Tíminn - 21.03.1968, Qupperneq 14
FIMMTUDAGUR 21. marz 1968.
14
AUKA ÞARF
Framhald af bls. 16.
leikar sveitaheimila til þess að
taka b'örn' í sumardivöl mjög
minmkað vegna fólksfæðar, ’ en
þörfin færi hins vegar sívaxandi.
Afleiðingin væri mjög vaxandi á-
sókn við að koma börnum og ung
lingum að einhverjum störfum að
sumrinu í þéttbýliniu, eða þá að
þau yrðu að eyða sumrimu að-
gerðarlaus, sem væri enm verra.
Las Einar m.a. uipp bréfkafla frá
fræðsiustjóra Reyikjavíikur um
þennan vanda.
Einar kvaðst ekki vilja vanmeta
þátt félaga og samta'ka við rekst-
ur sumardvalarheimila, en þau
þyrftu mjög aukinn styrk og gætu
hvergi nærri leyst verkefnið að
fullu eins og nú væri. Þetta væri
brýnt samfélagsvandamál og ekki
óeðlilegt að ríkið beitti sér fýijir
gagngerðri athugun á laiisn þess
í samráði við bæjarstjórnir og
barnaverndarráð íslands.
Einar kvaðst nú flytja þetta
miál í þriðja sinn, og væri til
þess sérstök ástæða. Þegar tiilag-
an var til meðferðar í allsherjar-
niefnd í fyrra, var nefndin sam-
mála um nauðsyn hennar, en
/neirihluti nefndarinnar lagði til,
að henni. vrði vfsað til ríki«stjórn
arinnar. Það væri afgreiðsla út
af fyrir sig og þess þá að vænta,
að ríikisstjórnin léti málið til sín
taka, þar sem nauðsynin væri við-
urkennd og augljós. Þó hefði far-
ið svo, að tillagan hefði aildrei
fengið lokaafgreiðslu í fyrra, ek'ki
einu sinni þá, sem meirihluti alls-
herjarnefndar fagði til. Við það
væri illt að una, og því fliylti hann
málið eimu sinni emn.
Þá drap Einar á þann vanda,
sem skyldur væri þessu máli, en
það væru vandræði skólaæskuinn-
ar til þess að fá sumarvinnu, en
þau hefðu verið mikil s.l. sumar
og yrðu að líkindum . enn. Oft
væri það svo, að sumartekjur
ungs fólks yrðu að duga að mestu
til vetrannáms, og fengjust þær
ekiki, væri skólaseta næsta vetur
Mtt hugsanleg. Væri augljóst, hver
háski væri hér á ferð, ef þetta
ástand yrði tif þess að draga úr
TÍMLNN
menntasókn æskunnar. Mætti að
þessu hyggja í sambandi við til-
lögu þá, sem hér væri flutt.
Kvaðst hann sérstaklega fagna
því, að ver'kalýðsfélögin gerðu sér
grein fyrir þessu, og að 6. liður
í atvininumálayfirlýsinigu ríkis-
stjórnarinnar væri einmitt um
þetta. Væri mikilvægt að finna
góð og þroskandi störf fyrir ungl-
imga, og kæmi þar margt til, og
væri á sumt dreipið í tillögunni,
en einnig dytti sér til dæmis í
hug, að 'nýta mætti þetta vinnu-
afl til þess að afla heyja, er
kæmu að notum þar sem fóður-
skortur er á landinu, en svo er
ær.ið oft eim'hvers staðar vegna
grasbrests eða óþurrka.
Tillögun'ni var vísað til alls-
herjarneifndar.
HELLTU NIÐUR
Framháld a/f bls. 1.
endursendir þangað frá Mjólkur-
stöðinni hér í Reykjsvík í gær,
þar sem gæði mjólkurinnar voru
ekki talin nægilega mikil. Hefur
þegar verið unnið úr þessari
mjólk skyr. Skyr og rjómi eiga að
verða næg í búðunuim næstu daga,
og fer mikið magn af stað frá
Mjólkurbúinu á morgun.
Grétar sagði að lokum: Okkur
hefur þótt harkalega og órétt-
lega að farið í þessu verkfalli,
gagnvart sunnlenzkum bændum,
en þeir hafa borið sig nokkuð vel
yfir þessu, þótt þeir séu rhjög
gramir Það var þó strax bót í
máli að fá undanþágu. þannig að
hægt var að byrja að taka á móti
mjólkinni á miðnætti aðfaranótt
mánudagsins. þegar sýnt þótti að
verkfallið væri í þann veginn að
leysast.
AKUREYRI
Framhajd 3if bls 1.
mætti þá stilla áætlun svo til að
þær mættu þar strandferðaskipum
að sunnan Val endahafna væri þó
rétt að atlíuga nánar.
Gísli sagði. að auk þess að vera
hlutfallslega mesti iðnaðarbær
væri Akureyri höfuðstaður Norð-
urlands og yrði að gegna mikil-
vægu hlutverki sem miðstöð í
menningu og abvinnulífi, og þvf
væri eðlilegt að Akureyri væri mið
stöð samgangna og flutninga þessa
landshluta. os skipa ætti málum
beinlínis með þetta í huga.
