Alþýðublaðið - 29.09.1989, Side 4

Alþýðublaðið - 29.09.1989, Side 4
4 Föstudagur 29. sept. 1989 VIÐTALIÐ Haukur Helgason formaöur félagsmálaráds í Hafnarfiröi: Mikilvægt að allir eigi öruggt skjól Sú uppbygging sem átt hefur sér stað í Hafnarfirði á síðustu ánun hefur vakið mikla at- hygli. Eins og gjarnan vill verða ber mest á byggingum eða mannvirkjum en minna á þeirri starfsemi sem miðar að aukinni velferð og aðhlynn- ingu þess fólk sem á einhvern hátt stendur höllum fæti í lífs- baráttunni. Alþýðublaðið leit- aði til Hauks Helgasonar skóla- stjóra í Hafnarfirði sem er for- maður félagsmálaráðs Hafnar- fjarðar og spurðum hann út í störf ráðsins og Félagsmála- stofnunar. „Það hefur orðið gífurleg breyting á störfum Félags- málastofnunar Hafnarfjarðar á síðustu árum. Þegar núverandi meirihluti Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags tók við voru stöðugildi á Félagsmálastofnun- inni rúmlega fjögur en í dag eru þau orðin tíu talsins. Sumir kunna að spyrja, hvort þetta sé ekki bara það venjulega, reksturinn bólgni út samfara auknum kostnaði. Þeg- ar málið er skoðað kemur hins vegar í ljós að loksins hefur skap- ast möguleiki til þess að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum og ieysa mál. Það vill stundum brenna við að fólk heldur að störf Félagsmálastofnunar snúist bara um að deila út peningum til skjól- stæðinga stofnunarinnar og þess háttar. En starfið er fyrst og fremst fólgið í því að leita leiða til þess að hjálpa fólki sem oftast, ég vil leyfa mér að segja 90% tilfella, lendir i tímabundnum erfiðleikum. Það verður að gefa því tækifæri til að komast út úr sinum erfiðleikum og hjálpa því til að leysa sín mál sjálft. Orsökin er oft veikindi eða upp- brot á fjölskyldum sem gera það að verkum, að margar fjölskyldur eiga tímabundið í erfiðleikum með sjá sér farborða. Þegar við svo skoðum þá peninga sem farið hafa til framfærslu síðustu árin kemur í Ijós að þeir hafa alls ekki vaxið, heídur eru þeir hlutfallslega minni en í upphafi þessa kjörtíma- bils. Þetta vil ég fyrst og fremst þakka auknu starfsliði og góðu, því það hefur unnið að margskon- ar fyrirbyggjandi aðgerðum, leið- beint og hjálpað fólki út úr vand- anum eins og hlutverk þessarar stofnunar er. Ég efa það ekki að hér áður hafi starfsfólkið verið allt af vilja gert til að sinna þessum málum en það var bara gersam- lega útilokað með þeim litla mannskap sem þarna var til stað- ar. Það hefur orðið gífurleg breyt- ing á þessum málaflokki í tíð nú- verandi bæjarstjórnar.'' — Nú opnuduó þiö Hafnfirdingar nýtt dagheimili í sídustu viku. Hvaö líöur dagvistunarmálum ykkar? „í dagvistunarmálum hafa gerst stórir og miklir hlutir á þessu kjör- timabili, alveg ótrúlega miklir. Á mjög stuttum tíma hafa þrjú dag- vistarheimili verið tekin í notkun. Það er Hvammur, þriggja deilda dagheimili, það er Hraunkot, for- eldrarekið dagheimili en þar lagði bærinn mikla peninga til, húsnæði og fleira, og þá eru það Garðavell- ir, fjögurra deilda dagheimili, sem voru opnaðir í síðustu viku. Nú er í fullum undirbúningi dagvistar- heimili sem á að rísa í Setbergs- hverfi. Þarna hefur grundvallar- breyting átt sér stað og sýnir vel hver hugur núverandi bæjarfull- trúa er í þessum málum. Það væri fráleitt að halda því fram að fjár- magn hafi almennt aukist frá bæj- arfélaginu, heldur hefur bærinn breytt um áherslur til hvers pen- ingunum er varið. Áhersluatriðin eru önnur." — Eru langir biölistar eftir plássi á dagheimilum bœjarins? „Aðstaðan hefur gjörbreyst og það eru ekki margir á biðlistum í dag. Nú er svo komið að öll börn sem verða þriggja ára á þessu ári komast á leikskóla. Meiri óvissa er um biðlista eftir heilsdagsvistun en það mun skýrast mjög fljótlega. Nú mun gefast færi á að huga bet- ur að þeim hluta dagvistunar sem er utan hins hefðbundna leik- skólaaldurs. Uppbyggingu þessara mála verður haldið áfram með það fyrir augum að hægt verði að sinna öllum þeim sem óska eftir dagvistun, að minnsta kosti hluta úr degi.