Alþýðublaðið - 17.02.1990, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 17.02.1990, Qupperneq 9
Laugardagur 17. febr. 1990 9 » ■... Alþingi í vikulokin :É ,É' ft M: iíp É 'dj Lö ffi - cö h tö Frumvarp um skipulags- og byf&ingarmál: Almenningur eigi kost á að koma hugmyndum á framfæri „Á það var m.a. bent að eðlilegra væri að fjalla um skipu- lags- og byggingarmál í sömu lögum enda væri hér um ná- tengd verkefni að ræða," sagði Jóhanna Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra m.a. þegar hún mælti fyrir nýjum lögum um byggingar og skipulagsmál á Alþingi í vikunni. Þá benti Jóhanna á að þessi lög hafa verið samræmd í einn laga- báik í nágrannalöndum okkar eins og Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Frumvarpið felur í sér aukna hlut- deild og ábyrgð sveitarstjórna á skipulagsmálum. Lög um skipu- lagsmál voru fyrst sett hér á landi árið 1921. Á þeim voru gerðar breytingar á árunum 1926, 1932 og 1938. Þau lög voru leyst af hólmi með nýjum lögum 1964 og á þeim gerðar breytingar á árun- um 1972, 1974 og 1978. Sam- kvæmt þeim lögum voru aðeins þau sveitarfélög sem höfðu þétt- býliskjarna upp á 50 manns eða fleiri skipulagsskyld. Aukin áhersla á kynningu Helstu breytingar frá núgildandi lögum samkvæmt frumvarpinu eru fólgnar í að gerð og fram- kvæmd skipulagsáætlana færist til sveitarstjórna og sveitarfélögum með færri en 700 íbúa verður skylt að stofna byggðasamlög með nágrannasveitarfélögum um sameiginlega skipulags- og bygg- ingarnefnd. Þá verður hlutverki og nafni Skipulags ríkisins breytt með tilkomu Skipulags- og bygg- ingarstofnunar ríkisins. Skylt verður að gera aðalskipulag fyrir öll sveitarfélög og aukin áhersla verður lögð á kynningu aðalskipu- lags fyrir íbúum í upphafi skipu- lagsvinnu. Einnig er gert ráð fyrir ákvæði um hvernig standa skuli að málum þegar ágreiningur verð- ur um skipulag á mörkum sveitar- félaga. Sett eru ákvæði um lands- skipulag og kröfur eru hertar til hönnunar og efnisvals. Þá eru at- riði er varða hönnunargögn og löggildingu hönnuða skilgreind betur en áður var og ábyrgð bygg- ingarstjóra og iönmeistara skil- greind. Gerö skipulags í hendur sveitarfélaga í gildandi byggingarlögum eru ákvæði um að í hverju sveitarfé- lagi skuli eftir hverjar sveitar- stjórnarkosningar kjósa bygging- arnefnd. í stærri sveitarfélögum Þingmál tfikunnar Frumvörp Frumvarp um breytingar á lög- um um Lánasjóð íslenskra náms- manna.LÍN verði skylt að sjá til þess að bankaútibú og sparisjóðir á landsbyggðinni geti annast af- greiðslu fyrir sjóðinn. Flm: Danfríður Skarphéðins- dóttir og fl. Frumvarp um breytingu á vegalögum. Lagt er til að upptekið verði hóffjaðragjald til að fjár- magna gerð reiðvega og vegagerð ríkisins sjái um gerð og viðhald þeirra. Flm: Guðmundur G. Þórarins- son og fl. Frumvarp um breytingu á lög- um um Húsnæðisstofnun ríkisins. Lagt er til að stofnunin hafi af- greiðslur á landsbyggðinni, eina eða fleiri í hverju kjördæmi. Flm: Málmfríður Sigurðardóttir og fl. Frumvarp um stjórn fiskveiða. Markmið laganna er að stuðla að verndun og hagkvæmari nýtingu nytjastofna á Islandsmiðum og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Stjórnarfrumvarp. Þingsalyktanir Tillaga um að fela samgöngu- ráðherra að undirbúa frumvarp um að gefa flugrekstur frjálsan á Islandi. Flm: Ásgeir Hannes Eiríksson. eru einnig starfandi skipulags- nefndir án þess að ákvæði séu um þær í skipulagslögum. í