Tíminn - 21.03.1968, Page 7

Tíminn - 21.03.1968, Page 7
FIMMTUDAGUR 21. marz 1968. 7 Mér skal takast að komast undan. Auk þess sagði hann oft. — Faðir minn er strangur og ráð- ríkur, O'g honutn líkar ekki að ég skuli vera hér fanginn. Djugashivili sagði, að hann gæti ekki snúið aftur til Soi'ét- ríkjanna, því að hann hefði ver ið tekinn sem stríðsfangi. Þá sagði ég við hann, að Molotov léti ef til vill skjóta mig. þeg- ar ég kem til Rússlands, enda þótt við séum náskyldir. Yakov Djugashvili notaði alltaf hið rétta nafn föður síns, en gekk aldrei undir nafninu Stalín, né heldur systir hans, Svetlana og yngri bróðir hans Vasily. Svetlana (sem kennir sig við móður sína, Alliluyeva) hefur skrifað, að bróðir sinn hefði alls ekki átt heima í her- mennsku, því að hann hafi ver ið mjög friðelskandi að eðlis- fari blíðlyndur, dálítið svifa- seinn og mjög þögull, en þó ákveðinn í skoðunum sínum. Hann var einkabarn Yeka- terina Svanidze og Stalins og líktist móður sinni, sem d'ó, þeg ar hann var aðeins tveggja ára. Svetlana segir í bók sinni. 20 bréf til vinar, að Stalin hafi mjög kúgað þennan son sinn, og verið honum hinn mesti harðstjóri. Hún segir jafnvel að Yakov, þá barn að aldri hafi gert tilraun til að fremja sjálfs morð. Hvers vegna hann gerði það er ekki vitað, og verður sennilega aldrei vitað. Þegar Þjóðverjar tóku hann til fanga 16. júlí 1941 tóku þeir af honum skýrslu. og hún var einmitt meðal þeirra gagna, sem Bretar og Banda- ríkjamenn lögðu hald á í stríðs lok. Hann lýsir því ófremdar- ástandi og ringulreið, sem var á rússnesku víglínunni. „Stjórn og skipulag allt var í handaskolum. Deildin mín sem álitin var góð, var mjög illa undir bardaga búin. Við vorum vel búnir vopnum en mennirnir kunnu ekki að nota þau. 16. júlí umkringdu sveitir ykkar Ljasnovo. Við vorum gengnir í gildru. Skelfing greip um sig. Stórskotaliðarnir reyndu að veita viðnám, en allt kom fyrir ekki. og skyndilega hurfu þeir eitthvað út í busk- ann. Ég hélt að yfirforinginn biði mín í bíl sínum og gekk þangað, en hann var hvergi að finna. Sveitir ykkar hófu skot- hríðina Hermenn Rauða hers- ins hópuðust í kringum1 mig. og báðu mig að stjórna gagn- árás á vkkur. Ég gaf þeim skip- un til málamynda. en þá greip þá ofsahræðsla. þeir hurfu og skildu mia einan eftir Ég átt.i einskis annars úr- kosta en að flýja. Hermaður einn síns liðs á orrustuvelli er ekki hermaður Það var farið að birta af degi. Það var þorp við járnbrau’ar stöðina. og þar voru menn að skipta um föt. Ég ákvað að slást i hópinn. Ég fór inn á bóndabæ og fór úr einkennis- búningum og í buxur og skyrtu svo ætlaði ég að flýja með hin- um. Þá sá ég allt í einu að ég var umkringdur þýzkum her mönnum. og öll sund voru 'ok- uð. Ég gekk til þeirra og sagði: — Ég gefst upp. Stalin komst að þvi að son- u.r hans var í haldi hja Þioð verjum. sennilega af býzkum áróðursauglýsingum Svetlana segir, að þá hafi hann '.átið hneppa Júlíu eiginkonu Yakovs í fangelsi fyrir að eiga sök á töku Yakovs, en Júlía var af Gyðingaættum Hún varð að dúsa 2 ár í fangelsi, en er ef til vill enn á lífL TÍMINN ENDURBÆTTUR LAND-ROVER -fc Land-Rover er nú fullklæddur að innan — í toppi, hliðum, hurðum og gólfi. — ^ Endurbætt sæti; bílstjóra-sæti og hægra fram- sæti stillanleg. Endurbætt mælaborð með læsanlegu hanzka- hólfi. rAr N/ matthúðuð vatnskassahlíf. Krómaðir hjólkoppar. Krómaðir fjaðrandi útispeglar. Ný gerð af loki á vélarhúsi. -----------------AUK ÞESS------------------------------ er Land-Rover afgreiddur með eftirtöldum búnaði: Aluminiumhús mcð hliðargluggum — Miðstöð með rúðublásara — Afturhurð með varahjólafestingu — Aftursæti — Tvær rúðuþurrkur — Stefnuljós — Læs- ing á hurðum — Innispcgill —? Útispcgill — Sólskcrmar — Dráttarkrókur — Gúmmí á petulum — Dráttaraugu að framan — Kílómetra hraðamælir með vegmæli — Smurþrýstimælir — Vatnshitamælir — 750x16 hjólbarðar — H. D. afturfjaðrir og sverari Höggdeyfar aftan og framan —r Eftirlit einu sinni eftir 1500 km. — Hliðarstig fyrir farþega — Stýrisdempari. — BENZIN DIESEL Sími 21240 HEILDVFRZLUNIN HEKLA hf Laugavegi 170-172 Þjóðverjar ætluðu sér að nota Yakov í auglýsingaskym. Þeir dreifðu flugrit.ura með myndum af honutn. pir sem fullyrt var að hann væri á lifi og við góða heilsu og aðbúnað og reyndu á þennan hátt að eá aðra Rússa til að gefa sig fram við sig. Þá létu þeir einskis ófreistað við að fá Yakov til að ganga í lið með þeim, en allt kom fyrir ekki. Svo sem að framan greinir hafa Bandamenn ekki birt skýrsluna um dauða Yakovs fvrr en nú. og það var tort m.a. af tillitssemi við Stabn. en vitað var að hann m,yndi taka þetta mjög nærri sér - Svetlana segir. að Stalin bafí í stríðslok fengið bréf frs Belgíu þess efnis. að Yakov hefði verið. skotinn. en upp lýsingarnar voru svo óljósar, að Stalin lagði á þær tak- markaðan trúnað. en hann hét milljón rúblna hverjum beim, er gætu veitt honum fullnægj- andi upplýsingar urn son sinn. ^kleift hefur reynzt að fá nokkrar upplýsingar um afdrif samfanga Yakovs, frænda Molo tovs og Bretunum fjórum. Það er ekki loku fyrir pað skotið að skýrsla Þjóðverja' sé röng, og aðstæður hafi verið aðrar en þær sem Himmter skýrði Ribbentrop frá. En sér- fræðingar Breta, sem rjailað hafa um nazista-tímabilið segja að yfirleitt séu innanríkisskjöl af þessu tagi nakvæm og örugg SMITH-CORONA 30GERÐIR Stórkostlegt úrval rit-og reikni- véla- til sýnis og reynslu i nýjum glæsilegum sýningarsal; ásamt Taylorix bókhaldsvélum og fullkomnum samstæðum skrifstofu- húsgögnum SKRIFSTOFUTÆKNI Áriniíln ,'t. vimi :UI 90fl.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.