Alþýðublaðið - 15.11.1989, Side 4
4
Miðvikudagur 15.nóv. 1989
íslendingafélagið 70 ára
Danmörk:
Dagana 28. október til 4. nóvember héit íslendingafélagið uppá
þessi tímamót í sögu félagsins. Þau fóru að hluta til fram í Jóns-
húsi og enduðu með veislu í „Sjællandsfærgen“, sem liggur við
festar hjá Löngubrú. Alþýðublaðið var viðstatt hátíðarhöidin.
Frá Guðbjörgu K Arnar-
dóttur fréttaritara Al-
þýdubladsins í Kaup-
mannahöfn
Það er óhætt aö fullyrða að
stjórn íslendingafélagsins hafi
haldið uppá afmælið með glæsi-
brag. Ekki lét Bergljót Skúladóttir
veitingaraðili í Jónshúsi sitt eftir
liggja fremur venju. Þar sem nær
hvert kvöld var á boðstóium ís-
lenskur matur í ,,a la Beggu-
mömmustíl". Dagskrá var sem
sagt á hverju kvöldi með ýmsum
yndisaukum.
„Eftir að hafa unnið að þessari
svokallaðri menningarviku í til-
efni afmælisins í nær öllum frí-
stundum sl. vikna er ekki hægt að
segja annað en að við höfum hlot-
ið uppskeru erfiðisins. Svo til hvert
kvöld hefur verið fullt hús í Jóns-
húsi eða um 30—60 manns," segir
Óttar Ottósson formaður íslend-
ingafélagsins. En Óttar hefur verið
búsettur í Kaupmannahöfn í 12 ár
og starfar sem kerfisfræðingur.
„Mér finnst ánægjulegt að Is-
lendingar í Kaupmannahöfn séu
viljugir til að halda saman og
skemmta sér saman. Þess vegna
tel ég ríka ástæðu til þess að hér sé
starfrækt íslendingafélag og ekki
síst þar sem við erum svo heppin
að hafa Jónshús til afnota," segir
Óttar ennfremur.
Menningarvika
Það var notaleg stemmning í
Jónshúsi þessa viku og ekki laust
við að sumir landar jafnvel fengju
létta íslands „nostalgíu" t.d. þegar
hljómsveit Guðmundar Eiríksson-
ar spilaði Maístjörnuna og önnur
íslensk þjóðlög við söng Nínu
Bjarkar, þó með jazzívafi. Það er
að segja þeir íslendingar sem enn
eru sannir íslendingar í brjósti
sínu. Guðmundur Eiríksson er
rh.a. tónlistarmaður hér í borg.
Sama kvöld las Erik Skyum Niel-
sen nýja smásögu eftir Einar Kára-
son, sem hann hefur snúið yfir á
dönsku.
Það var að sjálfsögðu ekki hægt
að halda menningarviku nema að
minnst væri stórskáldsins Jónasar
Hallgrímssonar og Páll Valsson
sem staðið hefur fyrir heildarút-
gáfu á verkum Jónasar hélt fyrir-
lestur og lesið var úr verkum Jón-
asar. Þann upplestur sáu þau Erla
Sigurðardóttir og Böðvar Guð-
mundsson um. Sigurður Bragason
baritónsöngvari heimsótti Dan-
mörku i tilefni af menningarvik-
unni og flutti klassísk verk við
undirleik Úlriks Ólasonar. Þaö
gerði einnig Jóhanna Þórhalls-
dóttir sem flutti íslensk sönglög og
s-ameríska tangóa við undirleik
Guðbjargar Sigurjónsdóttur.
„Við hefðum að sjálfsögðu ekki
getað fengið eins marga skemmti-
krafta frá íslandi, nema að hafa
notið styrkja og velvildar fólks. En
Flugleiðir hafa ætíð verið velvilj-
ugir að borga flugför fyrir íslenska
skemmtikrafta. Einnig hafa þeir
aðilar sem fram hafa komið á
menningarvikunni troðið upp án
endurgjalds," segir Óttar Ottósson.
Eitt af kvöldunum var sérstak-
lega þjóðlegt, en þá voru kyrjuð
sýnishorn af rímnasöng sem
Tryggvi Hansen sá um. Las hann
einnig úr Völuspá undir trumbu-
slætti við mikinn fögnuð gesta.
Að síðustu er rétt að nefna dag-
skrárlið þar sem Sverrir Hólmars-
son, sem er annar þýðenda bókar-
innar Söngvar satans eftir Salman
Rushdil, las kafla úr fyrrnefndri
bók. Efnt var síðan til umræðna
um þennan umdeilda höfund og
útgáfu þessarar bókar. Þorsteinn
frá Hamri las einnig úr verkum
sínum.
Veisiuhöldin
Menningarvikunni lauk sl. laug-
ardag á nefndri ferju, sem nýtist
nú eingöngu sem matsölu- og
skemmtistaður. Kannski ekki
ónýtt að nýta, eitthvað af togara-
fjölda Islendinga eða jafnvel hval-
veiðiskipum á þennan hátt. Hér
með komið á framfæri.
A þessari ferju hófust hátíðar-
höldin á þilfari með hanastéli og
borðhaldi á eftir. Milli rétta
skemmti Laddi veislugestum, en
hann sá líka um að skemmta börn-
unum í Jónshúsi fyrr um daginn.
Vigdís Pálsdóttir, ritari utanríkis-
ráðherra flutti hátíðarræðu, en
veislustjóri var Júlíus Pálsson,
annar eigenda ferðaskrifstofunn-
ar „Hekla Rejser" í Kaupmanna-
höfn. Eftir að allir voru orðnir
saddir, eða um 200 íslendingar,
spilaði hljómsveitin STRAX fyrir
dansi fram á rauða nótt.
Fólk virtist skemmta sér kon-
unglega, með árshátíðarkokka-
ívafi, enda ekki á hverjum degi
sem íslendingar í Kaupmanna-
höfn fá tækifæri til að hlusta á ís-
lenska danshljómsveit.
Dr. Kristján Þorvaldsson, gjaldkeri SÍDS, spjallar við dönsku söng-
konuna Trine.
Emil Guömundsson, forstjóri Flugleiöa í Kaupmannahöfn, ásamt
eiginkonu sinni, Sigurbjörgu Guðmundsdóttur.
Óttar Ottosson, formaöur íslendingafélagsins í Dan-
mörku.
Hörður Helgason sendiherra og Vigdís Pálsdóttir ritari
utanríkisráðherra ræöast viö.
Salurinn í Jonshusi. Bergljót Skúladóttir við afgreiðslu
aftast.