Alþýðublaðið - 04.08.1989, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 04.08.1989, Blaðsíða 7
Föstudagur 4. ágúst 1989 7 í Gaza eru komnir til að vera ÚTLÖND Gyðingar Önnur hlið er til á Gaza. 2500 gyðingar hafa sest að í tveimur íbúðarsamstæðum, í nyrsta og syðsta hluta Gaza. Þetta fólk reynir að lifa á sem eðlilegastan hótt ó „gyðingaeyju í arabísku hafi", eins oa einn af íbúun- um orðaði það við blaðamann Arbeiderbladet, sem var á þessum slóðum nú nýverið. Gaza-héraðið, eins og það heitir er 40 kílómetra löng strandlengja 6—11 km. á breidd. Þarna búa um 650.000 íbúar af palestinsku- arabísku bergi brotnir. Þeir búa í borgunum Gaza, Khan Yunis og Rafah — einnig í sveitaþorpum og flóttamannabúðum. Þegar Bretar réðu þarna ríkjum, frá lokum fyrri heimsstyrjaldarinn- Pegar menn heyra orðið Gaza, sjá menn gjarnan fyrir sér yfirfullar flóttamannabúðir Palestín umanna. Það var reyndar í Gaza, sem upp- hlaupið gegn hersetu Israels- manna byrjaði — fyrir hálfu öðru ári. ar þar til nokkrum árum eftir heimsstyrjöldina síðari, var Gaza- héraðið hluti af Palestínu. Egyptar hertóku Gaza árið 1948 og á árun- um þar á eftir voru þar palestínskir baráttuhópar gegn ísrael. Tvisvar sinnum hefur þetta svæði verið hersetið af ísrael. Fyrra skiptið var árið 1956, þegar átökin í Sinai áttu sér stað, en nokkrum mánuðum seinna afhenti ísrael svæðið aftur til Egyptalands, Síðan gerðist það, að hersveitir Sameinuðu þjóðanna voru sehdar þangað og voru staðsettar þar í 10 ár. Arið 1967 meðan á „sex daga stríðinu" stóð, var Gaza-svæðið aft- ur hersetið af ísrael. Allar götur frá þeim tíma hefur landsvæðið verið hersetið af ísrael. Þegar ísrael og Egyptaland gerðu friðarsamning- ana árið 1979, gerðu Egyptar ekki kröfu til landsvæðisins. Gyðingar hafa verið á Gaza- svæðinu svo þúsundum ára skiptir. I Gamla Testamentinu er talað um Gaza, sem eina af fimm borgum Filistea. Stór hluti gyðinganýlendunnar í Gaza, bjó áður í því sem þeir kalla „draumabænum" Yamit, en Yamit var einmitt einn hlekkurinn í friðarsamningum ísraela og Egypta. I byrjun ársins 1982, varð að flytja mikinn hluta íbúa Yamit á brott með valdi og íbúarnir fengu dágóðar skaðabætur frá Ísraelsríki og gátu því skapað sér heimili og nýtt líf á Gazasvæðinu. „í þetta sinn erum við komin hingað til að vera og reiknum með því að árið 2000 hafi okkur fjölgað úr 2500 í 30.000 þús. manns", segir talsmaður íbúanna af gyðinga- ættum. Flestir hafa lífsviðurværi sitt af landbúnaði, einkum útflutningi á tómötum til Evrópu og Norður- Ameríku. Einnig er töluvert um léttan iðnað og ferðamannaiðnað. Á venjulegum laugardegi komu iðulega um 5000 ísraelskir sund- og sóldýrkendur á kríthvítar bað- strendur Gazeisvæðisins, þrátt fyrir óróa sem alltaf virðist vera á þess- um slóðum. , Blaðamaður spurði viðmælanda sinn, hvort þeim fyndist réttlátt að slá eign sinni á landsvæði, sem hefðu verið eign fólks sem nú dveldi í flóttamannabúðum og gæti kannski gert kröfu til þess einn góðan veðurdag? „Okkur finnst leiðinlegt að það fólk skuli vera í flóttamannabúð- um en við þessu er ekkert að gera, það er annað hvort þau eða við“, svaraði hann. (Arbeiderbladet) Stytt. SJÓNVARP Sjónvarpið kl. 20.30 ÞUNGSKÝJAÐ AÐ MESTU — EN LÉTTIR TIL MEÐ MORGN- INUM íslensk heimildarmynd um jeppa- ferö frá vestasta odda landsins til hins austasta. Dagskrárgerd Jón Björgvinsson. Stöð tvö kl. 21.20 SVIKA- HRAPPAR (Skullduggery) Bandarísk bíómynd, gerö 1969, leik- stjóri Gordon Douglas, adalhlut- verk Burt Reynolds, Susan Clark, Roger C. Carmel o.fl. Burt er þarna í hlutverki fornleifa- fræðings sem ásamt fleirum er