Tíminn - 21.03.1968, Blaðsíða 16

Tíminn - 21.03.1968, Blaðsíða 16
Jón Helgason skrifar í Sunnudagsblaðið greinarflokkinn 56. tbl. — Fimmtudagur 21. marz 1968. — 52. árg. SNJÓSKAFLAR hafa víða myndast á húsþökum undanfarið. Sumstaðar eru snjóhengjur á þakskeggjum og hafa þær harðnað mjög í frostinu og sólbráðinni síð ustu daga og eru engan veg inn hættulausar vegfarend- um. Iðulega má sjá snjó- flóð dynja á gangstéttum og gera þau ekki boð á undan sér og eru vegfarendur vamarlausir gegn þessu. Flestir húseigendur virðast algjörlega kærulausir um hvort snjódyngjur á þökum húsa þeirra hrynji ofan á vegfarendur eða ekki. Aðr- ir eru þó hugulsamari og reyna að ýta snjónum nið- ur þegar engin mannaferð er meðfram húsunum. En oft er ekki auðvelt að kom ast að snjónum á þökunum til að ryðja honum niður. Slökkviliðið og Rafveitan hafa nógu öðru að sinna, en stundum er leitað til þess ara aðila til að ryðja þök. En hægt er að fá leigða kranabíla til að sinna þcssu hlutverki og það hafa hús ráðendur Búnaðarfélagshúss ins gert og sést á myndinni er verið er að ryðja þakið. B€Rl marga tugi ára. Að lokuim lifði hann þá stund, að Pall amt- maður Briem kvað upp dóm sjnn í harðorðu embættisbréfi yfir gamla sveitarstjórnarand- anum. Um naostu helgar mun Jón Helgason segja í Sunnudags- blaði Tímans nokkuð frá þess um manni, sem enn er all mörgu öidruðu fólki í minni. Saga hans verður þó ekki birt í heild, því að hún fyllir all- væna bók, heldur verða skil sögð á uppruna hans og til- drögunum að ógæfu hans og síðan dregnir fram í dagsljósið nokkrir þættir úr lífi hans. Jafnframt er þess vinsamlega óskað, að þeir, sem sjálfir muna Jóhann eða hafa af hon- um þær sagnir af munni ann- arra, er einh/verju fengi aukið við þá mynd, er mun birtast í þessum þáttum, miðli höfundi af fróðleik sínum. AK-Reykjavík, miðvikudag. — uðu þingi í dag fyrir tillögu, sem Einar Ágústsson mælti í samein- hann flytur ásamt Sigurvini Ein- arssyni og Ingvari Gíslasyni um sumardvöl kaupstaðarbama í sveit um, en tillagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að skipa fimm manna milliþinganefnd til þess að gera tillögur um stofnun sumarheimila í sveitum fyrir börn úr kaupstöð- um og kauptúnum. Skal að því stefnt, að á slíkum sumarheimil- um hafi börnin viðfangsefni, er geti orðið þeim að sem mestum andlegum og líkamlegum þroska, þ.á.m. ræktunai-störf, gæzla hús- dýra og umgengni við þau. Nefnd in skal hafa samráð við borgar- stjórn Reykjavíkur, bæjai-stjórnir kaupstaða, sveitarstjórnir kaup- túnahreppa og barnaverndarráð íslands. ■ Ráðherra skipar fjóra nefndarmenn eftir tilnefningu þingflokkanna, einn frá liverjum, <en fimmta nefndarmanninn án tilnefningar, og skal hann vera formaður nefnciarinnar. Nefndin skili áliti fýrir næsta reglulegt Al- þingi. Kostnaður af störfum nefnd arinnar greiðist úr ríkissjóði." í framsöguræðu sinni fyrir mál- inu gat Einar þess, að á undan- förnum áratuguim hefði fjöldi barna úr Rey'kjavík og öðru þétt- býli dvalizt á sveitaheimilum og einnig sumardvalarheimilutm, sem ýmis félagssamtök hefðu rekið. Nú á síðustu árum hefðu mögu- Framhaid á bls. 14 NÆGILECT KJARNFÓÐUR VIÐASTHVARA LANDINU EJ-Reykjavík, miðvikudag. ★ Nægt kjarnfóður v'rðist nú vera í landinu til að fullnægja þörfinni fram til maíloka. Hefur þetta komið fram í könnunum, sem Gísli Kristjánsson, ritstjóri, hefur gert fyrir Almannavarnir. Enn ein könnun er nú í fullum gangi, og þær upplýsingar, sem þegar liafa bori'/.t, bcnda til hins sama. I>ó hefur alvarlegt ástand verið á einstaka bæjum, en hvergi í lieilum sveitum. ★ Vandinn í dag er, og hefur verið, fjárliagslegs eðlis. Sérstak lega er þetta alvarlega vandamál í þeim landshlutum, þar sem mis æri og harðæri liefur verið und anfarin ár, eins og á norðaustur liorni landsins og reyndar líka í Strandasýslu, að sögn Gísla. Gisli sagði, að könnun hefði verið gerð í desember s. 1. á áætl aðri þörf fyrir kjarnfóður fyrir j veturinn. Nú fyrir skömmu hafi I svo önnur könnun verið gerð, og ■ náði hún yfir nokkuð stærra svæði en sú hin fyrri, eða frá ísa fjarðardjúpi til Reyðarfjarðar. Könnunin