Alþýðublaðið - 15.11.1989, Page 6
6
Miðvikudagur 15.nóv. 1989
ATHUGASEMD
Friðrik Sóphusson, alþingismad-
ur, hafði samband við Alþýðublaðiö
og vildi koma á framfæri leiðrétt-
ingu vegna ummæla sem eftir hon-
um voru höfð í blaðinu í gær, 13.
nóvember, þar sem hann tók þátt í
pallborðsumræðum á fundi á veg-
um Sjávarútvegsstofnunar Háskóla
íslands í Norræna húsinu.
í Alþýðublaðinu var haft eftir
Friðrik að „ . . . nauðsynlegt (væri
að) opna fyrir frjálsari gengisskrán-
ingu og leyfa erlendum aðilum að
kaupa kvóta úr fiskistofnum okkar."
Friðrik segir þetta alrangt eftir sér
haft. Þetta sé ekki hans skoðun. Sala
á kvóta til erlendra aðila sé alls ekki
markmið til að stefna að. Þarna hafi
hann aðeins verið að tala um frjálst
framsal á kvóta innanlands. Varð-
andi sölu á kvóta til erlendra aðila
sagðist hann aðeins hafa verið að
taka undir þau orð Rögnvaldar
Hannessonar að álagður auðlinda-
skattur gæti komið sér vel ef íslend-
ingar vildu eða þyrftu að versla með
kvóta við erlenda aðila. T.d. í tengsl-
um við samninga við Evrópubanda-
iagið. Ef svo færi að við þyrftum að
semja um að láta EB hafa kvóta í ís-
lenskri lögsögu kæmi sér betur að
Islendingar gætu innheimt af hon-
um auðlindaskatt.
Alþyðuflokkurinn í Reykjaneskjördæmi tilkynnir:
■ ■
KJORDÆMISÞING
Alþýöuflokksins í Reykjaneskjördæmi veröur haldið í
Alþýöuhúsinu í Hafnarfirði sunnudaginn 19. nóvem-
ber næstkomandi og hefst klukkan 14.00.
Dagskrá:
1. Stjórnmálaviöhorfiö, framsögumenn Karl Steinar
Guðnason og Guömundur Oddsson, alþingis-
menn Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi.
2. Atvinnumál, framsögumaöur Jón Sigurösson iön-
aðarráðherra.
3. Komandi sveitarstjórnakosninqar, framsöqu-
Karl
Jón
Guðfinnur
menn Guðfinnur Sigurvinsson bæjarstjóri í Kefla- I vík og Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri í ;
Hafnarfirði. ^ L í
f 'T* 4. Önnur mál. M. v 7]
Alþýðuflokksfólk velkomið á þingið.
Stjórn Kjördæmisráðs Alþýðuflokksins
Guömundur
í Reykjaneskjördæmi
Guömundur
SMÁFRÉTTIR
Stórgjöf til
styrktarfélags
vangefinna
Þann 19. október sl. tók
Styrktarfélag vangefinna form-
lega við arfi eftir hjónin Jóhönnu
Guðmundsdóttur, f. 16. janúar
1897, að Þjóðólfshaga í Holtum,
d. 24. nóvember 1970 og Guðjón
Pétursson, f. 20. september
1902, á Stóru-Vatnsleysu á
Vatnsleysuströnd, d. 20. júlí
1989.
Þau áttu enga skylduerfingja
og höfðu með arfleiðsluskrá, er
gerð var árið 1970, ákveðið að
allar eigur þeirra gengju til
Styrktarfélags vangefinna, er
notaði þær eða andvirði þeirra í
þágu starfsemi sinnar eins og
segir í arfleiðsluskránni. Meðal
þess sem féll í hlut félagsins er
einbýlishús að Þykkvabæ 1 í
Reykjavík auk tæplega 800 þús.
kr. í bankabókum.
í kaffisamsæti sem Styrktarfé-
lagið hélt nokkrum nánum vin-
um og ættingjum hjónanna af
þessu tilefni lofaði Magnús
Kristinsson formaður þess höfð-
ingsskap þessara heiðurshjóna
og kvað gjöfina mikla lyftistöng
fyrir félagið.
Kýrkjöt selt
sem nauta-
kjöt?
