Alþýðublaðið - 17.02.1990, Síða 12
Fólk
Harpa Hrund Haf-
steinsdóttir, heimasæta
að Ytra-Vallholti í Skaga-
firði, hafði sannarlega
heppnina með sér um síð-
ustu helgi. Þá keypti hún
tíu lottóraðir fyrir föður
sinn í kaupfélaginu í
Varmahlíð. Þetta kvöld
blótaði fjölskyldan þorra í
Miðgarði, — en daginn
eftir var kveikt á mynd-
bandstækinu til að ,,sjá
Bassa vinna söngva-
keppnina", eins og hús-
bóndinn Hafsteinn Lúð-
víksson segir í samtali
viö blaðið Feyki. Á upp-
tökunni var drátturinn í
lottóinu sýndur, og kom
þá í Ijós að fjölskyldan var
6,5 milljónum króna rík-
ari. Þau Hafsteinn og
Steinunn Sæmunds-
dóttir kona hans eru þó
ákveðin í að láta mikla
peninga ekki rugla sig í
ríminu. „Maður býr bara
áfram," segja þau.
★
Bassi, sem getið er í
klausunni hér á undan er
að sjálfsögðu Skagfirðing-
ur, heitir reyndar Hörður
G. Ólafsson, tannsmiður
á Sauðárkróki, lék í eina
tíð í hljómsveit með þeim
landsfræga stuðkalli,
Geirmundi Valtýssyni,
sem oftlega hefur komið
við sögu í Islandsriðli
Sönglagakeppni Evrópu,
og oft naumlega misst af
sigrinum. Hörður er nú í
annarri hljómsveit á
Króknum, enda ríkir þar
sem víðar samkeppni í
hljómsveitabransanum.
★
Umhverfismál eru orð-
in mál sem allur almenn-
ingur hugsar um, og mikil
og góð breyting hefur
orðið á öllu hugarfari
fólks til þessara þátta í lífi
okkar. Á næsta ári fer
fram í Reykjavík norræn
ráðstefna — Miljö 91 — og
fjallar um umhverfis-
menntun. Stendur hún
dagana 12—14. júní. Rík-
isstjórnin stendur að baki
ráðstefnuhaldinu, en
þriggja ráðuneyta sam-
starfsnefnd er þegar farin
að vinna að ráðstefnu-
haldinu. í nefndinni eru
Þorvaldur Örn Arna-
son, námsstjóri, Elín
Páimadóttir, blaðamað-
ur tilnefnd af félagsmála-
ráðuneyti, og Hrafn V.
Friðriksson, tilnefndur
af heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneyti. Sig-
urlín Sveinbjarnardótt-
ir, námsstjóri vinnur í
hálfu starfi að undirbún-
ingi. Búast má við mikl-
um fjölda ráðstefnugesta.
.................................................................................
Laugardagur 17. febr. 1990
Verðlaunahafarnir
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
Skipulagshneykslid í Rimahverfi:
Hönnuðir borgi hnndvömmina
— segir Gissur Símonarson í byggingarnefnd Reykjauíkur
„Prufuholurnar voru
boraðar mánuði eftir að
deiliskipulagið var sam-
þykkt. Til þess tíma
hafði verið notast við
dýptartöiur, sem fengust
þegar holræsi var lagt
frá Gufuneskirkjugarði,
en sá gröftur gaf til
kynna 2—4 metra dýpi,“
sagði Gissur Símonar-
son, fulltrúi Alþýðu-
fiokksins í byggingar-
nefnd Reykjavíkur.
Alþýðublaðið benti fyrst
fjölmiðla á þau stórbrotnu
mistök sem orðið hafa á
deiliskipulagi Rimahverfis.
Hafa borgaryfirvöld lagt á
sig mikið erfiði að koma af
sér allri sök í þessu máli.
Talsmenn meirihluta í borg-
inni vilja meina að þrátt
fyrir þessi stórfelldu skipu-
lagsóhöpp hafi þeir þrátt
fyrir allt hagnast á þeim, —
fólk vilji fremur fjölbýlishús
en einbýlishús.
Gissur Símonarson sagði
að augljóslega hefði átt að
vinna rétt að skipulaginu
frá fyrstu tíð, mistök kost-
uðu ævinlega mikið fé, ekki
síst skipulagsmistök.
Kvaðst hann undrast það
að hjá borginni eru engar
sérstakar mótaöar vinnu-
reglur við kannanir á dýpt
jarðvegs, — ekki fyrr en
kemur að hönnun gatna.
Væri því greinilegt að hjá
skipulagsdeild borgarinnar
rikti skipulagsleysi. „Vinnu-
brögð eins og þessi verður
aö bæta hið fyrsta, þau
mega ekki endurtaka sig,"
sagði Gissur og bætti við að
að hans áliti bæri arkitekt-
um og verkfræðingum sem
skaða sem þessum valda
með vinnubrögðum sínum,
að greiða þann kostnað
sem af mistökunum hljót-
ast.
