Alþýðublaðið - 21.02.1990, Page 3

Alþýðublaðið - 21.02.1990, Page 3
Miðvikudagur 21. febr. 1990 3 Nýjar leidir í feröamálum: Aukinn áhugi á Austur-Evropu Vöruskiptajöfnudur hagstœdur árid 1989: Aukin verðmæti sjávarafla fyrst og fremst ástæðan Nokkuð aukinn áhugi virðist fyrir því meðal Islendinga að leggja í ferðalög til Austur-Evr- ópu í sumar, í kjölfar þeirra hræringa sem orðið hafa í álf- unni á undangengnum mánuð- um. Samkvæmt upplýsingum sem Alþýðublaðið aflaði sér hjá fjölda ferðaskrifstofa í gær er nokkuð meira en venjulega um að fólk spyrjist fyrir um möguleika á ferðum til Aust- ur-Evrópu. Sumir þeir sem Al- þýðublaðið ræddi við töldu að þetta ætti jafnvel enn eftir að aukast, sérstaklega með tilliti til þess að ferðaskrifstofurnar hafa tiltölulega nýlega sent frá sér upplýsingar um þær ferðir sem þær bjóða upp á í sumar. Ein íslensk ferðaskrifstofa, Alís í Hafnarfirði, hyggst reyna að feta sig meira inn á Austur-Evrópu en verið hefur. Að sögn Jóhanns D. Jónssonar hjá Alís verður skrif- stofan með ferðir til Ungverja- lands í sumar og verið er að kanna möguleika í Tékkóslóvakíu og Pól- landi og jafnvel hugmyndir um að færa sig yfir til Albaníu og Víet- nam þegar fram í sækir. Kjartan Helgason hjá Ferða- skrifstofu Kjartans Helgasonar, sem verið hefur með Búlgaríu- ferðir i 27 ár, sagði að hann merkti ekki verulegar breytingar á áhuga fólks á ferðum til Austur-Evrópu. Það væri þó Ijóst að fyrirspurnir væru eitthvað fleiri en áður hefði gerst. Hann sagði það vandamál í þessum löndum Mið- og Aust- ur-Evrópu, að þar væri mjög tak- mörkuð ferðamannaaðstaða og lítið væri um hótelbyggingar sem stendur. Austur-Evrópulöndin væru því ekki tilbúinn að taka á móti fleira fólki en þau hafa gert á undanförnum árum. Kostnaður við ferðir til Aust- ur-Evrópu er ekki ýkja mikill, nefna má dæmi um 6 daga ferð til Ungverjalands með gistingu og morgunverði á rétt rúmar 40.000 krónur, sem varla getur talist ýkja dýrt þegar mið er tekið af mörg- um öðrum áfangastöðum. Að auki ku verðlag í Austur-Evrópu vera hagstætt ferðalöngum sem stend- ur. Á undanförnum árum hafa ís- lenskar ferðaskrifstofur boðið fólki m.a. upp á rútuferðir um Austurríki og yfir til Ungverja- lands og hafa þær alltaf gengið vel, en hinsvegar hefur ávallt ver- ið takmarkaður sætafjöldi í slíkar ferðir. Berlín virðist nú einnig vera eftirsótt borg að ferðast til, Al- þýðublaðið hefur fregnað af einni ferð a.m.k. þar sem farið verður til Berlínar á næstunni, gagngert til að berja augum Berlínarmúrinn meðan hann stendur enn uppi. Hjá Ferðaskrifstofu stúdenta feng- ust þær upplýsingar að ungt fólk sem hygðist fara í lestarferðalög, Inter rail ferðalög svokölluð, spyrðist í auknum mæli fyrir um möguleika á að ferðast austur fyr- ir járntjald. Samkvæmt því sem Alþýðu- blaðið fregnar frá heimildarmönn- um sínum erlendis er víða orðin tískubóla að ferðast til Austur-Evr- ópu um þessar mundir, sérstak- lega í Bandaríkjunum, þar er París næstum dottin upp fyrir en Berlín, Prag og Búdapest hafa tekið sæti hennar. Nú er bara að bíða og sjá hvort íslendingar feta í fótspor annarra hvað þetta varðar, sam- kvæmt heimildum Alþýðublaðs- ins virðist það vera líklegt að hlut- ur þeirra aukist að mun þegar fram í sækir. Vöruskiptajöfnuður íslend- inga var hagstæður um 7,8 milljarða á síðasta ári á föstu gengi. 