í desember náði yfir ís hættusvæðið svonefnda, þ. e. frá Árneshreppi nyrzt í Strandasýslu og að Vopnafirði. Gísli sagði, að nú væri enn ein könnun í fullum gangi, og næði hún yfir þetta sama svæði og Vest urland einnig. — Á öllu því svæði, sem cg hefi kannað tvisvar i vetur“, — sagði Gísli, — virðist mér að áætl uð þörf og innflutningur kjarn fóðurs færi saman, nema í hrossa sveitum, þar sem fóðureyðfila er mun meiri en áætlað var í des- ember — Okkur berst nú stöðugt skýrslur frá oddvilum í þessari síðustu könnun, sem gerð er til að athuga hvort gera þurfi ein- hverjar ráðstafanir. Sýnist mér, að ástæður séu hvergi slæmar í heil- um sveitum, þótt það sé svo á ein staka heimilum. Er ekki hægt að segja annað, en að innflytjendur kjarnfóðurs hafi staðið vel í ístað inu, því að í því yfirliti, sem gert var á dögunum, vantaði ekki mik ið til að í landinu væri til nægi- legt kjarnfóður til að fullnægja þörfinni til mai-loka. Er þá tekið með kjarnfóður, sem kom til landsins í marz. Þetta er ekki allt komið út á land, tafir á því urðu vegna verkfallanna. En ef flutn- ingaleiðir lokast ekki. þá ætti nægilegt kjarnfóður að vera til á öllum verzlunarstöðum til mailoka. — En hvað með heyforða? — Samkvæmt þeim skýrslum, sem berast núna, hefur verið fóðr að mjög skynsamlega í flestum sveitum. Þar er um helmingur af þeim heyjum, sem til voru í haust, enn til, miðað við 1. marz. Þetta er mjög skynsamlega farið með heyfóður, en eins og kunnugt er var heyfengur s. 1. sumar allt of lítill. Og svo hafa viðhorfin breytzt nokkuð núna, því þótt snjór hafi fallið, þá eru ekki horf ur á þeim hagleysum, sem menn horfðu fram á meðan svell var um allt land. Snjórinn getur horf ið á örfáum dögum. — Það hefur verið alvarlegt ástand á einstaka bæjum, — sagði Gísli að lokum, — en vand inn hefur verið, og er fjármála- legs eðlis. Og í vissum landsvæð um er sá vandi mikill. SÆLUVIKA SKAGFIRÐINGA HEFST Á SUNNUDAGINN GÓ-Sauðárkróki,miðvikudag. Sæluvika Skagfirðinga hefst á Sauðárkróki sunnudaginn 24. marz n. k. Margt verður til skemmtun ar að vanda, Leikfélag Sauðár- króks sýnir gamanleikinn Leyni- mel 13, eftir Þrídrang. Frumsýn- ing verður á sunnudaginn. Leik stjóri er Bjarni Steingrímsson. Ungmennafélagið Tiivdastóll skemmtir með revíukabarett og fleiru. Tveir karlakórar munu syngja. Karlakórinn Heimir, söng stjóri Magnús Á. Gíslason og Karlakór Sauðárkróks, söngstjóri Ögmundur Svavarsson. Kvikmynda sýningar verða alla daga vikunn ar og dansað verður fimm kvöld vikunnar. Flamingó leikur fyrir dansinum, hljómsveitarstjóri er Kristmundur Oddsson. Skemmtanir mánudagsins eru sérstaklega ætlaðar börnum og unglinglpm og um kvöldið verð ur ungíírigadansleikur. Framsóknarfélag Hafnarf jarðar Klúbbfundur verður fimmtu- daginn 21. marz, kl. 20.30 að Strandgötu 33, Jón Skaftason, alþm. mun mæta á fundinum. Aukabarfmöguleika barna og unglinga til sumardvalar í sveit Aldrei hefur nokkur fslend- ingur, sem hlaut það hlutskipti að grána og ergjast í höggorr- ustu við harðbýlar sveitarstoð ir, reist sveitarfélagi rammara níð og lífseigara en Bólu-IIjálm ar Akrahreppi. Líkt og til að hnykkja á þeirri kveðju og brenna hana inn í vitund kom andi kynslóða, féllu atvik svo, að gamla skáldið dó út af í eymd sinni í beitarhúsum. En Bóiu-Hjálmar átti sér marga þjáningarbræður á þeirri tíð, er andi húsagatilskip unarinnar og hreppstjórain- strúxins var að meira eða minna leyti leiðarstjarna sveit aryfirvalda. Mörgum samtíðar mönnum hans mun meira að segja þótt allgott hlutskipti þess manns, sem lafað gat við bú meiri hluta ævinnar. Einn þeirra orðaði beiskan sanm- leika á þann veg, að enginn þyrfti að vorkenna Gretti út legðina — og kvaðst sjálfur hafa verið skóggangsmaður í hálfa öld. Annar sagði um þá, er hann átti við að kijást: ,,Guð bu-ndu þeir, en djöflinum slepptu þeir lausum." Margur var sá, er átti um sárt að bindia. Einstæðust mun þó krossganga Jóhanns Bjarna sonar frá Vigdísarstöðum í Línakradal, og mun tæpast finn ast dæmi um annað eins píslar vætti í augsýn aliþjóðar um

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.