Alþýðublaðið - 31.01.1990, Side 4

Alþýðublaðið - 31.01.1990, Side 4
4 Miðvikudagur 31. jan. 1990 Víkingasveitir kalladar til verka: Öryggi borgarcmna eða rambó-leikur lögreglunnar? — mat vakthafandi yfirmanna hvort Víkingasveit er kölluö út — margir telja að minni viðbúnadur hefði dugað Aðfaranótt þriðjudagsins skaut ölvaður byssumaður úr haglabyssu í verslun á jarðhæð Hafnarhússins. Lögreglunni var fljótlega gert viðvart og lokaði nærliggjandi götum. Lögreglu og sérsveitum lögreglunnar, Víkingasveitinni tókst að yfirbuga manninn en alls voru um tuttugu lög- reglumenn á svæðinu sem var lokað í u.þ.b. klukkustund. Böðvar Bragason, lögreglustjóri sagði það mat vakthafandi yfir- manna hvenær sérsveit lögregl- unnar, Víkingasveitin væri kölluð út. Undanfari slíks útkalls er að lögreglan kannar aðstæður. Þá metur aðalvaktstjóri á vakt í sam- ráði við aðra yfirmenn hvort þörf er á aðstoð Víkingasveitarinnar. Böðvar taldi það spurningu um mínútur hversu fljótir þessir menn eru á vettvang því til staðar er við- bragðsáætlun en það fer eftir að- stæðum hversu hratt hún gengur. Böðvar vildi ekki gefa upp hversu margir sérsveitarmenn væru í við- bragðsstöðu hverju sinni en sagði þó að alltaf væru einhverjir Vík- ingasveitarmenn til staðar. Ef þörf væri á fleirum yrði hins vegar að kalla þá sérstaklega út. Böðvar sagði að Víkingasveitarmenn ynnu sem venjulegir lögreglu- menn dagsdaglega en biðu ekki einungis eftir sérstökum útköllum. Hann benti á sem dæmi að þeir menn sem komu við sögu aðfara- nótt þriðjudags hefðu allir verið við lögreglustörf í borginni. Frétt Morgunblaðsins um þenn- an atburð hefur án efa vakið nokk- urn óhug hjá fólki og urðu Alþýðu- blaðsmenn varir við það meðal þeirra sem blaðamenn ræddu við í gær. Fólk spyr einfaldlega: „Var virkilega þörf á svo róttækum að- gerðum af þessu tilefni", spurði einn Moggalesandinn. „Hefði í rauninni ekki verið nóg að senda einn af þessu gömlu og góðu lögg- um til að róa manninn. Það ráð hefur til þessa reynst vel," sagði þessi maður. Annar lesandi okkar sagði að greinilegt væri hvað þarna væri á ferð. Þarna væri örvæntingarfull- ur maður að hrópa á hjálp, — ekki Rambó, sem ætlaði að skjóta á allt kvikt sem fyrir yrði. Að siga Vík- ingasveitum á slíkan mann væri aðgerð sem væri fyrir neðan allar hellur og skapaði ekki annað en aukna hættu. Þriðji lesandinn vildi gjarnan fá að vita hvað „svona byssubófa- leikur" kostaði almenning í land- inu. „Sem betur fer höfum við Is- lendingar ekki neina þörf fyrir sérsveitir lögreglu af þessu tagi. Það hefur líka komið í ljós að verk- efnin fyrir þessa sérstöku sveit lög- reglumanna er ánægjulega lítil, en svo virðist sem öll tilefni séu notuð til að koma henni til starfa". Að sjálfsögðu getur það verið álitamál hvað rétt er eða rangt í til- vikum sem þessum, það er lög- reglunnar að vega það og meta hverju sinni. Vissulega geta vopn- aðir menn verið hættulegir á al- mannafæri, en ljóst er að af þessu máli getur spunnist talsverð um- ræða og umhugsun um hversu langt skal ganga. Þessi lögreglumaöur stóö vörö i „porti" Hafnarhússins. - HAFNARHÚS INNGANGUR jtttmiA % mfnm*an wt »C»VAt.I>USUOW*»OW SKIfAMiOU. aWOMUNOUR AfiHAtOSSOW J.H«D iWH UQMMtHtMOH * CC Inngöngu leitaö í Hafnarhúsiö, — maöurinn sem setiö var um gaf sig fram vopnlaus og hættulítill aö sjá. Vikingasveitarmaöur í fullum herklæöum og meö grímu fyrir andliti sést Nnrliggjandi götum var lokaö af lögreglumönnum í venjulegum skrúöa, — gestir á Gauki á Stöng voru kyrrsettir hér á ferð við Hafnarhúsið. á veitingahúsinu, án þess þó að geta fengið veitingar.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.