1988 var hann óhag- stæður um 1,1 milljarð á sama gengi. Skýringin á þessum mun felst fyrst og fremst í auknum verðmætum útflutn- ings, einkum sjávarafurða. Verðmæti útflutnings jókst um 4% árið 1989, miðað við árið áður á föstu gengi, þar af jókst verðmæti útfluttra sjávaraf- urða um 3%. Sjávarafurðir voru yfir 70% af verðmæti út- fluttra vara á árinu 1989. Inn- flutningur dróst hinsvegar saman í fyrra miðað við 1988, í heild um 7%. Þessar tölur þýða örlítið batn- andi stöðu þjóðarbúsins og um leið væntanlega að vaxtagreiðslur af skuldum þjóðarbúsins verða ekki jafn erfiðar og áætlað var. Um leið þýðir samdráttur í inn- flutningi og hagstæður vöru- skiptajöfnuður að þjóðin eyðir ekki peningum sem hún ekki á. Samkvæmt spá Þjóðhagsstofn- unar fyrir árið 1989 var reiknað með þvi að viðskiptahalli yrði 6,5 milljarðar — nú stefnir allt í að hann verði um 6 milljarðar, eða hálfum milljarði lægri en spá Þjóð- hagsstofnunar gerði ráð fyrir. Þetta þýöir að viðskiptahallinn er um 2% af vergri landsframleiðslu árið 1989, næstu ár á undan var liann mun meiri, 3,5% árið 1987 og 3,7% árið 1988. Viðskiptajöfnuður er samansett- ur úr þremur hlutum, vöruskipta- jöfnuði, þjónustujöfnuði og vaxta- jöfnuði. Sem fyrr segir er vöru- skiptajöfnuðurinn hagstæður um 7,8 milljarða, líklegt er talið að þjónustujöfnuðurinn verði óhag- stæður um einn milljarð en á móti verður vaxtajöfnuður óhagstæður um rétt tæpa 13 milljarða. Þar vega þyngst vextir af erlendum ' lánum. Þegar þessar þrjár tölur eru reiknaðar saman kemur i ljós um 6 milljarða viðskiptahalli á verslun við útlönd. Sem fyrr segir er það einkum aukningur á verðmæti útfluttra sjávarafurða sem veldur þessari hagstæðu þróun vöruskiptajöfn- uðar, en samkvæmt þeim heimild- um sem Alþýðublaðið hefur aflað sér geta verið á því þrjár skýring- ar, þ.e. að vermætf útflutts sjávar- afla var meiri en spáð var. í fyrsta lagi að verðmætasköpun hafi ver- ið meiri en búist var við, í öðru lagi að verð á erlendum mörkuðum hafi verið hærra en gert var ráð fyrir, eða í þriöja lagi að selt hafi verið af birgðum sem til voru í landinu fyrir. Almennur vöruinnflutningur hefur dregist saman um á að giska 15% á síðasta ári í samræmi við skerðingu á kaupmætti, en sam- dráttur í einkaneyslu verður lik- lega um 6% á árinu 1989. Alþjódasamband jafnaöarmanna: Fagnar frelsi Mandela Alþjóðasamband jafnaðar- manna hefur lýst yfir einlægri ánægju sinni með frelsun blökkumannaleiðtogans Nel- sons Mandela, að því er segir í skeyti sem Alþýðublaðinu hefur borist. Jafnframt þessu leggur alþjóðasambandið áherslu á að þjóðir heimsins megi ekki láta af þrýstingi á stjórn Suður-Afríku svo þar megi nást fram enn frek- ari umbætur í átt til lýðræðis og jafnréttis milli kynstofna. Alþjóðasamband jafnaðarmanna leggur áherslu á að baráttunni fyrir umbótum í Suöur-Afríku sé ekki lok- ið og enn sé mikið verk óunnið svo hægt sé að aflétta aðskilnaðarstefn- unni sem ríkir i landinu. Frumkvæði De Klerk, forseta Suður-Afríku er lofað en um leiö minnt á að þjóðir heimsins hafi enn stóru hlutverki aö gtgna svo koma megi á nauðsyn- legum viöræðum milli meirihluta blökkumanna annarsvegar og hvíta minnihlutans hinsvegar. Dœmalaus frekja Mér til leiðinda horfði ég á sjónvarpið um daginn, þegar þingfréttamaður bauð tveim þingmönnum að ræða stjórnarfrumvarp um nýjan orku- skatt. Þingmennirnir voru Ólafur Ragnar fjármálaráðherra og Hall- dór Blöndal sem telur þetta vera nýja og óvægna skattheimtu. Eftir litla stund vissi ég fátt hvað þessir tveir rifust um og fréttamað- urinn réði alls ekki ferðinni, gestir hans eins og götustrákar. Þeir töl- uðu okkur áheyrendur út í móa, skutu lausum og föstum skotum hvor á annan, fréttamaðurinn reyndi að skjóta á ská að þeir yrðu nú að fara að stytta mál sitt en þeir létu sem þeir