Tíminn - 20.04.1968, Blaðsíða 8

Tíminn - 20.04.1968, Blaðsíða 8
8 TIMINN LAUGARDAGUR 20. aprfl 1968 Eidur í Washington Það er víst eklki ofsögum sagt, að mikið hefir gengið á hér í henni Ameríku undan farnar tvær vikur. Ég veit, að þið þarna heima hafið haft á- hyggjur af þessum látum, og verið sérlega uggandi urn hag okkar íslendinga hér, sem leggj um líf okkar í hættu fyrir ætt- jörðina, með því að dvelja hérna í þessu voða landi. Ég veit, ég tala fyrir hönd allra landa hér á ófriðarsvæðinu, þá er ég þakka þessar hlýju hugs anir og umhyggju. Hlutirnir byrjuðu að gerast 31. marz, þegar margisvekktur Johnson, forseti, hélt sína frægu ræðu. Pótentátar hans í Wisconsin voru búnir að telja honum trú um, að hann myndi ekki fá nema í mesta lagi 10% atkvæða í prófkosn- ingunni, sem halda átti 2. apríl. En svo er nú hugsana- gangur lýðsins óútreiknanlegur, að eftir yfirlýsingu Johnsons um, að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs, brá svo við, að honum óx fylgi um land allt. Fékk hann þannig 36% at- kvæða demókrata í Wisconsin, eins og ykkur er kunnugt. Nú, svo stökk Bobby Kenn- edy inn á sviðið með kellu sína sér við hönd, og vildi nú endurheimta forsetaembættið, sem honum hafði reyndar alltaf fundizt tilheyra ættánni. Lætur hann engin ráð ónotuð til að vinna sér fylgi, og spiílar ó- spart á tilfinningar unga fólks ins. Er við því að búast, að hann hafi úti ölil spjót og láti, m. a. konu sína fara að þykkna undir belti, þegar líða tekur á kosningabaráttuna, því það þyk ir heillavænlegt hér í pólitík inni að láta háólétta eiginikonu standa sér við hlið á ræðupalli. Heiðursmanninum Eugene McCarthy likaði iíla að fá Bobby á bakið, og þóttist sann arlega ekki hafa boðið hon- um á háhest. Nú er aðeins eft ir að sjá, hvort McCarthy læt ur hann ríða sér tiil dauðs eða tekst að hrista hann af sér. Það sést í prófkósningunni í Indi ana-fylki, sem haldin verður í maíbyrjun. Þar berjast þeir félagarnir um fylgi demókrat- anna og verður spennandi að sjá, hverju fram vindur. Svo tök að bóla á því, að þriðji demókratinn myndi ganga með forsetann í mag- anum. Það reyndist vera Hu- bert Hóratíus Humphrey, vara forseti þjóðarinnar. Er tVið mjög líklegt, að hann til- kynni framboð sitt næstu daga, ef hann verður þá efcki búinn að því, þegar þið lesið þetta. Humphrey er talinn eiga vísan stuðning mikils hluta verkalýðsfélaganna, sem ekfci er lítils virði. En hann hefir misst fylgi flestra frjálslyndra demókrata, sem nú eru búnir að fylkja sér um McCarthy eða Kennedy. Stærsta tromp Humphreys er sjálfur , John son forseti en efcki ér' fráleitt að halda, að hann muni veðja á þennan trygga starfsmann sinn áður en langt um líður. Ef hægt er að segja, að þessi óvænta ákvörðun Johnsons hafi hleypt mdklu fjöri í demókrat- Robert Kennedy ana, þá dró hún ag sama skapi allan mátt úr republikönum. Aumingja Nixon er í stökum vandræðum. Hann er eins og maðurinn, sem missti glæpinn, og veit nú ekkert, hvað hann á að gera. Öll kosningabarátta hans beindist gegn Johnson og stjórn hans. Hann hefir reynt að draga eitthvað í land með hörku-stefnu sína í Víet-Nam stríðinu, en honum er lítil at- hygli