Alþýðublaðið - 29.09.1989, Side 1

Alþýðublaðið - 29.09.1989, Side 1
Mikil aukning í slátrun á matfiski: 4000 tonnum slátrað í ár Verö á laxamörkuöum gefur ekki tilefni til bjartsýni um góöa afkomu. Líkleg tvöföldun á matfiski á nœsta ári. vf Of eða van I Sjálfstæðisflokknum er allt ýmist of eða van. Annaðhvort hefur flokkurinn enga skoðun eða hann hefur svo margar að enginn veit hver skoðun flokks- ins er í raun og veru. Um þetta fjallar Guðmundur Einarsson í föstudagsspjalli sínu i dag. Líklegt er talid að slátrað verði um 4.000 tonnum af matfiski í ár hjá íslenskum fiskeldis- stöðvum, þar af senni- iegast um 400 tonnum af silungi. Vigfús Jóhanns- son hjá Veiðimálastofn- un segir þó að þessi tala geti breyst þar sem margar stöðvar muni væntanlega draga ein- hverja slátrun fram yfir áramótin. Hann telur að u.þ.b. heimingi slátrunar sé þegar lokið. í fyrra var slátrað 1233 tonnum þannig að aukningin er margföld. Að sögn Vigfúsar reikna menn með því að á næsta ári geti enn orðið gríðarleg aukning, allt að 100%, þannig að þá verði slátrað um og yfir 8.000 tonnum. Framleiðslugeta íslenskra fiskeldisstöðva var talin á bilinu 7—8.000 tonn um síðustu áramót en verður líklegast orðin 11—12.000 tonn um þessi áramót. Fisk- eldisstöðvarnar eru því að færast nær og nær því marki að framleiða sam- kvæmt getu en nokkuð hef- ur vantað upp á það hingað til. Söluhorfur þykja nokkuð sæmilegar á framleiðsl- unni, en eins og einn við- mælandi blaðsins orðaði það. „Það er hægt að selja allt, spurningin er um verð- ið.“ Samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins er ekki útlit fyrir að verð á mörkuðum verði eldisstöðvunum sér- lega hagstætt. Allt þetta ár hefur verð á laxamörkuð- um farið mjög lækkandi en menn vilja engu að síður meina að það hafi náð botninum. Guðmundur Ey- dal, hjá Sjávarafurðadeild Sambandsins, sagði að á Japansmarkaði væri skila- verð nú milli 250—360 kr. fyrir kílóið. Verð á Japans- markaði lækkaði í sumar en hefur aðeins rétt sig við aftur. Verð á Frakklands- markaði, sem var hagstætt í fyrra, hefur lækkað mjög í ár vegna offramboðs. Verð á Japansmarkaði hefur almennt verið hærra en á öðrum mörkuðum, en dæmi eru þó um að menn hafi fengið hærra verð á öðrum mörkuðum ef tak- markað magn hefur verið boðið til sölu. Sjá bls. 5 Jón Baldvin um áfengiskaupamálid: Hætt að kaupa á kostnað- arverði Forsetar Alþingis sam- þykktu á fundi sínum í gær- morgun að Alþingi muni framvegis ekki neyta þess réttar sem það hefur til að kaupa áfengi á kostnaðar- verði til nota við opinberar gestamóttökur og veislur á þess vegum. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Alþingi, sem Guðrún Helgadóttir for- seti sameinaðs þings undirrit- ekki reglur Borgarstjórnarkosningar: Gerði mistök en braut Jón Baldvin Hannibais- son utanríkisráðherra sagði á blaðamannafundi sem hann efndi til í gær að það hefðu verið mistök hjá honum að halda Ingólfi Margeirssyni, ritstjóra Al- þýðublaðsins, veislu þeg- ar sá síðarnefndi varð fer- tugur. „Þetta voru mistök og ég biðst velvirðingar á þeim,“ sagði ráðherrann. Á fundinum lagði hann fram bréf til ÁTVR þar sem segir að hann hafi nú greitt allt það áfengi sem hann veitti í afmæli Ingólfs fullu verði á verðlagi dags- ins í dag. Jón Baldvin sagðist aðspurður hafa velt því fyrir sér að segja af sér en afráðið að gera það ekki. Jón Baldvin sagði að hann teldi sig ekki hafa brotið nein- ar þær reglur sem í gildi voru varðandi risnu ráðuneyta þegar hann hélt Ingólfi veisl- una. Reglurnar væru hins- vegar ekki aðalatriðið í því máli, þess vegna viðurkenndi hann mistök sín. M.a. vegna þess að hann hefði með þess- um hætti gefið slæmt for- dæmi. Hann benti á að