Alþýðublaðið - 04.08.1989, Blaðsíða 1
íslensk fésyslufvrirtœki skila ríkinu litlu:
VINNUKONUSKATTAR
GRÁA MARKAÐARINS
Þrír bankar greiöa engan tekjuskatt. Sam-
vinnubankinn borgar engan eignarskatt né
heldur fjármögnunarleigurnar.
í samantekt Alþýðu-
blaðsins á skattbyrðum
allflestra fésýslufyrir-
tœkja böfuðborgarinnar
keraur í Ijós að fyrirtæki
„gráa markaðarins"
svokallaða, skila næsta
litlu í sameiginlegan
sjóð landsmanna.
Þannig kemur í ljós að
fjármögnunarleigufyrir-
tækin fjögur, Glitnir, Lýsing,
Féfang og Lind, greiða
hvorki tekju- né eignaskatt
og heildarskattgreislur
allra þessara fyrirtækja eru
30 milljónir, eða litlu meira
en skattakóngur landsins
— Þorvaldur Guðmunds-
son í Síld og fisk — greiðir.
Meðal þess sem fram
kemur í samantekt Alþýðu-
blaðsins er að Fjárfestinga-
félag íslands greiðir engan
tekjuskatt en Kaupþing
greiðir 7 milljónir.
Af bönkum og sparisjóð-
um höfuðborgarinnar kem-
ur í Ijós að Útvegsbankinn,
Verslunarbankinn og Sam-
vinnubankinn greiða eng-
an tekjuskatt og Samvinnu-
bankinn að auki engan
eignaskatt.
Gestur Steinþórsson,
skattstjóri Reykjavíkurum-
dæmis, segir við Alþýðu-
blaðið að hagnaður sem
bankarnir gefa upp í árs-
skýrslum sé ekki sá sem
gengið er út frá við skatt-
lagningu. Meðal annars
vegna undanþága sem
skattkerfið býður upp á.
Svo virðist af skattbyrði
sumra þessara fyrirtækja
að hagnaður af þeim sé
næsta lítill eða enginn þrátt
fyrir að ársskýrslur þeirra
beri öðru vitni.
Þá kemur í ljós að Kredit-
kort hf., eigendur Euro-
card, greiðir ríflega tvöfalt
meiri skatt en Vísa ísland.
Óvíst um ,
þátttöku SIS
Ólafur Sverrisson,
stjórnarformaður Sam-
bandsins, segir að Sam-
bandið hafi enn ekki tekið
neinar ákvarðanir um það
hvort fyrirtækið tekur
þátt í endurupþbyggingu
fiskvinnslu og útgerðar á
Patreksfirði. Sem kunnugt
er, þá er Sambandið
stærsti hluthafinn i Hrað-
frystihúsi Patreksfjarðar
sem nú hefur verið tekið
til gjaldaþrotaskipta, á
75% hlutafjár.
Sambandið hefur á undan-
förnum árum lagt töluvert fé.
til Patrreksfjarðar en nú virð-
ist sem þeir muni sitja uppi
með skuldirnar á meðan nýtt
fyrirtæki verður stofnað t
gegnum opinbera sjóði. Ólaf-
ur Sverrisson segir að enn
séu menn ekki farnir að gera
sér neina grein fyrir umfangi
gjaldþrotsins en ljóst sé að
Sambandið tapi tugum millj-
óna króna ef ekki meira.
Örtröð á Skattstofunni. Mikið hefur verið að gerast á Skattstofunni að
undanförnu. Fólk er að reyna að átta sig'á staðgreiðslunni svo sakar ekki að gá í leiðinni hvað
nágranninn á Volvonum borgar mikla skatta.
400 millj. rýrnun
Fyrstu 5 mánuði þesaa
árs minnkuðu innistæður
Póstur og sími:
HALFS MILLJ. HAGNAÐUR
Ahyggjur vegna minnkandi fjárfestinga
Árið 1988 var afar hag-
stætt Póst- og símamála-
stofnuninni, því rekstur
hennar kom út með 540
inilljón króna rekstrar-
hagnaði, en árið áður varð
útkoman 63ja milljón
króna tap. í ársskýrslu
stofnunarinnar er greint
frá því að rekstrartekjur
hafl hælckað um 35% milli
ára en rekstrargjöld um
aðeins 18,4%, sem er vel
undir verðbólgumðrkum.
Tekjur stofnunarinnar urðu
í fyrra 4.751 milljónir króna
en gjöld 4.252 milljónir eða
hálfum milljarði lægri. Fjár-
magnsgjöld urðu 43 milljón-
um hærri en fjármunatekjur
en á móti því komu 83,5
milljón króna tekjur af milli-
færslum vegna fjárfestinga.
Eigið fé var í árslok 7.805
milljónir kióúa og eiginfjár-
hlutfall um 87,6%.
Fram kemur að tekjur af
póst- og símaþjónustu hafi
aukist um 53% að raunvirði
milli áranna 1982 og 1988.
„Þessa aukningu má ein-
göngu rekja til meiri notkun-
ar á síma- og póstþjónustu því
gjaldskrá hefur ekki fylgt
verðlagi á þessu tímabili"
segir í ársskýrslunni.
I fyrra fjárfesti PÖstur og
sími fyrir 615 milljónir króna.
Hins vegar hefur raun-
minnkun orðið á fjárfesting-
unni síðustu tvö árin og veld-
ur þetta áhyggjum ráða-
manna á þeim bæ. „Ef ekki
verður breyting þar á er hætt
við að alvarlegt ástand geti
skapast í símkerfi landsins"
segir í skýrslunni.
á almennum sparisjóðs-
bókum í innlánsstofnun-
um um 400 milljónir
króna, en á sama tíma juk-
ust innistæður á 6 mánaö-
areikningum, öðrum
bundnum sparireikning-
um og gjaldeyrisreikning-
um verulega.
í lok síðasta árs voru 13,3
milijarðar króna á almennum
sparisjóðsbókum, en í lok
maí var upphæðin komin
niður í 12,9 milljarða. Á sam-
bærilegu verðlagi nemur
rýrnunin 12,3%. Frá árslok-
um 1985 nemur rýrnunin
hins vegar 6,5 milljörðum að
núvirði eða 32,5%.
Fyrstu 5 mánuði ársins juk-
ust innistæður landsmanna á
gjaldeyrisreikningum úr 5,7
milljörðum króna í 7,2 millj-
arða eða um einn og hálfan
milljarð. Á sama tíma jukust
innistæður á 6 mánaða reikn-
ingum og öðrum bundnum
reikningum úr 12,4 milljörð-
um króna í 14,3 milljarða.
ISLANDS-
BANKI
Guðmundur Einarsson
fjallar að þessu sinni um til-
urð íslandsbanka í föstudags-
spjalli sínu. Hann bendir á að
ríkið hafi tekið hluta af
bankakerfinu og hagrætt og
vill láta gera eins með land-
búnaðinn. Byrja á ákveðnum
stöðum við allra handa hag-
ræðingu.
Sjá bls. 5.
Almennar sparisjóðsbœkur: