Tíminn - 09.04.1968, Blaðsíða 8
ÞINGFRÉTTIR
ÞINGFRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 9. aprfl 1968.
iííSSiífcí
STJORNARUÐIÐ FELLDIAÐ LEYFISGJOLDIN
RENNI TIL VEGAGERÐAR Á NÆSTA ÁRI
Frumvarpið um. álögur á um-
ferðma án nokkurra hraSbrauta-
fraimkvæmda á þessu ári var af-
greitt frá neðri deild á laugar-
ctag og tekið til 1, umræðu í efri
deild. Breytingatiilögur stjórnar-
andstöðpnnar voru felldar. Minmi-
'Mutimn hafði lagt til, áð leyfis-
gjöld af bifreiðum rynnu til vega-
sjóðs frá og með 1. j anúar 1®69
en að ríkisstjómimni yrði veitt
heimild til lámtöku allt að 109
milljónum kr. til greiðslu á kostn
aði vegasjóðs af vegaframkvæmd-
um 11967 og 1968, sem frumvarp-
ið gerir ráð fyrir að innheimtar
verði hjá bifreiðaeigendum á
iþessu ári. Einnig var felld tillaga
til rökstuddrar dagskrár frá Sigur
vini Einarssyni og Gísla Guð-
mund&syni þar sem sagði, að þar
sem það væri æskilegt að vega-
m'álastjórnin léti svo fljótt sem
unnt væri gera ááetlun um fulln-
aðarupp'byggLngu þjóðvegakerfis-
ins samkvæmt vegalögum á allt
að 10 árum og fjáröfluin til henn-
ar teldi deildin ekki tímabært í
þv’í árferði, sem nú væri, að sam-
Iþykkja hækkun umferðarskatta að
svo stöddu og tæki fyrir næ^ta
'mál á dagskrá.
Sigurvin Einarsson mælti fyrir
áliti minniihlutamis en að því stóðu
með honum í samgöngumálanefnd
þeir Steingrímur Fálsson og
Björn Pálsson. Auk Sigurvins töl-
uðu við umræðuna þeir Björn
Pálsson, Stefán Valgeirsson og
Hannibal Valdimarsson auk sam-
göngumálaráöherra. í efri deild í
gær talaði m.a. Einar Ágústsson
og bemti þá meðal annars ráð-
herranum á, að ekki væri einhlítt
hjá honum að benda einungis a
það, að með þessari hækkun
benzínskatts yrði benzínverð hér-
lendis aðeins sambærilegt við það
sem gerist í nágrannalöndum. Þár
kæmi fleirá til, sem áhrif hefði á
það, hve dýrt væri að eiga og
reka bíl. Það væri reksturskostn-
aðurinn í heild, sem úrslitum réði
ekki einstakir þættir hans eim-
vörðungu. Hérlendis væru bifreið-
ar meira en þrisvar sinnum dýr-
ari en í Damnörku t.d. og við-
haldskostnaður væri hér ofboðs-
legur og ekki sambærilegur við
önnur lönd.
Hér fer á eftir hluti af nefnd-
aráliti minnihlutans í neðri dei'.d
er Sigurvin Einarsson mælti fyr-
/ír ásamt köflum úr umsögn Lands
sambands bifreiðastjóra, er því
fylgdi.
Á Alþingi 1963 tókust samn-
ingar milli ríkisstjórnarinnar og
stjórnarandstöðuflokkamna um ný
vegalög. í hinum nýju lögum vovu
m.a. þau ákvæði, að veita skyldi
árlega úr ríkissjóði sérstakt frain.
