Tíminn - 31.03.1968, Page 5
SUNNUDAGUR 31. marz 1968.
TÍMINN
Helga Valtýsdóttir
leikkona
Kveðja frá Félagi íslenzkra leik-
ara.
Það er óefað margir, sem sakna
Helgu Valtýsdóttur af heilum hug.
Ekki einvörðungu ættingjar henn
ar, starfsfélagar og vinir, heldur
og allir þeir fjölmörgu aðdáend-
ur hennar, sem kynntust henni af
fjölunum og gegnum útvarp. En
sem leikkona og upplesari og þá
ekki sízt fyrir barnatíma sína, var
.Helga fádæma vinsæl.
Leikkonan Helga Valtýsdótt-
ir var frábærum hæfileikum gædd.
Aldrei brást það, að henn: tókst
að blása leitopersónum sínum sér-
stæðu lífi í brjóst. Persónur þær,
sem hún skapaði voru allar raun-
verulegar, og finnst manini, að
þær lifi ennþá, þótt langt sé um
liðið, að hún lék sumar þeirra, og
svo ólíkar voru þær hver annari,
að næsta ótrúlegt er, að sama leik
konan hafi verið þar að verki.
Helgu var það líka Ijóst, að til1
þess að ná góðum árangr-' á leik-
sviði, varð að vinna og það gerði
hún. Starfsfélagar hennar minn-
ast þess ekki ósjaldan, hvílíka al-
úð og vandvirkni hún lagði í starf
sitt, enda varð árangurinn eftir
því. Hennar verður minnzt af
þeim, sem og öðrum aðdáendum
hennar, sem þeirrar leikkonu frá
síðari árum, er fjölhæfust var og
hafði fæ«rt leMistinni marga sigra
og var þess albúin að vinna þá
fleiri. — Þeim mun meiri er
söknuður okkar nú.
En Helga Valtýsdóttir hafði
lika fleira til að bera, en að vera
afburða leikkona og vinsæl með-
al aðdáenda sinna. Hún hafði per
sónuleika, sem engum gleymist, er
hefur haft nánari kyn-ni af. Helga
var ekki framhleypin, hún var lít-
illát, hlédræg og allt að því feim-
in í einkalífi. Á hinn bóginn geisl
aði frá henni svo mikil hlýja og
mannkærieikur, viljaþrek og
kjarkur, að; öllum, sem í návist
hennar voru duldist ekki, að þar
ibjó að baki mikil persóna. Ekki
lét hún heldur hinn hræðilega
sjúkdóm sinn hafa áhrif á starfs-
þrek sitt og framkomu, og aldrei
gaf húm neinum færi á að særa
stolt sitt með meðaumkun. Hún
var stolt, fögur, blíðlynd og
hjartahrein, enda var henmi gott
til vina. Þau sterku andlegu bönd,
sem hún tengdist sumum af vin-
um sínum, að ógleymdu því fagra
samibandi, er hún hafði við syst-
ur sína, Huldu, vakti aðdáun allra.
— Mörgum mun þykja þeir hafi
misst meira en vin og starfsfé-
laga.
Helga er tekin snemma frá okk-
ur og það syrgjum við öll heils-
hugar, en samt er arfur sá, sem
hún lætur starfsfélögum sínum
eftir svo mikill, að skylt er að
geta hans. — Auk þeirra stór-
brotnu persóna, sem hún skapaði
á leiksviði, hefur hún sýnt okkur,
að starf okkar verður bezt unnið
og me'stum árangri náð með ein-
lægni, án hroka, með. gleði, án
öfundar með elju, án sérhlífni.
Hún kenndi okkur, að við megum
aidrei þreytast á eða gefast upp
við að finna hina réttu leið. Og
í lífinu sýndi hún okkur, að hrein
lund, skilningur, hjálpfýsi og öfga
laus framganga eru okkar beztu
vinir.
Við þökkum öll I-Ielgu vinátt-
uma og samstarfið þann tíma, sem
hún dvaldi með okkur. — Og ást-
vinum hennar færum við hjartan-
legustu samúð'arkveðjur.
Gísli Alfreðsson. I
17
t
Helga Valtýsdóttir er látin.
Með henni hefur íslenzkt leikhús misst sína ágætustu leik-
konu og íslenzka þjóðin eina sína mikilhæfustu konu. Og við
sem þekktum hana, traustasta og bezta vininn. Það er mikill
missir.
Eg var svo lánsamur að starfa mikið með Helgu Valtýsdóttur.
