Alþýðublaðið - 29.09.1989, Page 5
Föstudagur 29. sept. 1989
5
FðSTUDAGSSPJALL
TIL ÁBYRGDAR
Þaö verður ekki af Sjálfstæðisflokknum skafið. Þar er allt of eða
van. Annað hvort erflokkurinn skoðanalaus, eða allt logar í ólíkum
skoðunum. Nú hafa formaðurinn, varaformaðurinn og hugmynda-
fræðingarnir á Mogga átt í ritdeilum út af mörgum skoðunum.
Menn spyrja: Er sundrung í stóra, sterka flokknum?
Einn til ábyrgðar______________
íhaldið í Reykjavík hefur hingað
tii notað þetta slagorð með góðum
árangri, enda hefur þetta gengið
svo langt að það er aðeins með
einn mann í framboði í borgar-
stjórnarkosningunum, Davíð
Oddsson.
Utan um hann hefur verið búið
til nýtt pólitískt kerfi fyrir borgar-
stjórnarstarfið í Reykjavík. í því
eru fyrst kjörnir einstaklingar af
listum, eins og venjan er á ís-
landi. . . Hjá minni flokkunum
verða þeir að borgarfuiltrúum en
hjá Sjálfstæðisflokknum verða
þeir að kjörmönnum, sem síðan
kjósa borgarstjóra.
Þannig er fyrst kosin borgar-
stjórn á venjulega íslenska vísu,
en upp rís síðan borgarstjóri á
ameríska vísu.
Kjörmennirnir missa öll völd í
hendúr borgarstjóranum, eri fá að
gegna formennsku í hinum ýmsu
nefndum borgarkerfisins.
Um almennar pólitískar áhersl-
ur er einn tii svara, borgarstjórinn.
Kjörmönnunum er aðeins heimilt
að tjá sig um málefni sinna
nefnda.
Um þetta módel dreymir Sjálf-
stæðisflokkinn á landsvísu. Væri
ekki yndislegt að hafa hreinan
meirihluta á Alþingi, og einn flokk
til ábyrgðar, í stað ósamkomulags-
ins, sem þeir segja að alltaf hrjái
samsteypustjórnirnar?
Neinn til ábyrgðar___________
1 skoðanakönnunum að undan-
förnu hefur íhaldinu sýnst hilla
undir þessa miklu framtíðarsýn.
Fylgið hefur mælst vel á fimmta
tuginn.
Eflum einn flokk til ábyrgðar.
Segjum sundurlyndinu stríð á
hendur, er boðskapur Sjálfstæðis-
flokksins.
En hvað er á seyði? Nú er hún
Snorrabúð stekkur. Forystan er
komin í hár saman.
Mogginn skammar Þorstein fyr-
ir skoðanir í sjávarútvegsmálum.
Þorsteinn skammar Moggann fyr-
ir afskiptasemi, telur Sjálfstæðis-
flokkinn ekkert koma bíaðinu við
og segir blákalt að Styrmir Gunn-
arsson njóti einskis trúnaðar í
flokknum. Hvílík afneitun.
Þykir þar trúiega einhverjum
sem Moggaeggið kenni nú hæn-
unum.
„Þorsteinn hefur verið gagnrýndur
fyrir að vera ekki nægilega afger-
andi. Núna er hann gagnrýndur fyr-
ir að taka af skarið — Það er vandlif-
að í þessum flokki," segir Guð-
mundur Einarsson í Föstudags-
spjalli um innanhúsværingar í Sjálf-
stæðisflokknum.
Svo skrifar Friðrik móti Þor-
steini og er allt í einu kominn upp
að hliðinni á Mogga.
Og í DV segir Þorsteinn að skoð-
anir Friðriks séu óheppilegt inn-
legg í máiið, en það var nákvæm-
lega það sama sem Mogginn sagði
um skoðanir Þorsteins, og olli reiði
hans.
Þessar sviptingar hafa ruglað
heimsmynd sjálfstæðismanna.
Það er nógu erfitt að hafa asklok
fyrir himin, þótt ekki sé verið að
snúa því, skipta um það og skratt-
ast með það.
Það vantar alla festu í þetta.
Það er ekki neinn til óbyrgð-
ar.
Seinn til óbyrgöar
Þorsteinn Pálsson hefur ekki átt
sjö dagana sæla í formannssæti
sínu.
Fyrst vantaði hann ráðherrastól,
því eldri mennirnir töldu óþarft að
standa upp fyrir honum.
Þvínæst mistókst honum það,
sem fjölmarga sjálfstæðismenn
hafði svo lengi dreymt um, þ.e. að
losna við Albert án þess að skað-
ast.