lag á fjárlögum til vegamála. í
samræmi við þetta ákvæði lag-
anrna var framlag ríkissjóðs til
vegamála á fjárlögum fyrir árið
1964 47.1 millj. kr. Við umræður
á Alþingi þá lýsti samgöngumála-
ráðherra því yfix, að ekki kæmi
til mála, að framlag þetta yrði
lækkað á næstu árum, heldur
muindi það fara hækkandL Á fjár-
lögum fyrir árið 1965 er svo þetta
framlag ríkissjóðs óbreytt. En svo
gerist það, að í fjárlögum ársins
1966 er ríkisframlagið fellt niður
og hefur ebki sézt í fjárlö^um
síð'an, þrátt fyrir samkomulag
flokkanna 1963 og yfirlýsingar
ráðherra á Alþingi og þrátt fyrir
skýjaus fyrirmæli vegalaga. Með
þessu var að engu gert ákvæði
vegáætlunar, sem Alþingi hafði
samþykkt til 4 ára, 1965—1968
um 47 millj. kr. ríkisframlag til
vegamála hvert ár.
í kjölfar þessara vanefndu sam-
þykktu stjórnarflokkarnir á Al-
þingi í árslok 1965 nýja hækkum
umferðarskattanina. Með stjórnar
frv. því, sem nú er lagt fram, er
svo ráðgerð þriðja hækkunin á
þessum sömu sköttum á rúmum
4 árum. Þó er í fullu gildi enn
89. gr. vegalaganina, sem fyrirskip
ar framlag á fjárlögum úr ríkis-
sjóði til vegamála.
Hinar nýju skattaálögur ríkis-
stjórnarinm’ar samkv. þessu frv.
eru áætlaðar 109 millj. kr. á yfir-
standandi ári, en um 180—190
millj. kr. á mæsta ári. Virðist
ekkert á skorta, að verðbólgu-
stefnan geti haldið sitt strik, því
hækka vöruverð og framfærslu-
kostnað manna. Stjórnarformaður
V öruiflutm ingaimi ðstöð variinm ar
skýrir svo frá í blaðagrein í gær,
að ný'búið sé að hækka flutnings-
gjöld með vöru'bifreiðum um 15%
vegna gengisilækkunar og nú
þurfi að hækka þau aftur
um 10% vegna þessara nýju
skatta. Hann bendir jafnfraimt á,
að nú séu flutt um 140 þús. tonn
af vörum með bifreiðum út um
land á sama tíma og Skipaútgerð
ríkisins flytji aðeins 40 þús. tonm.
Af þessum ummælum hans má
ráða, að fólkið úti á iandsbyggð-
inni fær að bera sinm hlut af hin-
'Um nýju skattaálögum.
•að sjálfsögðu koma þessar skatta- Samkvæmt þessu frv. verða
álögur fram í hækkuðum flutnings skattahækkanir á bifreiðum frá
gjölduim og fargjöldum, er síðam 11968 orðnar sem hér segir:
1958 Skv.frv. Hækkun
Benzínskattur pr. 1. 1.13 4.67 313%
Gúmmígjalld pr. kg. 6.00 36.00 500%
Þungaskattur, annarra en benzín
bifreiða:
2000 kg eigin þymgd 2 700.00 14 500.00 437%
4000 kg eigin þyngd 5 400.00 24.500.00 354%
6000 kg eigin þyngd 8 100.00 34.500.00 326%
8000 kg eigin þyngd • ■ 10 800.00 44 500.00 312%
Af þessum upplýsingum má sjá ins sé í fullkommu ófremdavá-
að það verður ekki auðvelt fyrir standi, og hljóta menn að ve’-a
ýmsa einstaklinga að eignast bif- sammála um, að undirbúningur að
reið til einkanotkunar eftir þess-, byggingu varanlegj þjóðvegake>-f-
ar skattahækkanir. Er sýnilegt, að is og framkvæmdir í þeim efmum
rekstrarkostnaður venjulegrar megi ekki bíða öllu lengur. Hitt
fólksbifreiðar hækkar um mörg, er jafnaugljóst, að bygging varar.