Ég sóttist eftir að fá að njóta starfskrafta hennar í þeim
leiksýningum, sem ég var ábyrgur fyrir, ekki aðeins vegna
hennar miklu hæfileika, gáfna, dugnaðar og bþrjótandi lífs-
orku, heldur einnig vegna hennar einstöku nærveru og sam-
starfsvilja. Hún var einstök. Og það breyttist ekki frá þvi
fyrsta til þess síðasta.
Vegir forsjónarinnar eru órannsakanlegir. Við stöndum högg-
dofa gagnvart ákvörðunum hennar, en aldrei eins og þegar
við erum svift skærustu og fegurstu logum lífsins.
Ég sendi aðstandendum hennar mína dýpstu samúð.
BALDVIN HALLDÓRSSON.
f
Elsku Helga mín, því er þetta
bréf skrifað nú, að það var áður
annað bréf og annars efnis, en
það náði ekki til þín í tæka tíð. í
barnaskap mínum hélt ég, að við
hefðum öll nægan tíma. Því skrif
aði ég þér, að ég kæmi heim í
páskafrí og mundi þá heimsækja
þig. Ég vissi ekki þá, að þér gafst
ekki dagur meir. Því mun leið
mín á páskamorgun liggja á ann
an stað, en ég ætlaði þá.
Hvaða orð getur ung telpa sagt
þeim til huggunar, er mest hafa
misst nú. Ég kann að minnsta
kosti ekki þau orð, elsku Ileiga, og
mér er ljós fátækt min í því að
bæta úr eða hugga aðra þessa
stundina.
Ég ko.m sem gestur til ykkar í
Þjóðleikhúsið og dvaldi um stund
arsakir í þeim heimi, sem var ykk
ar. Óþekkur krakki og sjálfsagt
ekki alltaf þægileg. En þið tókuð
mér svo einstaklega vel og kennd
uð mér svo miargt um það, sem
mig langaði að vita. Þú, Helga mín
og Valur, mamman min og pabb
inn minn í leik, sem ég átti stund
um erfitt með að hemja við á-
kveðinn ramma. Þið tvö, sem ég
elskaði umfram aðra — og nú ert
þú farin og allt sem ég vildi hafa
sagt þér, verður nú ósagt.
Ég sendi með blænum síðustu
kveðju og hjartans þakkarorð mín
og bið hann að bera þau að kist-
unni þinni. Vertu blessuð góða,
stóra og sterka mamman mín.
Skógaskóia, Austur-Eyjafjallasv.,
Gunnvör Braga lijörnsdóttir.
Bændur athugið!
Erum að hefja smíði á aftanívögnum fyrir tra'ktora
og jeppa, mismunandi stóra með tilheyrandi
skjólborðum. Vagnarnir eru smíðaðir úr venju-
légum bílgrindum með tilheyrandi fjaðra- og
hjólaútbúnaði. Ef þér hefðuð áhuga á að kynna
yður útlit, frágang og verð á þessum vögnum,
sendið okkur þá nafn og heimilisfang og við
munum senda yður til haka teikningar og verð-
tilboð, miðað við stærð. Tilboð sendist Tímanum
fyrir 7. apríl.
LÍSTSÝNING
Verðlaunapeysurnar, ásamt
nokkrum öðrum fallegum
flíkum, verða í sýningar-
glugga okkar í Þingholts-
stræti tvær næstu vikurn-
ar.
Álafoss.
SÚGÞURRKUN
Eins og undanfarin ár smfðar LANDSSMIÐJAN súgþurrk-
unarblásara fyrir bændur. Blásararnir hafa hlotið einróma lof
þeirra bænda, sem þá hafa fengið, fyrir gæði og endingu. —
Einkum hafa blásararnir fengið lof fyrir hve miklu loftmagni
þeir blása, miðað við aflið sem hefur snúið þeim.
Um þrjár stærðir blásara er að ræða, H-ll, H-12 og H-22. —
Ennfremur afgreiðir LANDSSMIÐJAN dieselvélar og raf-
mótora af ýmsum stærðum til þeirra, er þess óska.
Vinsamlegast sendið oss pantanir yðar sem fyrst, svo að tryggt
verði, að afgreiðsla geti farið fram tímanlega fyrir slátt.
LANDSSMIÐJAN
Rétt samsettur morgunverður, ræður miklu um
dagsverkið!
Osttir er stór hluti af rétt samsettum morgunverði. Því ostur inni-'
heldur ríkulegt magn af prótein. Og prótein er nauðsynlegt vexti og
dugnaði barnanna og starfsvilja fullorðna fólksins. Setjið því ost á
borðið, hann er þcegilegur að framreiða .. .j. og bragðast vel!!!
ÖSIM