veitt- Mundi fáa undra, þótt Rooke feller léti brátt verða af því að stíga skrefið en hætta að tvístíga. Minnsta kosti myndu þá flokksmenn republikana fá eitthvað til að velja um. Hubert Humprey Kannske myndi það líka vekja Nixon úr dáinu. Eiginlega var það kallinn Ho Ohi Minh í Hanoi, sem áfcvað að gera sitt til þess að Nixon yrði ekki næsti forseti. Með þvi að taka í sáttarihönd John sons, staðfesti han, að Mc Carthy og Kennedy hefðu haft á réttu að standa með að leggja til takmörkun loftárása og fr.Vs arumleitanir. Miði friðarsamn- ingaumleitunum í rétta átt fyr ir kosningar, er líklega ekki skakkt að álykta, að Humphrey verði sá, sem mest hefir að græða. Þannig kom Johnson ringul reið á stjórnmálalífið með ein- Eugene McCarthy um skammti af pólitísku púðri. Nókfcrum dögum síðar ákvað maður nokkur úiti í MempJiis að nota alvöru púður til að koma ógurlegri ringuireið á alilt þjóðlíf Bandarikjanna. Hann sté upp í skítugt baðkar á salerni í hrörlegu gistihúsi, til að geta náð góðu miði út um gluggann ytfir götuna að Lorraine mótelinu. Þarna beið hann þolinmóður í hálftíma, þar til hann sá í riffils-kíkinum höfuð mannsins, sem geymdi heilann, sem mest og bezt hefir hugsað um vandamál þeirra 20 milljón manna í landi hér, sem fæddir eru dekkri á hörund en Framhald á bls. 15. 60 ára: Sara Magnúsdóttir í dag er Sara Magnúsdóttir til heimilis að Skúlagerði 14, í Haín- aríirði, 60 ára. Hún er fædd 20. apríl H908. Foreldrar hennar vom Þórdí-s Gu'ðmundsdóttir og Magn- ús Friðriksson, atf vesttfirzkum æt‘ um. D’agarnir liíða hver af öðrum. Þeir ver'ða vikur, vdkurnar mán- uðir. Og svo er þetta orðið að órum oig áratugum. Undursam- lega fljótt rennur þetta saman í mannsævi. Allt í einu erum við komin ytfir miðjan aldur, — við sem vorum fyrir stuttu ung — að okkur fannst. Starfið, framþróun in, hin öra framvinda tímans, sem hvergi vdrðist í raun og veru hafa upphaf eða enda í hinni óskiljan legu og víðáttumiklu tilveru, spinnur þennan mikla vef. „Hvert liggur þráðurinn", spurði barnið. Þá hlógu fullorðn- ir. „Hvert liggur þráðurinn", spyrjum við fullorðin. Svarið er ekki auðvelt, enda í svörum greindra manna fátt um fullyrð- ingar og trú hvers eins og verkn- aður verður þar að koma til. Mér finnst það mjög stutt síð- an að ég sá Söru Magnúsdóttur í fyrsta sinn. Þá var hún ung húsmóðir á LágatfeMi í Miklahotts hreppi á Snætfellsnesi. Þar bjó hún me'ð bónda sinum Elíasi Kristjánssyni. Þekktum gáfu- manni og atorkubónda. Hann var ekkjumaður. S’ara og Elías eign- uðust fjögur börn — tvær dævar og tvo drengi. Börnin voru þá öll ung. Það var mikið ánægjulegt að koma til þeirra, samstarf þeirra var augljóslega með ágætum. Gleði og hamingju var hvarvetna að finma og allir hlutir í bezta lagi. „Það var vor í lofti, og sól í sinni“. Með sanni mátti svo að orði fcveða. En hjól tímans sner- ist örhægt og örlítið. Þrem árum síðar var Sara orðin einstæðing- ur, með fjögur börin í ómegð. Elías lézt 10. des. 1938. Köld og ömurleg voru þau skammdegis- kvöld og mikið þurfti til að standa þau af sér. En hún Sara hefur staðið af sér öll hríðarél. Sár söknuður og erfiðleikar viku fyrir aðkallandi starfi. Æðrulaust