þúsumd krónur á ári, og er því legs þjóðvegakerfis er slík risa
vafasamt, að ýmsir þeirra, sem nú framkvæmd, að hún er með
eiga þessi nauðsynlegu farartæki, stærstu verklegum viðfangsefnum
geti átt þau áfram
Með þeirri ráðstöfun að fella
niður framlag ríkissjóðs til vega-
mála hafa verið hafðar af vega-
sjóði um 140—160 millj. kr, á
undanförnum 3 árum. Samkv.
skýrslu Félags ísl. bifreiðaeigeinda
frá s.l. hausti er talið, að tekjur
ríkissjóðs í tollum af bifreiðum,
benzíni, hjóibörðum og varahlut-
um til bifreiða, ásamt leyfisgjöld-
um, hafi numið á árinu 1966 um
590 millj. kr. Við þetta bætist svo
söluskattur af öliu saman. Það er
því ekki ólíklegt, að á árinu 1969
þegar áhrif gengislækkunarinnar
hafa komíð til viðbótar, verði
þessar ríkistekjur orðnar um 800
millj. kr. En að dómi ríkisstjórn-
arinnar má rikissjóður engan eyri
af þessu missa til vegamála.
Minni hl. nefndarinnar leggur
áherzlu á það, að mikil þörf er
fyrir tekjuaukningu vegasjóðs til
uppbyggingar þjóðveganna i land-
inu, sem verða að teljast í óvið-
unandi ástandi. En hann telur það
jafnframt fjarstæðu að ætla að
afla þeirra tekna eirigöngu með
umferðarsköttum, en hirða hins
vegur í ríkissjóð öll iininflutnings
gjöld, leyfisgjöld og söluskatt af
bifreiðum og varahlutum til
þeirra. Minni hl. n. bendir jafn-
framt á, að nauðsynlegt er að
gera heildaráætlun um uppbygg-
ingu þjóðveganjna og fjáröflun til
þeirra fyrir ákveðið támabdl, í
stað þess að lögbjóða skattaálög-
ur, er mundu auka á verðbólgu,
þrengja hag atvinnufyrirtækja og
hækka neyzluvörur í verði. Eru
slíkar álögur óviðunandi i sliku
árferði sem nú er.
Með nefndarálitinu fylgdi um-
sögn Landssambands vörubifreiða
stjóra og sagði þar m.a.:
Því verður ekki á móti mælt,
og það sízt af samtökum bifreiða-
stjóra, að brýna nauðsyn beri til,
að nú þegar verði hafizt handa
um framkvæmdir að bættri. og
varanlegri vegagerð i landinu.
Heita miá, að þjóðvegakerfi Lands-
þjóðarinnar fyrr og síðar. Land-
ið er stórt og varanleg vegagerð
kostnaðarsöm, en þjóðin er fá-
menn og framkvæmdirnar verða
því mjög dýrar miðað við hvern
í'búa landsiinis. Þetta verður allt
að hafa í huga, þegar unnið er
að fj'árhagslegri sem og verklegri
hlið þessa risaátaks.
Alkunna er, að „umferðin", þ.e.
eigendur bifreiða, hefur verið
skattlögð ríflega á undanförnum
árum. Tolla-, skatta- og aðfluin-
ingsgjaldatekjur af umferðinni
hafa numið hundruðum milljón'a
króna árlega, en aðeins lítill hluti
þess fjár farið til varanlegrar vega
gerðar, heldur gengið að mestu
til annarra þarfa í ríkisrekstrir-
um. Því hefur ávallt verið haldið
fram af samtökum biffeiðastjóra
og bifreiðaeigeinda, og á það er
hér lögð þumg áherzla, að þá fyrst
megi vænta árangurs af fram-
kvæmdum í vegamélum, að alJar
þær tekjur, sem teknar eru af
umferðinmi, fari óskiptar til vega-
mála.
Þetta er meginisjónarmið okkar
um fjárhagshlið þessa mikla verk
efnis, sem að framan er getið, a.
m.k. að þvi er lýtur af fjáröflun-
immi innanlamds.