frumvarpinu er sú breyting lögð til að sveitarfélögum með 700 íbúa eða fleiri er skylt að hafa skipulags- og byggingarnefnd og heimilt að hafa sameiginlega nefnd með nágrannasveitarfélagi. Þó er heimild fyrir því að nefnd- irnar starfi áfram hvor í sínu lagi. Minni sveitarfélög mynda hins vegar með sér byggðasamlög um þessi mál. Samkvæmt lögum hefur gerð og framkvæmd skipulagsáætlana verið í höndum skipulagsstjórnar ríkisins. Sú breyting er nú lögð til að gerð og framkvæmd svæðis- skipulags, aðalskipulags og deili- skipulags verði í höndum sveitar- stjórna en landsskipulags í hönd- um ríkisins enda er þar um að ræða skipulag sem nær til margra sveitarfélaga. Málskotsréttur einstaklinga Jóhanna vék að málskotsrétti al- mennings, telji hann á sér brotið og sagði meðal annars: „Bygging- arnefnd og byggingarfulltrúa geta orðið á mistök og heimilað fram- kvæmdir sem eru annan veg en skipulag eða lög og reglur segja fyrir um. Þessi mistök geta skert Tillaga um öryggi í óbyggða- ferðum þess efnis að gerðar verði ráðstafanir til að bæta öryggi þeirra sem ferðast í óbyggðum. Flm: Kristín Einarsdóttir og fl. Tillaga um að fela ríkisstjórn- inni að efna nú þegar til sam- keppni um tillögur um einkavæð- ingu með sölu ríkisfyrirtækja og hvernig skuli að henni staðið. Flm: Kristinn Pétursson. Tillaga um að fela samgöngu- ráðherra að breyta reglum um inn- heimtu Pósts og síma þannig að lokunaraðgerðir verði mildaðar. Flm: Ásgeir Hannes Eiríksson. Tillaga um að láta kanna mögu- leika á stofnun alþjóðlegrar björg- unarsveitar með aðsetur á Islandi sem sinni björgunarmálum á Norður-Atlantshafi. Flm: Jón Kristjánsson, Jóhann Einvarðsson og Guðni Ágústsson. Fyrirspurnir Til utanríkisráðherra um hvers vegna hafi ekki verið gefið svar við þvi hvort Mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins verði leyft að gera forkönnun vegna varaflugvallar. Frá Halldóri Blöndal. Til fjármálaráðherra um af- nám jöfunargjalds og hvenær það verði afnumið. Frá Friðriki Sophussyni. hagsmuni annarra íbúa. Með því að gefa þeim sem telja rétti sínum hallað með afgreiðslu byggingar- nefndar kost á að skjóta máli sínu til ráðherra til úrskurðar er verið að tryggja á fljótvirkan hátt rétt hins almenna borgara.' Eftir að Jóhanna hafði lokið máli sínu tók Birgir ísleifur Gunn- arsson til máls og fann mjög að frumvarpinu. Kvað hann það vera miðstýringarfrumvarp og ganga í þveröfuga átt miðað við hvað væri að gerast í nágrannalöndunum. Hann sagði í upphafi máls síns að hann „hefði mjög miklar athuga- semdir við þetta frumvarp." Um lögverndaðan rétt einstaklingsins hafði Birgir ísleifur m.a. þetta að segja: „Það á ekki að vera hlut- verk ríkisins, og allra síst með lög- um, að setja reglur um það hvern- ig sveitarstjórnir eigi að umgang- ast það fólk sem hefur veitt þeim umboð og sveitarstjórnir bera ábyrgð gagnvart.” Fólk fái að hafa áhrif Birgir vék að ýmsum öðrum þáttum frumvarpsins og gagn- rýndi þar margt. Er hann hafði lokið máli sínu tók Guðrún Helga- dóttir til máls og hvað sér koma á óvart hversu mikil ágreiningur væri gerður um máliö nú því það Til fjármálaráðherra um könnun á tilhögun opinberra rekstrarverkefna. Frá Friðriki Sophussyni. Til forsætisráðherra um könnun á áhrifum lögbundinna forréttinda. Frá Friðriki Sophussyni. Til forsætisráðherra um al- þjóðlega ráðstefnu um verndun hafsins. Frá Friðriki Sophussyni. Til menntamálaráðherra um réttindastöðu