Alþýðublaðið - 04.08.1989, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 04.08.1989, Blaðsíða 4
4 Föstudagur 4. ágúst 1989 Fjórir af fimm beejarfuittrúum Aiþýðuflokksins í Keflavík. Frá vinstri; Guð- finnur Sigurvinsson, bœjarstjóri, Anna Margrét Guðmundsdóttir, forseti beejarstjómar, Hannes Einarsson, formaður baejarráðs og Jón Ólafur Jóns- son. Alþýðuflokkurinn vann stórsig- ur í Keflavík í síðustu sveitarstjórn- arkosningum og náði þar hreinum meirihluta. Alþýðuflokkurinn á nú fimm fulltrúa af níu í Bæjarstjórn Keflavíkur. Það eru liðin þrjú ár frá því jafnaðarmenn komust til valda í Keflavík og tæpt ár til kosninga. Okkur á Alþýðublaðinu lék for- vitni á að vita hvernig gengi hjá þeim í Keflavík og sóttum þá heim. Hljóðið í bæjarfulltrúum krata í Keflavík var gott, þeir fullir bjart- sýni og ánægðir með þann árang- ur sem náðst hefur á þessu kjör- timabili. Fjárhagsstaða bæjarins var í molum þegar Alþýðuflokkur- inn tók við fyrir þremur árum en það setti svip sinn á framkvæmda- getu bæjarins fyrstu árin. Nú hefur meirihlutanum tekist að koma fjármálunum í lag og stendur bær- inn ágætlega. Þrátt fyrir ýmsa erf- iðleika í atvinnumálum, sérstak- lega útgerð og fiskvinnslu, hefur bæjaryfirvöldum í samvinnu við fyrirtæki bæjarins tekist að halda atvinnulífinu ágætlega gangandi. Þá hefur bærinn staðið fyrir marg- víslegum framkvæmdum og mun nokkurra þeirra helstu getið hér og birtar myndir með. SíðastliðiA haust var hafist handa við að byggja við íþróttahúsið nýjan sal sem verður tekinn í notkun nú í haust. Keflavíkurbær og íþróttahreyfingin í bænum standa saman að byggingunni, bærinn greiðir 2/3 en íþróttafó- lögin 1/3. Hér getur að líta plötu þriggja deilda dagheimili sem Keflavíkur- bœr er að reisa. í baksýn sjást verkamannabústaðir sem risið hafa, á kjörtímabilinu. Bærinn leggur metnað sinn í að sinna húsnæðis- málunum vel og hlúa að yngstu kynslóðinni. Vilhjálmur Ketilsson, bæjarfulttrúi Alþýðuflokksins og skólastjóri í Myllubakkaskóla fyrir framan skólann. AA baki Vilhjáms er viðbygging við skólann sem verður tekin í notkun nú í haust alls átta kennslustofur, þar af tvær hannaðar með þarfir fatlaðra fyrir augum. Bærinn er að byggja sundlaug sem er dýrt mannvirki. Útilaugin verður tilbúinn í ár en innilaug- in síðar. Á innfelldu myndinni getur að lita hvar verið er að gera klárt fyrir flísalögn. (sundlaug- arhúsinu verður einnig vertingaaðstaða og búningsherbergi fyrir iþróttaleikvan'ginn. Mikil áhersla hefur verið lögð á að ganga vel frá og Ijúka gatnaframkvæmdum í nýjum hverf- um. Þegar blaðamaður Alþýðublaðsins var þar á ferð var verið að malbika næstsíðustu ibúða- götuna i bænum. Keflvíkingar hafa sinnt málefnum aldraöra af stakri prýði. Hór getur að líta fjölbýlishús með 19 íbúðum fyrir aldraða sem voru afhentar fyrir tæpu ári.. Bærinn á 85% hlut í íbúðunum en íbúendur 15% og leigja þeir hlut bæjarins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.