í greinargerðinni með frum-
varpinu segir, að undirbúningur
hraðbrautaframkvæmda sé höfuð-
tilgangur þeirrar fjáröflunar sem
frumvarpið gerir ráð fyrir. Hins
vegar stendur skýrum stöfum í
frumvarpinu sjálfu (ákvæði til
bráðabirgða), að meira en 80%
af því fé, — 109 milljónum króna
— sem inmheimtast eiga á árimu
1968, á að ganga til annarra hluta
en umdirbúnings hraðbrautafram-
kváemdá, svo sem til að greiða
kostnað'arauka vegasjóðs af
síðustu gengislækkun, kostnaðar-
auka vegma rangra áætlana og til
að greiða halla á vegaviðhaldi
vegma náttúruhamfara. en auðvit-
að eiga allir skattþegnar að standa
sameiginl. undir þessum greiðsl-
um, en ekki bifreiðaeigendur ein-
ir. ,
Jafnfraimt því, sem við lýsum
yfir að við færusmst ekki undan að
greiða okkar skerf til varamlegr-
ar veigagerðar í landin.u og til
vegamála almennt, bæði sem al-
rnemnir skattþegmar og sem eig-
endur ökutækja, mótmælum við
því harðlega, að við sem atvinnu-
stétt séum lagðir í einelti og látn-
ir bera hlutfallslega meiri byrðar
en aðrir af þessum nýju álöguni,
eins og frumvarpið gerir þó ráð
fyrir.
Flestallar vörubifreiðar bremna
nú ottíu, en ekki benzíni, og er
þess'U öfugt farið með fólksbifreiö
ar. Með frumvarpi þessu er þunga
skattur benzíinbifreiða óbreyttur,
en þumgaskattur olíubifreiða hækk
aður um 100% miðað við algeng-
ustu bifreiðastærðirnar. Með frum
varpinu er gert ráð fyrir, að eig-
andi 10 tonna bifreiðar borgi í
þungaskatt af henni rúmlega 1000
krórnur á viku, hvort sem vinman
er mikil eða lítil. Segja má, að
eigandi benzímbifreiðar axli sínar
byrðar með hækkun benzínverði
samkvæmt frumvarpinu, og er það
rétt, en þó hvergi til jafms við
eigendur olíubifreiða. Þetta vilj-
um við rökstyðja með eftirfar-
andi dæmi:
Ef miðað er við fólksbifreið,
sem eyðir 6000 lítrum af benzíni
á ; ári, nemur hækkumin vegna
hækkaðs benzínverðs kr. 6840.00,
en þungaskattshækkun á olíubif-
reið, sem er að eigin bunga 6000
kg, nemur 18.040.00
Enn fremur má benda á, að
gúmmígjaldið kemur miklu verr
niður á vörubifreiðun.um, en frum
varpið gerir ráð fyrir 300% hækk
un gúmmígjaldsins.
í ræðu sinni á laugardaginn
ræddi Björn Pálsson nokkuð um
nauðsyn þess að ráðherrar sýndu
gott dæmi til eftirbreytni varð-
andi aukinn sparnað og sagði m.
a.:
Rí'kisstjórnin lýsti þvi yfir að
allir yrðu áð fara að spara og
neita sér um hlutina ■ vetur,
vildi ekki borga vísitölu á laun.
Ég get vel gengið Lnn a það, að
það sé örðugt fyrir atvinnuveg-
ina. En það er líka örðugt fyrir
fólk að verða fyrir þeirri kjara-
skerðingu, serni gengisbreytingim
var. En eiga þá ekki þessir bless-
aðir forstjórar og ráðherrar að
gariga á undan og sýna gott for-
dæmi. Lúðvík fjórtándi Frakka
konungur var allra mamrna mestur
egoisti og eyðsluseggur. En þeg-
ar hann var í stríði og þrengdi
að þjóðinni bræddi hann upp
borðsilfur sitt í stríðskostnað. Eg
sé ekki, að ráðherrar séu neitt
farnir að spara í bifreiðakostnað
eða bílstjórahaldi. En þeir segja
bara þjóðinni að spara og ieggja
‘þyngri skatta á hana. Það var
upplýs't hér af fjmrh„ að það
væru 7 ráðherrabílar. Eg hélt nú
satt að ,?segja um landbrh.,
að hann æki sínum eigin bíl og
ég held, að ég hafi verið búinn
að segja bændum fyrir norðan
þetta og hæla honum mikið fyrir.
