Tíminn - 09.06.1968, Blaðsíða 6

Tíminn - 09.06.1968, Blaðsíða 6
*• 6 TÍMINN SUNNUDAGUR 9. júní 1968. í i Keflvískur kvartettsöngur Þœttin.um hefur borizt fjög- urra .laga hljiómplata með 'Keflavikurkvartettinum, útgef in á merki HjSJH. Það er orðið æði laingt síð- an slíkur samsöngur átti ál- mennum vinsældum að fagna. Þá var plötuspilarinin stilltur á 78 snúning’a hraða og hlust- að af gagntekimni hrifningu á M.A. kvartettinn, Tígulkvart- ettinn eða Leikbræður. Ein þetta var fyrir u. þ.b. tólf ár- um og eðlilega hefur smekk- ur almennángs breytzt síðan. En samt er alltaf hópur fólks, sem vill heyra þetta „gamla góða“ — það fylgist ekki með í músiklheimiinum og fussar við The Beatles. Þessi sami hópur gerir heldur ekki mikl- ar kröfur til flytjendanna, að- alatriðið er, að lögin láti vel í eyrum — angurblíð og un- aðsleg. Textinn spilar stóra rullu,, hamn þarf helzt að vera uppfullur af sól, ást og við- kvæmni. Textamir á þessari nýju plötu fylgja ofangreindri for- skrift í hvívetna. Tveir fyrstu Kef I a vf kurkva rtetti nn. em eftir ókunna höfunda, en hinir tveir em samdir af Jóni Sigurðssyni og Sr. Friðrik A. Friðrikssyni. Plötuumslagið er smekklega litríkt. Stjórnandi undirleiks og upptöku: Þórir Baldurssön, er ritað á það í bak og fyrir. Þetta gefur tilefni til bjart- sýni, sem þvi miður verður að engu, er hlusað er á plötuna, þvi hvað varðar undirleik og útsetningar, virðist allt kapp lagt á að uppfylla „kröfur" hins staðn.aða hóps hljómplötu kaupenda. En í laginu „Haustlauf" gef ur Þórir Baldursson „gömlu góðu uppskriftimni" langt nef og „brillerar“ á síinu rafmagn- aða orgeli. Lagið er tiltölulega nýtt. vel þekkt undir nafninu „What's now my love“, flutt af hinum snjalla trompettleik- ara Herb Alberts. í heild er hlutur Keflavíkur- kvartettsins á þessari plötu mjög þokkalegur. í einu laganna, „Bandúra", er þó misbrestur á. Þar hætta ten órarnir sér of hátt upp. Út- koman er sú, að söngur þeirra verður niánast því skrækur og það er ekki fallegt. Það er langt frá því, að það eigi að lesa einhverja vand- lætingu úr upphafslínum þessa þáttar, er ég minmist á þá kvartetta, er uppi voru á ím- um 78 snúnina platnanna. Mér er vel kunnugt um, að þeir vora flestir skipaðir úr- vals söngmönnum og M.A. kvartettinm skipar þar að sjálf sögðu heiðursesss. Það lagaval og útsetningar hæfði vel þeim Itíma en samræmist emgian veginn kröfium nútímans. Erlendir vinsældalistar. í hinu vandaða bandaríska miúsikblaði Billboard er jafn- a-n einkar forvitnileg síða sem ber yfirskriftina. „Hits of the World“. Þar gefur að líta vin- sældarlista hinna ýmsu landa. Við skuium nú glugga í þessa lista og vita hvort við könn- umst ekki við eitthvað af lög- unum. (Stuðzt er við Billboard frá 25. maí og 1. júní). Brietland verður fyrst fyrir valinu og ekki að ástæðulausu. ,Young girl“ skipar þar topp- sætið. En hann Berti Humper- dinck hefur fullan hug á að koma stúlkunni í hæfilega fjar lægð á meðan syngur hann í öðru sæti „Man without love“. Nr. 4 era Small Faces með Lazy Sunday“. Og hver er byrjaður að klífa topp 20 listann? Jú það er enginn annar en Elvis Presley og lag- ið er „U.S. Male“ — það er í átjánda sæti. Eitt viinsælasta lagið á ís- landi í dag er „Wonderful World“ sungið af hinum eina og sanna Louis Armstrong. Það var í heiðurssætinu hjá Bretum 25. maí en er nú kom- ið í fimmta sætið. frar era líka með á nótunum þar er Loiuis nr. 2. Danir eru þeim alveg sammála um gæði þessa fallega lags og þess vegna er Wonderful World“ einnig nr. 2 í Danmörku. „Oongratulations“ lag Cliff Riohards virðist njóta mikill- ar hylli víða um lr id. Þeir íslemdingar sem baka sig í Spánarsól þessa dagana heyra þetta lag vafalaust er þeir opna fyrir útvarpið því það er í efsta sætinu þar suður frá. Það skipar ein-nig þetta eftb sótta sæti í Danmörku, Noregi, Belgíu og Hollandi. Frakkar era afur á móti mun hrifn- ari af Tom Jones enda er hanm þar í efsta sætinu með „Delilalh“ og Þjóðverjar eru alveg á sama máli. Þótt fsraelsmenn séu stoltix og þjóðræknir þá standast þeir ekki töfra „Deldlaih“ þar er það einnig í toppsætinu. Ef litið er nánar á ísraelska vinsældarlistann kemur í ljós að Cliff er nr. 3. f fimmta sæti er „Suddenly you love me“ með Tremeloes og The Beatles skipa sjötta sætið með ,Lady Madonna". Cinderelia Rockefella“ er farið að heyrast nokkuð oft í óskalagaþáttunum hér heima og þeir útvarpshlustendur sem geta stillt tækin sín á Holland heyra vafalaus þetta sama lag því þar er það í fjórða sæti vinsældarlistans. Bemedikt Viggósson. Tom Jones veitir Cliff harSa keppni. Cliff Richard virSist njóta hylli um víða veröld. i ! Starf rafmagns- eftirlitsmanns hjá Rafveitu Siglufjarðar er laust til umsóknar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu rafveitunnar fyrir 1. ágúst næstkomandi. Laun samkv. 16. launafl. RAFVEITUSTJÓRI LÆKNINGASTOFO hefur undirritaður opnað að Klapparstíg 25—27. Viðtalstími kl. 1—3 alla daga nema laugardaga. Símaviðtalstími daglega kl. 9—10 f.h. í síma 35738 — Stofusími 19690. — Heimilislækningar. HALLDÓR ARINBJARNAR, læknir. H ILUTi AUri T A Knattspyrnufélagið Valur heldur hlutaveltu í fiV EL I «1 dag kl 2 í íþróttahúsi félagsins að Hlíðarenda Engin núll - Ekkert happdrætti - Margt góðra muna KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ VALUR (

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.