Tíminn - 05.01.1968, Síða 1
Gerist ás'krifendur að
TÍMANUM
Hringið í síma 12323
Adgiýsing í TÍMANUM
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
3. tbl. — Föstudagur 5. jan. 1968. — 52. árg.
Fjármagn skortir til birgða-
sofnunar vegna hafíshættu!
( wmm
( Xv ■ >•’
§fefcv>*:\ x . ..
Hús stálskipasmíSastöSvarinnar Stálvíkur.
(Tímamynd: GE)
Stálvík ney ðist til að
segja upp þjálfuðu liði
i
vegna skorts á verkefnum og rekstrarfé
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
ic Stálskipasmíðastöðin Stál-
vík í Arnarvogi, Garðahreppi,
hefur sagt upp hluta af starfs-
fólki sínu — 10 ófaglærðum að
stoðarmönnum og þremur járn
iðnaðarmönnum — vegna verk
efna- og rekstrarfjárskorts. Jón
Sveinsson, framkvæmdastjóri
Stálvíkur, tjáði blaðinu í dag,
að leitað hefði verið til ráð-
herra um hugsanlegar ráðstaf
anir, en ekkert hafi komið út
úr því enn þá, þótt málaleitan
inni hafi verið vel tekið og hafi
því miður þurft að segja upp
hluta starfsliðsins.
if Ólafur G. Einarsson, sveit
arstjóri í Garðahreppi, sagðist
telja það þjóðarskömm, ef
fyrirtæki sem Stálvík sé ekki
sköpuð viðhlítandi rekstrarskil
yrði. Það yrði sveitarstjórninni
mikil vonbrigði, ef Stálvík yrði
að hætta starfsemi sinni- Væri
þetta alvarlegt mál frá sjónar-
miði sveitarstjórnarinnar og
ætti einnig að vcra það frá
sjónarmiði þjóðarinnar allrar.
★ Guðjón Jónsson, formaður
Félags járniðnaðarmanna, sagði
í viðtali við ’daðið i dag, að
stjórn félagsins hefði þegar 14.
des. ritað tveimur ráðherr-
um bréf, óar sem sérstaklega
var minnzt á Stálvík og bent á,
að svo gæti tarið að þar þyrfti
að segja upp þjálfuðum starfs
mönnum. Þetta væri nú orðið
að raunveruleika, og gcysialvar
legt mál fyrir stálskipasmíða-
iðnaðin nog járniðnaðinn í land
inu.
Framhald á bls. 14.
ED-Akureyri, FB-Rvík,
fimmtudag.
Hafís og langvarandi frost-
hörkur virðast ætla að hafa
alvarieg áhrif á líf fólks á
Norðurlandi í vetur, ekki síð-
ur en oft áður á undanförnum
árum. Vörubirgðir eru af
skornum skammti víðast hvar
fyrir norðan, enda hafa kaup
félögin ekki fjármagn til þess
að birgja sig nægilega upp að
haustinu svo þau geti verið
örugg um að geta séð við
skiptavinum sínum fyrir
helztu lífsnauðsynjum, ef sigl
ingar teppast vegna íss, og
vegir á landi eru ófærir lang
tímum saman vegna snjóa.
Menn eiga víða von á skipum
með vörur nú næstu daga eða
vikur, en í dag sneri fyrsta
skipið við, Mælifellið, sem var
á leið til Akureyrar með vöru
farm. Skipið var að koma að
vestan, en sá sér ekki fært að
halda áfram ferðinni, þegar
það kom að Kögri, en þar var
ís landfastur í dag-
f dag var ihaft samband við átta
kaupfélagsstjóra á Norðunlandi,
og fórust þeim orð á þessa leið:
Skagaströnd: Sigmar Hróbjartsson
segir:
Hér mun vera til allmikið af
olíu og fóðurvörur munu endast
í tvo mánuði eða svo. Mér sýnist
horfa uggvænlega á meðan við
getum ekki vegna fjármagnssborts
keypt verulegar birgðir af helztu
nauðsynjum fyrir veturinn, því
þrótt fyrir allar framfarir erum
við á sama stað á landinu og í
næsta nágrenni við hafísinn, eins
og við höfum sorglega reynslu af
|frá fyrri tímum. Jakastrjálingur
ar ís er á vestanverðum Húnaflóa,
<M Framhald a bls 14
ÆTLA ABHÆKKA RAFMAGNUM 13.6%
IGÞ-Reykjavík, fimmtudag.
í dag var til umræðu í borg
arstjórn að hækka rafmagns-
verð um 13,6%, og nær sú
hækkun bæði til mæialeigu og
heimtaugagjalda. Hækkunin
nemur í krónutölu þrjátíu mill
jónum króna á þessu ári.
Eins og menn rekur minni
til, þá, hækkuðu hitaveitugjöld
fyrir áramótin um sem nemur
fimmtíu milljónum króna á
árinu 1968.
Þannig ætlar meirihlutinn I
borgarstjórn að láta Reykvik-
inga greiða áttatíu milljónum
króna meira fyrir rafmagn og
hitaveitu á þessu nýbyrjaða ári
en hinu fyrra.
Hækkun þessi var til fyrri
umræðu i borgarstjórninni í
dag, en hafði áður verið til með
ferðar í borgarráði. Borgarfull
trúarnir Guðmundur Vigfússon
og Kristján Benediktsson báru
fram svohljóðandi tillögu á
borgarstjórnarfundinum í dag:
„Með því að lagaákvæði um
greiðslu verðlagsuppbótar til
launþega hefur verið afnumið
og alger óvissa er ríkjandi um.
hvort samningar um verðtrygg
ingu launa eða sambærilegar
launauppbætur náist milli laun
þega og atvinnurekenda, telur
borgarráð ekki fært að hækka
að svo stöddu rafmagnsverð
fram yfir það, sem heimilt er i
gildandi gjaldskrá vegna launa
breytinga, og ákveður því að
fresta afgreiðslu á fram kom
inni tillögu um hækkun raf-
magnsverðsins.“
En til vara lögðu þeir til að
hækkunin kæmi ekki á al-
mennum heimilistaxta.
Auðheyrt var á borgarstjóra
að þessar tillögur áttu ekki upp
á pallborðið hjá meirihlutan-
um, en þeim var vísað til ann-
arrar umræðu ásamt hækkunar
tillögunni.