var gengið að verkefnunum, og samihent fjölskyldan leysti vand- ann eftir því sem hægt var með kratfti sínum og ráðdeild og allt fór vel. Enm liðu nokkur ár eða til ársins H949. Þá flutti Sara al- farin frá Lágafelli til Hafnarfjarð ar. Þar tók hún á leigu, húsnæði ásamt þrem börnum sínum. En Sigríður, dóttir hennar, var lcom in í fóstur "til Vígdísar ElíasdÓtÞ' ur og Þórarins Hallgrímssonar, Laugarteig 39, Rvík. og ólst þar upp til fuMorðinsára. í Hafinar- firði rækti Sara skyldur sínar við börnin, eins og áður, og öll pau verkefni sem daglega þurfti að leysa. Verksviðið var ólíkt hinu fyrra. En hún var sem áður, hin stjórnsama og farsæla móðir. Leið beindi börnunum og hjálpaði eins og frekast var hægt. Þetta tókR heinni með þeim hætti sem bezt varð á fcosið. Börnin urðu viður- kennd og eftirsótt til starfa, þekkt fyrir góða hegðun og heið- arleik. Þau hafa fyrir mörgum ár- um stofnað sín heimili með o- venju mikilld farsæld g getur Sara vissulega verið ánægð með þeirra hag sem hún og areiða.-- legá ér. Eftir að börnin voru orðin fu1.':- orðin breytti Sara högum sinum Hún giftist árið 1954 Borgþóri Framliald á bls 12. Vettvangur æskunnar meiningu Eins og stendur er það viðurkennd staðreynd, að íslenzka ríkið á í meiri fjárhagserfiðleikum en verið hefur um nokkurt sfceið, og hefur þó hjárhagur þess sannariega ekfci oft verið talinn sérlega góður. Menn spyrja um ástæður, og eðlilega er bent á verðfall á afurðum erlendis, svo og minnfcandi aflamagn á s. 1. ári. Fleira kemur þó að sjálfsögðu ti'l. Ríkisstjórnin hefur allt frá 1960 hampað kenningum um fjánhagslegt frelsi til handa þegnunum. Menn hafa borið sig sam- an nver við annan, og kapphlaupið um lítfsþægindin hefur mjög magn- azt þessi ár. Ríikisstjórnin hefur, viljandi og óviljandi, ýtt á eftir fólki í þessu kapphlaupi. Kannski hefði ekfci farið eins iMa og raun ber vitni, ef örfá ár hefðu efcki reynzt algjör metár hvað síldveiðar snertir, og er raunar nöturlegt að þurfa að segja þetta. En á þeim árum spennti .fólk bogann sannarlega til hins ýtrasta. Þeirn mifclu verðmætum, sem þjóðin aflaði þessi ár, var, að því er virðist, efcki varið á skynsamlegasta hátt, og þar er um að kenna skipuilagsleysi í þjóðarbúskapnum, með öðrum orðum hinu marglofaða frelsi. „Frelsið“ hefur í raun orðið athafnafrelsi til handa stór- spekúlöntum og bröskurum. Verzlunariiallir þeirra hafa sannarlega risið. Auðvitað hefur fleira risið. En vert er að benda á, að á þessum ár- um hefur naumast verið byrjað á nokkurri stórbyggingu á vegum alþjóðar, sem jafnazt geti á við háskólann, Þjóðleikihúsið og önnur slík stórvirfci. Á þessum byggingum var byrjað á kreppuárunum. Að vísu eru ti'l samþykktir um byggingu ráðhúss í Reyfcjavífc og Þjóðar- bókhlöðu, en aðeins samþykktir. Meðal annarra þjóða er mest lagt upp úr því að byggja glæsilegar byggingar, er séu almannaeign. Hér er öðru til að dretfa. Kannski þurfum við efnahagskreppu til að Þjóðarbókihlaðan og ráðhúsið rísi? Kannski er þjóð ofckar svo farið, að annað hvort sparar hún eða hún sparar ekkert? Er íslenzka þjóðin agalaus þjóð? Framhald á bls. 12.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.