundsdóttir, dósent H.í.
Nánari upplýsingar gefur
endurmenntunarstjóri i sim-
um 694925, 694923 og
694924.
* Krossgátan
□ 1 2 3 □ 4
5
6 j □ ■
■ 9
10 i □ 11
□ 12
13 ■j
Lárétt: 1 ís, 5 óhreinkar, 6 flík,
7 samstæðir, 8 rakki, 10 eins,
11 látbragð, 12 iðnaðarmenn,
13 gægist.
Lóörétt:1 stólpi, 2 vökvi, 3 þeg-
ar, 4 stafagerðin 5 úrþvætti, 7
kvabbir, 9 sýnishorn, 12 um-
dæmisstafir.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 hláka, 5 hrím, 6 rok, 7
ók, 8 elnaði, 10 yl, 11 gan, 12
garn, 13 angra.
Lóðrétt: 1 hroll, 2 líkn, 3 ám, 4
askinn, 5 hreyfa, 7 óðara, 9 ag-
ar, 12 gg.
• Gengií
Gengisskráning nr. 46 — 7. mars 1989
Kaup Sala
Bandaríkjadollar 52,410 52,550
Sterlingspund 90,253 90,494
Kanadadollar 43,913 44,030
Dönsk króna 7,2540 7,2734
Norsk króna 7,7547 7,7754
Sænsk króna 8,2471 8,2691
Finnskt mark 12,1263 12,1587
Franskur franki 8,3118 8,3340
Belgiskur franki 1,3477 1,3513
Svissn. franki 33,0662 33,1546
Holl. gyllini 25,0316 25,0985
Vesturþýskt mark 28,2496 28,3250
ítölsk llra 0,03844 0,03854
Austurr. sch. 4,0184 4,0291
Portúg. escudo 0,3430 0,3439
Spánskur peseti 0,4533 0,4545
Japanskt yen 0,40603 0,40711
irskt pund 75,242 75,443
SDR 68,6754 68,8589
Evrópumynt 58,7569 58,9138
Ný stjórn
Alþýðuflokks-
félags
Akureyrar
Aðalfundur Alþýðuflokksfé-
lags Akureyrar var haldinn 2.
mars 1989. Nýkjörna stjórn
skipa: Sigurður Ingólfsson,
formaður, Gísli Bragi Hjartar-
son, varaformaður, Jóhann
Möller, gjaldkeri og Pétur
Torfason, ritari. Meðstjórn-
andi er Jökull Guðmundsson.
Hraðakstur er orsök margra slysa. Miðum
hraða alltaf við aðstæður, m.a. við ástand
vega, færð og veður.
Tökum aldrei áhættu! mIumferðar
Uráð
Drögum úr hraða <o3>-
-ökum af skynsemi!
RAÐAUGLÝSINGAR
Óskum eftir blaðaburðarfólki
í eftirtalin hverfi:
170 Seltjarnarnes
Lindarbraut — Nesbali
Melabraut
Austurströnd
Seljabraut — Skerjabraut
Tjarnarból
Upplýsingar í sima 681866
JHMDUBIIDIB
AÐALFUNDUR
w/
C£S)D
Aöalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verður haldinn miövikudaginn 15. mars, kl. 20.30
aö Hótel Sögu, Átthagasal.
Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Kratakaffi
Munið kratakaffið miðvikudaginn 8. mars kl. 20.30 í
félagsmiðstöð jafnaðarmanna að Hverfisgötu 8-10.
Gestur fundarins verður Eiður Guðnason alþingis-
maður.
Komum, spjöllum og spáum í pólitíkina.
Alþýðuflokkurinn.