Alþýðublaðið - 08.03.1989, Síða 8

Alþýðublaðið - 08.03.1989, Síða 8
Hagvangur Almenningur spáir 26% verðbólgu Almenningur í landinu spáir því að verðbólgan á þessu ári verði rúmlega 26%. Þetta er vegið með- altal í svörum 570 ein- staklinga í spurninga- vangskönnun Hagvangs fyrir peningamáladeild Seðlabankans í janúar. Spurt var hver viðkom- andi teldi að verðbólgan yrði næstu 12 mánuðina og reyndist meðalspáin sem fyrr segir vera rúm- lega 26%, en í samskonar könnun í nóvember var meðaltalið rúmlega 22%. Nú töldu 43,2% að- spurðra að verðbólgan yrði á bilinu 20-30%, 17,4% taldi að hún yrði minni, en 29,5% taldi að hún yrði meiri. Kannanir sem þessi hafa verið gerð- ar frá því í september 1984 og hefur vakið at- hygli, að spáin hefur reynst nokkuð nærri lagi, með fáeinum undantekn- ingum. Bœjarstjórn Ólafsvíkur: Stopull snjó- mokstur um Fróðárheiði Bæjarstjórn Ólafsvíkur lýsir yfir mikilli óánægju með stopulan snjómokstur um Fróðárheiði, sunnanvert Snæfellsnes og til Reykjavik- ur. Bæjarstjórnin fer fram á að heiðin verði rudd alla virka daga, er veður leyfir. í ályktun bæjarstjórnar- innar segir að Fróðárheiði tengi saman sveitarfélögin sem njóti heilsugæslunnar í Ólafsvík og einnig fari þar um miklir vöru- og fiskflutn- ingar. Bæjarstjórn bendir á að með því að beina sífellt meiri umferð um Búlands- höfða, sé verið að beina fólki á vegakafla sem á þessum tíma árs sé hættulegur vegna snjóflóða og skriðufalla. Farið er fram á við sam- gönguráðherra, að Fróðár- heiði verði rudd alla virka daga er veður leyfir. Miðvikudagur 8. mars 1989 Sól hf. ISLENSKT GOS TIL BRETLANDS Sól hf. hefur gert samn- ing við breskt fyrirtæki um framleiðslu ágosdrykkjum á Bretlandsmarkað. Gos- drykkirnir eru framleiddir undir merki breska aðilans og heita „Selzer“. Fram- leiðsla hefst í apríl. Þegar er búið að prenta á umbúð- irnar, sem eru plastdósir líkt og á innlendu fram- leiðslunni. Davið Scheving Thor- steinsson forstjóri segir að kaupandinn sé fyrst og fremst að sækjast eftir plastdósunum, sem fyrir- finnast ekki í Bretlandi. Hann segir ljóst að hann geti ekki keppt við breska framleiðendur um verð. Hins vegar geti hann boðið dósirnar sem þeir geti ekki. Gosdrykkirnir eru sam- kvæmt blöndu kaupand- Davíð Scheving forstjóri er vongóður um framhald gos- drykkjaframleiðslu fyrir Bretlandsmarkað. Hann bendir á að fyrsta sending af Svala hafi verið einn gámur. í dag sendir Sól 100 gáma á markað i Bretlandi. ans, og heita „Selzer“. Fyrir þremur vikum voru fulltrúar fyrirtækisins hér á Iandi og gengu frá samn- ingum. Davíð segir við- skiptin fyrst og fremst að þakka þeirri umfjöllun sem Sól hefur fengið í Bretlandi. Svali frá Sól er fluttur út í töluverðu magni til Bret- lands. Framleiðsla á Bret- landsmarkað er orðin um 10% af heildarframleiðsl- unni. „Þetta byrjaði á ein- um gámi, en nú flytjum við út 100 40-feta gáma af Svala,“ segir Davíð. Enn er ekki vitað hve mikið magn verður fram- leitt af gosdrykkjum á Bretland. Davíð bendir á að útflutingur Svala hafi byrjað með einum gámi. „Það er aldrei að vita,“ segir hann. 25 zialdbrotabú: Ekkert fékkst upp í I nýjasta Lögbirtingablað- inu er greint frá skiptalokum 25 gjaldþrotabúa í Reykja- vík, Keflavík og Njarðvík, hjá 18 einstaklingum og 7 fyrirtækjum. Upp í