Tíminn - 21.03.1968, Page 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið í síma 12323
ItttltW
56. tbl. — Fimmtudagur 21. marz 1968. — 52. árg.
Auglýsing i Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Gestir voru
286 fleiri en
leyfilegt er
OÓ-Reykjavík, miðvikudag.
Veitingahúsið Klúbburinn
var lokað s.l. laugardags- og
sunnudagskvöld. Var lokun
hússins auglýst í útvarpi en
elcki var getið hver ástæðan
var, en hún var sú að lög-
regluyfirvöld synjuðu veit-
ingahúsinu um framlenging
arleyfi þessi kvöld, vegna
þess að kvöldið áður eða
föstudagskvöld, voru taldir
286 fleiri gestir út úr hitsinu
en leyfi var fyrir.
í Klúbbnum mega vera
mest 420 gestir i einu. Á
föstudagskvöldið var talið
út úr húsinu 706 manns. Við
urlög við slíku broti er að
tekið er framlengingarleyfi
af viðkomandi veitingahúsi
um lengri eða skemmri
tíma, þannig að ekki fæst að
hafa opið lengur en til
kl. 23,30 á þeim kvöldum
sem annars fæst leyfi til að
hafa opið til kl. 1. Forráða-
menn Klúbhsins tóku þann
kostinn að loka alveg tvö
næstu kvöld fremur en að
hafa opið aðeins til kl,
23,30. Framlengingarbannið
stóð aðeins þessi tvö kvöld
sem lokað var, svo að vænt
anlega verður Klúbburinn
opinn um næstu helgi.
Þetta er í fyrs-ta sinn sem
lögreglan grípur til slíkra
ráðstafana gegn Klúbbnum,
en áður hefur t’æim veitinga
húsum verið synjað um
framlengingarleyfi um
ákveðinn tíma fyrir sams
konar brot.
HELLTU NIDUR MJ0LK
FYRIR 5 MILUÓNIR!
FB-Reykjavík, miðvikudag.
.,Miklar annir hafa veriS við
mjólkurmóttöku í Mjólkurbúi
Flóamanna síðan verkfallið
hætti. Frá miðnætti aðfara-
nótt mánudagsins og til klukk
an um átta í gærmorgun,
þriðjudag, var tekið á móti
um 350 þús. lítrum af mjólk.
Robert Kennedy hefur liafið baráttu sína um forsetaembættið af
fullum krafti, og gagnrýnt Lyndon Johnson forseta mjög harðlega.
KPnnPí V-hrMlir Hann nýtur mlkilla vinsælda, og fólk þusti að honum um helgina, er
J ILU hann, ásamt Edward bróður sínum, tók þátt í St. Patrick Day hátíða-
höldunum í Boston.
Þingsályktunartillaga sjö Norðurlandsþingmanna:
Akureyri verði míðstöð
eins strandferðaskips
AK-Reykjavík, miðvikudag. — Áj
fundi i Sameinuðu þingi i dag.
mælti Gísli Guðmundsson fyrirj
tillögu, sem sjö Norðurlandsþing-
menn flytja um að skora á ríkis-
stjórnina að láta endurskipuleggja
strandferðir í hagkvæmara horf,
m.a. með því að staðsetja eitt
strandferðaskip á Akureyri, og
flytji það síðan vörur á hafnir
milli Vestfjarða og Austfjarða.
Gísli kvað það álit flutnings-
manna. að breyta þurfi skipwlagi
strandferðanna i samræmi við aý
viðhorf og nýjar þarfir t.d oæri
að athuga, hvort ekki skyldi
hætta hringferðaskipulaginu. —
Hann kvað eðlilegt að miðstöð
strandferða með Norðurlandi væri
á Akureyri. Þar væri mikil iðn-
aðarframleiðsla, sem flytja þyrfti | um, og strandferðaskip síðan að
milli hafna. Þangað ættu skip dreifa þeim Ve'. mætti httgsa sér
að koma með vörur frá útlönd- að strandferðaskip frá Akureyri
hefði endastöð eystra á Reyðar-
firði og vestra á Patreksfirði og
Framhald á bls. L4.
en venjulega berast um 90
þús. lítrar á dag til búsins.
Þrátt fyrir þa8 a8 miki8 hefur
borizt til búsins frá því verk-
falliS leystist má reikna me8
aS tap bænda á svæSi búsins
skipti milljónum, sennilega
ekki undir fimm milljónum,
lauslega reiknaS.
Siðast var tekið á móti mjólk
í Flóabúinu á miðnætti aðfara-
nótt laugardagsins 9. marz. og
eins og fyrr segir barst fyrsta
mjólkin aftur til búsins á mið-
nætti aðfaranótt mánudagsins 18.
marz. Hefur því fallið niður mjólk
urmóttaka í níu daga. Síðasta inn
vigtunardaginn þars-t meira magn
til búsins, en á venjulegum degi,
og einnig kom inn um fjögurra
daga mjólkurmagn frá mánudags-
nótt til þriðjudagsmorguns. Þann
ig má gera ráð fyrir, að um fimm
daga mjólk hafi farið forgörðum
i verkfallinu.
Samkvæmt upplýsingum Grétars
Símonarsonar, mjólkurbússtjóra,
hefur verið áætlað að komi inn
um 90 þúsund lVrar á dag. sam-
svari það þvi að til bænda eigi
að renna um 800 þúsund krónur.
Við þá upphæð bætist kostnaður
við rekstur mjólkurbúsins sjálfs,
og hefur þannig verið talið. að
tapið á dag sé um ein milljón
króna. Ef farið hefur til spillis
fimm daga mjólk má því telja
víst að tjónið nemi ekki innan við
fimm milljónum króna, og er þá
aðeins talað um beint tjón, en
óbeint tjón er aldrei hægt að
reikna, þótt það geti kopiið sér
jafnilla og það beina.
Viða reyndu bændur að vinna
úr þeirri mjólk sem safnaðist fyr-
ir í verkfallinu. og sagðist Grétar
vilja taka það fram, að smjör,
sem strokkað hefði verið, yrði
tekið til sölu bæði í Mjólkurbúinu
og í Osta- og smjörsölunni og selt
þar eins og annað böglasmjör, og
mega félagsmenn þvi senda smjör
birgðir sínar strax.
Grétar sagði, að ekki hefði súr
mjólk komið til búsins. en hins
vegar hefðu tveir tankbflar verið
Framhald á bls. 14.
Evrópunefndin leggur fram skýrslu um afstöðu EBE til annarra ríkja:
Viöræöur um takmarkaðar tollalækkanir
NTB-Brussel .miðvikudag.
Áreiðanlegar hcimildir
Briissel hafa nú látið uppi
hverjir höfuðdrættirnir verða
f skýrslu þeirri sem Evrópu-
ncfndin skilar utanríkisráðherr
um aðildarlandanna innan
skamms. Skýrsla þessi á að
fjalla um afstöðu EBE-land-
anna til ríkja sem standa utan
bandalagsins. Talið er að
skýrslunni muni nefndín aðeins
leggja til takmarkaðar tolla-
lækkanir gagnvart Bretlandi
og öðrum ríkjum Fríverzlunar-
bandalagsins. EFTA. Skýrslan
verður lögð fyrir fund utan-
ríkisráðherra Efnahagsbanda-
tagsins, sem haldinn verðnr í
Luxemburg þann 5. apríl.
Aðalatriði skýrslunnar kváðu
vera þessi:
1) Það er ekki gerlegt að
Framhald á Ws. 14.