Alþýðublaðið - 17.02.1990, Qupperneq 4
4
Laugardagur 17. febr. 1990
ÍÞRÓTTAVIÐBURÐiR FYRRITÍMÁ
Handknattleiksþjódin ísland:
Stórþjóð
HM
tapieikjanna urðu: ísland — Sovét-
ríkin 18:22, ísland — Danmörk
14:21 og ísland - Spánn 22:25. V-
Þjóðverjar urðu heimsmeistarar
1978, sigruðu Sovétmenn 20:19.
ísland vann sér ekki rétt til að vera
með í A-keppninni í V-Þýskalandi
1982, en þá sigruðu Sovétmenn
Júgóslava í úrsliturn 30:27.
Þaö birti til í Sviss 1986!
Það byrjaði EKKl vel í HM í
Sviss, er íslenska liðiö tapaði fyrir
S.-Kóreu 21:30, en síðan tóku við
sigrar gegn tveimur fyrrverandi
heimsmeisturum, Tékkum 19:18
og Rúmenum 25:22. í undanúrsiit-
um sigruðu Ungverjar ísland
naumlega 21:20, en síðan kom
glæsilegur sigur gegn Dönum,
sem oft hafa reynst okkur erfiðir,
26:16! Síðasti leikurinn í undanúr-
siitum var gegn Svíum og enn
varð að kyngja ósigri gegn sænsk-
um, 23:27.
ísland iék við Spánverja um 5.
sæti og leiknum lauk með spænsk-
um sigri 24:22.
Tékkóslóvakía er f ramundan
12. heimsmeistarakeppnin í
handknattleik (A) hefst í Tékkó-
slóvakíu 28. febrúar og ísiand er
enn meðal þeirra bestu eftir glæsi-
legan sigur í B-keppninni í fyrra.
Leikið verður í fjórum riðlum og
þrjár efstu þjóðirnar í hverjum
riðli skiptast í tvo undanúrslita-
riðla. ísland er í C-riðli ásamt
Júgóslövum, Spánverjum og
Kúbu. Þann riðil, sem ísíendingar
fá með sér í undanúrslit, skipa Pól-
verjar, A-Þjóðverjar, Sovétmenn
og Japanir. Allar líkur benda til
þess að þrjár fyrstnefndu þjóðirn-
ar komist áfram. Þegar leikjum er
lokið í undanúrslitum leika sigur-
vegarar riðlanna um heimsmeist-
aratitilinn, þær þjóðir, sem verða í
öðru sæti leika um bronsverðlaun
og svo koll af kolli. Við Ijúkum
þessari upprifjun með því að óska
íslenska liðinu góðs gengis í
keppninni.
1
íslenska landsliðiö i handknattleik: Vonandi verður gleðistemmningin svona eftir sem flesta leiki í Tékkóslóvakíu siðar í mánuðinum og í byrjun mars.
Einn þyðingarmestí íþróttaviöburður, sem íslenskir
íþróttamenn tengjasta á þessu ári, er þátttaka íslenska
landsliösins í handknattleik í A-heimsmeistarakeppninni i
Tékkóslóvakíu. Árangurinn á þessu móti sker úr um það,
hvort landsliðið vinnur sér rétt til þátttöku í Ólympíuleikun-
um í Barcelona 1992. Þó að slíkur árangur næðist ekki í
Tékkóslóvakíu, er samt ekki öll nótt úti um keppnisrétt
landsins í Ólympíuleikunum 1992.
Hallar undan fæti
Fyrsta heims-
meistaramótið 1938
Fyrsta heimsmeistaramótið í
handknattleik fór fram í Þýska-
landi 1938, en þátttökuþjóðirnar
voru aðeins 4, þ.e. Þjóðverjar sem
urðu heimsmeistarar, síðan komu
Austurríkismenn, Svíar og Danir
ráku lestina. Fyrsta HM eftir stríð-
ið fór fram í Svíþjóð 1954 og þá
sigruðu Svíar V-Þjóðverja í úrslit-
um með 17:14.
ísland fyrst með 1958
Islendingar voru fyrst með í HM
1958 í Austur-Þýskalandi. Liðið
vann þar frægan sigur á Rúmen-
um 13:11, en tapaði fyrir Tékkum
17:27 og Ungverjum 16:19. Fyrstu
2 þjóðir í hverjum riðli komust
áfram í 8-liða úrslit og þar sem ís-
ienska liðið varð í 3ja sæti í sínum
riðli var það úr leik. Aftur urðu
Svíar heimsmeistarar, burstuðu
Tékka 22:12!