Síðan var stöðvaður ásetningur
hans um að tefla fram nýrri sveit
þungavigtarmanna, þeim Birgi,
Friðriki og Óiafi G. Matthías fór í
símann og stöðvaði Óla G., og í of-
análag sat ríkisstjórnin ekki nógu
lengi til að yngri mennirnir gætu
fest sig í sessi.
Þetta og fleira hefur orðið tii
þess að hann hefur orðið seinni til
ábyrgðar á flokknum, en menn
reiknuðu með í upphafi.
Þorsteinn hefur verið gagnrýnd-
ur fyrir að vera ekki nægilega af-
gerandi. Núna er hann gagnrýnd-
ur fyrir að taka af skarið.
Það er vandlifað í þessum flokki.
Maður er farinn að hailast að
þeirri skoðun að það sé allt í lagi
með Þorstein, en flokkurinn hans
sé orðinn ruglaður.
Eftir þeirri kenningu hlýtur Þor-
steinn nú að vinna til að taka óum-
deilda forystu.
Hann má ekki vera öilu seinni til
þess verks. Hann hefur heldur
ekki um neitt að'velja.
En hann ætti að íhuga betur
hverjum hann afneitar.
Guömundur Einarsson
skrifar
SMÁFRÉTTIR
Jazz- og dixe-
landhátíð
Dagana 29. og 30. september
nk. mun hin víðfræga þýska jazz-
og dixeland-hljómsveit Water-
end Jazzmen verða stödd hér á
landi og skemmta í Danshöllinni,
Brautarholti 20. Hljómsveitin,
sem einungis mun.skemmta um
þessa helgi hér á landi, er skipuð
eftirtöldum listamönnum: Karl
Oltmer á trompet, Ulli Fett á
klarinett, Ruediger Wellbrock á
básúnu, Heiko Freels á píanó,
Klaus Schutte á banjó, Peter
Bossaler á slagverk og Hero
Loening á bassa.
Hljómsveitin kemur fram á
annarri hæð Danshallarinnar, en
aðrar hljómsveitir munu
skemmta á hinum hæðunum
þremur. Hljómsveitin Waterend
Jazzmen var stofnuð árið 1982,
en áður höfðu einstakir hljóm-
sveitarmenn þekkst lengi og
spilað saman. Meðal fjölda
þekktra laga sem þeir félagar eru
með í farteskinu má nefna: Bye
and bye, Bourbon street Parade,
New-Orleans, lce Cream, When
the Saints, Down by the River-
side, Hallo kleines Fraeulein og
My Bucket.
Jazz- og dixelandshljómsveitin
Waterend Jazzmen sem
skemmtir i Danshöllinni.
GETRAUNIR
Alþýðublaðið við
toppinn
Alþýðublaðið er eftir 3 umferðir í 3ja sæti fjölmiðlakeppninnar
í getraunum. Hljóðbylgjan og Bylgjan eru efst af 11 þátttak-
endum með 19 rétta en Alþýðublaðið með 18 rétta.
FJÖLMIÐLASPÁ
LEIKIR 30. SEPT. ’89 J m 2 > Q I TÍMINN Z Z 3 > s 2 cc =3 (3 < Q RÍKISÚTVARPIÐ BYLGJAN STÖÐ2 STJARNAN ALÞÝÐUBLAÐIÐ HLJÓÐBYLGJAN SAMTALS
1 X 2
Aston Villa - Derby 1 1 2 2 X 1 1 1 X 1 1 7 2 2
Chelsea - Arsenal 2 2 1 2 2 2 2 X 2 1 1 3 1 7
C. Palace - Everton 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 0 0 11
Man. City-Luton 1 1 X 1 2 X 1 1 X 1 1 7 3 1
Millwall - Norwich 1 X 2 X 1 1 X X 1 X X 4 6 1
Nott. For. - Charlton 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0
Sheff. Wed. - Coventry X 2 2 2 2 X X X 1 2 2 1 4 6
Southampton-Wimbledon 1 1 X 1 X 1 X 1 X 1 1 7 4 0
Tottenham - Q.P.R. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0
Port Vale - Leeds 2 2 2 2 2 2 2 2 2 X 2 0 1 10
Sunderland - Sheff. Utd. 1 1 2 X X X 1 1 1 X X 5 5 1
Watford - Middlesbro 1 1 1 1 1 1 1 1 X 1 X 9 2 0
AUGLÝSING
UM INNLAUSNAFtVERÐ
VERÐTRYGGEJRA
SPARISKlRTBNA RlKISSJÓES
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1980-2. fl. 25.10.89-25.10.90 kr. 1.853,12
1981-2. fl. 15.10.89-15.10.90 kr. 1.151,68
1982-2. fl. 01.10.89-01.10.90 kr. 795,49
1987-2. fl.D 2 ár 10.10.89 kr. 180,54
*lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, september 1989
SEÐLABANKIÍSLANDS