kennara sem ráða sig tímabundið sem höfundar hjá Námsgagnastofnun ríkisins. Frá Danfríði Skarphéðinsdóttur. Til utanríkisráðherra um kynningu á sérstöðu Alþýðu- bandalagsins til EFTA og EB við- ræðna. Frá Þorsteini Pálssyni. Til utanríkisráðherra um hvort auknir styrklr til sjávarút- vegs í Noregi samrýmist samþykkt Fríverslunarsamtakanna um frí- verslun með fisk sem taka gildi á miðju þessu ári. Frá Þorsteini Pálssyni. Til menntamálaráðherra um hönnunarkostnað við Þjóðleik- húsið. Flm: Ásgeir Hannes Eiriksson. Til féiagsmálaráðherra um skipulag svæðisins umhverfis Gullfoss og Geysi. Frá Eiði Guðnasyni. hefði ekki komið fram í nefndinni sem vann að málinu. Hún lagði áherslu á að það þyrfti að styrkja stöðu skipulagsmála og að gefa fólki aukna möguleika til að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi væri af hinu góða. Þó eflaust orki einstaka liðir frumvarpsins tvímælis þá virðist það í heild sinni til mikilla bóta. Það á eftir að ræðast á Alþingi og nefndir að yfirfara frumvarpið og hugsanlega verða gerðar á því einhverjar lagfæringar. Einstaka atriði sem snúa að valdsviði ríkis- ins gagnvart sveitarfélögunum virðast líklegust til að valda ein- hverjum ágreiningi. Það ætti þó ekki að koma í veg fyrir þetta, um margt merka frumvarp, verði af- greitt frá Alþingi. TRYGGVI HARÐARSON Til heilbrigðisráðherra um starfrækslu heilsugæslustöðva og laun laekna á þeim. Frá Ólafi Þ. Þórðarsyni. Til forsætisráðherra um hvaða ráðherra beri ábyrgð á því að marka stefnu og skipuleggja úr- bætur í meðferð nauðgunarmála. Frá Guðrúnu Agnarsdóttur. Til dómsmálaráðherra um fé- lagslegar aðgerðir fyrir fanga og aðbúnað þeirra. Frá Guðrúnu Agnarsdóttur. Til fjármálaráðherra um virð- isaukaskatt í ríkjum Evrópu- bandalagsins. Frá Guðmundi H. Garðarssyni. Til menntamálaráðherra um stöðu byggingarframkvæmda við grunnskóla og dagvistarheimili. Frá Ólafi Þ. Þórðarsyni. Til samgönguráðherra um hvað hann hafi gert til að tryggja að flugfélagið Flying Tigers lendi áfram í Keflavík. Frá Ólafi Þ. Þórðarsyni. Til fjármálaráðherra um nýt- ingu persónuafsláttar látins maka. Frá Kolbrúnu Jónsdóttur. Til fjármálaráðherra um kostnað við upptöku virðisauka- skatts. Frá Þórhildi Þorleifsdóttur. Til iðnaðarráðherra um hverj- ir hafi fengið úthlutað úr Þróunar- É É I .1. I ffl » • ttllll - dj tll LÍJ tti LÖ tö sjóði lagmetisiðnaðarins og hversu mikið. Frá Ásgeiri Hannes Eiríkssyni. Til samgönguráðherra um áætlanir um að gera nýja olíuhöfn á íslandi til að taka á móti ört stækkandi olíuskipum. Frá Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni. Til menntamálaráðherra um afstöðu hans til tillagna á norræn- um vettvangi um að leggja niður Norrænu sjóréttarstofnunina og . um að leggja niður Norrænu þjóð- fræðistofnunina. Frá Ragnhildi Helgadóttur. Til dcmsmálaráðherra um, nýja lögregluvarðstofu í Stykkis- hólmi. Frá Inga Birni Albertssyni. Til forsætisráðherra um nefndir og ráð á vegum ríkisins og greiðslur fyrir setu í þeim. Frá Málmfríði Sigurðardóttur og Danfríði Skarphéðinsdóttur. Til félagsmálaráðherra um álagningu fasteignagjalda fyrir ár- ið 1990 í kaupstöðum og hrepp- um. Frá Hreggviði Jónssyni. Til heilbrigðisráðherra um eftirlit með innflutningi á græn- meti og öðrum matvælum. Frá Stefáni Valgeirssyni. Til heilbrigðisráðherra um fjölda fóstureyðinga á síðasta ári og kostnað vegna þeirra. Frá Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.