Alþýðublaðið - 12.01.1990, Page 8
AiinnuiD
Föstudagur 12. jan. 1990
Sjálfstœdisflokkurinn í Reykjavík ekki meö prófkjör:
Vill Davíð sjálfur
velja arftakann?
Prófkjör heföi ekki snúist um hverjir sœtu í borgarstjórn
meö Davíö heldur hver tœki viö af honum.
Sjálfstæðisflokkurinn
í Reykjavík hefur ákveð-
ið að borgarbúar fái ekki
að hafa áhrif á skipan
framboðslista flokksins
í næstu borgarstjórnar-
kosningum. A fundi full-
trúaráðs Sjálfstæðisfé-
laganna í Reykjavík á
miðvikudagskvöldið var
því hafnað að haldið
skyldi prófkjör um val
frambjóðenda á lista
Sjálfstæðisflokksins við
komandi borgarstjórn-
arkosningar.
Davíð Oddsson hefur
verið óskoraður leiðtogi
sjálfstæðismanna í borg-
inni, ræður því sem hann
ráða vill, og því mat margra
að það skipti litlu hverjir
með honum veljist á list-
ann. Engu að síður vill stór
hluti fulltrúaráðs flokksins
viðhafa prófkjör. Ber að
skoða það m.a. í Ijósi þess
að allar líkur benda til að
Davíð dragi sig út úr borg-
arpólitíkinni á næsta kjör-
tímabili og hverfi á vit
landsmálapólitíkurinnar
enda kjörinn varaformaður
flokksins á síðast lands-
fundi. Prófkjör hefði því
fyrst og fremst gefið vís-
bendingu um hver skuli
verða arftaki Davíðs og
borgarstjórakandídat
hverfi hann úr því embætti.
40% vildu prófkjör
Arni Sigurðsson bar fram
tillögu um að viðhafa opið
prófkjör. Hún hlaut stuðn-
ing um 40% fulltrúa eða 90
atkvæði en á móti voru
136. Með þessu er Davíð
nánast gefið sjálfdæmi um
hverjir skipi listann með
honum og hver verði arf-
taki hans því erfitt verður
fyrir fulltrúaráðið að hunsa
vilja hans.
Einn viðmælandi Al-
þýðublaðsins lét þess getið
að hér væri verið að gefa
tóninn fyrir það sem koma
skal í næstu alþingiskosn-
ingum. Það yrði erfitt fyrir
Davíð að fara nú í prófkjör,
síðan borgarstjórnarkosn-
ingar í vor og svo aftur
skömmu síðar í prófkjör
fyrir aiþingiskosningar. Þá
væri betra að láta fulltrúa-
ráðið fara með þessi mál.
Eins og fram hefur komið
var töluverður hópur innan
fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
flokksins í borginni hlynnt-
ur því að haldið yrði próf-
kjör. Það er því eðlilegt að
menn velti vöngum yfir því
hvers vegna ekki var orðið
við óskum um opið próf-
kjör nú þrátt fyrir að margir
væru því fylgjandi. Davíð
hafði í sjálfu sér ekkert að
óttast en ýmsir telja að aðr-
ir borgarfulltrúar flokksins
hefðu getað átt erfitt upp-
dráttar enda flestir lítt
þekktir nema ef vera skyldi
vegna einstaka hneykslis-
mála.
Tæpt hjá Davíð 1982
Þess er skemmst að
minnast að Davíð Oddsson
náði þeirri stöðu sem hann
nú er í eftir harðan próf-
kjörsslag fyrir kosningarn-
ar 1982. Að vísu var próf-
kjörið þá bundið við flokks-
bundna sjálfstæðismenn
eingöngu en náði ekki til
annarra stuðningsmanna
eins og verið hafði áður. I
því prófkjöri fékk Davíð að-
eins 23 fleiri atkvæði en
Markús Örn Antonsson,
núverandi útvarpsstjóri, og
rétt rúmlega 100 atkvæð-
um meira en Albert Guð-
mundsson stofnandi Borg-
araflokksins. Það voru því
ekki mörg atkvæði þá sem
skáru úr um það að Davíð
hefur leitt flokkinn í
Reykjavík síðan.
I kjölfar þess prófkjörs
spunnust miklar og illvígar
deilur innan Sjálfstæðis-
flokksins um hvernig skyldi
skipa listann og áhöld um
hvort Albert tæki sæti á
honum. Albert var mjög
ósáttur við að þátttaka í
prófkjörinu var aðeins
bundin við flokksmenn en
það var mat flestra að hefði
það verið opið, hefði Albert
farið með sigur af hólmi og
þá væntanlega orðið borg-
arstjóri.
Þegar þeir innan Sjálf-
stæðisflokksins sem tala
um misjafna reynslu af
prófkjörum og illvíga bar-
áttu manna á milli er þeim
eflaust hugsað til prófkjörs-
ins fyrir kosningarnar árið
1982. Þá voru það aðeins
flokksbundnir sem fengu
að kjósa en þó stóð það
tæpt að vilji manna úr
innsta hring Sjálfstæðis-
flokksins næði fram að
ganga. Því hefur nú verið
svo búið um hnútana að
það verður fámennur hóp-
ur úr innsta hring flokksins
sem velur arftaka Davíðs,
þ.e. fulltrúaráð Sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík.
