Tíminn - 21.03.1968, Qupperneq 6

Tíminn - 21.03.1968, Qupperneq 6
FIMMTUDAGUR 21. marz 1968. TBIVaiNN Bretar og Bandaríkjamenn vildu hlífa Stalín og þögðu yfir mikilsverðum upplýsingum... Jakov DjugashviH skotinn við rafm agnsgirðinguna, 22. apríl 1943 fékk utanríkis- ráðherra nazista, Joadhkn von Ribbentrop, tnjög merkilegt leynibréf frá SS-foringjanum, Henrich Himmler, sem hafði yfiruimsjón með mikilvægustu fangatoúðum í Þýzkaland'i. Kæri Ritotoentrop: Ég sendi yður hér með skýrslu þess efnis, að stríðs- fanginn Yakov Djugashvili, son ur Staiíns. var skotinn, er hann reyndi að flýja úr fanga- búðunum A í Saehsenhausen rétt hj'á Orienburg. Heil Hitler. Yðar H. Himmler (sign) Skýrslan er gerð af sérfræð inguim Himmlers. Hún greinir frá dauða Yakovs, sem greini- lega hafði eggjað fangaverðina til að skjóta sig. Hún fannst ásamt fleiri merkum gögnum í fórum utanríkisráðuneytisins í stríðslok, og lögðu Bretar og Bandaríkjamenn á þau hald. Það er nú fyrst, að þessar upp- lýsingar koma fram í dags- Ijósið. Yakov var 35 ára að aldri, er hann lézt og elztur þriggja barna Stalíns. Er Stalín lézt árið 1953 hafði hann ekki hugmynd um afdrif sonar síns og vissi ekki, hvort hann var lífs eða liðinn. Brezkir og bandarískir sendifulltrúar sýndu honum tillitssemi að þegja yfir þessum mikilvægu upplýsingum til að baka hon- um ekki enn meiri harm en hann hafði áður mátt þola. Systir Yakovs Svetlana Alliluy eva skýrði frá þvi fyrir nokkr- um mánuðum. að allt væri á huldu um dauða hans. Yakov var liðsforingi í stór- skotaliði. Hann var í framlín- unni, er Þjóðverjar réðust inn í Sovétríkin 22. júní 1941. Þeg- ar liði hans hafði verið tvístrað, náðu nazistar honum á sitt vald. Þetta var 18. júlí skammt frá sovézku borginni Smolenzk. Hann var óeinkennisklæddur og var toersýnilega að rejma að komast undan. Eins og að líkum lætur þótti nazistum mikill fengur í Yakov en þar sem hann neitaði að gefa þeim nokkrar gagnlegar upplýsingar, og faðir hans neit aði að leggja nokkuð að mörk- um til að fá hann látinn laus- an, var hann sendur í fanga- búðir, sem voru eingöngu ætl- aðar merkilegum stríðsföngum. Þær voru í Sachsenhausen. þar sem einnig voru almennar fangatoúðir, en Sadhsenhausen er rétt hjá Orientourg og 20 mílur norð-vestur af Beríín. Yakov var í skála ípeð fimm föngum öðrum. einum Rússa og fjórum Bretum. Rússinn, Vaily Kokosyn var náfrændi Vyache slav M. Molotov, utanríkisráð- herra Sovétríkjanna. Bretarnir voru Thomas Cushing, William Murphy, Patrick O’Brien og Andrew Walsh. Ekki er vitað hvers vegna þeir voru hafðir með Rússunum tveimur. en sagt var, að O’Brien væri bróð ir háttsetts emtoættismanns í Indlandi. Loftið í foringjabúðum A, en svo var 6 manna skálinn nefndur, var lævi blandið. — Mennirnir gátu auðvitað ekki um frjálst höfuð strokið, og við það bættist, að samkomu- lag þeirra var býsna stirt. í hinni opinberu skýrslu segir. að Bretar annars vegar og Rússarnir hins vegar hafi eldaS mjög grátt silfur saman. Þetta ósamlyndi stafaði mest af því, að Bretarnir grunuðu Kokosyn um að vera njósnara Gestapo, og einnig var þeim þvert um geð að búa undir sama þaki og kommúnistar. Við þetta bættist, að Bretarnir ásökuðu Rússana tvo fyrir að ata út salernið, og út af því lagði O’Brien hendur á Koko- syn og sló hann í andlitið 14. apríl 1943. Yakov hitnaði í hamsi við þessar ryskingar. og um kvöldið, þegar dimma tók, neitaði hann að fara inn í skál ann, enda þótt honum væri full kunnugt um að það væri and- stætt reglunum, sem þarna giltu. Varðmaður að nafni Karl Juengling hitti hann fyrir utan. — Ég sagði við hann: Herra liðsforingi, þér verðið að fara inn í skálaitn undir eins. Hann svaraði á sinni bjöguðu þýzku: — Ég fer ekki inn í skál- ann. þér getið gert það sem yður sýsist. Ég krefst þess að ná tali af fangalbúðastjóran- um strax. — Ég sagði honum, að það væri ekki hægt, hann yrði að bíða til morguns. Þrátt fyrir það neitaði hann að fara inn í skálann, og var mjög móðg- aður vegna þess að yfirforing- inn viidi ekki veita