í ferðalagi í Nýju Guineu. Þar rekast þeir á flokk mannapa, sem eru vin- gjarnlegir og víst ákaflega mannleg- ir að öllu leyti. Til þess að hægt sé að varðveita þennan apaflokk, sem sumir telja týnda hlekkinn í þróun- arsögu mannsins, þarf að sannfæra dómsstóla um að aparnir eigi vissu- lega til mannlegt eðli. Nema hvað. Myndin er og verður alltaf talin slöpp, þrátt fyrir að hugmyndin sé nýstárleg. Handritshöfundurinn neitaði að leggja nafn sitt við mynd- ina eftir að hún var sýnd honum og segir það ef til vill eitthvað um gæðin. Sjónvarp kl. 22.20 VINKONUR (Old Enough) Bandarísk bíómynd, gerd 1984, leik- stjóri Marisa Silver, adalhlutverk Sarah Boyd, Rainbow Harvest, Neil Barry. Segir af ungum stúlkum sem koma frá gjörólíku umhverfi og efnahag, en verða góðir vinir, þrátt fyrir að vinskapur þeirra sé ekki talinn æski- legur. Báðar þurfa þær að berjast gegn fordómum til að viðhalda vin- skapnum. Þetta er gamanmynd, frekar á lágu nótunum og önnur að- alleikkonan, Rainbow Harvest (því- líkt nafn) undirleikur heldur of mik- ið því myndin er ekki hávær fyrir. Kvikmyndahandbókin gefur tvær og hálfa stjörnu, segir myndina þokkalega og bendir einkum á atriði, sem tengjast kynþokkafull- um hárgreiðslumeistara, sem lyfta myndinni upp. Stöð 2 kl. 23.25 MORÐINGI GENGUR AFTUR (Terror at London Bridge) Bandarísk bíómynd, gerd 1985, leik- stjóri E. W. Swackhamer, adalhlut- verk David Hasselhof, Stephanie Kramer o.fl. Myndin fjallar um Ameríkana sem fara til London, ná þar í brúna sem Jack the Ripper á að hafa steypt sér fram af fyrir hundrað árum. Þeir flytja hana, brúna til Bandaríkjanna og setja hana þar upp, stein fyrir stein. Von bráðar lætur eitthvað illt á sér kræla og drepur stúlku með einu hnífsbragði. Þá halda menn að Jack, helvítið, the Ripper, sé geng- inn aftur. Hafiði heyrt það vitlaus- ara. Stöð 2 kl. 01.05 UPPGJÖF HVAÐ...? (No Surrender) Bresk bíómynd, gerö 1986, leikstjóri Michael Peacock, aöalhlutverk Michael Angels, Avis Bunnage, James Ellis, Elvis CosteUo, Ray McAnaUy. Nokkuð snjöll mynd sem gerist i Liverpool. Fyrrum söngvari gerist framkvæmdastjóri skuggalegs næt- urklúbbs en bregður heldur við þeg- ar hann fregnar að forveri hans hef- ur horfið sporlaust. Myndin segir af nútímasamfélagi Breta og dregur upp athygliverða mynd af því. Flest- ir leikararnir eru við aldur og þeir lenda í sennu útaf eilífðarmálinu — írlandi og bardögunum þar. Hand- ritið er metnaðarfullt en færist ef til nokkuð of mikið í fang. Hinn frá- bæri leikari Ray McAnally (sem menn muna sem föður njósnarans og svikarans úr sjónvarpsþáttunum A Perfect Spy sem gerðir voru eftir sögu John Le Carré), fer á kostum sem IRA maður. 0 jjjjísTÖÐ-2 17.50 Gosi Teiknimyndaflokkur 16:45 Santa Barbara 17:30 Skuggi rósar- innar Specter of the Rose. 1800 18.15 Litli sægarp- urinn Myndaflokkur 18.45 Táknmáls- fréttir 18.50 Austurbæing- ar (Eastenders) 1900 19.20 Benny Hill Gamanmyndaflokk- ur. 19.50 Tommi og Jenni 20.00 Fróttir og veður 20.30 Þungskýjaö aö mestu — en lóttir til meö morgninum Jeppaferö yfir ís- land. 21.30 Valkyrjur Sakamálamynda- flokkur. 22.20 Vinkonur (Old Enough) 19:19 19.19 20D0 Teiknimyndir 20:1$ Ljáðu mér eyra... Fréttir úr tónlistar- heiminum. 20:50 Bemskubrek The Wonder Years. Gamanmyndaflokkur. 21:20 Svikahraooar Skullduggery. 2300 23.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok 23:00 1 helgan stein 23:25 Morðingi gengur aftur Terror at London Bridge. Stranglega bönnuð börnum. 01:05 Uppgjöf hvað .. No Surrender. Stranglega bönnuö börnum. 02:45 Oagskrárlok ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.