“ — Oldrunarþjónustan, hvernig Dagskrá Kl. 10.00 Þingsetning Gísli Einarsson, bæjarfulltrúi, formaður kjördæmisréðs kl. 10.10 Staða sveitarfélaganna og sveitarstjórnarkosningarnar Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, Eyjólfur Torfi Geirsson, forseti bæjarstjórnar, Gísli Einarsson, bæjarfulltrúi, Sveinn Þór Elínbergsson, forseti bæjarstjórnar, Gunnar Már Kristófersson, sveitarstjóri, Eiður Guðnason, al- þingismaður. Umræður. Kl. 12.30 Matarhlé Kl. 14.00 Samgöngur um Hvalfjörð Kynningarerindi. Helgi Hallgrímsson, aðstoðarvegamálastjóri. Fyrirspurnir og umræður. Kl. 15.00 Stjórnmálaviðhorfið. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, formaður Alþýðuflokksins. Umræður. Samþykkt stjórnmálaályktunar. Kl. 18.00 Þinglok Kl. 20.00 Kvöldverður. Kvöldvaka. Kjördæmisþing Alþýðuflokksins í Vesturlandskjördæmi haldið í Röst á Akranesi 30. september 1989 Haukur Helgason: Meginstefnan í þessum málum er að gera fólki kleift að vera sem lengst í eigin húsnæði. er henni háttaö? „Þar hefur verið tekin upp margskonar ný þjónusta. Má þar nefna heimsendingu matar til aldraðra sem var tekin upp á þessu kjörtímabili. Tvo daga vikunnar býður bærinn öldruðum upp á op- ið hús þar sem framreiddur er heitur matur gegn vægu gjaldi. Auk þess er boðið upp á ýmiss konar félagslíf og þá hefur öldruð- um verið gefinn kostur á líkams- rækt. Aðsóknin hefur verið mjög mikil. Auk þess hefur verið mikil aukning á þjónustu heimilishjálp- arinnar. Þá hefur bærinn tekið þátt í að byggja íbúðablokk fyrir aldraða og er flutt inn í hluta henn- ar sem er sérstaklega hönnuð með þarfir aldraðra í huga. Þetta eru hlutir sem mikil áhersla hefur ver- ið lögð á en það er engu að síður ennþá margt ógert í þessum efn- um. Meginstefnan í þessum mál- um er að gera fólki kleift að vera sem lengst í eigin húsnæði. Það er mikilvægt að bjóða upp á þjónustu sem gerir gömlu fólki kleift að búa í eigin húsnæði kjósi það svo.“ — Talaö er um kreppu í þjóöfé- laginu. Veröiö þiö vör viö aö róö- urinn þyngist hjá almenningi? „Já, það er ekki fram hjá því að líta, þó verð ég að játa, að það hef- ur borið minna á því en ég hefði ætlað og má það vera að fólk leiti ekki til okkar fyrr en í allra síðustu lög. Það sem mér finnst vera stærsti þátturinn í þessu er hús- næðisþátturinn. Það að koma sér upp húsnæði, að eignast eigið hús- næði á þann hátt sem verið hefur er ekki raunhæft lengur. Það er vonlaust að fólk með meðaltekjur sem er að byrja að búa í dag geti lagt svo og svo mikið til hliðar til að kaupa sér húsnæði. Það hlýtur að koma að því, eins og reyndar við alþýðuflokksmenn höfum lagt áherslu á, að kaupleiguíbúðir taki við í ríkari mæli og/eða verka- mannabústaðir. Sjálfseignarstefn- an á íbúðarhúsnæði sem við höf- um verið fylgjandi stenst ekki lengur. Eins og staðan er í dag hjá fólki, stærstum hluta almennings, er það gjörsamlega vonlaust mál að koma sér upp húsnæði, miðað við þau laun sem fólk hefur og með hliðsjón af þeim kostnaði sem fylgir beinum heimiliskostn- aði. Þarna verður þjóðfélagið að koma á móti. Þarna verður að skapa ásættanlegt form og mér líst mjög vel á kaupleigukerfið. Það er sú leið sem sé til að gefa einstak- lingum kost á að ráða yfir eigin húsnæði þó það eignist það ekki nema þá á mjög löngum tíma. Mikilvægast er að allir hafi öruggt skjól en álagið við það að reyna að eignast íbúðarhúsnæði brýtur oft á tíðum niður fjölskylduna og skapar mikla óhamingju." — Hver er staöa félagslegra íbúöa í eigu bœjarins? „Hún hefur mikið batnað á þessu kjörtímabili. Fjöldi íbúða í eigu bæjarins hefur meira en tvö- faldast og því erum við miklu bet- ur í stakk búin að sinna því fólki sem á í húsnæðisnauð. Ég vil lýsa ánægju minni með hversu ríkan skilning þessi mál hafa átt hjá núverandi bæjarstjórn og hversu ötullega hefur verið staðið að uppbyggingu þessara mála. Og ég vænti þess að svo verði áfrarn.”

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.