Tíminn - 31.03.1968, Qupperneq 3
SUNNTJDAGUR 31. marz 1968,
TÍMINN
15
Hagnýtar upplýs-
ingar fyrir ökumenn
lututnuuimii
AKSTUR OG ÖKUTÆKI
Kynnið ykkur öku-
bæklingana, sem send
ir hafa verið til allra
bíleigenda
Það er full ástæða til þess
að hvetja bíleigendur til að
kynna sér bæklingana „Leið
beimingar um akstur í hálku“
og „Aikstur í myrkri“, sem fyrr
í vetur voru sendir til hvers
einasta skráðs bíleigamda, sam
kvœmt skrám tryggingafélag-
anna. Munu bæklingarnir
þannig hafa verið sendir til
"Wis um 43 þúsuind bíleigenda.
Nií eru það margir sem ekki
eru bíleigendur en hafa öku-
skírteini og aka meira og
minna. Þessum ökumönnum
skal bent á að hinum nýstofn-
uðu umferðaröryggisnefnd-
um utan höf u ðborg arsvæðis ins
hefur verið sent upplag af
bæklingum, og geta þeir öku-
menn sem ekki eiga bíla, feng
ið eintök af bæklingnum þar.
Það má kamnski segja að
sé hlálegt að senda sumum
bílstjórum bæklinga sem þessa
eins og t.d. mjólkurbílstjórum
sem þurfa að berjast áfram í
ófærð og slœmu veðrú,
hvað sem tautar og raular, og
hver hefur sína aðferð við að
komast áfram, ef svo mætti
segja. Það er meira að segja
ekki sama hvar á landinu er
ekið, hvort menn telja heppi-
legra að hafa stóra bíla á „ein
földum“ eða „tvöföldum“ að
aftan. Þar gildir ekki sama
reglan norðanlands og sunn-
an.
En fyrir hinn almenna bíl-
eiganda, eru þessir bæklingar
mjög gagnlegir. Hér á höfuð-
borgarsvæðinu hefur sjaldan
eða aldrei verið verri vetrar-
færð, og margir eru þeir öku-
menn sem ekki hafa gert við
eigandi ráðstafanir vegna
hinnar slæmu færðar. Ef þess-
ir bilstjórar hefðu kynmt sér
efni bæklingsins „Leiðbein-
ingar um akstur í hiálku“,
hefðu þeir áreiðanlega komizt
auðveldar leiðar sinnar.
f sambandi við bæklinginm
„Akstur í myrkri“ er rétt að
benda ökumönnum á, að nauð
synlegt er að þeir meti rétt
vegalengdina sem er á milli
bíla þegar þeir mætast. í bækl
ingnum er bemt á, að þegar
bálar mætast með ljósum, skuli
hækka ljósin aftur, þegar um
tíu metrar eru á milli bifreið-
anna. Það er þessi vegalengd
sem menn þurfa að meta rétt
og gæta þess vel, að hækka
ekki ljósin þegar t.d. 20—30
metrar eru á milli.
★
Hreinsið þurrkublöðin
með steinolíu
Skemmdir i framrúðum bíla
koma einma bezt í ljós þegar
bílar mætast með ljós. Oft eru
það þurrkublöðin sem valda
skemmdunum á framrúðun-
um. Þar sem eru malbikaðar
götur vilja setjast asfaltkúlur á
þurrkublöðin, og af því tilefni
hefur Haraldur Ásgeirsson
verkfræðingur bent á, að gott
sé að strjúka þurrkublöðin
með klút sem vættur hefur ver
ið í steinolíu, triclor vökva,
eða vökvum sem gera sama
gagn. Það er ágæt hugmynd,
sem Haraldur kom með, að
aðstaða yrði sköpuð á benzin-
stöðvum til að strjúka asfalt
kúlurnar af þurrkublöðunum.
¥
Akreinaakstur
í 22. grein reglugerðar um
umferðarmerki og notkun
þeirra eru þessar setningar:
„Ef akreinalina skiptir ak-
braut í tvær akreinar skal að
jafnaði ekið vinstra megin við
Hnuna“.
Þessa setningu ættu öku-
menn að hafa í huga þegar
þeir til dæmis aka eftir Hring-
braut og Miklubraut í Reykja
vík, en allt of algengt er að
sjá menn aka hægra megin
við línuna, þótt vinstri akrein
in sé auð. Sérstaklega ættu öku
menn stærri ökutækja að hafa
þetta í huga.
★
Varúð á vetri
heitir bæklingur sem umferð-
arslysavarnasamtökin „Varúð á
vegum“ hafa gefið út. Eins
og nafnið bendir til, þá er í
bæklingi þessum fjallað um
vetrarakstur, og er hægt að fá
bæklinginn á skrifstofu Varúð
ar á vegum í Slysavamafélags-
húsinu.
Kári Jónasson.
Stöðvunarvegalengdir
í 1.—2. tölúblaði Ökumanns
in$, fræðslublaði fyrir bifreiða
stjóra, sem Umferðartiefnd
Reykjavíkur gefur út, eru á-
gætar myndir sem gefa til
kyinna stöðvunarvegalengd-
ir við mismunandi hraða á
þurrum mal'arvegi, og er mið-
að við að viðbragðstíminn sé
0,9 s«k., en það er tal-
inn vera meðalviðbragðstími
ökumanns. Ökumanninm er
hægt að fá hjá Umferðarnefnd
Reykjavíkur og hjiá umferðar-
deild lögreglunnar í Reykja-
ví'k, en annars er blaðið semt
til atvinnúbifreiðastjóra í
Reykjaví'k.
■
STöÐVUf'4AP.VEGALEf'4GD!N
VithreqZi
<■ '"
H«rr,itínot
■
UM
- t' '>* ;
fMtpé ví? vi&iA-iíq&fmti M mk. :
t>$ &Mvr jtvt-rfm : ,■
> v'/Á ' - ' íi'
....■*
'vv , ' x'iíi' ' ' ywx-íN-SrH > <
Vegna flutnings
verða skrifstofur bæjarfógetans í Hafnarfirði og sýslumannsins
í Gullbringu- og Kjósarsýslu lokaðar mánudaginn 1. apríl n.k.
Frá og með þriðjudegi 2. apríl verða skrifstofurnar í húsinu
nr. 31 við Strandgötu, Hafnarfirði, 2. og 3. hæð (inngangur
frá Gunnarssundi).
SÝslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
i