Til viðbótar því að lóðir
hafa reynst „botnlaus hít“ á
hluta hverfisins, hefur tek-
ist heldur slysalega til með
hönnum Langarima, eða
Ormsins langa, sem orðiö
hefur að krókóttum stíg,
nánast ófærum til strætis-
vagnaaksturs.
Jfc*
■
Minnihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur:
Vill meira fé til „mjúku málanna
VEÐRIÐ
I DAG
Austan eða norðaustan-
átt, víða stormur eða rok
við suðurströndina en
hæg vestlæg átt i öðrum
landshlutum. Hægast i
innsveitum Norðanlands.
Snjökoma eða slydda um
sunnanvert landið og allt
að þriggja stiga hiti en úr-
komulaust og vægt frost
norðan til.
í gærmorgun voru verðlaun afhent fyrir krossgátu- og
myndagátulausnir Alþýðublaðsins. Krossgátuverð-
launin féllu i hlut Önnu Guðmundsdóttur Leirubakka
10.
Vinningshafinn fyrir lausn á myndagátu var starfs-
fólk bókhaldsdeildar Búnaðarbankans. Höfuöpaur-
inn var Sigurborg Hjaltadóttir sem á myndinni sést
taka við verðlaununum. — A-mynd E.ÓI
— en minna til ráöhúss og rándýrrar
gatnageröar uiö Sœtún
Minnihlutinn í borgar-
stjórn iagði til verulegar
breytingartillögur við
fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar fyrir árið
1990. Minnihlutinn legg-
ur til að rekstrargjöld
borgarinnar verði aukin
um 232 milljónir króna
miðað við fjárhagsáætl-
un meirihlutans. Veru-
legur áherslumunur er á
tillögum minni- og meiri-
hlutans, minnihlutinn
vill leggja höfuðáherslu
á uppbyggingu félags-
legrar þjónustu en skera
niður í ýmsum fram-
kvæmdum, s.s. við ráð-
húsið, en þar vill minni-
hlutinn að skorið verði
niður um 250 milljónir
og að auki má nefna að
minnihlutinn vill fresta
umfangsmiklum gatna-
gerðarframkvæmdum
við Sætún sem áætiað
var að kostuðu yfir 100
milljónir.
Minnihlutinn leggur
áherslu á að tekjur borgar-
innar hafi alltaf orðið hærri
en áætlað hafi verið, þess
vegna sé óhætt að hækka
rekstrargjöldin sem því
nemur. Við niðurskurð á
framkvæmdum við ráðhús,
gatnagerðina i Sætúni og
meö ýmsum tilfærslum á
fjármagni losna um 600
milljónir króna sem minni-
hlutinn vill að veittar verði
til eflingar á margvíslegri
félagslegri þjónustu.
Skólamál eru þar ofar-
lega á lista, minnihlutinn
vill auka hlut þeirra um
tæpar 140 milljónir, dag-
vistarmál eiga líka að fá
mun hærri skerf en meiri-
hlutinn gerir ráð fyrir, alls
gerir minnihlutinn ráð fyrir
að hækka framlag til bygg-
ingar dagheimila og leik-
skóla um tæpar 90 milljónir
króna miðað við fjárhags-
áætlun meirihlutans.
Minnihlutinn vill að dag-
vistarrýmum verði fjölgað
um 1800 á næstu fjórum ár-
um og bendir á að það sé
rangt hjá Davíð Oddssyni
að Reykjavíkurborg sinni
hlutverki sínu vel hvað
þennan málaflokk varðar.
Samkvæmt upplýsingum
sem minnihlutinn hefur
sent frá sér þá stendur
Reykjavík lakast höfuð-
borga á Norðurlöndum
þegar borinn er saman
fjöldi þeirra barna á for-
skólaaldri sem eiga kost á
heilsdagsvistun í höfuð-
borgunum. Reykjavík hef-
ur 14% en t.d. Stokkhólmur
sem stendur best höfuð-
borganna býður um 60%
barnanna upp á heilsdags-
vistun.
Varðandi málefni aldr-
aðra vill minnihlutinn aö
framlag í þeirra þágu
hækki um 77 milljónir
króna, úr 222.5 milljónum
króna í tæpar 300 milljónir.
Framlag til B-hluta Borgar-
spítala á lika að hækka
samkvæmt tiilögum minlni-
hlutans um rúmlega 100
milljónir en þar með fjölgar
hjúkrunarrýmum veru-
lega.
Slinnihlutinn hefur bent
ð ef farið hefði verið að
þeirra tillögum varðandi
málefni barna og aldraðra
hefði Reykjavíkurborg eytt
í þau rúmlega 1300 milljón-
um króna meira en hún
hefur gert á kjörtímabilinu.
Að auki hefur minnihlutinn
bent á að á kjörtímabilinu
hefur verið varið rúmlega
2.5 milljörðum í ráðhús og
snúningshús á Öskjuhlíð, fé
sem hann hefði kosið að
verja í annað. Breytt for-
gangsröð er boðskapur
minnihluta borgarstjórnar-
innar með tillögum sínum.
ÍSLAND
Hitastig
■ borgum
Evrópu
kl. 12
i gær
að islenskum
tima.