heyrðu ekki. Þeir voru að njóta sín til fulls eins og fyrri daginnj, þegar sjónvarpsvél- in syngur þeim lofsöngva, eða það halda þeir. Sjónvarpsvélin sýnir hins vegar oft sannleikann, ljótan og sorglegan, um fullkomna fyrir- litningu stjórnmálamanna á al- menningi í landinu. Málgleði þessara atvinnu- manna var mikil en dylgj- urnar með ólíkindum. Maður var allt í einu kominn í sandkassa æskunnar, þar sem tveir óprúttnir strákar kasta blaut- um sandi hvor framan í annan af því að annar er í rauðum pollabux- um en hinn í bláum. Fréttamaðurinn var að lokum eins og hann hefði villst inn á þennan leikvöll sem væri einka- völlur og það sem verra var; stjórnandi útsendingar lét þing- mennina komast upp með þessa dæmalausu frekju. Hér átti bara eitt við; loka fyrir þessa herra og kenna þeim í eitt skipti fyrir öll, að ef þeir haldi sér ekki við efnið og sýni almenna kurteisi, verði framvegis lokað fyr- ir þá. Þarna var nóg komið af sand- kassaleik tveggja þingmanna fyrir framan sjónvarpsvélar, engin til- raun gerð til að ræða rólega og æs- ingalaust um þrætuefnið. Stað- reyndir voru snúnar úr hálsliðn- um, leikið með tölur, bornar upp sakir á bökkum Blaöurfljóts, uns umræðan var rugl og í raun til skammar fyrir alla, ekki hvað síst stjórnanda útsendingar, sem gaf lengri tíma en til stóð fyrir þetta rugl en þorði ekki að loka fyrir það, sem hefði verið það eina rétta. H vernig væri að sérprenta þessa undarlegu umræðu, öðrum til við- vörunar svo sð lesendum verði ljóst, hvað heimskan tekur völd á greindum mönnum? Annars er út í hött að vera að skrifa um stjórnmál á íslandi. Hér býr of margt fólk sem vill engar breytingar, sættir sig endalaust við fagurgala og sjálfsdýrkun margra alþingis- manna, sérstaklega þeirra sem duglegastir eru að láta á sér bera, þótt þeir komi litlu í verk til að bæta mannlífið, lofi upp í gatslitn- ar ermar, saki hver annan um ósannindi og rangfærslur svo maður heldur að þessir menn séu allir kálfar á svelli staðreynda, sí- fellt á hausnum, en það er partur af leiknum sem heitir stjórnmál á íslandi. Það er kannski það vitlausa við þetta, að enginn virðist nenna að skrifa um það og veita þessum mönnum þá áminningu sem þeir þurfa. Auðvitað veit ég að við eig- um greinda og duglega stjórn- málamenn sem eru skyggnir á raunveruleikann. Þeir virðast bara hafa glatað gáfunni til að sjá, eru hættir að horfa nema í eigin barm og á flokksbringuna breiðu, sem gefur þeim öryggiskennd svo lengi sem þeir una sér í hlýjunni. ✓ g skrifaði sl. miðvikudag um þá staðreynd, að þing- menn á Alþingi breyta engu um þjóðarhag og heill hins almenna borgara því að „hinir" vilja það ekki. Ungur maður þakk- aði mér reyndar fyrir þá grein og það gladdi mig ótrúlega, því göm- ul rödd sem hittir á ungan berg- málsklett hlýtur að gleðjast. Mað- ur hefur þá ekki skrifað án þess að einhver fyndi samhljóm í orðun- um, m.a. þeim í greininni, að ungt fólk væri að glata ástinni því það væri svo erfitt að lifa í landinu. Fá- tækt og erfiðleikar eru miklir þrátt fyrir fagurgala þeirra sem við kjós- um til að fara með mál okkar. Þeir virðast fæstir þurfa að hafa áhyggjur af daglegum rekstri á því sem kallast heimili og byggir á því að tveir einstaklingar lofa að standa saman í blíðu og stríðu, elska og virða hvor annan í þraut- um og gleði og raða sér síðan fagn- andi í þá súlu sem ber uppi þjóðar- húsið. Það er bara manniega stað- reyndin sem ræður svo miklu; of mikil vinna og of lítið í aðra hönd, molar úr sterkustu súlum. Jónas Jónasson

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.