Tíminn - 19.03.1968, Qupperneq 1

Tíminn - 19.03.1968, Qupperneq 1
Verðlagsuppbót í áföngum - Rúmlega 2 vísitölustig falla þó alveg niður - Uppbótin miðuð við 10 þúsund Björgvin Sigurösson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands, undirritar samkomulagið. Aðrir full- trúar atvinnurekenda sitja við hlið hans. Hannibal Valdimarsson, forseti ASI, að undirrita samkomulagið. Við hlið hans eru f. v. Oskar Hallgrímsson, Magnús L. Sveinsson og Jón Sigurðsson. (Tímamyndir—GE) EJ-Reykjavík, mánudag. • í dag kl. 11,30 var undirritaö samkomulag um greiðslu verðlagsuppbóta í áföngum. Var þaö samþykkt á félagsfund* um fjölmargra félaga í dag, og verkfallinu því aflýst. Má búast við að öll félögin, sem tekiö hafa þátt í þessu víötæk- asta verkfalli, sem háð hefur verið hérlendis, hafi haldið fundi um samkomulagið á morgun, þriðjudag, og að vinna geti þá hafizt að nýju með eðlilegum hætti. Öll stærstu félögin höfðu samþykkt samkomulagið í dag, þó ekki með samhljóða atkvæðum. Meginatriði samkomulagsins eru þessi: • Grunnlaun skulu teljast grunnupphæðir launataxta ásamt þeirri verðlagsuppbót, sem greidd hefur verið hingað til, þ. e- 19,16%. • Verðlagsuppbót samkvæmt samningi þessum skal síðan greiðast á þannig fengin grunnlaun fyrir dagvinnu ,sem eigi eru hærri en kr. 10.000 á mánuði. Á þann hluta dagvinnulauna, sem er umfram þessi mörk, skal eigi greidd verðlagsuppbót. A grunnlaun, sem nema 16— 17 þúsundum á mánuði, skal greiða verðlagsbætur, sem nema helm- ingi þeirra bóta, sem greiddar verða á 10.000 króna mánaðalaun, en engar bætur á grunnlaun sem eru yfir 17.000 krónur. • Frá gildistöku samningsins, þ. e. 18. marz, til maíloka 1968, skal greiða 3% verðlagsupbót á þessi grunnlaun. 2.34 prósentustig falla bannig niður bótalaust.. • Reikna skal út hækkun á framfærslukostnaði í Reykjavík 1. maí, 1. ágúst, 1. nóvember og 1. febrúar ár hvert. Frá vísitölunni eins og bún er hverju sinni skulu dregin áðumefnd 2,34 nrósentustig og fæst þá hundraðshluti þeirrar verðlagsuppbótar, er greiða skal á laun frá 1. degi næsta mánaðar á eftir. • Þannig skal greiða verðlagsuppbót 1. júní og 1. september n. k. að öðru leyti en þvi, að verðlagsuppbót, sem svarar 1/3 hækkunar Pramhatd a ms 14 Dr. Kristján Eldjárn verður HHHflHHHHHHHHHHHHyi3HHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHRHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH við áskorunum um ai bjóða sig fram í forsetakosningum AK-Rvík, mánudag. *— Ríkis- útvarpið flutti þá fregn í há- degisfréttum í gær, að Kristján Eldjárn, þjóðminja- vörður, hefði ákveðið að gefa kost á sér til framboðs við forsetakosningarnar í sumar. Blaðið hafði tal af dr. Kristjáni í gær og staðfesti hann þetta. Um aðdraganda þeirrar ákvörðunar sagði dr. Kristján, að síðan ljóst varð, að forseta kosningar mundu fara fram í sumar. hefðu komið að máli við sig fjöimargir menn úr ýmsum stéttum þjóðfélagsins f öllum landshlutum og að því er hann vissi bezt úr öllum stjórnmálaflokkum og óskað eftir þvi við sig, að hann gæfi kost á sér tii þessa framboðs. Dr. Kristján kvaðst hafa tekið sér langan umhugsunar- frest, enda væri að mörgu að hyggja þegar slík ákvörðun væri tekin, en eftir rækilega íhugun hefði hann þó ákveðið að verða við þessum eindregnu áskorunum. Dr. Kristján Þórarinsson Eld járn er fæddur 6. des. 1916 að Tjörn i Svarfaðardal. sonur Þórarins Kristjánssonar Eld- járn bónda og kennara þar og konu hans, Sigrúnar Sigur- hjartardóttur. Kristján tók stúdentspróf í Menntaskóla Akureyrar 1936 og stundaði síð an nám í Kaupmannahafnar- háskóla árin 1936—39 og lauk mag. art. prófi i islenzkum fræðum við Háskóla íslands 1944. Árið 1957 varði hann við Háskóla íslands doktorsritgerð sína um kuml og haugfé á ís- landi. Hann varð aðstoðarmað ur við Þjóðntinjasafn íslands árin 1944—47 og skipaður Þjóð minjavörður 1. des. 1947. Ifann á sæti í stjórn ýmissa félaga Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.