„Enn á ný hefur komið fram í
fjölmiðlum að nautakjöt er selt í
verslunum án þess að fram komi
gæðaflokkun þess," segir í frétt
frá Neytendasamtökunum. „Því
er jafnframt haldið fram að kjöt
af mjólkurkúm sé selt í verslun-
um sem ungnautakjöt. Stjórn
Neytendasamtakanna gerir þá
kröfu að settar verði reglur um
upplýsingar til neytenda hvað
þetta varðar, þannig að neytand-
inn viti ávallt hvaða vöru hann er
að kaupa. Jafnframt að settar
verði ítarlegri reglur um upplýs-
ingar á öðrum kjötvörum, t.d.
um fitumagn í kjöthakki og fitu-
og vatnsinnihald í unnum kjöt-
vörum."
RAÐAUGLÝSINGAR
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgarf.h. Rafmagns-
veitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í stálmöstur
og stagteina úr stáli fyrir 132 kV háspennulínu frá
Hamranesi að Hnoðraholti.
Heildarþyngd stáls er um 135 tonn.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn
21. desember 1989, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800
> BIB %
't-
c
Z
B0ÐTÆKI FYRIR
ALMENNA B0ÐKERFIÐ
Innkaupastofnun ríkisins fyrir hönd Ríkisspítala
óskar eftir tilboðum í boðtæki fyrir almenna boð-
kerfi Póst- og símamálastofnunarinnar, sem starf-
rækt er á tíðninni 46,975 MHz.
Boðtækin skulu vera í samræmi við ákvæði reglu-
gerðar, sem P&S hefur sett um boðtæki og seljandi
skal ábyrgjast að boðtækin hafi hlotið eða muni
hljóta viðurkenningu P&S.
Gerð: Talnaboðtæki
Magn: 60 stk.
Útboðsgögn afhendast á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudag 28. nóv-
ember 1989 kl. 11.00.
Alþýðuflokksfólk á Akureyri
Fundur, laugardaginn 18. nóv. kl. 13.00.
Fundarstaður: Alþýðuhúsið Akureyri 5. hæð (Fiðlar-
inn).
Fundarefni: Sveitarstjórnakosningar og undirbún-
ingur þeirra.
Nánari dagskrá auglýst síðar.
Allir velkomnir!
Alþýðuflokkurinn
Kratakaffi
í kvöld kl. 20.30 í félags-
miðstöðinni, Hverfisgötu
8—10l
Gestur fundarins verður
Jón Sæmundur Sigur-
jónsson alþm., sem ræðir
um lífeyrissjóðsmál.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Utanríkismálanefnd S.U.J.
Að venju verður haldinn fundur hjá nefndinni nk.
laugardag kl. 10.00 að Hverfisgötu 8—10.
Margt og mikið liggur fyrir fundinum.
Flestir íslendingar velkomnir.
Mætið stundvíslega.
Il\iI\1 KAUPASTOFIMUl\I RÍKISiNS
FfQRCAHTUfJl 105 HEVKJAVIK __
Magnús Árni Magnusson
form. utanríkismálanefndar S.U.J.
Alþýðuflokkurinn hlustar
Stefnuskrármál
Málstofa um stefnuskrármál, fimmtudaginn 16.
nóv. 20.30 í félagsmiðstöðinni að Hverfisgötu
8—10.
Á þessum fundi verður rætt um stefnuskrármál.
1. Hver er staða Alþýðu-
flokksins í litrófi ís-
lenzkra stjórnmála?
2. Hvernig ber að setja
fram í stefnuskrá hug-
myndafræði jafnaðar-
stefnunnar?
3. Hvernig verður hug-
myndafræði komið í
framkvæmd?
Hópstjóri Gísli Ágúst Gunnlaugsson.
Alþýðuflokkurinn
Alþýðuflokkurinn hlustar
Umhverfis- mengunar- og félagsmál
Málstofa um umhverfis- mengunar- og félagsmál
fimmtudaginn 16. nóvember kl. 20.30 í sal Alþýðu-
flokksins, Hraunborg 14A, Kópavogi. Á þessum
fundi verður rætt um umhverfismál.
1. Hvers er að vænta af umhverfismálaráðu-
neyti?
2. Hvaða áhrif hefur það,
að landgræðsla og
skógræktarmál, heyri
áfram undir landbún-
aðarráðuneytið?
3. Hver eru brýnustu
verkefnin í mengunar-
vörnum?
Hópstjóri: Lára V. Júlíusdóttir.
Alþýðuflokkurinn