Alþýðublaðið - 29.09.1989, Page 7
Föstudagur 29. sept. 1989
7
UTLOND
Hrukkur komnar á hrukkukremin!
um snyrtivörum, en sumir snyrti-
vöruframleiðendur fullyrtu að
krem þeirra innihéldu efnið. Þetta
efni hefur gefist vel.til hjálpar húð
sem er illa farin af langri dvöl í
heitum sólríkum löndum.
Nafngreindur bandarískur húð-
sérfræðingur, segir ekkert andlits-
krem, sem borið er á húðina, fari
„inn í hana“ eins og oft var aug-
lýst. Aftur á móti segir hann að
rakakrem séu af hinu góða og húð-
in hafi gott af raka í kremforrhi, og
í mátulegu rakastigi inni í húsum
fólks. Hann segir reyndar einnig
að gamla góða vaselinið og matar-
olíur séu ágæt hjálparmeðui! Það
hefur stundum verið nefnt, segir
sérfræðingurinn Dr. Zoe Draelos
að konur kaupi umbúðir og nöfn
þó þær hafi enga vitneskju um
ágæti innihaldsins.
„Það eru beinlínis lygar, sem
konur virðast hafa látið blekkjast
af, að eitt eða annað sem sullað er
á húðina geti gert kraftaverk", seg-
ir læknir við læknadeild í Kaliforn-
íu. Svo sjáum við til hver næsta
auglýsing verður, sem blekkir
konur allra landa.
(Stytt.)
Framleiöendur
snyrtivara verda að
draga úr fullyrðing-
um sínum um
,, kraftaverkakrem“,
þetta er skipun
bandarískra yfir-
valda.
Eftir þriggja ára japl jaml og fuöur, hafa þekktustu snyrti-
vörufyrirtæki í Bandaríkjunum, loksins oröið viö þeirri kröfu
yfirvalda að hætta fullyrðingum um krem sem gera krafta-
verk — eða sanna það ella ...
Þessar deilur byrjuðu árið 1986, hætta öllum fullyrðingum um
þegar andlitskrem sem kallast „hrukkukrem sem er á við andlits-
Glycel var auglýst upp, með því að lyftingu, endurnýjun húðfruma á
segja að það innihéldi efni sem
nefnist „glycosphingolipid" og
fullyrt að það „endurnýjaði húð-
frumurnar"! Þekkt merki eins og
Clarins, Chanel og Estee Lauder,
Revlon og Elisabeth Arden, fengu
aðvörunarbréf og skipun um að
jafnvel einni nóttu“ o.s.frv.
Flest snyrtivörumerkin sem hlut
eiga að máli eru bandarísk, önnur
eins og Clarins og Lancaster eru
frönsk en seld í Bandaríkjunum og
verða að hlíta sömu reglum.
Nú auglýsa sum fyrirtækin
„þetta krem lyftir skapinu á hærra
plan eða mýkir húðina á auga-
bragði" og þykja þær auglýsingar
tiltölulega hógværar.
Kraftaverkaefni sem kallast
Retin-A er aðeins fáanlegt gegn
ávísun frá lækni og er ekki í nein-
Þessi auglýsing
þykir hógvær,
segir aöeins aö
aldur kvenna sjá-
ist í augum
þeirra.
SJÓNVARP
Sjónvarp kl. 21.50
REYNSLUTÍMINN
(90 days)
Kanadísk bíómynd, gerd 1985, leik-
stjóri Giles Walker, aöalhlutverk
Stefan Wodoslawsky, Christine Pak,
Sam Grana, Fernanda Tauares.
Þetta er verðlaunamynd, fékk fyrstu
verðlaun á kvikmyndahátíð í Ha-
vana á Kúbu en einnig hefur hún
verið sýnd á hátíðum víða um lönd.
Mynd í gamansama dúrnum og seg-
ir frá tveimur vinum sem ekki geng-
ur jafn vel í samskiptum sínum við
hitt kynið. Annar þeirra er hinn
mesti sjarmör, skilur reyndar við
konu sína og viðhald á sama tíma en
hittir þegar nýja konu sem hann kol-
fellur fyrir. Samhliða ákveður sá
óframfærni að bjóða til sín konu frá
Austurlöndum, Kóreu, og hún kem-
ur til Kanada til að kanna málin í 90
daga, áður en hún tekur ákvörðun
um ráðahaginn. Sjarmörinn lendir í
svipaðri reynslu með þá stúlku sem
hann fellur fyrir ef að líkum lætur.
