Alþýðublaðið - 15.11.1989, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 15.nóv. 1989
7
UTLOND
ERMASUNDSEYJARNAR
Ermasundseyjarnar tilheyra bresku krúnunni, hafa sjálf-
stæöa stjórn og eígin löggjöf. Eyjaskeggjar eru breskir en þó
ekki breskir ríkisborgarar. Ríkisstjórn Bretlands ber ábyrgð
á vörnum eyjanna og alþjóðlegum samskiptum.
Þjóðverjar hernámu eyjarnarog
á frelsisdaginn 9. maí 1945 þegar
hernáminu lauk var efnahagur,
stjórnsýsla og félagsmál í rúst og
reyndar flest annað.
Það sem kannski er það merki-
legasta við hina miklu uppbygg-
ingu á eyjunum er að þar hefur
ekki verið að finna neitt sem hægt
er að flytja út. Engir stórir skógar,
engar olíuiindir, engin kol, enginn
jarðhiti, engir dýrmætir málmar
eða steinar, enginn þungaiðnaður
og ekki verulegur veiðifloti.
Kostir eyjanna er landfræðileg
staðsetning þeirra, þægilegt veð-
urfar, einfaldar og sanngjarnar
skattareglur, engin fiokkapóiitík
og þar af leiðandi engar snöggar
breytingar. Eyjarnar hafa sér-
stæða sögu og frönsk menning
kemur þar inn í myndina, síðast en
ekki síst er mikil náttúrufegurð á
eyjunum. Allt þetta hefur hjálpað
til við uppbygginguna og hagvöxt-
ur hefur undanfarið verið 10% á
ári, fer þó aðeins lækkandi. Fjár-
málastarfsemi er mikil og bankar
blómstra, ferðamannaiðnaður er
einnig með blóma ásamt gróður-
húsarækt og má segja að þetta
þrennt séu aðalatvinnuvegir eyj-
anna. Til þess aö þeir gangi vel
þarf fólk og það fólk þarf ýmiss
konar þjónustu, og þar í liggur
mesta vandamál eyjanna.
Ibúafjöldi eyjanna vex stöðugt
og á eyjunni Jersey hefur fólki
fjölgað um 2.300 frá árinu 1986 og
á eyjunni Guernsey um 4.000. Yf-
irvöíd eru því farin að hafa áhyggj-
ur af umhverfismálum því næg at-
vinna er á eyjunum og það þykir
fýsilegur kostur að komast í vinnu
á eyjunum og er eftirsótt af ungu
fólki víðsvegar að á Bretlandi.
Samanlagður íbúafjöldi á eyjun-
um er 150.000. Þar af eru 82 þús.
á Jersey sem er 45 ferkílómetrar
að flatarmáli. 60.000 íbúar eru á
Guernsey, sem er 24 ferkílómetr-
ar, 2.000 íbúar á Alderney sem er
níu ferkílómetrar og 600 íbúar á
smáeyjunni Sark. Margir íbúar
Jersey og Guernsey eru taldir búa
við lífskjör sem eru með þeim
bestu í heiminum.
Þar eru engar
náttúrulegar auö-
lindir og þœr
uröu illa úti í
heimsstyrjöldinni
síöari. Þrátt fyrir
þetta hefur eyja-
skeggjum tekist
ótrúlega vel aö
bæta ástandiö.
Vegna hins milda loftslags er gróðurhúsarækt stór póstur i efnahagslífinu. Á myndinni er ung stúlka aö klippa fresíur.
SJÓNVARP
Stöð 2 kl. 20.30
MURPHY BR0WN
Bandarísk þáttaröð um fréttakon-
una Murphy Brown sem lætur sér
ekki allt fyrir brjósti brenna eins og
sagt er. Murphy þessi er leikin af
kanadísku leikkonunni Candice
Bergen sem er ekki ósnotur kven-
persóna, hún þykir sýna nokkuð
skörulega framgöngu í þessu hlut-
verki. Samt er á henni eitthvert
karlabras, hún verður ófrísk í fram-
tíðinni, þ.e. Murphy, en þangað til
gengur víst allt þokkalega.
Sjónvarpiö kl. 20.40
ÁTALI
HJÁ HEMMA GUNN
íslenskur skemmtiþáttur þar sem
stjórnandinn fær til liðs við sig ýmsa
gesti og gangandi til að hafa það
skemmtilegt. í þessum þætti verða
gestir hans m.a. Strengjatríó New
York (New York Stringtrio), djassar-
ar sem hér eru í heimsókn, Eiríkur
Hauksson rokksöngvari, hljóm-
sveitin Sálin hans Jóns míns. Falin
myndavél verður notuð til að gera
grín að fólki, sýndar myndir úr bros-
keppni auk annarra liða og atriða
sem bryddað verður upp á.