Það hefur ekki góð áhrif á
starfsfólk, að forstjóri sé að aka
í bíl, Sem ríkið kostar að öllu
leyti. kaupir hann, kostar viðgerð
irnar og benzín og svo eru þeir
meira og mimma notaðir í snatti
fyrir fjölskyldurnar. Þetta skapar
ekki gott fordæmi eða gott and-
rúmsloft hjá stofnunum, því að
það þurfa fleiri að fara heim til
sín og heimam að frá séi en for-
stjórinn og fleiri að kaupa í mat-
inn heldur en forstj órairúin. Ef
þarf að nota bíl í þágu fyrirtæk-
is, er ekkert við það að athuga,
að það sé hóflegur bílastyrkur
hamda forstjóranum. En við eig-
um bara að iáta þá eiga bíl'ama
sjálfia. Það verða ódýrari viðgerð-
ir og betur með þá farið á
þann hátt. Ég tala nú ekki um
ráðherrabílania, því að ef fjölgaði
um yéinm ráðh., kostar það einn
ráðherrabíl og einn ráðherrabíl-
stjóra og það er jafmdýrt og ráð-
herrann sjálfur. Mér er sagt, að
það séu 4 bílar til að aka for-
setamum í fná Bessastöðum. Ég
hélt, að það væri nú hægt að kom-
ast af með einm góðan Ml. Sum-
ir segja að þeir séu 5, en það
er víst ósatt. Mér var sagt það
úti í bæ, að það væri nýkominn
einm ráðherrabíllinn í viðbót til
landsims. Ég er lítill fagmaður í
bilum og segi þessa sögu bara
eims og mér var sögð húm. Mér
var sagt að bíllinn myndi kosta
með eðlilegum inmflutningsgjöld-
um eða leyfisgjöldum um 800 þús.
svona ef venjulegir menn hefðu
átt að fá hanm. Þetta var um það
leyti, sem rfkisstj. var að segja
öllum að spara og væri ekki hægt
að greiða neimar vísitöluuppbæt-
ur á laum og ammað þar fram eftir
götunum og fólkið var að spjalla
um þetta. Ef þetta er ósatt, eiga
ráðherrar að, mótmæla þessu. Eg
.heyrði það hjá fjmrh., að í nokk-
ur ár hefði átt að vera í gildi
sú regla, að það væru ekki flutt-
ir inn bílar, sem kostuðu meira
en 250 þús. handa þessum for-
stjórum, en þarna hafa ráðh. þá
brotið þessa reglu og það er
náttúrlega alls ekki. gott að setja
öðrum reglur en fara svo ekki
eftir þeim sjálfur. Og ég vildi nú
af velvilja bemda ráðherrum á
þetta, af því að þeim veitir ekkert
af að fara að Skinna upp á vim-
sældirmar. Ég veit, að það yr:i
afar vel séð hjá alþýðu mamma,
ef þeir seldu nú alla þessa bíla
og létu bílstjórana fara að vinna
eitthvað annað., Ráðherrarnir
gætu svo fengið 'sér bíl hjá bif-
reiðastöð, þegar þeir þyrftu að
ferðast og fengju svo Miastyrk
Ef ráðherrar gengju nú á undan
fiorstjórunium og færu nú að eyða
litlum pemingum i þetta, hygg ég
að það mætti spara þarna nokkra
tugi millj., þanmig að ríkið gærí
þá látið eitthvað af þessum leyf-
isgjöldum ganga til veganma.
BARNALEIKTÆKI
★
ÍÞRÓTTATÆKI
Vélaverkstæði
BERNHARÐS HANNESS.,
Suðurlandsbraut 12.
Sím! 35810.