Sjötta sæti 1961
Það gekk mun betur í Vestur-
Þýskalandi 1961, en þá hafnaði ís-
lenska liðið í 2. sæti í undanriðli
eftir 14:12 sigur á Sviss, en 13:24
tap gegn Dönum. í undanúrslita-
riðli vann ísland Frakkland 20:13
gerði jafntefli við Tékka 15:15, en
tapaði fyrir Svíum 10:18. ísland
lék um fimmta sætið við Dani og
Danir sigruðu, en nú aðeins með
eins marks mun, 14:13. Rúmenar
unnu Tékka í úrslitum 9:8.
Sorgleg úrsiit í
leiknum við Ungverja
Eftir frábæra byrjun í undanriðl-
um HM í Tékkóslóvakíu 1964, þar
sem íslenska liðið vann Egypta ör-
ugglega 16:8 og Svía 12:10 í eftir-
minnilegri viðureign, þurfti að-
eins að ná þokkalegum úrslitum
gegn Ungverjum, til að komast
áfram. Eftir sigur Svía á Ungverj-
um 16:8 og tap Svía gegn íslend-
ingum, voru menn býsna bjartsýn-
ir. En það fór því miður á annan
veg, Ungverjar nánast burstuðu
okkar menn, 21:12 og ísland hlaut
3ja sætið í riðlinum á verra marka-
hlutfalli en Svíar og Ungverjar, og
voru þar með úr leik. Sorgleg nið-
urstaða eftir hina frábæru byrjun.
Rúmenar urðu aftur heimsmeist-
arar, sigruðu Svía í úrslitaleik
25:22.
Örn Eidsson
skrifar
íslendingar unnu sér ekki rétt til
að keppa í A-keppninni 1967 í Sví-
þjóð, en þar sigruðu Tékkar Dani í
úrslitum 14:11. í kejrpninni í Frakk-
landi 1970 var Island með, en
gekk ekki nógu vel. Tapaði fyrir
Ungverjum 9.T9 og Dönum 13:19
en vann Pólverja 21:18, og komst
því ekki í 8-liða úrslit. í keppninni
um 9.—12. sæti, varð ísland í 11.
sæti, tapaði fyrir Japan 19:20 og
Sovétríkjunum 15:19, en vann
Frakka 19:17.
Ennþá verr gekk í A-Þýskalandi
1974. Island tapaði öllum sínum
leikjum í undankeppninni fyrir
Tékkum 15:25, V-Þjóðverjum
16:22 og fyrir Dönum 17:19. Rúm-
enar sigruðu A-Þjóðverja í úrslita-
leiknum 14:12. Islenska liðið vann
sér aftur rétt til að taka þátt í A-
keppninni í Danmörku 1978 og
miklar vonir voru bundnar við þá
keppni, en allt fór á sömu leið. All-
ir leikirnir þrír í undankeppninni
töpuðust og liðið var úr leik. Úrslit
Góður áranaur íslands i
handbolta Ófympiuleikja
ísienska handknattleiksiið-
ið hefur þrívegis unnið sér
rétt tii að taka þátt í aðal-
keppni Ólympíuleikanna.
Fyrst var það í Munchen
1972. Liðinu gekk rétt þolan-
lega, tapaði fyrsta leiknum
fyrir A-Þjóðverjum 11:16,
gerði jafntefli við Tékka
19:19 og sigraði Túnis 27:16.
Tékkar og íslendingar voru
jafnir í 2. sæti í riðlinum með
3 stig, en þeir fyrrnefndu
komust áfram í 8. liða úrslit á
betra markahlutfalli. í
keppni um 9.—12. sæti töp-
uðu íslendingar bæði fyrir
Pólverjum 17:20 og Japönum
18:19 og enduðu í 12. sæti.
Næsta þátttaka isienskra
handknattleiksmanna í Ólym-
píuleikjum var í Los Angeles
1984 og þá gekk mun betur en i
Múnchen 1972. Leikið var í
tveimur 6 þjóða riðlum og Island
varð í 3ja sæti í A-riðli eftir að
hafa sigrað Alsír 19:15, Sviss
23:16 og Japan 21:17. Landsliðið
gerði jafntefli við Júgóslava
22:22, en tapaði fyrir Rúmenum
17:26. — íslenska liðið lék síðan
við Svía um 5. sæti og þeim leik
lauk með sænskum sigri 26:23.
ísland varð því í 6. sæti í Los
Angeles, sem er mjög góður ár-
angur.
Islenska landsliðið náði góð-
um árangri í Seoul og í tvífram-
lengdum leik um 7. sæti sigruðu
A-Þjóðverjar íslendinga með
31:29. Þetta var dæmalaust
spennandi leikur og reyndi
vissulega á taugarnar. í
undankeppninni urðu úrslit
þessi: ísland — USA 22:15, ísland
— Alsír 22:16, Svíþjóð — ísland
20:14, ísland — Júgóslavía 19:19
og Sovétríkin — ísland 32:19.