Sjónvarpið kl. 21. 45
ÁHJARA
VERALDAR **
íslensk bíómynd, gerd 1983, leik-
stjóri Kristín Jóhannesdóttir, aöal-
hlutuerk Þóra Friöriksdóttir, Arnar
Jónsson, Helga Jónsdóttir.
Fyrsta og eina kvikmynd Kristínar
til þessa. Myndin var gerð á íslenska
kvikmyndavorinu en fékk dræma
aðsókn og frekar slaka dóma. í
henni eru þó margar af bestu senum
íslenskrar kvikmyndagerðar en um
leið mörg þeirra verstu og einhvern
veginn virtist sem landinn kynni
ekki að meta marga torræða tilvís-
anina sem Kristín bauð upp á í þess-
ari mynd. Annars segir sagan af
systkinum, uppkomnum og mið-
aldra móður þeirra. Þau búa í nú-
tíma Reykjavík og margs konar and-
streymi gerir þeim lífið leitt með
köflum. Myndin er margræð og
varla hefðbundin að uppbyggingu
og kannski var þetta of djörf tilraun
til alvöru listsköpunar, kannski var
þetta einfaldlega léleg mynd þar
sem aðstandendur réðu ekki við
það sem þeir ætluðu sér. Um þetta
eru skiptar skoðanir. Kristín hefur
síðan leikstýrt tveimur sjónvarps-
leikritum sem ekki hafa vakið
minna umtal en myndin er óhætt að
segja, í fyrsta lagi Líf til einhvers eft-
ir Nínu Björk sem þótti klúrt og
klámfengið, í öðru lagi Glerbrot sem
mörgum þótti ótrúlega misheppn-
að.
Stöð 2 kl. 23.35
LÖGÐ í EINELTI ★ ★1/2
(Someone's Watching Me)
Bandarísk sjónuarpsmynd, gerö
1978, leikstjóri John Carpenter, aö-
alhlutuerk Laureen Hutton, Dauid
Birney, Adrianne Barbeau.
Segir af stúlku á framabraut sem
ákveður að taka lögin í sínar hendur
þegar lögreglan neitar henni um að-
stoð vegna þess að einhver leggur
hana í einelti. Þetta er nokkuð svo
þéttur þriller, leikstjórinn John Car-
penter er þekktur fyrir hryllings-
myndir aðallega en ferst nokkuð vel
úr hendi að byggja upp spennu í
þessari mynd sem verður að teljast
ofar meðallagi.
0 $7002
17.00 Frœösluvarp 1. Bakþankar 2. Frönsku- kennsla fyrir byrjend- ur. 15.30 Eins manns leit Hands of a Stranger 17.05 Santa Barbara 17.50 Klementína Teiknimynd
1800 18.00 Töfraglugginn 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Yngismœr (29) Brasilískur framhalds- myndaflokkur 18.20 Sagnabrunnur Myndskreytt ævintýri fyrir yngstu áhorfend- urna. 18.35 í sviösljósinu
1900 19.25 Poppkorn 19.50 Tommi og Jenni 20.00 Fréttir og veður 20.40 Á tali hja Hemma Gunn 21.45 Á hjara veraldar íslensk bíómynd frá árinu 1983. Leikstjóri Kristin Jóhannesdótt- ir. Myndin lýsir lifi miðaldra konu og tveggja uppkominna barna hennar. Fjöl- skyldan býr í Reykja- vík samtímans og á við margs konar and- streymi að etja í til- verunni. 19.19 19.19 20.30 Murphy Brown Framhaldsmynda- flokkur um kvenskör- unginn Murphy Brown. 21.00 Framtíöarsýn Beyond 2000 Athygl- isveröur fræöslu- myndaflokkur sem notið hefur mikilla vinsælda þar sem hann hefur veriö sýndur. 21.50 Ögnir um óttu- bil Midnight Caller Spennumyndaflokkur um ungan útvarps- mann sem leysir glæpamál á óvenju- legan máta. 22.40 Kvikan Páttur um viöskipta- og efnahagsmál.
2300 23.00 Ellefufréttir 23.15 Á hjara veraldar — framhald 23.45 Dagskrárlok 23.10 í Ijósaskiptun- um Twilight Zone Yf- 23.35 Lögö i einelti Someone's Watching Me. Aöalhlutverk: Lauren Hutton, David Birney og Adrienne Barbeau. Leikstjóri: John Carpenter. 01.10 Dagskrárlok