Sjónvarp kl. 23.35
NJÓSNARIHENNAR
HÁTIGNAR
(Bond-James Bond)
Heimildarmynd um allar þær sex-
tán Bond myndir sem gerðar hafa
verið, allt frá öndverðum sjöunda
áratugnum til nútímans. Bond
myndirnar eru vinsælasti fram-
haldsmyndaflokkur allra tíma, án
nokkurs efa og kannski varpar þessi
heimildarmynd einhverju ljósi á
hvers vegna svo er. í myndinni er
saga Bond myndanna rakin, varpað
ljósi á tæknibrellur og þróun vopna-
búnaðar, tónlistin leikin úr myndum
sem oftast hafa margfrægar orðið
og að auki bregður fyrir á skjánum
flestum frægustu Bond-stúlkunum
og þær hafa margar verið glæsileg-
ar. Og svo Bond sjálfur, Sean Conn-
ery, George Lazenby, Roger Moore
og Timothy Dalton — hver öðrum
siðfágaðri ef rétt er munað.
Stöð 2 kl. 23.55
MEÐ HNÚUM
OG HNEFUM
(Flesh and Fury)
Bandarísk bíómynd, gerö 1952, leik-
stjóri Joseph Penvey, aöalhlutverk
Tony Curtis, Jan Sterling, Mona
Freeman.
Fjallar um heyrnarlausan mann
sem þráir að heyra á ný. Hann
ákveður að leggja stund á hnefa-
leika og gengur það vel, verður
brátt bestur þeirra sem það gera. En
hann dreymir um fleira, nefnilega
að vinna ást stúlkunnar sem hann
sjálfur elskar, þráir og tilbiður eða
hvað þetta allt heitir. Tony Curtis
þykir sæmilegur í sínu hlutverki en
myndin má heita í meðallagi. Ef til
vill eitthvað örlítið yfir því markinu.
Stöð 2 kl. 01.20
HINSTA FERÐ
DALTON-KLÍKUNNAR
(The Last Ride of the Dalton
Gang)
Bandarísk sjónvarpsmynd, gerö
1979, leikstjóri Dan Curtis, aöal-
hlutverk Jack Palance, Larry Wilc-
ox, Dale Robertson, Bo Hopkins,
Sharon Farrel, Randy Quaid, John
Fitzpatrick.
Gamaldags vestri í útlag-
ar-gegn-réttvísinni-tóninum. Samt
sem áður heilmikill húmor í mynd-
inni eftir því sem sagt er. Fjallar ann-
ars um, eins og nafnið gefur til
kynna Dalton-klíkuna sem sagði sig
úr lögum við Villta vestrið á sínum
tíma og stundaði þess í stað hrossa-
þjófnað og þessháttar. Ailt tekur þó
enda og glæpir borga sig aldrei. Þeir
hefðu betur haft það í huga þessir
drengir. Varla nema meðalmynd.
0 STOD 2
17.50 Gosi 15.05 Ástþrungin leit 17.05 Santa Barbara 17.55 Dvergurinn Davíö
1800 18.25 Antilópan snýr aftur 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Yngismœr (9) 18.20 Sumo-glíman 18.45 Heiti potturinn
1900 19.20 Austurbœingar 19.50 Tommi og Jenni 20.00 Fréttir og veð- ur 20.30 Þátttaka i skópunarverkinu — Fyrsti hluti 21.05 Peter Strohm 21.50 Reynslutíminn (90 days) Kanadísk verölaunamynd frá 1985. 19.19 19.19 20.30 GeimáHurinn 21.00 Sitt litið af hverju 21.50 Börn götunnar
2300 23.35 Njósnari henn- ar hátignar (Bond — James Bond) Banda- rísk heimildamynd um þær sextán Bond- myndir sem geröar hafa veriö. 00.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok 23.25 Alfred Hitch- cock 23.55 Meö hnúum og hnefum 01.20 Hinsta ferö Dalton-klíkunnar 03.50 Dagskrárlok