Alþýðublaðið - 08.07.1989, Side 8

Alþýðublaðið - 08.07.1989, Side 8
8 Laugardagur 8. júlí 1989 SPÖNSKU konungshjónin Í EYJUM Opinberri heimsókn Spánarkonungs, Juans Carl- os, lauk síðdegis í gœr þegar hann flaug héðan ásamt konu sinni, drottningunni. Þau hjón náðu á skömm- um tíma að sjá margt af því sem einkennandi getur ta/ist fyrir Island og Islendinga, þar á meðal sa/tfisk- vinnslu í Eyjum, Þingvelli, borholur og virkjun við Nesjavelli svo eitthvað sé nefnt. Að auki héldu þau veislu til heiðurs forseta Islands og hún hélt þeim á sama hátt veislu þarsem ekkert var til sparað í mat og drykk svo fyrirmennin gætu notið hins besta. Á borð- um var yfirleitt íslenskur matur, kryddaður ýmsu spönsku Ijúfmeti, enda viðeigandi. Konungshjónin þóttu hin alúðlegustu og um leið alþýðleg og hlý. Þegar rútan með hina tignu gesti renndi frá flugstöðinni i Vestmannaeyjum var þar sam- ankominn fjöldi norskra ferða- manna sem veifaði til fyrir- fólksins. Eins og sjá má tók Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, kveðju þeirra Ijúflega. Gestirnir skoðuðu meðal ann- ars isaðan fisk í kerjum við höfnina í Eyjum. Þegar myndin er tekin hafði Vigdís rétt ný- lega handleikið fiskinn og kóngurinn af Spáni, sem sann- ur herramaður, rétti þegar fram vasaklút svo forsetinn gæti þurrkað sér. Eins og dómarar í borðtennis- keppni var fyrirfólkið þegar sprangararniri Eyjum köstuðu sér frá einni syllu til annarrar og flugu eins og fuglar um bjargið. LJÓSM.: E.ÓL. Spánarkonungur ku vera mikill áhugamaður um hverskonar tæki og tæknibúnað, einkum fjarskipti. Hér er hann í brúnni á Bjarnarey VE, ferð sem hann reyndar fór utan dagskrár, og virðir fyrir sér tækjabúnaðinn af miklum áhuga. Hér spá menn i saltfiskinn sem brátt á eftir að verða á borðum Spánverja ef að líkum lætur. Það er Magnús Gunn- arsson, framkvæmdastjóri SÍF, sem fer fimum höndum um fiskinn en kóngur og fylgd- armaður hans, Baltasar Sam- per myndlistarmaður, fylgjast með af kostgæfni.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.