Alþýðublaðið - 17.02.1990, Síða 8

Alþýðublaðið - 17.02.1990, Síða 8
8 Laugardagur 17. febr. 1990 ÆSIFREGNASÍÐAN Ljósmyndir: Audunn J. Kúld yngn KJARASAMNINGAR SAMÞYKKTIR: Kjarasamningarnir hafa verið samþykktir í flestöllum aðildarfélögunum. Beðið var eftir úrslitum í Dagsbrún með mikilli spennu. Hér sést formaður Dagsbrúnar ræða við einn fundarmanna fyrir fundinn. UMDEILDUR NIÐURSKURÐUR: Ríkisstjórnin hefur lagtfram tillög- ur sínar um niðurskurð í ráðuneytum. Niðurskurðurinn hefur vakið miklar deilur í þingflokkum stjórnarflokkanna. Hér sést þingflokksfor- maður Framsóknarflokksins koma af þingflokksfundi eftir að niður- skurður í landbúnaðarráðuneytinu hafði verið til umfjöllunar. Oc ALFA-l áM. BLAÐAPRENT BRÆÐIR ÚR SÉR: Prentsmiðja Blaðaprents sem prentar Alþýðublaðið, Þjóðviljann og Tímann stöðvaðist í fyrradag. Prentvélin bræddi úr sér er prentun á PRESSUNNI hófst. Hér á myndinni sjást tveir prentarar eftir að vélin sprakk í loft upp. Ekki urðu slys á mönnum. Prentsmiðjustjórinn segir í viðtali við Æsi- fregnasíðuna: „PRESSAN er með of heitar fréttir fyrir vélina." RÁÐHERRABÍLAR ÚR SÖGUNNI: Að vel hugsuðu máli og vegna at- hugasemda glöggra og árvakra fréttamanna, hafa ráðherrar ríkis- stjórnarinnar ákveðið að skila ráðherrabílum sínum (og bílstjórum) og spara ríkissjóði stórfé. Ríkisstjórnin hefur fest kaup á sameigin- legu farartæki fyrir alla ráðherra og sjást ráðherrarnir á með fylgjandi mynd æfa fótaburðinn. Forsætisráðherra segir í viðtali við Æsi- fregnasíðuna: „Ég verð að segja að þetta er mjög heppileg lausn og gerir ríkisstjórnina meira samstíga en áður." Um áramótin voru Búnaöardeild Sambandsins, Jötunn hf og Bílvangursf sameinuð í eitt fyrirtæki, sem heitir JÖTUNN, og tekur yfir allan rekstur fyrirtækjanna þriggja. Skrifstofur hins nýja JÖTUNS, sem er deild i Sambandinu, veröa opnaðar mánudaginn 19. febrúar aö Höfðabakka 9. Símtaer 07QQQQ • Starfsemi Búnaðardeiidar, nema varahlutaverslunin, flyst úr Ármúla 3 að Höfðabakka 9. • Varahlutaverslunin verður enn um sinn að Ármúla 3, Hallarmúlamegin, sími 38900. • Símanúmer bíla- og rafvélaverkstæða og varahlutaverslana að Höfðabakka 9 verða óbreytt fyrst um sinn. Verið velkomin að Höfðabakka 9. SAMBAND ISLENSKRA SAMVINNUFELAGA HOFÐABAKKA 9, SIMI 670000 Nýr Jötunn

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.