nú- verandi fjármálaráðherra Birting opnar fyrir Borgara Alþýðubandalagsfélagið Birting er til í að ræða þátttöku Borgaraflokks- ins í breiðfylkingu jafnað- armanna f yrir næstu borg- arstjórnarkosningar. Þetta segir Bjarni P. Magn- ússon borgarfulltrúi Al- þýðuflokksins, en borgar- málaráð flokksins og full- trúar Birtingar áttu við- ræður sl. miðvikudag. Margrét S. Björnsdóttir stjórnarmaður í Birtingu, sem sat fundinn, segir að stjórn Birtingar hafi að svo stöddu einungis ráð- gert að tala við þá fjóra flokka sem nú séu í minni- hluta í borgarstjórn. Ákvörðun hafi ekki verið tekin um annað. „Það er minn skilningur,“ sagði Margrét við Alþýðublaðið í gær. Bjarni P. segir að þetta sé nýr flötur á málinu, því hing- að til hafi einungis verið rætt um þátttöku flokkanna fjög- urra, Alþýðuflokks, Alþýðu- bandalags, Framsóknar- flokks og Kvennalista, með jafnri skiptingu. Nú séu Birt- ingarmenn hins vegar búnir að taka undir sjónarmið Al- þýðflokksins. „Núna eru þeir farnir að hlusta á hugmyndir mínar og borgaramálaráðs Alþýðu- flokksins. Við vorum búin að segja hug okkar í þessu máli. Við vorum búin að hafna flokkahugmyndinni, um tvo frá hverjum flokki. Sjálíur hef ég alltaf lagt áherslu á að þetta yrði að vera breiðfylk- ing og kalla þyrfti til mun fleiri en þá sem bara eru í þessum flokkum. Þær hug- myndir er Birting nú til í að ræða og gerir tillögur um, — þ.e.a.s. hugmyndir um breið- fylkingu jafnaðarmanna," sagði Bjarni P. Magnússon, borgarfulltrúi. í gærkvöldi voru viðræður Birtingar og borgarmálaráðs Framsóknarflokksins og eitt- hvern næstu daga er ráðgert að Birtingarfélgar ræði við Kvennalistann. Jón Baldvin á blaðamannafundinum í gær. Sagðist ekki hafa brotið reglur en viðurkenndi mistök. Hefur endurgreitt allt áfengið á fullu verði. hefði haldið Lúðvík Jóseps- syni veislu til að minnast út- færslu landhelginnar. Jón Baldvin telur það sambæri- legt, að því leyti að þar hafi ráðherra haldið veislu fyrir einstakling sem er pólitískur samstarfsmaður. Þar af leiðir að embættisgjörð hans sé ekki einsdæmi. Jón Baldvin lét að þvi liggja á fundinum að hann vissi til fordæma af svipuðu tagi og veisla Ingólfs. Hann sagðist hinsvegar ekkert hafa í hönd- unum til að sanna slíkt. Jón sagði að Ríkisendurskoðun og yfirskoðunarmenn ríkis- reiknings ættu að vita um slíkt og af því tilefni hefði hann í bréfi farið fram á að veittar yrðu upplýsingar um hvernig einstök ráðuneyti hefðu farið með sína risnu í gegnum árin. Hann leggur fyrir Ríkisendurskoðun fjölda spurninga í ýtarlegu bréfi til hennar, m.a. um hvernig hún hafi sinnt sínu aðhaldshlut- verki og síðan spyr Jón Ríkis- endurskoðun í 11 liðum um túlkun hennar á reglum varð- andi notkun á risnufé sem hann hefur; þ.e. hverjum hún telji ráðherra heimilt að bjóða hvað og nefnir Jón þar til ýmsa aðila við ýmis tæki- færi. Á fundinum lagði Jón Baid- vin Hannibalsson fram skýrslu yfir risnukostnað ut- anríkisráðuneytisins sem haldinn hefur verið í tíð hans þar í kjölfar umræðna sem upp komu á sl. ári um áfengis- kaup æðstu yfirmanna. Hann fer einnig fram á samstarf við Ríkisendurskoðun um mótun skýrra reglna um áfengis- kaup og risnu ráðherra og ráðuneyta í framtíðinni en bendir á að slíkar reglur sé aðeins hægt að móta þegar fullljóst verði hvernig hefðir og venjur hafi verið á undan- gengnum árum. Hvernig þær hafi myndast og hvernig Rík- isendurskoðun hafi sinnt að- haldshlutverki sínu miðað við þær venjur sem skapast hafa. Jón Baldvin skýrði einnig frá því að hann hefði rætt það á ríkisstjórnarfundi t gær- morgun, að allir ráðherrar gerðu hreint fyrir dyrum síns ráðuneytis hvað varðaði risnukostnað.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.