Fréttaskýring:
Tryggvi Harðarson
Taliö er að Davíð hafi haft Albert i próf kjörsslagnum fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1982 með
þvi að takmarka þátttakendur við flokksbundna.
Alþýöuflokkurinn Hafnarfiröi meö opiö prófkjör:
„Engum datt í hug að standa gegn því"
„Það er orðin hefð fyrir
því að halda opið prófkjör
hjá okkur krötum í Firðin-
um og engum datt í hug að
standa gegn því þegar
fram komu óskir þar um,“
sagði Guðmundur Arni
Stefánsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, sem skipaði
VEDRIÐ
ÍDAG
Noröan og vestanátt, víða
hvöss austanlands en
mun hægari vestan til.
Snjókoma á Norðaustur-
og Austurlandi. Él vestan
til á Norðurlandi og á Vest-
fjörðum en sumsstaðar
léttskýjað syðra. Vægt
frost.
fyrsta sæti lista Alþýðu-
flokksins við síðustu bæj-
arstjórnarkosningar.
Fulltrúaráð Alþýðuflokks-
félaganna í Hafnarfirði hefur
ákveðið að viðhafa opið próf-
kjör um val frambjóðenda á
lista flokksins fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar í vor.
Það var samþykkt samhljóða
á fundi fulltrúaráðsins á
þriðjudagskvöldið.
Nokkrar umræður áttu sér
stað á fundinum hvort halda
skyldi opið prófkjör eða velja
frambjóðendur í þrengri hóp.
Þegar fram komu óskir um að
prófkjör skyldi haldið, opið
alþýðuflokksfélögum og öðr-
um stuðningsmönnum
ílokksins, vildi enginn standa
gegn því og vísað til hefðar
og réttar einstaklinga bæði til
að hafa áhrif á skipan listans
og til að bjóða sig fram.
Ákveðið var að prófkjörið
fari fram helgina 24. og 25.
febrúar en frestur til að til-
kynna þátttöku í prófkjörinu
renni út 3. febrúar. Til þess að
gefa kost á sér í prófkjörinu
þurfa þátttakendur meðmæli
10—50 flokksbundinna fé-
laga.
Fólk
I Austfjarðaprófasts-
dæmi hefur verið ákveð-
ið að í Djúpavogspresta-
kalli muni á næstunni
taka við af séra Sigurdi
Ægissyni hin nývígða
séra Sjofn Jóhannesdótt-
ir. Svo skemmtilega vill til
að presturinn í næsta
prestakalli, að Heydölum,
er eiginmaður Sjafnar,
séra Gunnlaugur Stefáns-
son, sem flestum krötum
er kunnur, enda þing-
maður flokksins um skeið
eftir byltinguna 1978.
Séra Sjöfn lauk guðfræði-
prófi 1987, var vígð
haustið 1988 og hefur að
undanförnu þjónað
Bjarnarnesprestakalli í
námsleyfi prestsins þar.
★
í gær var Jón Balduin
Hannibalsson utanríkis-
ráðherra á ferð í Vest-
mannaeyjum, þar sem
hann hélt upplýsingafund
um efnahagssvæði Evr-
ópu. í gær gerðist það
einnig að Suauar Gests-
son menntamálaráðherra
stormaði til Eyja og verð-
ur þar einnig i dag. Svav-
ar heimsótti ýmsar stofn-
anir í gær og hélt fund um
nefndarálit nokkurt um
innra starf framhalds-
skóla, en í dag á hann
fund með framhalds-
skólanemum og skoðar
fleiri stofnanir.
★
Unglingadeild leikfé-
lags Hafnarfjarðar er
hópur 25 krakka úr 7.-9.
bekk grunnskóla bæjar-
ins. Undir stjórn Gudjóns
Sigualdasonar sýndi hóp-
urinn fyrir ári leikritið
„Þetta er allt vitleysa
Snjólfur", en nú er komið
að nýju verki sem ber
ekki síður lokkandi nafn:
,,Þú ert í blóma lífsins fífl-
ið þitt“, undir stjórn Dau-
íds Þórs Jónssonar. Það
fjallar á skoplegan hátt
um ævi einstaklings á ís-
landi frá getnaði til stúd-
entsprófs frá sjónarhóli
unglings. Frumsýnt verð-
ur í Bæjarbíói á laugar-
dag.
★
1 Vestfirska fréttablað-
inu skrifar Hlynur Þór
Magnússon leiðara um
upptöku virðisauka-
skattsins og fagnar hon-
um si svona mátulega.
„Við í prentinu erum á
meðal þeirra fyrstu sem
njóta góðs af tilkomu
hans: Elstu menn muna
ekki annað eins
pappírsflóð gegnum vél-
arnar." Á tímum sam-
dráttar fagnar Hlynur því
að helmingur þjóðarinn-
ar fái vinnu vegna skatts-
ins. „Skítt veri með loðn-
una og þorskinn. Nú er
Guð búinn að gefa okkur
virðisaukaskattinn."