honum áheyrn. Hann sagði ennfrem- ur: — Herra undirforingi, þér eruð hermaður. S-tandið ekki þarna eins og þvara, heldur skjótið mig. Ég gekk í burtu og náði í Petri höifuðsmann. en hann hafði yfirumsijón og gæzlu með fangabúðum A. Yakov hélt áfram göngu sinni og kom til búða, sem stormsveitarforingi Konrad Harfich gætti. Hann var 41 árs og rak tóbaksekru á friðartím- um. Harfidh sagði, að þegar Yakov hafi gengið fram á hann hafi hann sagt: — Varðmaður, skjótið þér mig. — Ég bað hann um að vera ekki að þessari vitleysu, og fara heim í skála sinn og sofna. Við gæt-um ta-lað um þetta á morgun. En hann bað mig aftur um að skjóta sig. Harfich hi-tti Yakov aftur á eftirlitsferð sinni um fangatoúð irnar. Hann hélt á trjágrein og vingsaði henni til og frá og sló með henni á jörðina. Hann fleygði henni skyndilega frá sér og gekk í átt að girð- ingu, sem lá umhverfvs fanga- búðirnar. Tvær girðingar hafa verið umhverfis búðirnar. Önnur var lág. og á milli hennar og raf- magnsgirðingarinnar, sem yzt var. var hið svoka-llaða dauða- svæði. Samkvæmt þeim reglum sem þarna giltu, var gert ráð fyrir, að sá, sem út á diuðs- svæðið fór. væri að gera flótta- tilraun. og var varðmönnunum gert að skjóta hann. Harfich segir, að Yakov hafi kl-ofinað jifir innri vaddavfrssirð inguna, gensið yfir dauðasvæð- ið og að rafmagn-sgirðingunni, og gert sig líklegan til að fara yfir hana líka. Hann snerti einangrun-arkúiuna með vinstri hönd. sleppti henni jafnskjótt og tók á rafmagnsvírnum með sömu hönd. en ekkert skeði Þá tók hann á vírnu-m með hægri hönd líka, og þá skaut ég einu skoti. Um leið og hann snerti einangrunarkúluna hafði hann kallað. skjótið. skjótið. — Ég reyndi allt sem í mínu valdi stóð til að fá hann ofan af þessari firru. en allt kom fjrir ekki. Áður en hann cók á vírnum sneri hann sér að mér og kallaði: Varðmaður, h-egðið yð-ur e-kki eins og skræfa. Skjótið þér mig, og hlýðið fyrirmælunum. Lík Yakovs var krufið, og í skýrslu læknisins segir: ,.Þegar ég sá fangann 14. april ’43 gerði ég mér strax grein fyrir því að hann hafði verið skotinn í höfuðið og það orðið hans bani. Kúlan hefur hæft hann rétt neðan við hægra kinnbein, fjórum sentimetrum frá eyranu. Hann hlýtur að hafa látizt samstundis". Hvernig stend-ur á því, að sonur Stalíns kaus sér þennan d-auðdaga. Um það er ekki að fullu vi-tað, og upplýsingarnar, sem Kokosyn lét lögreglunni í té, skýra það lítið. „Fyrir nokkrum dögum slengdi Ous-hing því framan í mig. að Gestapo héldi hlífi- skildi yfir mér í fangabúðun- um. Hann sagði Djugashvili, að ég njósnaði fyrir nazista, og ég skrifaði til yfirforingjans eftir nýjum einkennisbúningi. Það væri ekki nóg með að ég hefði fengið hann, heldur hefði ég einnig fengið skyrtur, nær- föt og vasaklúta, og Cushing sagði: — Hvernig getur þú not- ið þessara forréttinda. e-f þú ert á sama b-áti og við. — Hann vildi meina að ég væri njósnari og hélt því stíft frarn við Djugashvili. Ég sagði að honum skjátlaðist, og Djuga shvili reyndi að sannfæra hann um, að þetta væri reginfirra. Þegar við fengum gjafapakk ana frá Rauða krossinum skip- aði yfirforinginn svo fyrir, að við skiptum innihaldinu bróður lega á milli okkar. En Cushing var þeirrar skoð-unar, að þeir fi-mm ættu þetta allt, og s-agði við Djugashvili: — Njósnari Þjóðverja fær ekki neitt. Og ég fékk aðeins 100 s-ígarettur af þessu öllu sa-man. 14. apríi varð alvarleg senna. Ég veit ekki hver okkar ataði út sal- ernið, en O’Brien og Andrew stóðu á því fastara en á fót- unum ,að ég hefði gert það, og kölluðu mig Bolsévikas-vfn. Ég svaraði í sömu mynt, en þá rak O’Brien mér rokna löðr- ung. — Ég get aðeins sag-t eftir- farandi varðandi Djugashviú: Það var alltaf viðkvæðið hjá honum, að hann yrði að kom- ast á brott. Fýrst í stað hélt ég að hann væri að gera að ga-mni sínu. og hló alltaf að þes-sari vitleysu. H-vernig gat líka manninum d-ottið ' hug, að hann kæmist frá þessum rammlega víggirtu fangabúð- um? En hann sagði alltaf: —

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.