Alþýðublaðið - 12.01.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 12. jan. 1990
7
UTLOND
Alvarlegri
hliðin á
Phil Collins
Phil Collins er engin draumahetja í útliti. Hann hefur
vott af ýstru og hérið mætti vera þykkara en þessi
stórstjarna er hógværðin uppmáluð.
Fyrir 20 árum gerðist hann
meðlimur hljómsveitarinnar
„Genesis" og spilaði á trommur en
fyrir 5 árum gerðist hann söngvari
hljómsveitarinnar. Eins og svo
margir i poppheiminum hefur
Collins hafið kvikmyndleik. Hann
fékk smáhlutverk i „Miami Vice"
og það leiddi svo aftur til þess, að
honum bauðst hlutverk Buster Ed-
Áttundi áratugurinn
hefur ueriö mér hag-
stœöur og ég hefi
þroskast sem manneskja
og þaö hefur jákvœö
áhrif á vinnu mína.
wards í kvikmyndinni „Buster"
sem notið hefur mikilla vinsælda.
Öfugt við hina ýmsu poppara sem
hafa leikið í kvikmyndum, fékk
hann mjög góða dóma fyrir
frammistöðuna og segir sjálfur að
enginn vafi sé á því að hann muni
halda áfram að leika í kvikmynd-
um á næstu árum.
— Ég byrjaði aö spila á trommur
þegar ég var fimm ára og hef unn-
ið við tónlist meira og minna allt
mitt líf. Að leika í kvikmynd er
vissulega nýr heimur fyrir mig.
Það er sem opnist dyr að nýjum
raunveruleika og þetta er spenn-
andi. Þetta gefur mér hvíld frá tón-
listinni og ég held að þegar ég
byrja aftur i hljómsveit muni ég
hafa nýjar ferskar hugmyndir og
koma tvíefldur inn í heim tónlist-
arinnar aftur" — segir Phil Collins.
Hann er 38 ára og er orðinn
heimsfrægur — sem sést meðal
annars á því að hann hefur verið
gestur breska sjónvarpsmannsins
Michael Aspel, — en það verða
engir sem eru ekki frægir.
(Þýtt og endursagt.)
Phil Collins — popparinn sem er
að verða nafn i kvikmyndum.
m
.
INGIBJÖRG
ÁRNADÓTTIR
•t;:k :!
SJÓNVARP
12. janúar
Sjónvarpið kl. 22.05
SENDIHERRANN ***
(The Ambassador)
Bandarísk bíómynd
Gerd 1984
Leikstjóri Lee Thompson
Adalhlutuerk Robert Mitchum,
Ellen Burstyn, Rock Hudson
Greindarleg mynd um störf banda-
rísks sendiherra í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafsins, vergjarna
konu hans og eitt og annað af því
sem þau lenda i. Þetta var síðasta
myndin sem kyntákn fyrri tíma,
Rock Hudson, lék í, en hann lést úr
Aids fyrir u.þ.b. tveimur árum.
Stöð 2 kl. 23.30
LEYNIFÉLAGIÐ ***
(The Star Chamber)
Bandarísk bíómynd
Gerd 1983
Leikstjóri Peter Hyams
Adalhlutuerk Michael Douglas,
Hal Holbrook, Yaphet Kotto,
Sharon Gless, James B. Sikking
Ungur dómari hefur fengið sig full-
saddan á því að sleppa glæpamönn-
,um lausum úr réttarsalnum vegna
tæknilegra formgalla á rannsókn
eða málsókn. Hann leiðist út í þátt-
töku í leynifélagi þar sem réttlætinu
er fullnægt á áhrifaríkari og skjót-
virkari hátt. Myndin er nokkuð
spennandi framan af en á móti er
augsýnilegt hvert atburðarásin mun
leiða persónurnar og á endanum
verður myndin of ótrúverðug til- að
hún virki á áhorfandann.
0 STÖÐ2
17.50 Tumi 15.35 Nú harönar i ári (Things Are Tough All Over). Gamanmynd 17.05 Santa Barbara 17.50 Dvergurinn Daviö
1800 18.20 Aö vita meira og meira 18.50 Táknmálsfréttir 1^55 Loftskipiö Zeppelin Rakin er saga þýska greifans Ferdinands von Zeppelin sem fyrstur manna smidaöi loftför til hernaöar og far- þegaflutninga 18.15 Eöaltónar Billy Joel er heimsóttur í New York 18.40 Vaxtarverkir
1900 19.50 Bleiki pardusinn 20.00 Fréttir og veöur 20.35 í pilsfaldi listagyöjunnar 21.05 Derrick 22.05 Sendiherrann (The Ambassador). Sjá umfjöllun 19.1919.19 20.30 Ohara 21.20 Sokkabönd i stil 21.55 Furðusógur 5 Úr smiðju Stevens Spielberg
2300 23.40 utvarpsfréttir i dagskrárlok 23.05 Löggur (2) 23.30 Leynifélagið (The Star Chamber). Sjá umfjöllun 01.15 Fríöa og dýriö 02.05 Dagskrárlok