alls 42ja Á tímabilinu 1. janúar 1984 til 30. september 1988 voru samtals greiddar slysa- tryggingabætur vegna 39 ein- staklinga úr röðum ríkis- starfsmanna, þar af 35 vegna varnalegrar örorku en 4 milljón króna kröfur án vaxta og kostnaðar fékkst ekki króna, nema í einu til- felli fengust um 68 þúsund krónur. Kröfurnar voru frá 19 þús- vegna dauðsfalla. Samtals voru greiddar rúmlega 18,8 milljónir króna í bætur. Þetta kemur fram í félags- tíðindum Starfsmannafélags ríkisstofnana. í 23 tilvikum 42 millj. und krónum upp í 8,2 millj- ónir króna. í fjórum tilfell- um voru allar kröfur aftur- kallaðar og viðkomandi aðil- um afhent búin á ný til frjálsrar ráðstöfunar. í öllum var um frítímaslys að ræða en í 16 tilvikum vinnutíma- slys. Athygli vekur að 14 af 16 vinnutímaslysum voru hjá lögreglumönnum, sem um leið þýðir að á tímabilinu kr. kröfur öðrum tilfellum nema þess- um fjórum lauk skiptalokum án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur og urðu kröfuhafar því af tæplega 42 milljónum króna. hafi lögreglumaður slasast alvarlega að meðaltali fjórða hvern mántfð. 15,2 milljónir voru greiddar vegna frítínia- slysa en aðeins 3,6 milljónii vegna vinnutímaslysa. Húsbréfakerfið: Alexander vill ekkert segja „Ég vil ekkert um af- stöðu Framsóknarflokks- ins til húsbréfakerfisins segja á þessari stundu. Frumvarpsdrögin eru til skoðunar þessa dagana og ekki tímabært að tjá sig um málið að svo stöddu“ sagði Alexander Stefáns- son fyrrverandi félags- málaráðherra og helsti talsmaður Framsóknar- flokksins í húsnæðismál- um í samtali við Alþýðu- blaðið í gær. Sem kunnugt er hefur Framsóknarflokkurinn verið tregur til að sam- þykkja framlagningu á 'frumvarpi Jóhönnu Sig- urðardóttur um breytingar á húsnæðislögum sem fela í sér upptöku húsbréfa- kerfisins svonefnda, auk vaxtabóta í stað húsnæðis- bóta og svo breyttar lána- reglur í almenna lánakerf- inu. í sérstakri milliþinga- nefnd um málið lagðist - fulltrúi Framsóknarflokks- ins auk fulltrúa Alþýðu- sambandsins gegn frum- varpinu, en fulltrúar 5 stjórnmálaflokka af 6 mæltu með því með ákveðnum fyrirvörum. Al- exander sagði að fyrir lægi samþykkt síðasta flokks- þings Framsóknarflokks- ins um að viðhalda núver- andi húsnæðislánakerfi með ýmsum lagfæringum og spurning hvort flokkur- inn væri bundinn af þeirri samþykkt. Meistara- og verktakasamband byggingarmanna: Húsbréfa- kerfinu fagnaö Meistara- og verktaka- samband byggingarmanna, MVB, er sammála hugmynd- um um húsbréfakerfi innan húsnæðislánakerfisins, sam- kvæmt ályktun sambands- stjórnarfundar MVB á Húsavík nýverið. MVB telur þó að húsbréfa- kerfið ætti strax að ná hvoru tveggja til notaðra sem nýrra íbúða, með þeim eina hætti geti nýja kerfið orðið til bóta fyrir iiyggingariðnað og íhúðareigendur. Sem kunn- ugt er gerir félagsmálaráð- herra ráð fyrir því að fyrst í stað nái nýja kerfið eingöngu til kaupa á notuðum íbúð- um. MVB fagnar frumvarpi fé- Iagsmálaráðherra, en varar hins vegar við sífelldum breytingum á húsnæðislána- kerfinu, slíkt minnki tiltrú manna á því kerfi sem unnið er eftir. Því má bæta við að talsmenn fasteignasala hafa einnig lýst yfir ánægju með hugmyndina um húsbréfin. Ríkisstarfsmenn: 39 slysabætur á 57 mánuðum

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.