VIÐRÆÐUR
FramhaW aif bls. 1.
koma á frjálsu markaðssvæði
milli Efnahagsbandalagsins og
þeirra landa sem standa utao
þess. en hafa sótt um upptöku
í það.
2) Rétt er að bandalagið
bjóði þessum löndum takmark-
aðar tollalækkanir á iðnaðar-
vörum.
3) Bandalagið á að bjóða
samninga til langs tíma, um
útflutning og innflutning land-
búnaðarvarnings á föstu verði
sem vera skal mitt á milli
verðsins á heimsmarkaðnum og
verðsins innan bandalagsins.
4) Komið skal á fót nefnd til
viðræðna, milli bandalagsríkj-
anna og þeirra landa sem vilja
upptöku, og skulu þar rædd fiöl
mörg hagsmunamál beggja að-
ila.
5) Ekki er hægt að ábyrgj-
ast að þau lönd sem sótt hafa
um upptöku í bandalagið fái
hana nokkurn tíma.
Auk þessa er álit nefndar-
innar það, að ekki aðeins bau
lönd. sem sótt hafa um fulla
aði'ld. taki þátt í viðræðunum,,
heldur og önnur lönd er áhuga
hafa á tengslum við Efnahags-
bandalagið. svo sem Sviss, Pvi-
þjóð og Austurríki.
ÞAKKARÁVÖRP
Ég þa'kka ykkur innilega, vandamenn og vinir, sem
glödduö mig margvíslega á 75 ára afrnæli mínu. Ég
bið ykkur friðar og blessunar.
Jón Sigtryggsson.
Innilega þakka ég öllum þeim sem glöddu mig
með heimsóknum, skeytum og gjöfum, á sjötugsafmæli
mínu þann 1. marz s.l. — Lifið heil.
Steindór Benediktsson.
Innilegt þakklæti sendi ég öllum þeim vinum mín-
um og vandamönnum, sem glöddu mig með heim-
sóknum, skeytum, blómum og gjöfum, á 70 ára aímæli
mínu. — Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Efri-Grund v/Breiðholtsveg.
Marteinn Björnsson,
Höskuldsstaðaseli,
lézt 19. marz.
Aðstandendur.
Við andlát systkina minna, þeirra
Kristjönu Helgu Bjarnadóttur
°g
Björns Blöndals Bjarnasonar
frá Hreggsstöðum,
færi ég mínar innilegustu þakkir laeknum, hjúkrunarkonum og
öðru starfsfólki á sjúkrahúsinu á Patreksfir’ði fyrir umönnun þeirra
og hjúkrun meðan þau dvöldu þar seinustu æviárin. — Elnnig færi
ég sérstakar þakkir mínar Bergsteini Snæbjörnssyni sem og öðrum
þeim mörgu, sem sýndu mér hjálp og samúð í veikindum þeirra og
nú síðast vlð fráfall þeirra með minningarskeytum, minnlngargjöf-
um og margvíslegri aðstoð.
Lifið öll heil og hafið hjartans þakkir.
Einar Bj. Bjarnason frá Hreggsstöðum.
Okkar innilegustu þakkir til allra bæði nær og fjær, sem auðsýndu
okkur samúð og hluttekningu við andlát og útför bræðranna,
Júlíusar Tómassonar,
flugstjóra
Gísla Tómassonar,
flugmanns
Þórunn Jónsdóttir og dætur,
Tómas Jónsson,
Þórunn Tómasdóttir, Jón Grétar Guð.mundsson,
Ásta Þórarinsdóttir, Jón Guðbrandsson.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Guðrúnar Jónsdóttur,
Suðurgötu 2, Sauðárkróki.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
í Austurbæjarbíói í kvöld kl. 11,15.
Margir af þek'ktustu skemmtikröftum
landsins koma fram, þar á meðal:
Emelía Jónasdóttir, Árni Tryggvason,
Ómar Ragnarsson, Alli Rúts, Karl
Einarsson, Jón Gunnlaugsson, og
óperusöngvararnir Sigurveig Hjalte-
steð, Guðmundur Guðjónsson og
Magnús Jónsson. — Ríó-tríó, Hryn-
tríó, nemendur úr dansskólum Sig-
valda og Heiðars Ástvaldssonar, og
einnig koma fram hljómsveitir.
Allur ágóði af skemmtuninni rennur
til Vestfjarðasöfnunarinnar vegna sjó
slysanna í vetur.
Guðmundur
Skrifstofustúlka
Heildsölufyrirtæki óskar að ráða skrifstofustúlku.
Bókhalds og vélritunarkunnátta nauðsynleg. —
Umsóknir sendist afgreiðslu blaðsins, merkt:
„Framtíð“.
Aðalfundur
! Iðnaðarbanka
verður haldinn í veitingahúsinu Lido í Reykjavík,
laugardaginn 30. marz n.k. kl. 2 e.h.
D A G S K R Á :
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfu’m og umboðsmönnum þeirra bankanum dag-
ana 25. marz til 29. marz að báðum dögum með-
töldum.
Reykjavík. 20. marz 1968
SVEINN B. VALFELLS, form. bankaráðs.